Morgunblaðið - 05.11.1999, Side 55
MORGUNB LAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 51?
KIRKJUSTARF
ast að í „Vilmundarkosningunum“
árið 1978 ákvað flokksskrifstofan
að hann yrði að víkja til um sæti á
lista til alþingiskosninga án þess
það væri rökstutt. Skyldi hann
vfkja úr öruggu þingsæti eftir því
sem þá horfði og varð. Flestir
hefðu ekki tekið slíku ósanngjörnu
valdboði en Guðmundur tók þá
ákvörðun að standa ekki í stappi og
lagði fram mikla vinnu fyrir þær
kosningar og aðrar síðan. Við
þessa raun hlaut hann eldskírn
sína sem „eðalkrati" og verður
hann við það stærri í minningunni
en aðrir sem hlutu meiri frama eins
og það heitir. Eiga alþýðuflokks-
menn að minnast hans í þessu ljósi.
Hins trausta lýðræðisjafnaðar-
manns. Flokksfélaga.
„Vinstri“menn slá sér gjarnan á
brjóst í tilefni „Reykjavíkurlistans"
en fyrirmynd til vinstri er að finna
á Húsavík. Þar tókst fríðu liði
ungra og gamalla lýðræðisjafnað-
ai-manna undir handleiðslu Guð-
mundar Hákonarsonar við síðustu
bæjarstjórnarkosningar að fella ís-
lenska íhaldið sameinað. Og hafa
nú tekið við að endurreisa bæjar-
samfélagið úr íhaldsrústum. Hjart-
að slær til vinstri - og gnýr þess
berst út Skjálfanda.
Halldór E. Sigurbjömsson.
----+++---
GUÐNÝ
ÞÓRAR-
INS-
DÓTTIR
+ Guðný Jónína (Dúný) Þórar-
insdóttir fæddist í Reykja-
vík 1. mars 1933. Hún lést á Víf-
ilsstaðaspítala 18. október síð-
astliðinn og fór útför hennar
fram frá Fossvogskirkju 26.
október.
Elsku Dúný, þú varst mér alveg
einstök manneskja, svo skapgóð,
nægjusöm og æðrulaus. Alltaf svo
stutt í brosið og hláturinn. 0, elsku
Dúný, ég veit ekki hvernig á ég að
segja það með orðum eða skrifa
það niður á blað en þú varst alltaf
svo hlý og góð við mig og fjölskyld-
una að þú varst mér sem önnur
móðir í mínum huga og börnunum
mínum. Þegar mér bárust þær
fréttir að þú værir búin að kveðja
okkur hugsaði ég með mér að þú
værir búin að fá hvíld frá veikind-
um þínum og að þér liði miklu bet-
ur núna.
Eg mun aldrei gleyma þér og öll-
um mínum minningum um þig,
hvemig þú varst við mig og börnin
mín. Stundum þegar hún Úlla fór
til þín og tók með mat frá mér þá
voru orðin þín svona: „Hún Begga
eldar alveg eins og á gamla mát-
ann.“ Fékk ég svo yfirleitt eitt sím-
tal frá þér.
Það er á enda núna, elsku Dúný.
Guð veri með þér. Við munum
sakna þín mjög mikið en við vitum
að þér líður miklu betur núna og
það mun hugga okkur í lífinu.
Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
og heldur ósjálfbjarga því er ver.
Ef værir þú hjá mér, vildi ég glaður
verða betri en ég er.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Eg harma það en samt ég verð að segja
að sumarið líður alltof fljótt.
Við gætum sungið gengið um,
gleymt okkur með blómunum.
Er rökkvar ráðið stjörnumál.
Gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niður á strönd.
Fundið stað, sameinað beggja sál.
(Vilhj. Vilhj.)
Við sendum fjölskyldunni og
vandamönnum innilega samúðar-
kveðju og vonum að allt muni
ganga vel í lífinu hjá þeim.
Bergljót Kristjánsdóttir,
Heiðar Matthíasson og börn.
INGVELDUR
STEFÁNSDÓTTIR
+ Ingveldur Stef-
ánsdóttir var
fædd 1. ágúst 1932 í
V estmannaeyjum
þar sem hún ólst
upp. Ingveldur lést
24. október síðast-
liðinn á Kvenna-
deild Landspítalans.
Foreldrar hennar
voru Rósa Runólfs-
dóttir, f. 9. nóvem-
ber 1909, d. 25. apr-
íl 1948 og Stefán
Guðjónsson, f. 8.
maí 1904, d. 4. nóv-
ember 1987. Bróðir
Ingveldar er Guðjón Stefáns-
son, f. 7. janúar 1936. Hann er
giftur Ernu Tómasdóttur og
eiga þau sex börn. Hinn 1. ágúst
1953 giftist Ingveldur Rögn-
valdi Bjarnasyni, f. 3. janúar
1932. Börn þeirra eru: 1) Stefán
Rögnvaldsson, f. 7. maí 1953
giftur Herdísi Jónsdóttur. Börn
þeirra eru: Jón Hannes, f. 7.
október 1979. Ásgerður Drífa,
f. 17. febrúar 1983 og Stefán
Ingi, f. 30. mars 1992. 2) Bjarni
Rögnvaldsson, f. 7. maí 1953
giftur Helgu Guðnadóttur. Börn
þeirra eru: Rögnvaldur, f. 11.
í dag er til moldar borin tengda-
móðir mín Ingveldur Stefánsdóttir.
Kyrrð dauðans grúfir yfir og komið
er að kveðjustund. Hún er laus úr
viðjum hins þungbæra sjúkdóms.
Minningarnar streyma fram,
þær verða geymdar sem gimstein-
ar sem ekkert fær eytt. Inga átti
ætíð gnægð ástúðar og umhyggju
hvað sem á bjátaði. Hún hafði
áhuga og skilning á öllu sem snerti
börnin og barnabörnin. í hlutverki
móður, lífsförunautar og ömmu
naut hún sín best. Hún var kát og
drífandi í fjölmenni en mér eru þó
efst í huga þær stundir sem við átt-
um saman þegar hún rölti yfir til
mín, gjarnan að morgni dags.
Seinni hluta árs 1995 syrti að. í
september það ár veiktist Inga og
erfiðir tímar fóru í hönd. Hún bar
harm sinn í hljóði og kvartaði
aldrei. Við sem eftir lifum minn-
umst með hlýhug dugnaðar henn-
ar, umhyggju og góðvildar.
Ég er þakklát iýrir að hafa
kynnst Ingu sem tengdadóttir og
bömin sakna góðrar ömmu.
september 1972.
Hann á þrjú börn.
Anna Margrét, f.
15. september 1977.
Unnusti hennar er
Þorvarður Tjörvi
Ólafsson 3) Birgir
Rögnvaldsson, f. 24.
febrúar 1959, sam-
býliskona hans er
Guðrún Bergþórs-
dóttir, dóttir þeirra
er Anna María, f. 7.
febrúar 1999. 4)
Rósa Rögnvalds-
dóttir, f. 23. júlí
1963, dóttir hennar
er Inga Aronsdóttir, f. 8. sept-
ember 1982.
Ingveldur og Rögnvaldur
bjuggu í Vestmannaeyjum fram
að gosinu í Vestmannaeyjum í
janúar 1973. Þau fluttu til baka
til Vestmannaeyja en í Kópavog
1978 og bjuggu að Reynigrund
41. Auk húsmóðurstarfa vann
Ingveldur ýmis störf, lengst af í
Árbæjarskóla og síðast í
Snælandsskóla.
Ingveldur Stefánsdóttir verð-
ur jarðsungin frá Digranes-
kirkju í Kópavogi í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Hvíl í friði.
Herdís Jónsdóttir.
Amma okkai’, Ingveldur Stefáns-
dóttir, eða Inga amma, eins og við
kölluðum hana, er dáin. Eftir sitja
góðar minningar sem við getum
geymt í huga okkar um ókomna tíð.
Okkur systkinunum var alltaf tekið
vel þegar við komum í heimsókn, og
var ömmu alltaf umhugað um hvað
dreif á daga okkar, ekki síst hjá þeim
yngsta, Stefáni Inga, sem hún hafði
mikið dálæti á. Við munum hana sem
umhyggjusama, duglega og sterka
persónu, en styrkur hennar kom
berlega í ljós þegar hún háði erfiða
baráttu við sjúkdóminn sem að lok-
um hafði betur, hún kvartaði aldrei
þrátt fyrir allt heldur bar sig vel
fram á síðustu stund. Nú er elskuleg
amma okkar lögst til hinnar hinstu
hvílu, við vitum að þú ert nú á góðum
stað. Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Hvíl í friði.
Jón Hannes, Ásgerður Drífa
og Stefán Ingi.
ÁRNIPÉTUR
JÓNSSON
+ Árni Pétur Jónsson fæædd-
ist í Keflavík 22. september
1919. Hann varð bráðkvaddur á
heimili sínu í Keflavík 23. októ-
ber siðastliðinn og fór útför
hans fram frá Hvalsneskirkju 3.
nóvember.
Kæri vinur, með nokkrum línum
langar okkur bræðurna að þakka
þér fyrir allar þær góðu stundir
sem við áttum saman. Við geymum
minningarnar um góðan vin sem
heimsótti okkur svo oft á okkar
vinnustað. Við vottum börnum og
barnabörnum þínum okkar dýpstu
samúð. Við kveðjum þig, kæri vin-
ur, með söknuði og biðjum góðan
Guð að geyma þig.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Farþúífriði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt
(V. Briem.)
Eyjólfur, Sverrir
Elentínus og
Sævar Sverrissynir.
AXEL
THORARENSEN
+ Axel Thorarensen siglinga-
fræðingur fæddist í Reykja-
vík 12. febrúar 1921. Hann lést á
heimili sínu 26. október síðast-
liðinn og fór útför hans fram frá
Fossvogskirkju 4. nóvember.
Við kveðjum kæran vin með
söknuði og þakklæti. Þakklæti fyrir
allar samverustundirnar sem við
áttum með þeim hjónum öll árin í
okkar lífshlaupi.
Það er mikill söknuður að góðum
vini.
Kæra vinkona og fjölskylda, Guð
veri með ykkur og styrki ykkur í
sorginni.
Jóhanna og Ólafur.
Safnaðarstarf
Kristnihátíð
í Dölum
SIÐARI hátíðin af tveimur kristni-
hátíðum Snæfellsnes- og Dalapró-
fastsdæmis verður haldin í Dalabúð
í Búðardal sunnudaginn 7. nóvem-
ber kl. 14. Vígslubiskup Skálholts-
stiftis, sr. Sigurður Sigurðarson,
flytur þar hátíðaiTæðu en söngfólk
allra kirkjukóranna í Dalasýslu hef-
ur undirbúið söngdagskrá, þar sem
flutt verður m.a. efni eftir ljóð- og
tónskáld Dalamanna. Þá kemur þar
fram barnakór og lúðrasveit, söng-
málastjóri kirkjunnar, Haukur
Guðlaugsson, leikur orgelforleik,
flutt verður hátíðarljóð og leik-
menn og prestar safnaðanna í Döl-
um flytja talað orð.
Kórfólk úr Dölum hefur að und-
anförnu lagt á sig mikla vinnu við
undirbúning hátíðarinnar undir
styrkri stjórn organista sinna,
þeirra Halldórs Þórðarsonar, Lilju
Sveinsdóttur og Sigurðar Þórólfs-
sonar, en sérstakt nótnahefti með
efni hátíðarinnar er gefið út af pró-
fastsdæminu af þessu tilefni. Prest-
ar í Dölum eru sr. Ingiberg J.
Hannesson prófastur og sr. Óskar
Ingi Ingason í Búðardal. Að lokinni
dagskrá verður boðið upp á veiting-
ar í Dalabúð.
Friðrik J. Hjailíir.
Fríkirkjan
100 ára
BRÆÐRAFÉLAG Fríkirkjunnar í
Reykjavík heldur félagsfund í safn-
aðarheimilinu að Laufásvegi 13 á
morgun, laugardag, 6. nóvember,
kl. 11. Sigurður E. Guðmundsson,
formaður safnaðarstjórnar, gerir
grein íyrir fyrirhuguðum hátíðar-
höldum í tilefni 100 ára afmælis
Fríkirkjusafnaðarins, en hann var
stofnaður 19. nóvember 1899 e'ins
og kunnugt er. Einnig mun Guðjón
Björgvinsson sagnfræðingur flytja
erindi um aðdraganda og upphaf
Fríkirkjunnar á íslandi svo og
stofnun Fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík. Félögum bræðrafélags-
ins, ásamt öðru fríkirkjufólki, gefst
nú upplagt tækifæri á þessum
fundi, að kynnast þessum merku
tímamótum kirkjunnar og fræðast
um þennan sögulega viðburð. Létt-
ur hádegisverður verður fram-
reiddur að venju.
Pau voru ljós á
leiðum okkar
NÆSTKOMANDI sunnudag er
allra heilagra messa. Þann dag hef-
ur kirkjan okkar tekið frá til sér-
stakrar þjónustu. Þá minnumst við
ættingja okkar og ástvina sem látn-
ir eru.
Minningu þein’a varðveitum við
með ýmsu móti. Myndir á vegg. Af-
mælisdaga er minnst. Ættingjar
hittast. Steinn er settur á leiði.
Blómum er plantað á leiði að vori.
En þegar styttist til jóla, hátíð
ljóssins, þá kallar kirkjan þín til þín
og hvetur þig til að minnast
horfinna vina. Koma í kirkjuna
þína. Minnast í þökk og bæn alls
þess sem þau voru þér og þínum.
Þegar ástvina er minnst er líka gott
að gera eitthvað, fara á ákveðinn
stað. Fara og vitja um leiði í kirkju-
garði.
Á sunnudaginn kemur býður
kirkjan upp á sérstaka þjónustu í
kirkjugörðum prófastsdæmanna.
Starfsmenn kirkjugarðanna verða
við innkeyrslur og gefa upplýsingar
um staðsetningu leiða fyrir þau
sem vilja. í Fossvogskirkju verðun
samfelld dagskrá frá kl. 14 til kl. 18. —
Organistar, kirkjukórar og tónlist-
arfólk annast tónlistarflutning,
ritningartextar verða lesnir og
beðnar verða bænir. Einnig mun
starfsfólk Hjálparstarfs kirkjunnar
vera með friðarkerti til sölu í
kirkjugörðunum.
Þetta er þriðja árið sem þessi
þjónusta er veitt og hefur reynslan
sýnt að margir þiggja þessa þjón-
ustu kirkjunnar og vitja leiða ást-
vina. Við sem að þessu höfum stað-
ið höfum sérstaklega tekið eftir því
að foreldrar hafa notað tækifæriás?.
og komið með börn sín og unglinga
í garðana. Því vil ég hvetja sem
flesta til að nota þetta tækifæri og
gera þannig hvoru tveggja í senn:
Heiðra minningu látinna með ljósi á
leiði, sem minnir okkur á það ljós
sem hin látnu voru okkur og jafn-
framt að gefa sér tóm til helgrar
stundar í húsi Guðs til bænagjörð-
ar. Oft fylgir söknuður og tregi
heimsókn í kiijugarðinn. Komum
með allar okkar tilfinningar inn að
altarinu, þar er þeirra staður. Þai'
tekur Drottinn Guð við þeim og
veitir okkur í staðinn frið, huggun
og styrk.
Gylfi Jónsson,
héraðsprestur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi vestra.
Langholtskirkja. Opið hús fyrir alla
aldurshópa kl. 11-13. Létt hreyfing,
slökun og kristin íhugun. Kyrrðar-
og bænastund í kirkjunni kl. 12.
Orgelleikur, sálmasöngur. Fyrir-
bænaefnum má koma til sóknar-
presta og djákna. Kærleiksmáltíð,
súpa, salat og brauð eftir helgi-
stundina.
Laugameskirkja. Morgunbænir k.
6.45. Kaffispjall fyrir mæður, góð
upplifun fyrir börn.
Náttfatanótt kl. 21 í safnaðarheimil-
inu á vegum unglingastarfs Laugai'-
neskirkju, Þróttheima og Blóma-
vals. Unglingahljómsveitin PP
(Penir piltar) kemur fram o.m.fl.
verður í boði.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugai'dagsmorgna.
Trú og mannlíf, biblíulestur og
kyrrðarstund.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra á
morgun, laugardag. Tvíréttuð mál-
tíð kl. 12.30. Sr. Lárus Halldórsson
segir frá mannlífi í Flatey á Breiða-
firði. Fjöldasöngur við undirleik
Reynis Jónassonar. Þátttaka til-
kynnist í síma 511-1560 milli kl. ÍCF
og 12 í síðasta lagi í dag. Allir vel-
komnir.
Ffladelfía. Unglingasamkoma kl.
20.30. Mikill og hress söngur. Allir
hjartanlega velkomnir.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
10 foreldramorgunn. Mæður og feð-
ur með ungum bömum sínum.
Hofskirkja á Skaga. Kirkjuskóli kl.
i4.
Sjöunda dags aðventistar á íslandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bibl-
íufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl.
11.15. Ræðumaður.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Guðsþjónusta kl.
10.15. Biblíufræðsla eftir guðsþjón-
ustu. Ræðumaður. r.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað-
ur.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn-
arfirði: Samkoma kl. 11.
finm/íifrp
Sérverslun með
iilkitré & silkiblém
Laugavegi 63, Vita&tíg&megin &ími 55/ 2040