Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 59

Morgunblaðið - 30.10.1999, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 5S* Góður árangur á heimsmeistaramótinu SKAK Oropesa de Mar, Spáni HEIMSMEISTARAMÓT BARNA 24.10.-6.11. 1999 SEX ungir og efnilegir íslenskir skákmenn tefla nú á heimsmeist- aramóti barna og unglinga 18 ára og yngri á Spáni. Fimmta umferð var tefld á fímmtudagskvöld og hafa þeir Davíð Kjartansson og Dagur Arngrímsson hlotið flesta vinninga Islendinganna, eða þrjá. Frammistaða Davíðs er enn sem komið er langt umfram það sem bú- ast mátti við samkvæmt skákstig- um, en erfiðara er að meta árangur Dags þar sem fáir í hans flokki hafa skákstig. Þó er auðvitað ljóst að hann stendur sig mjög vel þar sem í öllum aldursflokkum keppa efnileg- ustu skákmenn heims. A heimsmeistaramótinu er bæði teflt í drengja- og stúlknaflokkum og er mótinu skipt í fímm aldurs- flokka. Eins og mörg fordæmi eru fyrir í skákinni geta stúlkur teflt í drengjaflokkunum og það hefur m.a. bandaríska skákstjarnan Irina Krush nýtt sér, en hún keppir í sama flokki og Davíð og er jöfn honum að vinningum. Vinningafjöldi íslensku keppend- anna þegar mótið er tæplega hálfn- að er þessi: Davíð Kjartansson 3 v. (20.-38.) Harpa Ingólfsdóttir 2 v. (37.-51.) Sigurður P. Steindórss. 2'Æ v. (41.-64.) Ingibjörg E. Birgisd. 1 v. (56.-62.) Guðjón H. Valgarðss. 2 v. (65.-87.) Dagur Arngrímsson 3 v. (22.-43.) Það er fróðlegt að skoða hverjir andstæðingar þeirra Davíðs og Dags hafa verið. Davíð hefur háð eftirtaldar viðureignir: 1. D.K. - Andrie Zaremba (2.336) 1-0 2. D.K. - Spyridon Kapnisis (2.324) Vt-'A 3. D.K. - Jerome Blot (2.299) Vt-Vi 4. D.K. - Diego Flores (2.319) 0-1 5. D.K. - Giorgi Paresishvili (2.272) 1-0 Meðal þátttakenda í riðlinum er einn stórmeistari og fimm alþjóð- legir meistarar. Miðað við skákstig fyrir mótið er Davíð í 69. sæti í styrkleikaröðinni í sínum riðli af 90 keppendum. Allir andstæðingar Davíðs í fyrstu fimm umferðunum eru hins vegar í 22.-38. sæti miðað við sama mælikvarða. Davíð er með 2.154 stig, en andstæðingar hans hafa að meðaltali 2.310 stig. Árangur Davíðs í fyrstu fimm um; ferðunum mælist upp á 2.383 stig. I sjöttu umferð mætir Davíð Slóvak- anum Michal Kujovic (2.291). Dagur Amgrímsson hefur náð sínum vinningum á eftirfarandi hátt: 1. D.A. - Jose Vicente P. Lozoya 1-0 2. D.A. - Tuomas Virkamaki 1-0 3. D.A. - Ante Brkic (2.221) 0-1 4. D.A. - Borja N.O. De Orru-O 1-0 5. D.A - Lu Zhaoya 0-1 Á þessum úrslitum sést að Dag; ur berst til þrautar í hverri skák. I sjöttu umferð teflir hann við Spán- verjann Jose Cuenca Jimenez. Það er misjafnt hversu marga keppendur einstakar þjóðir eiga á heimsmeistaramótinu, en eftirtald- ar eru fjölmennastar: Spánn 76 keppendur Rússland 32 keppendur Frakkland 31 keppandi Ungverjaland 29 keppendur Þýskaland 27 keppendur Pólland 22 keppendur Bandaríkin 20 keppendur o.s.frv. I gær, föstudag, var frídagur á mótinu, en sjötta umferð verður tefld í dag. Arnar efstur á haustmótinu Arnar Gunnarsson hefur eins vinnings forystu á haustmóti Tafl- félags Reykjavíkur þegar ein um- ferð er til loka mótsins. í tíundu umferð fóru leikar þannig í A- flokki: Arni Kristjánss. - Bjöm Fr. Bjömss. 1-0 Davíð Kjartansson Dagnr Arngrímsson Júlíus Friðjónss. - Stefán Kristjánss. 'A-'/z Þorvarður Olafss. - Jón Halldórss. Vt-'k Sigurbjörn Bjömss. - Einar K. Einarss.VÍ!-1/! Sævar Bjarnason - Kristján Eðvarðss. 1-0 Arnar Gunnarss. - Jón V. Gunnarss. 1-0 Þama náði Arnar mikilvægum sigri gegn Jóni Viktori Gunnars- syni og stendur því með pálmann í höndunum fyrir síðustu umferðina. Staðan fyrir síðustu umferð: 1. Arnar E. Gunnarsson 8 v. 2. -3. Sigurbjörn Björnsson 7 v. 2.-3. Sævar Bjarnason 7 v. 4. Jón Viktor Gunnarsson 6V2 v. 5. Stefán Kristjánsson 6 v. 6. Jón Árni Halldórsson 5V4 v. o.s.frv. Síðasta umferð mótsins var tefld í gærkvöldi. Kvennamót hjá Helli á morgun Annað kvennamót Taflfélagsins Hellis í haust verður haldið sunnu- daginn 31. október og hefst kl. 13. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfi með 10 mínútna um- hugsunartíma. Til þess að hvetja konur til þátt- töku í skákmótum hefur Taflfélagið Hellir ákveðið að þátttaka í kvennamótum félagsins sé ókeypis. Engu að síður verða verðlaun veitt fyrir þrjú efstu sætin á mótinu. Ekkert aldurstakmark er á mót- inu. Mótið er haldið í Hellisheimilinu, Þönglabakka 1 í Mjódd. Áslaug Kristinsdóttir sigraði á síðasta kvennamóti Hellis sem haldið var í september. Hraðskákmót TR á morgun Hraðskákmót Taflfélags Reykja- víkur fer fram sunnudaginn 31. október kl. 14. Tefldar verða 2x9 umferðir Monrad með 5 mín. um- hugsunartíma. Þátttökugjald: 16 ára og eldri kjf, 500 (kr. 700 f. utanfélagsm.), 15 ára og yngri kr. 300 (kr. 500 f. utanfé- lagsm.). Vegleg verðlaun. Allh- vel- komnir. Skákmót á næstunni 31.10. Hellir. Kvennamót kl. 13 31.10. SA. Hausthraðskákmót kl. 14 31.10. TR. Hraðskákmót TR 2.11. TR. Bikarmót TR. 4.11. TR. Mánaðarmót 6.11. SI. SÞÍ, drengir og stúlkur 7.11. Hellir. Islandsmót í netskák 8.11. Hellir. Þemamót Daði Orn Jónsson*' Opið alla daga vikunnar frá kl. 10.00 - 19.00 Höf< hum bætt við Irúðum : nýrra titla Gífurlegt úrval af geisladiskum á hreint ótrúlegu verði! Þú finnur allar tegundir tónlistar: Rokk - Popp - Blús - Djass - Klassík - Heimstónlist - Kántrý -Þýska og Skandinavíska tónlist og margt, margt fleira. mymibontdur|Tlt, PC tö*vu,e'kir á góðu verðM^L Póstkröfusími: 567 1830 RICKY MARTtN Ricky Martin Almennt verð: 2.199.- Okkar verð: v:-,... -j? w. *' ‘ i. "C® "RICKY í t • 'W MARTIN Ricky Martin A Tribute Verð 1.699,- Verð 399,- Dean Martin Ýmsir rapparar Gangsta Rap Verð 999,- Smashing Pumpkins Adore Jet Black Joe You Ain't here Verð 1.299,- Verð 199,- Led Zeppelin 2CD Remasters Almennt verð: 3.299.- Okkar verð: Verð 2.699,- Dean Martin Ýmsir - 4CD Box 20 great love songs Disco Fever Bob Marley Legend Almennt verð: 2.199.- Okkar verð: Ástarperlur 2 Ýmsir Peter Green Destiny Road The Shadows 3CD Good Vibrations Verð 899,- Verð 1.999,- Verð 1.699,- Verð 999,- Verð 1.699,- Verð 1.899,- T8E fOBLOS •GREATE5T Cuff Richard 1 9 6 8 s 4b Xmas Karaoke Line Dance Party The *°n9s of Celine Dione Verð 299,- Verð 999,- Pan Pipe play Movie songs Verð 499,- The World's Greatest Pan Pipe album 2 CD Verð 999,- Korn Follow the leader Almennt verð: 2.199.- Okkar verð: Verð 1.699,- Cliff Richard 1960's Verð 899,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.