Morgunblaðið - 05.11.1999, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Ársfjórðungsskýrsla Landsbanka íslands
N auðsynlegt að
hemja verðbolgu
NÚVERANDI verðbólgustig er
óviðunandi, að því er kemur fram í
ársfjórðungsskýrslu Landsban-
kans, sem kynnt var í gær. „Eitt
brýnasta verkefnið í efnahagsmál-
um á næstu mánuðum er að koma
böndum á verðbólguna með auknu
aðhaldi í þjóðarbúskapnum. A mæl-
ikvarða neysluverðsvísitölu mælist
12 mánaða verðbólga nú 5,3% og
síðustu 3 mánuði nemur verðbólgan
8,3% á ársgrundvelli. Það er mun
meiri verðbólga en í okkar helstu
viðskiptalöndum og stenst ekki
þegar til lengri tíma er litið,“ segir í
skýrslunni.
Landsbankinn gerir ráð fyrir
áframhaldandi halla á viðskiptum
við útlönd. „Gert er ráð fyrir að við-
skiptahallinn verði 29 milljarðar á
yfírstandandi ári eða 4,5% af lands-
framleiðslu. Ekki er búist við um-
talsverðum bata í viðskiptum við
útlönd á næstu árum sem hlýtur að
teljast áhyggjuefni þar sem er-
lendar skuldir þjóðarbúsins auk-
ast,“ segir í ársfjórðungsskýrsl-
unni.
„Viðskiptahallinn er of mikill og
getur til lengdar grafíð undan stöð-
ugleika í gengismálum. Mikilvægt
er að draga úr þessum halla með
því að auka þjóðhagslegan spamað.
Stjórnvöld hafa sent skýr skilaboð
um að þeim er full alvara í að draga
úr viðskiptahallanum eins og nýtt
fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár
ber með sér en þar er gert ráð fyrir
verulegum tekjuafgangi í fjárlög-
um,“ segir ennfremur.
Gengi krónunnar hefur náð sögu-
legu hámarki
í skýrslunni kemur fram að
gengi krónunnar hefur náð sögu-
legu hámarki, en viðskiptavegin
gengisvog krónunnar fór undir 111
þann 18. október.
„Hafa ber þó í huga að sú styrk-
ing hefur að mestu átt sér stað í
september og október. Gefi gengi
krónunnar eftir mun það valda auk-
inni verðbólgu frá því sem nú er.
Það eru hinir háu vextir hér á landi
sem stutt hafa við gengi krónunnar
en vegna þess mikla munar sem er
á innlendum og erlendum vöxtum
hefur gjaldeyrisinnstreymi til
landsins verið mikið,“ segir í
skýrslunni.
Fram kemur í skýrslunni að
lífeyrissjóðir hafa breytt fjárfest-
ingaráherslum sínum á árinu. Hlut-
fall erlendrar fjárfestingar í eign-
araukningu lífeyrissjóðanna fyrstu
sex mánuði ársins nemur 43%, en
hluti erlendra verðbréfa í áætlaðri
eign lífeyrissjóða í lok júní nam að-
eins 15%.
„Tölur fyrstu sex mánuði ársins
benda til þess að eignaaukning
lífeyrissjóða í erlendum verðbréf-
um verði ekki undir 30 milljörðum
króna sem þýðir að heildareignin
fari yfir 80 milljarða króna sem er
60% aukning á árinu,“ segir í
ársfjórðungsskýrslunni.
Mikil hækkun hlutabréfa
Hlutabréfavísitölm- hækkuðu
mikið á þriðja ársfjórðungi. Heild-
arvísitala aðallista hækkaði um tæp
15% á tímabilinu og úrvalsvísitalan
enn meira, eða um rúm 18%. Heild-
arvísitala vaxtarlista hækkaði mun
minna, eða aðeins um 1,8%.
„Mest munar um hækkun fjár-
málafyrirtækja sem hækkuðu
verulega á 3. ársfjórðungi í kjölfar
mun betri milliuppgjöra en gert
hafði verið ráð fyrir,“ segir í skýrsl-
unni.
Hlutabréfaviðskipti á Verðbréfa-
þingi íslands þrefölduðust fyrstu
níu mánuði þessa árs, miðað við
sama tíma í fyrra. I skýrslunni er
sett spumingarmerki við hvort ís-
lenskur hlutabréfamarkaður lúti
sömu lögmálum og erlendir, en
fyrrnefndar hækkanir hafa orðið
þrátt fyrir vaxtahækkanir og aukna
verðbólgu.
„Spyrja má hvers vegna markað-
urinn hér á landi bregst svo seint
og svo lítið við neikvæðum fréttum
af þessu tagi, en trúlega er skýring-
arinnar m.a. að leita í vanþroska og
óskilvirkni íslensks hlutabréfa-
markaðar," segir í kafla um hluta-
bréfamarkað.
Svigrúm til þess að lækka
langtímavexti
Bankinn telur svigrúm vera til
verulegrar lækkunar langtíma-
vaxta á næstu mánuðum. „Mjög
mun draga úr framboði ríkis-
skuldabréfa á næsta ári vegna
sterkrar stöðu ríkissjóðs auk þess
sem minnkandi hagvöxtur mun
draga úr framboði annarra skulda-
bréfa. A sama tíma fer ráðstöfunar-
fé lífeyrissjóða ört vaxandi."
Að mati bankans bendir margt til
þess að hagvöxtur muni aukast á
evrusvæðinu en minnka í Banda-
ríkjunum. Þá muni evran styrkjast
gagnvart Bandaríkjadollar, en
efnahagsbatinn í Evrópu hefur ver-
ið hraðari en áður var gert ráð fyr-
ir. Bankinn telur að reikna megi
með hækkunum á hlutabréfamark-
aði í Evrópu, ef efnahagsbatinn
reynist varanlegur. Hins vegar er
spurt hvort verðfall á hlutabréfa-
markaði í Bandaríkjunum sé í sjón-
máli, en gert er ráð fyrir að hag-
vöxtur hægi þar á sér á næsta ári,
án þess þó að atvinnuleysi aukist.
Efnahagshorfur í Japan hafa held-
ur batnað að mati bankans, en
styrking jensins að undanförnu
hefur valdið minni hagnaði hjá þar-
lendum útflutningsfyrirtækjum.
Að lokum er í skýrslunni getið
um mikilvægi upplýsingatækni fyr-
ir hagvöxt.
„Horfur eru á vinnuaflsskorti í
hátæknifyrirtækjum beggja vegna
Atlantshafs. Þetta kann að gefa
færi til sóknar hér á landi ef rétt er
við brugðist. Rannsóknir benda til
að framtaksfjármagn sé sérstak-
lega vel til þess fallið að leysa vaxt-
armöguleika framsækinna atvinnu-
greina úr læðingi."
FLUGLEIÐIR
Bílaleiga
Sími 50 50 600 • Fax 50 50 650
Hertz ísafirði sími 45 65 111
E-mail: fihertz@icelandair.is
Við bætum þjónustu við fyrirtæki - Nú eru 8 þjónustustaðir á landinu
Bílaleiga Flugleiða/Hertz á Isafirði
Við höfum opnað nýja afgreiðslu Bílaleigu Flugleiða/Hertz á ísafirði.
Opnunartilboö til Vestfirðinga
Flug og bíll í Reykjavík
• 11.030 kr.* m.v. einn í bíl.
• 9.030 kr.* á mann m.v. 2 í bíl.
• 7.663 kr.* á mann m.v. 3 bíl.
Viðbótarsólarhringur
á bíl kostar 5.000 kr.
• Innifalið í tilboðsverði:
Flug fram og til baka frá ísafirði, flugvallarskattar
og HERTZ bílaleigubíll í S-flokki í einn sólarhring
með ótakmörkuðum akstri og tryggingu.
Tilboðið gildir í nóvember í ákveðnar áætlunar-
flugferðir. Lágmarksdvöl í Reykjavík er ein nótt.
Opnunartilboð til Reykvtkinga
ísafjarðarævintýri
Flug og bíll og gisting
í eina nótt með morgunverði.
• 11.580 kr.*
á mann í tvíbýli á Hótel ísafirði.
Aukanótt í gistingu:
2.750 kr. á mann.
Viðbótarsólarhringur
á bíl kostar 6.000 kr. f. tvo.
•Innifalið í tilboðsverði:
Flug fram og til baka, flugvallarskattar, gisting með
morgunverði og HERTZ bílaleigubíll í einn
sólarhring með ótakmörkuðum akstri og tryggingu.
Tilboðið gildir I nóvember í ákveðnar áætlunar-
flugferðir. Lágmarksdvöl á fsafirði er ein nótt.
NÚ
geta menn leigt og skilað bílum á átta afgreiðslustöðum í öllum landshlutum og
* m
jafnframt á öllum áfangastöðum Flugfélags Islands. Petta eykur svigrúm
viðskiptavina sem geta flogið hvert á land sem er og leigt bíl á áfangastaðnum.
Af þessu tilefni bjóðum við eftirfarandi tilboð:
Nethag-
kerfíð
stækkar
STÆRÐ nethagkerfisins mun fara
yfir 1.000 milljarða Bandaríkjadala,
eða sem nemur um 70 þúsund mill-
jörðum íslenskra króna á árinu
2001 samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknar sem kynntar hafa verið í
Framingham í Massachusetts í
Bandaríkjunum. Rannsakendur
telja að stærð hagkerfisins geti far-
ið yfir 3.000 milljarða á árinu 2003.
Nethagkerfið samanstendur af
þremur þáttur, viðskiptum á Net-
inu og fjárfestingu í tækninýjung-
um og markaðssetningu.
Fyrirtækið International Data
Corporation stóð að rannsókninni.
Anna Giraldo Kerr sem kynnti nið-
urstöðumar segir að á upphafsár-
um Netsins hafi fjárfestar einblínt
á tækninýjungar og þjónustu til að
efla innviði Netsins, ná til fjölda
fólks og hvetja netnotendur til að
stunda viðskipti á Netinu.
Hún segir að nú sé þetta að
breytast og hlutur þeirra fjárfest-
inga sem_ ekki varði tæknina sé að
aukast. Á síðasta ári var 52% af
fjárfestingum á Netinu varið til
tækninýjunga. Giraldo Kerr og
samstarfsmenn spá því að þetta
hlutfall verði komið niður í 39% árið
2003.
-----♦ ♦♦----
JC stofnar
viðskiptafélag
JUNIOR Chamber ísland hefur
stofnað viðskiptafélag innan hreyf-
ingarinnar í samvinnu við Verslun-
arráð íslands.
Markmið með þessu nýja félagi
er að bjóða félagsmönnum upp á
námskeið með sérstaka áherslu á
stjórnun, framsögn og tækifærum
til að vinna að viðskiptatengdum
verkefnum. Viðskiptafélagið mun
byggja upp tengsl við atvinnulífið.