Morgunblaðið - 05.11.1999, Qupperneq 54
•? 54 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og iangafi,
ÆVAR HRAFN ÍSBERG,
Hrauntungu 25,
Kópavogi,
andaðist að morgni miðvikudagsins 3. nóvem-
ber á líknardeild Landspítalans.
Vilborg Bremnes isberg,
Svanborg ísberg, Ingólfur Hreiðarsson,
Bára Hafsteinsdóttir,
Árni Einarsson,
Guðrún Lilja Jóhannsdóttir,
Heigi Hjálmarsson,
Ásdís Káradóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Jóhann ísberg,
Ámi ísberg,
Ásta ísberg,
Ari ísberg,
Guðrún ísberg,
Ævar ísberg,
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
VERONIKA E. JÓHANNESDÓTTIR,
Lágholti 2,
Mosfellsbæ,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 2. nóvember.
Axel Albertsson,
Aldís Anna Axelsdóttir,
Albert Axelsson,
Agnar Logi Axelsson, Ágústa Hallsdóttir,
Karl Axel, Sveindís Björk,
Halla Ýr, Tinna Rut, Vera Ósk,
Hallur Ólafur, Gunnar Logi.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
BIRNA ÞORLEIFSDÓTTIR THORLACIUS,
Ólafsvegi 12,
Ólafsfirði,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðju-
daginn 9. nóvember kl. 13.30.
Gunnlaugur Gunnlaugsson,
Þorleifur Th. Sigurjónsson, Sigrún Andrésdóttir,
Dalla Gunnlaugsdóttir, Agnar Sverrisson,
Ágústa Gunnlaugsdóttir, Sigurður Ólafsson,
Birkir Gunnlaugsson
og barnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
NJÁLL ANDERSEN
frá Sólbakka,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum laugardaginn 6. nóvemberkl. 14.
Halldóra Úlfarsdóttir,
María Njálsdóttir, Kolbeinn Óiafsson,
Úlfar Njálsson, Halla Hafsteinsdóttir,
Harpa Njálsdóttir, Atli Sigurðsson,
Jóhanna Njálsdóttir, Ragnar Óskarsson,
Pétur Njálsson, Andrea Gunnarsdóttir,
Friðrik Njálsson, Siw Schalin,
barnabörn og barnabarnabörn.
J*
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og iangafi,
KONRÁÐ KRISTINN KONRÁÐSSON
frá Siglufirði,
verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laugar-
daginn 6. nóvember kl. 11.00.
Óskar Konráðsson, Stefanía Eyjólfsdóttir,
Kristinn Konráðsson, Kristín Þorgeirsdóttir,
Sigurður Konráðsson, Dagbjört Jónsdóttir,
Margrét Konráðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
GUÐMUNDUR
HÁKONARSON
Stjórnmálahugtakið
„eðalkrati" nær ein-
ungis til þeirra sem
teljast til lýðræðisjafn-
aðarmanna (sósíal-
demókratar) en ekki
annarra. Einnig er þess krafist að
eðalkratar hafi ekki verið í öðrum
flokkum en lýðræðisjafnaðar-
mannaflokkum sem skilur frá þá
sem aðhyllast eða fylgdu alræðis-
stefnu austur þar eða vestan Atl-
antshafs. Hér er því eingöngu átt
við einsflokksmenn svonefnda al-
þýðuflokksmenn en ekki þá sem
keyptir voru á niðurlægingartíma
Alþýðuflokksins („sálnaveiðitíma").
Hjarta eðalkrata slær til vinstri -
það slær til samfélags sólarmegin
við norræna velferðarheimilið.
Kynni mín og Guðmundar Há-
konarsonar eru til komin að þar
sem ég er sonur ein-
stæðrar móður (Jón-
hildar Halldórsdóttur)
og er föðurlaus þótti
því hollt þegar ég stóð
ekki fram úr hnefa að
ég dveldi á sumrin
norður á Húsavík við
Skjálfanda. Bjó ég þar
í fyrstu hjá ömmu
minni og afa sem nú
eru bæði látin. Amma
mín Halldóra Gunn-
arsdóttir var bæði
húsmóðir og þvotta-
kona en afi minn Hall-
dór Jónsson var bæj-
arpóstur þegar þarna var komið í
stritsögu þein-a hjóna. Bjuggu þau
í tveggja hæða tréhúsi með risi er
Bali nefnist sem stendur nú í
skrúðgarði Húsvíkinga miðjum
rétt þar hjá sem heitir við Búðará.
Hinum megin við götu þá er liggur
að lokum alla leið upp á Reykja-
heiði bjó svo og býr enn Stefanía
Halldórsdóttir frænka mín og syst-
ir móður minnar svo og Guðmund-
ur eiginmaður hennar nú látinn
ásamt börnum sínum Hákoni Ola
og síðar Dóru Fjólu. Eldri Húsvík-
ingar minnast enn á það við mig að
það hafi farið skjálfti um bæinn
MINNBNGAR
+ Guðmundur Há-
konarson fædd-
ist á Húsavík 16.
september 1930.
Hann lést á Akur-
eyri 11. október síð-
astliðinn og fór út-
för hans fram frá
Húsavíkurkirkju 16.
október.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns og stjúpföður okkar,
INGÓLFS SIGURÐSSONAR,
Kleppsvegi 6.
Sesselja Guðmundsdóttir
og stjúpbörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug
og vináttu við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SOLVEIGAR SVEINBJARNARDÓTTUR,
Álfaskeiði 38,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks St. Jósefs-
spítala, Hafnarfirði.
Kristján Loftsson, Auðbjörg Steinbach,
Birna Loftsdóttir,
Solveig Birna Gísladóttir, Loftur Bjarni Gíslason,
Guðmundur Steinbach,
Loftur Kristjánsson, María Kristjánsdóttir.
Þökkum þeim, sem sýndu okkur samúð
vegna andláts og útfarar móður okkar,
AUÐAR J. AUÐUNS,
og vottuðu minningu hennar virðingu.
Jón Hermannsson, Kolbrún Jóhannesdóttir,
Einar Hermannsson, Kristín Guðnadóttir,
Margrét Hermanns Auðardóttir, Sigfús Björnsson,
Árni Hermannsson, Erla Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og hlý-
hug við andlát og útför systur minnar,
MARÍU HAFLIÐADÓTTUR,
Bjarkargötu 12.
Sérstakar þakkir til starfsfólks blóðskilunar-
deildar og deildar 14-G á Landspítalanum fyrir
mjög góða umönnun.
Áslaug Hafliðadóttir.
þegar við frændurnir vorum
„komnir saman“. Og er því ekki að
leyna að enn hefur ekki komist upp
um öll okkar prakkarstrik í þá
daga sem betur fer en ekki áttum
við allt það sem okkur var um
kennt. Höfðu þau amma og afi
miklar áhyggjur af framtíð okkar
frænda en alltaf tók hún amma
svari okkar svo söng í og gaf sig
hvergi hvort sem við áttum að hafa
aflífað nokkrar hænur hjá næsta
nágranna hennar eða að við þving-
að stelpur til að borða ánamaðka!
Guðmundur Hákonarson hóf á
þessum árum að taka þátt í bæjar-
málapólitík á Húsavík fyrir hönd
Alþýðuflokks og fór mikinn. Hafði
það að sjálfsögðu áhrif á heimilislíf-
ið að Sólvölluin 7 og þurfti hann að
hafa snarar hendur við matarborð-
ið og hlaupa oft í síma eða fara út í
forstofuhurð. Þurfti Stefanía eða
„Stefa“ oftast að ná í hann sjálf
fram í hurð áður en maturinn kóln-
aði alveg - einkum á kosningavor-
um. Segja má að rauða eldhúsborð-
ið þeirra hjóna hafí verið fæðingar-
staður þeirra bæjarstjórnarkosn-
ingasigra sem Alþýðuflokkurinn
vann á árunum kringum 1970 og
svo aftur vorið 1998. En það var
sama á hverju gekk, alltaf þvoði
Guðmundur eða fremur „Mundi“
upp leirtauið sem auðvitað hvatti
aðra við matarborðið til þess að
taka snarlega til matar síns. Eftir
matinn fékk Mundi sér svo i pípu
og hlustaði á fréttir - og saug í sig
pólitík líðandi stundar.
Mundi kom mér í föðurstað að
því marki sem það er nú hægt en
skapferlið í mína móðurætt er
hvorki þjált né undirgefið. Því skal
ekki leynt hér að fyrir nokkrum ár-
um kom upp á milli okkar Guð-
mundar ósætti sem skiptir nú ekki
máli þegar horft er um farinn veg.
Ég fékk á tilfinninguna fyrir
nokkrum vikum að það kynni að
vera rétt að brúa þá vik milli vina
sem brotnað hafði iýrir tilstilli ill-
mælgi og rógs manna sem náðu
eyrum Munda og hóf nokkrar að-
gerðir til þess að ná fram sættum
okkar í milli. Nú þegar óljóst er um
hvort við hittumst nokkru sinni
þykir mér rétt að minnast þess
manns er gekk mér í föðurstað.
Minningarbók bernsku minnar
geymir margar myndir af ferðum
mínum með fjölskyldunni á Húsa-
vík norður þar en þau Mundi og
Stefa ferðuðust mikið um Island á
þessum árum og fóru á seinni árum
oft til útlanda saman einkum til
Mið-Evrópu og til sólarlanda.
Minnist ég margra ferða upp í Mý-
vatnssveit, svo sem að Dimmu-
borgum, í Asbyrgi, Vaglaskóg,
Hljóðakletta, svo og austur á land
allt að Vopnafirði til þess að skoða
landið, veiða bleikju eða tína ber.
Guðmundur alltaf syngjandi við
stýrið en hann tók þátt í kórstarfi.
Stefa hafði hins vegar vakandi
auga á umferðinni og svo á okkur
krökkunum í aftursætinu. Mundi
átti marga vini um allt Norður-
landskjördæmi eystra og stöðvaði
hann bílinn víða á þessum ferðum
og tók menn tali og ræddi hann
einkum við viðmælendur sína um
pólitík og ættfræði. Var ætíð hlýja,
léttleiki og birta í samskiptum
hans við fólk enda var Guðmundur
einn þeirra manna sem veita mönn-
um þá tilfinningu að það sé komið
vor eða það sé allavega á næsta
leiti hver sem árstíðin eða þjóðfé-
lagsástandið annars er.
Guðmundur var kosinn í bæjar-
stjórn fyrir um þrjátíu árum og
hófst þá blómaskeið í sögu Húsa-
víkur með ýmsum stórfram-
kvæmdum svo sem lagningu hita-
veitu og byggingu annarra mann-
virkja sem enn standa til minning-
ar um stórhuga mann sem fram-
kvæmdi. Mundi var hins vegar
ekki þannig stjórnmálamaður sem
reisir sér eingöngu bautarstein úr
steypu og stáli því hann var örugg-
ur stríðsmaður lítilmagnans og
kom oft fyrir að hann veitti fólki lið
langt umfram það sem hann hafði
bolmagn til. Samskipti hans og Al-
þýðuflokksins syðra verða ekki
rakin hér en þess verður að minn-