Morgunblaðið - 05.11.1999, Side 33

Morgunblaðið - 05.11.1999, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 33 Tina LeBlanc, ein skærasta stjarna San Francisco-ballettsins, í hlut- verki Odette í Svanavatninu. Feiknarlega flott og glæsileg sýning „ÞETTA er alveg feiknarlega flott og glæsileg sýn- ing eins og ég átti svo sem von á - ég hef séð flokkinn áður í svona stórri sýningu úti í San Franciseo. Þetta eru einstaklega fágaðir og glæsi- legir dansarar og menn tala um það í dómum um sýn- inguna í enskum blöðum að þetta sé glæsilegasta Svanavatn sem nú er á fjölunum í veröldinni. Það er í einu orði sagt frábært að geta fengið þennan flokk og Helga Tómasson til íslands á þessu mikla menningarári. Það er óhætt að lofa listunn- endum á Islandi mikilli veislu,“ segir Þórunn Sigurð- ardóttir, stjórnandi Menning- arborgarinnar, sem var meðal leikhúsgesta þegar Svanavatn- ið var á fjölum Sadler’s Wells þetta kvöld. Þórunn Sigurðardóttir Þórunn segir Is- lendinga sjaldan eiga þess kost að bjóða upp á svona stóra listviðburði en vegna samstarfs Menningarborgar- innar og Lista- hátíðar í Reykjavík sé þetta hægt nú. Þá megi ekki gleyma þætti Helga Tómas- sonar, hans áhugi hafi verið þungur á metum. „Helgi kem- ur vel á móti okkur og sennilega hefði þetta ekki verið hægt nema af því að hann er Islendingur og langar að sýna okkur lönd- um sfnum flokkinn sinn f fullri stærð. Við gerðum okkur líka grein fyrir því að það væri nú eða aldrei.“ Helgi Tómasson á sæti í heiðursráði Menningarborgar- innar og bindur Þórunn vonir við að hann geti tekið þátt í hátfðarhöldunum sem efnt verður til um áramót, við upp- haf menningarársins. hann svo ákveðinn. „Við höfum ekk- ert að óttast." Þegar Helgi tók San Francisco- ballettinn upp á sína arma var hon- um jafnframt falið að byggja upp listdansskóla flokksins. Segir hann það starf hafa gengið vel, með góðra manna hjálp, en Helgi breytti strax til í kennaraliðinu. Skólinn hefur skilað mörgum góðum dönsurum. Alls stunda 225 nemendur nám við hann í vetur. Arangur Helga í starfi listræns stjórnanda San Francisco-balletts- ins er undraverður. En hvað liggur til grundvallar? Hvernig stjórnandi er Helgi Tómasson? Hann hlær þegar þessari spurn- ingu er varpað fram, kýs eflaust að láta verkin tala. „Þessu er ekki gott að svara. Eg get þó sagt að ég krefst aga af dönsurunum. Agi er númer eitt, tvö og þrjú. Ætli fólk að vera í þessum flokki, þarf það að þola aga. Góður dansari þarf líka að vera músíkalskur og vera gæddur einstaklingseðli. Síðan er auðvitað mikilvægt að hafa ánægju af því að dansa. Daginn sem ástríðan hverfur og menn fara bara að líta á dansinn sem atvinnu sína er mál að hætta.“ Ballettinn Svanavatnið, við tón- list Pjotr Iljítsj Tsjajkovskíjs, var frumfluttur í Bolsjoi-leikhúsinu í Moskvu árið 1877 og var danshöf- undurinn Julius Reisinger. Ai-ið 1895 frumsýndi svo Maryinskíj- leikhúsið í Pétursborg útgáfu Pet- ipa-Ivanov. Síðan hafa margir kunnir höfundar gert sína útgáfu. Um endursköpun Helga á hinum sí- gilda ballett hefur verið sagt að hún sé fastheldin á hefðir verksins og rætur en um leið sniðin að þörfum nútíma dansflokks. Hvernig fór hann að? „Eg var strax staðráðinn í að gera þetta eftir mínu höfði. Ég hef auðvitað séð óteljandi uppfærslur á Svanavatninu í gegnum árin og þótt sumar hverjar heldur þungar í vöf- um. Ég ákvað því að færa verkið nær okkur í tíma, fram á nítjándu öldina, og létta svolítið andrúms- loftið. Fyrsta og fjórða þættinum breytti ég mest; skapaði alveg nýj- an íyrsta þátt, samdi öll sporin þar sjálfur. Mörgum þykir fyrsti þátt- urinn yfirleitt langur, þar gerist fátt, og fólk bíður bara eftir öðrum þætti. Þessu hefur mér, að ég held, tekist að breyta, þátturinn virðist ekki langm- þótt hann sé óstyttur. Ég gerði litlar breytingar á öðrum þætti, þess gerðist ekki þörf, samdi aðeins ný spor fyrir svanina fjóra. Síðan sameinaði ég þriðja og fjórða þátt, sem er sjaldgæft. Ég hélt sumu í þriðja þætti en fjórði þátturinn er alfarið mín danssmíð." í hópi athyglisverðustu danshöfunda Frami Helga sem danshöfundar hefur verið stöðugur. I grein í New York Times fyrir um ári segir ball- ettrýnirinn Jennifer Dunning að hann sé kominn í hóp athyglisverð- ustu danshöfunda sem nú eru starf- andi í heiminum. Segir hún Helga fram að þessu hafa verið best þekktan fyrir „skipulagða nálgun sína að tónlist og dansi, klassískur og agaður í hugsun, en tvö síðustu verk hans bendi til þess að hann sé að söðla um, brjótast undan hefð- inni og losna undan eigin járnaga". Helgi segir sitthvað til í þessu en partur af skýringunni er sá að hann semur nú í auknum mæli við nú- tímatónlist, í stað klassískrar áður. „Ég hef gaman af því að semja við nútímatónlist, þannig finn ég fyrir meira frjálsræði, þótt tæknignmn- urinn sé eftir sem áður klassískur. Ég hef meira svigrúm til að skapa með þessum hætti.“ Næsta verk Helga verður þó samið við eldri tónlist, Fyrsta píanókonsert Beethovens,. en það gerir hann að beiðni síns gamla vinnuveitanda, New York City Ball- et. Að því verkefni snýr hann sér eftir tvær vikur og hvert er þemað? „Ég hef ekki hugmynd um það,“ segir hann og skellihlær. Og ég, blaðamaðurinn, hef fullkominn skilning á því að hann sé ekki farinn að hugsa svona langt fram í tímann. Helgi er að sönnu upptekinn maður. Til Lundúna kom hann frá Kanada, þar sem hann lagði loka- hönd á undh-búning fyrir frumsýn- ingu á öðru nýju verki sem samið er við tónlist eftir _ Englendinginn Arthur Sullivan. „Ég var með gen- eralprufu þar á fimmtudegi en missti af frumsýningunni, á föstu- degi, þar sem ég þurfti að koma mér til Lundúna. Var á flugi yfir Islandi meðan dansararnir svifu á sviðinu." Helgi lifir og hrærist í dansi og- tónlist, í leik og starfi, en skyldi hann eiga einhver önnur áhugamál? „Auðvitað fer mestur tími í vinn- una en þar fyrir utan hef ég mikið yndi af myndlist, reyni að njóta hennar eins oft og ég get. Síðan er ég sífellt að reyna að finna tíma fyr- ir sjálfan mig og fjölskylduna - slappa af. Það gengur oftilla." Helgi og kona hans, Marlene, eiga sumarhús í dal skammt frá San Francisco og þangað sækja þau eins oft og svigrúm gefst. „Þar er afskaplega gott að slappa af, hvíla lúin bein. Síðan er ég búinn að koma mér upp vínvið - byrjaður að rækta mitt eigið rauðvín. Ég framleiði ekki í stórum stíl, þetta er bara fyr- ir mig, en þetta nýja áhugamál er virkilega skemmtilegt." Ekki hef ég rænu á að spyrja Helga hvort hann kremji vínberin sjálfur en væri það ekki sjón að sjá - Helgi Tómasson tiplandi á berjun- um? Helgi unir hag sínum vel í San Francisco en það var alls ekki sjálf- gefið að hann færi þangað á sínum tíma. „Mér var boðið að taka við dansflokki á Norðurlöndunum og kynnti mér aðstæður þar. Mér fannst vinnutíminn með dönsurun- um hins vegar ekki nógu langur og bað menn að breyta því. „Allt í lagi,“ sögðu þeir. „Kom þú fyrst og síðan munum við breyta þessu!“ Það fannst mér ekki koma til greina, bað þá að lengja vinnutí- mann fyrst, síðan myndi ég koma. Það gerðu þeir ekki og því fór sem fór.“ Síðan fékk Helgi tilboð frá ball- ettflokki Parísaróperunnai- fyrir tæpum áratug um það leyti sem Rúdolf Núrejev var að hætta. „Það var auðvitað spennandi en málið var einum of pólitískt fyrir minn smekk. Síðan var ég heldur ekki tilbúinn að yfirgefa San Francisco-ballettinn á þessum tíma, átti mikið verk óunnið. Þetta var því hvorki rétti tíminn né réttar kringumstæður." En síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Er Helgi farinn að hugsa sér til hreyfings nú? Hann hallar sér aftur í stólnum, andvarpar. Þykir spurningin ber- sýnilega strembin. „Framtíðin er óráðin. Ég hef aldrei planlagt neitt í sambandi við minn feril - hef dottið niður á réttu staðina, hvort sem var hjá Balanchine í New York eða hjá San Francisco-ballettinum. Hefði mér verið sagt þegar ég byrjaði í San Francisco að ég yrði þar enn eftir fjórtán ár hefði ég ekki trúað því. En þar er ég enn. Þetta hefur verið frábær tími. Þetta er minn flokkur, ég hef byggt hann upp og er einráður. San Francisco-ballett- inn er orðinn partur af mér! Vel má vera að sá dagur renni upp að ég vilji breyta til, prófa eitthvað nýtt, en á þessari stundu er svarið við spurningunni „nei“. Ég er ekki á leið frá San Francisco!" En skyldi Helga aldrei hafa- dreymt um að segja skilið við amst- ur hversdagsins, tæma skrifborðið sitt, skunda upp í sumarbústað, hella rauðvíni í glas og bara semja? Nú hlær hann af innlifun. Sér þetta sennilega ekki fyrir sér. „Þú segir nokkuð. Ætli ég fengi nokkuð að hætta? Það segja allir að ég sé svo góður stjómandi." Enn skellir hann uppúr en hugs- ar sig svo betur um. „Nei, ég gæti ekki hætt. Það er ekki auðvelt að vera sjálfstætt starfandi danshöf- undur. Síðan myndi ég sakna fólks- ins svo mikið, dansaranna, og vinn- unnar í æfingasalnum, spennunnar. Þó að þetta sé slítandi starf, nánast 24 tímar á sólarhring, er það líka gefandi, óskaplega gefandi. Strax eftir viku í fríi er mig farið að klæja í puttana - eða ætti ég að segja tærnar.“ Helgi og Marlene eiga tvo syni, Kristin, 32 ára, og Erik, 27 ára. Sá fyrrnefndi starfaði um tíma sem bflateiknari hjá BMW í Munchen en flutti nýlega aftur til San Francisco, þar sem hann réði sig til hönnunar- fyrh-tækis. Erik starfar sem kvik- myndatökumaður í Kanada. Verð alltaf Islendingur Að sögn Helga tala strákarnir ekki íslensku. „Þeir voru mikið á Islandi sem ungir drengir en þeim ferðum hefur fækkað og þeir tapað tungumálinu niður. Þegar maður býr í útlöndum þarf móðirin senni- lega að tala „hitt“ tungumálið til að börnin týni því síður niður. Strák- arnir hugsa hins vegar hlýlega til íslands og þykir alltaf jafn gaman að koma þangað.“ En Helgi sjálfur, hvaða sess skip- ar Island í huga hans eftir fjöratíu ár í útlöndum? „Ég er og verð alltaf íslendingur - því er ekki hægt að breyta. Nú- orðið kemst ég sjaldan heim vegna anna, það var miklu auðveldara að skjótast þegar ég var í New York. Ég reyni eigi að síður að koma á hverju ári og náði að stoppa í fimm daga í sumar, sem er með því lengra í mörg ár.“ Og Helgi lætur sig dreyma um að eignast íbúð í Reykjavík. „Þar ólst ég upp og þó margt hafi breyst - ég þekki ekkert þessi nýju hverfi - væri gaman að eiga þar athvarf. Sérstaklega á sumrin, ég hef svo gaman af því að renna fyrir fisk. Svo myndu strák- arnir mínir örugglega nota íbúðina mikið. Við sjáum hvað setur!“ Svo mörg vora þau orð. Tími minn er á þrotum enda tvær sýn- ingar framundan hjá Helga þennan daginn. Við kveðjumst og hann fylgir mér til dyra. Og þegar ég hoppa upp í stætó fyrir utan leik- húsið hugsa ég með mér - ég þekkti Helga Tómasson þá bara ágætlega eftir allt saman! Ferill Helga HELGI Tómasson fæddist í Reykjavík árið 1942. Hann hóf listdansnám ungur að árum og gekk meðal annars í listdans- skóla Þjóðleikhússins. Fimm- tán ára gamall hélt Helgi til Kaupmannahafnar þar sem hann var tekinn í læri hjá Tívolíballettinum og tveimur áram síðar fékk hann styrk til náms við New York School of American Ballet, fyrir milli- göngu Jeromes Robbins. Skömmu síðar hóf Helgi feril sinn sem atvinnudansari í Bandaiíkjunum, fyrst dansaði hann hjá The Joffrey Ballet en síðan The Hai-kness Ballet, þar sem hann var einn af aðaldöns- uranum. Árið 1969 tók Helgi þátt í fyrstu alþjóðlegu listdans- keppninni í Moskvu, sem full- trúi Bandaríkjanna, og hreppti silfurverðlaun. Gullverðlaunin féllu Mikhail nokkrum Bar- yshnikov í skaut. Ári síðar gekk Helgi til liðs við New York City Ballet sem aðaldansaii, þar sem hann dansaði í fimmtán ár við frá- bæran orðstír - var ein helsta skrautfjöður flokksins. Er Helgi almennt talinn einn fremsti klassíski ballettdansari sinnar kynslóðar. „Hann er ein- faldlega einn fárra klassískra listdansara sem hægt er að segja að séu sannarlega fram- úrskarandi," skrifaði Anna Kisselgoff í New York Times, 1979. Sérstaklega gat Helgi sér gott orð fyrir túlkun á dans- verkum George Balanchines og Jeromes Robbins, en báðir höf- undar bjuggu til mörg hlutverk með Helga í huga. Árið 1980 samdi Helgi sinn fyrsta ballett, Tlieme and Vari- ations, Polonaise, Op. 65, fyrir School of American Ballet Workshop. Féll verkið í frjóa jörð og hvatti lærimeistarinn, Balanchine, hann til að halda áfram á sömu braut. Helgi lagði skóna á hilluna árið 1985 til að taka við starfi listræns stjómanda elsta at- vinnudansflokks Bandaríkj- anna, San Francisco-ball- ettsins. Hefur hann hafið flokkinn til vegs og virðingar og fært hann í fremstu röð dans- flokka í heiminum. Helgi hefur samið 29 dans- verk fyrir San Francisco-ball- ettinn, meðal annars Giselle, Svanavatnið, Þymirós og Rómeó og Júlíu. Hann hefur byggt á klassískum granni og þykja dansarar hans búa yfir mikilli breidd, valda ólíkustu stflum ogverkum. Auk þess að semja sjálfur hefur Helgi virkjað krafta margra af fremstu danshöfund- um heims í þágu flokksins, svo sem David Bintley, Val Canip- aroli, William Forsythe, James Kudelka og Mark Morris. Þá hefur hann einnig sett á svið verk eftir menn á borð við Frederick Ashton, George Balanchine, August Boumon- vflle, Flemming Flindt, Agnes de Mille, Jerome Robbins og Antony Tudor. Þá hafa verk Helga sjálfs verið flutt víða, meðal annars hjá New York City Ballet, Houston Ballet, Ballet Aiizona, Finis Jhung’s Chamber Ballet USA og Konunglega danska ballettinum. San Francisco-ballettinn hef- ur gert víðreist í tíð Helga. Ber hæst sýningar í New York City, í íjórgang, Kaupmannahöfn, París og nú í Lundúnum. Helgi Tómasson er mai'g- verðlaunaður fyrii* framlag sitt til danslistarinnar, í Banda- ríkjunum, á Islandi og viðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.