Morgunblaðið - 05.11.1999, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
BRIDS
llmsjón (•iiömuiidur
l’áll Arnarson
LESANDINN er í norður
með þessi spil:
Norður
A 5
¥ ÁKD1062
♦ 74
* 10876
Þetta er tvímenningur.
Það er enginn á hættu og
makker opnar í fyrstu hendi
á 15-17 punkta grandi.
Næsti passar. Er þetta
vandamál, eða hvað?
I sveitakeppni myndu
fæstir gefa þessu mikla
hugsun og stýra sögnum í
fjögur hjörtu. En það er
aldrei að vita nema gröndin
gefi jafn marga slagi og
hjörtun, svo hugaðir tví-
menningshaukar gætu látið
sér detta í hug að skjóta á
þrjú grönd. Spilið er frá
undankeppni Islandsmóts-
ins og sú „fífldirfska" að
segja beint þrjú grönd
reyndist dýrkeypt:
Norður
* 5
¥ ÁKD1062
♦ 74
* 10876
Vcstur Austur
4 ÁD1087 4 KG962
»54 V 73
♦ K1063 ♦ G82
*G9 4 543
Suður
4 43
¥ G98
♦ ÁD95
4ÁKD2
Vestur kom út í lengsta
litnum sínum og vörnin tók
fyrstu fimm slagina.
„Kannski ekki svo
slæmt,“ . sagði suður, „þvi
sex spaðar fara einn niður.“
En athugun á skorblaðinu
leiddi í ljós að fáir höfðu
sagt slemmu.
Má draga lærdóm af
þessu spili? Sennilega ekki,
en hér er tilraun: Norður
gat haft makker með í ráð-
um; þ.e.a.s. yfirfært í hjarta
og stokkið síðan í þrjú
grönd. Eða jafnvel teflt
fram laufinu. Þá er aldrei að
vita nema NS hefðu náð sex
laufum, en sú slemma er
óhnekkjandi.
Ég hef verið að velta fyrir
mér hvernig ég get hækkað
afurðaverðið og aukið kjöt
á skepnunum. Mér datt í
hug að það væri hægt með
því að para gíraffa og kind
og fá góða hálsbita.
Loksins hætti hann að fara
á barinn og er nú farinn að
eyða kvöldunum heima fyr-
ir framan sjónvarpið, eins
og allir venjulegir menn í
þcssu landi.
Arnað heilla
/>rvÁRA afmæli. í dag,
O V/föstudaginn 5. nóvem-
ber, verður sextug Áslaug
B. Þórhallsdóttir, Bárugötu
21, Reykjavík. Aslaug verð-
ur erlendis á afmælinu.
Ljósmyndastofa Sigríðar
Baehmann.
BRÚÐKAUP Gefin voru
saman 28. ágúst sl. í Vífils-
staðakirkju af sr. Sigurði
Helgasyni Sigurbjörg Guð-
laugsdóttir og Sigurgeir
Sigurgeirsson. Heimili
þeirra er á Laufvangi 16,
Hafnarfirði.
BRÚÐKAUP Gefin voru
saman 7. ágúst sl. í Háteigs-
kirkju af sr. Helgu Soffíu
Konráðsdóttur íris Björg
Eggertsdóttir og Karl
Matthías Helgason. Heimili
þeirra er i Eskihlíð 8,
Reykjavík.
Ljósm.st. Mynd, Hafnarfirði.
BRÚÐKAUP Gefin voru
saman 4. september sl. í
Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði
af sr. Þórhalli Heimissyni
Ólöf Aðalsteinsdóttir og
Rafn A. Sigurðsson. Heimili
þeirra er á Breiðvangi 46,
Hafnarfirði.
GULLBRÚÐKAUP í dag, fimmtudaginn 4. nóvember, eiga
gulibniðkaup Sólveig Jónasdóttir og Sigurður Haraldsson
frá Húsavík. Þau eru nú til heimilis í Gullsmára 7, Kópavogi.
Sú sem átti bílinn á undan mér sagðist hafa verið í rallý
eða eitthvað svoleiðis.
nmmnmmmm
í FORNÖLD Á JÖRÐU
I fornöld á jörðu var frækorni sáð,
það fæstum var kunnugt, en sumstaðar smáð.
Það frækorn var guðsríki, í fyrstunni smátt,
en frjóvgaðist óðum og þroskaðist brátt.
Þá dundu yfir stormar og hretviðrin hörð,
og haglél og eldingar geisuðu um jörð.
Það nístist af frosti, það funaði af glóð,
en frjóvgaður vísir þó óskemmdur stóð.
Og sú kemur tíðin, að heiðingja hjörð
þar hælis sér leitar af gjörvallri jörð,
sú tíðin, að illgresið upp verður rætt
og afhöggna limið við stofninn sinn grætt.
Hve gleðileg verður sú guðsríkis öld!
Um gjörvallan heim ná þess iaufskálatjöld.
Ur hvelfingu myndast þar musteri frítt,
þar mannkynið allt guði lof syngur blítt.
Valdimar Briem.
STJÖRNUSPA
eflir Frances’ llrakc
Afmælisbarn dagsins: Þú ert
tilfinninganæmur og átt oft
erfitt með að sjá hlutina í
réttu ljósi. Þú ert dulur um
eigin málefni.
Hrútur _ (21. mars -19. apríl) Það er ekki hyggilegt að hleypa málum af stað án þess að reyna að sjá framvinduna fyrir. Gættu þess að ganga ekki á hlut annarra.
Naut (20. apríl - 20. maí) Vertu jákvæður og hlustaðu á það sem aðrir hafa til málanna að leggja því það getur hjálpað þér við að finna leið út úr erfið- leikunum.
Tvíburar t ^ (21. maí - 20. jún!) PA Það getur verið gaman að hafa mannaforráð en þá því aðeins að þú farir vel með vald þitt. Varastu að láta það stíga þér til höfuðs.
Krabbi (21. júní - 22. júlí) Áður en þú tekur verkefni að þér skaltu ganga úr skugga um til hvers er raunverulega ætlast því annars kunna ein- hver atriði að koma í bakið á þér síðar.
Ljón (23. júlí - 22. ágúst) íít Varastu að láta aðra ráðskast með líf þitt þótt þeir þykist vita betur. Hver er sinnar gæfu smiður og það á jafnt við þig sem aðra.
Meyja (23. ágúst - 22. september) (Dí. Sérkennileg atburðarás kann að leiða til þess að þú hljótir loks umbun erfiðis þíns. Láttu þér því hvergi bregða heldur haltu þínu striki.
V°S m (23. sept. - 22. október) 41* 4* Hættu að mikla fyrir þér eigin vanda. Líttu í kringum þig og sjáðu að margur er verr stadd- ur en þú svo þú hefur ástæðu til þess að una glaður við þitt.
Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Gættu tungu þinnar því aðrir kunna að vera mjög auðsærðir. Beindu frekar athyglinni að björtu hliðum lífsins en mundu að fæst orð hafa minnsta ábyrgð.
Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Ef þér finnast hlutirnir of erf- iðir kann að vera best að leyfa þeim að gerjast enn um sinn áður en þú freistar þess að gera út um málið.
Steingeit (22. des. -19. janúar) *K Minniháttar árekstur getur leitt til margskonar erfiðleika ef þú tekur ekki strax af skarið og leysir málið. Vertu óhrædd- ur við djarfar lausnir.
Vatnsberi f , (20. janúar -18. febrúar) Qjtk Það vantar ekki mikið upp á að þér takist að klára það verk- efni sem þér hefur verið falið. Rasaðu ekki um ráð fram á lokasprettinum.
Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þótt oft sé gott að hlusta á sína innri rödd þá kann stundum að vera í lagi að athuga fleiri hlið- ar málsins áður en afstaðan er mótuð.
Stjörnuspána á að iesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi eru
ekki byggðar á traustum grunni
vísindaiegra staðreynda.
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 73 ^
FRETTIR
Hárgreiðslu-
sýning á Astró
TUTTUGU nýmeistarar í hár-
greiðslu ætla að sýna breiddina í
hártísku vetrarins á veitingahús-
inu Astró föstudaginn 5. nóvem-
ber kl. 21. Aðgangur er ókeypis.
Sýningin er liður útskriftar-
hóps úr Meistaraskóla íslands.
Saman eru því komnir 20 ný-
meistarar, alls staðar að af land-
inu, sem sameina krafta sína í
þessari sýningu, sem er byggð
upp á fjórum þáttum: Móður nátt-
úru, götutísku, næturlífí og
„avant garde“.
Nemar úr förðunarskóla No
Name sjá um förðun módelanna
og Helena Jónsdóttir dansari set-
ur sýninguna upp.
Jólafötin á stráka og
stelpur komin
Barnakot
Kringlunni 4-6 sími 588 1340
Ný sendmgf
Stuttir og síáir samkvæmiskjólar
£^
—-
.....
Toppar Jakkar
Síá pils Samkvæmistöskur
Hverfisgötu 50 O Sími 551 5222
CULctojUe,
Qlæ&Ueguir
Imáldfatnaður
'Nyp smdwgs
Opið laugru'dags hl. 10-16
t í s k u v e r s 1 u n
Kynnum nýju
vetrartískuna frá
lúbTiiirr
í dag frá kl. 14-18
20%
kynningarafsláttur
af öllum
sokkabuxum
ESOIirt
-"
^pLyf&heilsa
MELHAGA
(Vesturbæjarapótek)
Sími 552 2190
v