Morgunblaðið - 05.11.1999, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Óhöpp og vandræði í Gilinu
Jarðgöng eða
hitalögn?
Morgunblaðið/Kristján
Nemendur
fræðast um
sjávarútveginn
ÓLAFUR Ásgeirsson, aðstoðaryfíi'-
lögregluþjónn á Akureyri, segir ým-
islegt hægt að gera til að koma í veg
fyrir óhöpp í Kaupvangsstræti, Gil-
inu svonefnda, en þar rann strætis-
vagn stjórnlaust niður götuna í
fyrrakvöld. Eignatjón varð en engin
slys á fólki. Gilið er næst umferðar-
mesta gata bæjarins.
í fyrsta lagi benti Ólafur á að öku-
menn ættu að hafa vit á að velja sér
aðrar ökuleiðir milli bæjarhluta
væru þeir á vanbúnum bílum. Einnig
nefndi hann að hægt væri að leggja
hitalögn í götuna þannig að hún væri
alltaf auð, en um væri að ræða dýra
framkvæmd og rekstur. Þá sagðist
Ólafur hafa vai'pað fram þeirri hug-
mynd að gerð yrðu jarðgöng frá
gömlu kartöflugeymslunni við inn-
keyrslu í Brekkuskóla og niður í
Hafnarstræti að Umferðarmiðstöð.
„Eg veit þetta er rándýrt, en með
nútímatækni væri þetta mögulegt,“
sagði Ólafur.
Kirkjustarf
Kyrrðar- og bænastund verður í
Svalbarðskirkju næstkomandi
sunnudagskvöld, 7. nóvember, kl. 21.
Minnst látinna og geta kirkjugestir
kveikt á kerti í minningu látinna vina.
MÖÐRUVALLAPRESTAKALL:
Barna- unglingaguðsþjónusta verður
í Bakkakirkju næstkomandi sunnu-
dag, 7. nóvmeber og hefst hún kl. 11.
Kór kirkjunnar syngur, organisti er
Birgir Helgason. Fermingarbörn að-
stoða. Foreldrar eru hvattir til að
mæta með bömum sínum.
Fyrirlestur um
Einar Bene-
diktsson
GUÐJÓN Friðriksson sagnfræðing-
ur flytur fyrirlestur í Safnahúsinu á
Húsavík næstkomandi sunnudag, 7.
nóvember. Fyrirlesturinn nefnist
„Einar Benediktsson og Dettifoss“
og hefst hann kl. 15.
Skartgripir
á Karólínu
FRIÐRIK Freyr Flosason gullsmið-
ur opnar sína fyrstu sýningu á
handunnum skartgripum á Kaffí
Karólínu á laugardag, 6. nóvember.
Friðrik Freyr útskrifaðist frá Iðn-
skólanum í Reykjavík árið 1998.
Hann lærði á Gullsmíðastofunni
Skart á Akureyri. Sýningin verður
opin alla daga frá 6. nóvember til 6.
desember.
Bingó
KFUM og K heldur bingó á sunnu-
dag, 7. nóvember, kl. 15 í félagsheim-
ilinu í Sunnuhlíð til styrktar starfí fé-
lagsins. Boðið verður upp á mola-
sopa og sjoppa verður opin.
Loks nefndi Ólafur að hægt væri
að minnka brekkuna eitthvað með
því að taka af henni við Frímúrara-
húsið. Hann sagði lögreglu loka Gil-
inu í fljúgandi hálku, en þó svo að
sett væru upp skilti sem greindu frá
lokun væra margir sem ekki virtu
þau og ækju eftir sem áður um göt-
una.
Mikil umferð gangandi
fólks í Gilinu
Stefán Baldursson, forstöðumaður
Strætisvagna Akureyrar, sagði að
Gilið væri hræðilegt við aðstæður
eins og voru í fyrrakvöld, þegar hiti
væri um frostmark og snjókoma. Þó
svo að gatan væri sandborin hefði
það ekkert að segja, sandurinn træð-
ist niður og hálkan yrði gríðarleg.
Hann sagði lögreglu ekki aðgæta
nægilega fljótt að loka götunni, ekki
væri lokað fyrr en eftir meiriháttar
vesen og vandræði.
„Það gerist alltaf nokkrum sinnum
á ári að vagnarnir lenda í vandræðum
sem og aðrir bílar. Það verða þarna
nokkur slys á ári vegna þessa en sem
betur fer hefur einungis verið um
eignatjón að ræða, ekki slys á fólki.
Verði ekkert að gert er það sjálfsagt
bara tímaspursmál hvenær það verð-
ur. Umferð gangandi fólks er mikil,
þarna eru kaffihús og sýningarsalir
og skólar í næsta nágrenni þannig að
fjöldi fólks er þarna að jafnaði á ferð-
inni yfir daginn,“ sagði Stefán.
AKUREYRARBÆR var í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra í gær
dæmdur til að greiða Kærunefnd
jafnréttismála vegna Ragnhildar
Vigfúsdóttur, fyrrverandi jafnrétt-
is- og fræðslufulltrúa bæjarins,
hálfa milljón króna. Einnig var bær-
inn dæmdur til að greiða rúmlega
390 þúsund krónur í málskostnað og
að greiða Ragnhildi um 87 þúsund
krónur vegna málareksturs síns.
Ragnhildur gegndi starfí jafnrétt-
is- og fræðslufulltrúa Akureyrarbæj-
ar frá því haustið 1995 þar til í mars
1997. Kærunefnd jafnréttismála
höfðaði mál gegn bænum í upphafi
árs og voru dómkröfur þær að viður-
kennt yrði að sá munur sem var á
launum og öðrum starfskjörum jafn-
réttis- og fræðslufulltrúa og atvinnu-
málafulltrúa Akureyrarbæjar hafi
verið ólögmætur og brot á lögum um
jafna stöðu og jafnan rétt karla og
kvenna. Krafist var 500 þúsund
króna greiðslu fégjalds vegna hneisu
og óþæginda Ragnhildar.
Við ráðningu Ragnhildar í starfíð
RANNSÓKNARSKIPIÐ Dröfn
hefur verið á Akureyri undan-
farna daga en starfsmenn Haf-
rannsóknastofnunar eru á ferð
um landið, að kynna elstu grunn-
skólanemendunum eitt og annað
sem tengist sjávarútveginum.
Nemendur fara í stutta siglingu
með Dröfn og fræðast um veiðar-
færi og þær fisktegundir sem í
þau koma. Þá sjá þeir hvernig
veitt er með trolli, blóðgun og
aðgerð á fiski og hvernig fiskur
en lengdarmældur. Einnig skoða
þau kynningarmyndbönd m.a.
um Hafrannsóknastofnun og
skoða neðansjávarmyndir.
Hér er um að ræða verkefni
varð samkomulag um kjör hennar,
en þau skyldu vera ákveðinn launa-
flokkur samkvæmt kjarasamningi
við Starfsmannafélag Akureyrar-
bæjai- auk fleiri atriða. Eftir að fyr-
ir lá niðurstaða starfsmats þar sem
fram kom að laun atvinnufulltrúa
voru hærri en laun jafnréttis- og
fræðslufulltrúa óskaði Ragnhildur
eftir leiðréttingu kjara til samræm-
is við kjör atvinnufulltrúans, en þau
voru miðuð við kjarasamning verk-
fræðinga. Karlmaður gegndi á þeim
tíma stöðu atvinnufulltrúa.
Ekki var orðið við kröfum hennar
um leiðréttingu kjara. í kjölfar
þeirrar niðurstöðu að Akureyrai--
bær hefði brotið jafnréttislög við
launaákvarðanir sínar gagnvart
Ragnhildi hófust viðræður um
launakjör sem ekki leiddu tO breyt-
inga á kjörum hennar. I fyrrasumar
var ákveðið á fundi bæjarráðs að
hafna kröfum hennar.
Stefnandi heldur því fram að
störf jafnréttis- og fræðslufulltrúa
og atvinnumálafulltrúa séu jafn-
sem menntamálaráðuneytið og
sjávarútvegsráðuneytið standa
að, Fiskifélag fslands sér um
skipulag þess en Hafrannsókna-
stofnun um framkvæmd. Hjalti
Karlsson líffræðingur hjá Hafró
sagði að þessi kynning hafí byij-
að á ísafirði en þaðan var haldið
um Norðurland. Áfram verður
haldið austur um land og til Gr-
indavíkur. Einnig verður slík
kynning fyrir nemendur á Faxa-
flóasvæðinu.
Á myndinni eru nemendur
Brekkuskóla á Akureyri að
lengdarmæla físk á millidekkinu
í Dröfn, undir handleiðslu
Hjalta.
verðmæt og sambærileg þó þau séu
ekki eins. Bent er á að nokkrir af
æðstu yfirmönnum bæjarins fá laun
samkvæmt kjarasamningi tækni- og
verkfræðinga án tillits til menntun-
ar, en það hafi Ragnhildi ekki verið
boðið. Launamunur jafnréttisfull-
trúa og atvinnufulltrúa hafi byggst
á einhliða ákvörðun bæjai'yfirvalda.
Þá er því haldið fram að ekki sé
hægt að mismuna körlum og konum
í starfi með vísan til markaðslegra
forsendna og réttlæta áðurnefndan
launamun með samningsfrelsi og
mismunandi mati á verðmæti
starfa.
Krafa um fégjald er gerð vegna
hneisu, óþæginda og röskunar á
stöðu og högum sem mismununin
leiddi af sér. Bent er á að málið hafi
orðið til þess að Ragnhildur missti
þann brennandi áhuga sem hún
hafði á starfi sínu og því að raun-
verulega væri hægt að vinna að
jafnréttismálum fyrir Akureyrarbæ
af einlægni.
Ekki sambærileg störf
að mati bæjarins
Akureyrarbær krafðist sýknu í
málinu og byggði á því að hann hefði
fullt frelsi til samningagerðar um
kaup og lqör við starfsmenn sína og
eða félög þeirra. Því er haldið fram
að ákvæða jafnréttislaga hafi verið
gætt við ákvörðun launa Ragnhildar.
Einnig byggir Akureyrarbær á því
að starf jafnréttis- og fræðslufulltrúa
hafi ekki verið sambærilegt og jafn-
verðmætt starf og starf atvinnumála-
fulltrúa. Sanngjöm rök búi að baki
ákvörðun launa þessara fulltrúa og
sé á engan hátt um kynbundin mun
að ræða, sem best sjáist af því að
kona gegni nú starfi atvinnufulltrúa.
Af hálfu bæjarins er því einnig
haldið fram að hann sé bundinn af
samanburðai’tilraun starfsmats-
Iðnaðarsafnið
Sýning
á prent-
gripum
KYNNING á umbúðum, auglýsing-
um og ýmsu öðru sem unnið hefur
verið fyrir ýmis fyrirtæki sem
kynnt eru á Iðnaðarsafninu á Akur-
eyri verður opnuð á laugardag, 6.
nóvember kl. 16.
Við uppsetningu Iðnaðarsafns-
ins kom fljótt í ljós að ekki var nóg
að segja sögu fyrirtækjanna, vél-
anna og fólksins sem við þær vann
að framleiðslunni. Þeir sem tóku
við fullunnum vörum til kynningar
í sérhæfðum umbúðum, auglýsing-
um og öðru því sem til þarf við
markaðssetningu koma þá til sög-
unnar. Mikilvirkust á því sviði er
auglýsingastofa Kristjáns Krist-
jánssonar sem starfrækt hefur
verið á Akureyri í rúm 30 ár og nú
á laugardag verður opnuð sýning á
ýmsu því sem þar hefur verið unn-
ið fyrir fjölda fyrirtækja sem
kynnt eru á Iðnaðarsafninu. Þar er
um að ræða fjölbreytt yfirlit prent-
gripa frá síðustu þremur áratug-
um.
Leitað að stærra húsnæði
I tilefni af þessari sýningu verð-
ur Iðnaðarsafnið opið daglega frá
kl. 16 til 18 til 15. nóvember næst-
komandi. Þann dag verður safninu
sem er að að Dalsbraut 1 lokað þar
til nýtt og stærra húsnæði finnst. Á
þeim tveimur árum sem liðin eru
frá því safnið var opnað hefur ótrú-
legt magn verðmætra safngripa
bæst við og eru þrengsli mikil.
nefndai'. Bent er á að starf jafnréttis-
og fræðslufulltrúa og atvinnumála-
fulltrúa hafi verið metið á sambæri-
legan hátt og ljóst sé að starfs- og
ábyrgðarsvið starfanna sé annað og
gjörólíkt. Þá er því haldið fram að
ákvörðun um launakjör jafnréttis- og
fræðslufulltrúa hafi verið tekin áður
en starfið var auglýst og því óháð því
hvort kona eða karl tækju við stöð-
unni.
Varðandi kröfu um fégjald er því
haldið fram af hálfu bæjarins að
vandséð sé að Ragnhildur hafi beðið
hneisu eða orðið fyrir óþægindum
vegna þeirrar athygli sem mál henn-
ar hefur vakið. Þvert á móti hafi nú
nýtt sér athyglina sér til framdrátt-
ar og fremur áunnið sér virðingu og
aðdáun en hið gagnstæða. Ragnhild-
ur hafi tekið ákvörðun um starfslok
þrátt fyrir vilja þáverandi bæjar-
stjóra að ganga til samninga um
málið. Ástæða starfslokanna hafi
einfaldlega verið sú að henni hafi
boðist spennandi starf í fjarlægu
landi sem hún þáði.
Kastaði rýrð
á trúverðugleika
í dómi Freys Ófeigssonar dóms-
stjóra Héraðsdóms Norðurlands
eystra kemur fram varðandi
greiðslu fégjalds að horfa verði til
tilgangs starfs þess sem Ragnhildur
gegndi. Henni hafi borið að vinna að
framkvæmd jafnréttisáætlunar
Akureyrarbæjar, en brot bæjarins
hafi beinlínis fallið innan starfsvett-
vangs hennar og sé til þess fallið að
kasta rýi'ð á trúverðugleika hennar
sem jafnréttisfulltrúa. Því verði að
telja að Akureyrarbær hafi bakað
Ragnhildi óþægindi er hann mis-
munaði henni í launakjörum á
grundvelli kynferðis. Fjárhæð bót-
anna, 500 þúsund krónur, þótti því
hæfileg.
Til sölu
mjög gott 82,4 fm verslunarhúsnæði á fyrstu hæð í
verslunarmiðstöðinni Krónunni, Hafnarstræti 97, Akureyri.
Til afhendingar strax.
Nánari upplýsingar eru veittar á Fasteignasölunni ehf.,
Hermann R. Jónsson, sölustjóri, sími 861 5025.
gsgocu e.’
Sími 462 1878 - Fax 461 1878
Dómur í máli Kærunefndar jafnréttismála gegn Akureyrarbæ
Bærinn greiði fyrrverandi
jafnréttisfulltrúa hálfa milljón