Morgunblaðið - 05.11.1999, Side 35

Morgunblaðið - 05.11.1999, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 35 V el valin og vel sungin lög TONLIST Geislaplötur NÁTTMÁL Árnesingakórinn í Reykjavík og Félagar úr Baltnesku Fflharmón- íunni. Söngstjórn: Sigurður Braga- son. Hljómsveitarstjórn: Guðmund- ur Emilsson. Píanó- og orgelleikur: Bjarni Þ. Jónatansson. Einsöngur: Rannveig Fríða Bragadóttir, Kris- tín Sædal Sigtiyggsdóttir, Sigurð- ur Bragason, Arni Sighvatsson og Magnús Torfason. Félagar úr kór Kvennaskólans í Reykjavík syngja með í nokkrum lögum. Upp- tökustjóm: Karlis Pinnis (Hafnar- borg 1999 febrúar, mars og aprfl), Vigfús Ingvarsson (Selljamar- neskirkja 1999 mars) og Georg Magnússon. Hljóðvinnsla: Vigfús Ingvarsson/ Páll Sveinn Guð- mundsson. Hljóðvinnsla hljómsveit- arlaga og samsetning: Halldór Vík- ingsson. Utgefandi: Árnesingakórinn í Reykjavík 1999. Dreifing: Skífan. ÞESSI ágæti kór er með langa og fjölbreytta söngskrá á þesssum nýja hljómdiski, 25 góð og vel valin (og vel sungin!) lög, en diskurinn endar á sjálfum þjóðsöngnum, og fannst mér fara vel á því eftir svo góðan og á köflum tilþrifamikinn flutning. Einsöngvarar eru einnig góðir - og einn frábær: Rannveig Fríða Bragadóttir syngur hér ein- söng í þremur lögum, Vorstemmn- ingu og Ave Maria eftir stjórn- andann, Sigurð Bragason, við ljóð Valdimars Lárussonar (bæði lögin góð - hið seinna sérlega fallegt), og Friði á jörðu eftir Árna Thorsteins- son við ljóð Guðmundar Guð- mundssonar. Rannveig Fríða er nú hvorki meira né minna en meðal allra bestu söngvara sem státað hafa af íslensku þjóðerni, en hún hefur í mörg ár starfað erlendis við virt óperuhús. Söngur hennar er hrífandi fallegur, innihaldsríkur og „spirituel". Sigurður Bragason er einnig mjög góður söngvari „með karakter" (svo sem geisladiskar bera vott um), sem fer vel með efni og áherslur. Sigurður hefur stjórnað Arnes- ingakórnum (stofnaður 1967) frá 1988, og hefur starfsemi kórsins farið ört vaxandi á þeim tíma. Kór- inn hefur komið víða fram, hérlend- is sem erlendis. Hann hefur haldið tónleika á öllum Norðurlöndunum, Þýskalandi, Austurríki, Tékklandi, Ítalíu og nú síðast í Riga í Lettlandi vorið 1998. í bæklingi kemur fram að í tengslum við þá tónleikaferð hljóðritaði kórinn nokkur lög við undirleik félaga úr Baltnesku Fíl- harmóníunni í Riga. Einnig söng kórinn með kór Lettnesku akadem- íunnar og Baltnesku Fílharmón- íunni á tónleikum sem haldnir voru í Wagnersalnum til heiðurs forseta- hjónum Islands og Lettlands. Stjómandi var Guðmundur Emils- son. Eins og fyrr segir er söngskráin á þessum hljómdiski fjölbreytt og aðlaðandi, og flutningur yfirleitt jafn og góður - stundum mjög góð- ur. Undirleik annast Bjarni Þ. Jónatansson (píanó, orgel) með miklum ágætum eins og vænta mátti. Minnst hefur verið á þátt fé- laga úr Baltnesku Fílharmóníunni í nokkrum laganna; einnig syngja fé- lagar úr kór Kvennaskólans í Reykjavík með í fimm lögum, þ.á.m. í Lofsöngnum. Hljóðritun hefur yfirleitt tekist vel. Sem sé: mælt með diskinum, og söngur Rannveigar Fríðu er einn og sér alveg þeirra peninga virði sem diskurinn kostar. Oddur Björnsson 4.990 VERÐÁÐURKR. 5.990 Litir: svart blátt vínrautt grænt YSTI ÆFINGAR - UTIVIST - BOMULL ---Skeifunni 19 - S. 568 1717- Opið mánud.- föstud. kl. 9 - 18, laugard. kl. 10 - 16 Einn Kringlu Kristur Gunnars Karlssonar í Kringlunni. Kringlu Kristur NÚ stendur yfir sýning Gunnars Karlssonar myndlistarmanns í Kringlunni í samvinnu við Gallerí Fold. Sýningin, sem ber nafnið Kringlu Kristur, samanstendur af fjórum 5 metra háum myndverkum sem sérstaklega eru gerð með hið stóra rými Kringlunnar í huga. Verkin eru tölvuunnar ljósmynd- ir, teknar í samvinnu við Grím Bjarnason ljósmyndara og Guðjón Hafliðason módel. Myndirnar eru prentaðar hjá Nón. Gunnar Karlsson stundaði myndlistamám við Myndlista- og handíðaskóla íslands og Konung- legu listaakadenuuna í Stokkhólmi. I gegnum árin hefur hann haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Jafnhliða myndlist- inni hefur Gunnar unnið að mynd- skreytingum og auglýsingagerð og hin síðari ár gert teiknimyndir fyr- ir sjónvarp. Hann rekur nú teikni- myndastúdíóið Skrípó. Tennur og list á Mokka „ÞETTA geta allir gert“ er yf- irskrift sýningar Snorra As- mundssonar sem opnuð verð- ur á Mokka í dag, föstudag. Á sýningunni eru ljósmyndir prentaðar á striga af mynd- listarmönnum að bursta í sér tennurnar. Snoni vill með þessari sýn- ingu minna fólk á að bursta í sér tennurnar og að mynd- listarmenn og tannlæknar geta unnið sameiginlega að því að bæta tannhirðu almenn- ings. Sýningin er með stuðningi Tannlæknafélags íslands Ragnheiður sýnir í Smíðar og skart RAGNHEIÐUR Ingunn Ágústs- dóttir opnar sýningu á nýjum skartgripum sínum í Gallerí Smíðar og skart, Skólavörðustíg 16a á laugardag kl. 14. Ragnheiður stundaði nám í lista- háskólanum I’Ecole des Arts Decoratifs í Frakklandi og lauk MA gráðu í hönnun frá Domus Acade- my á Ítalíu. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í sam- sýningum, bæði hér heima og er- lendis. Sýningin er opin kl. 10-18 virka daga og til kl. 14 laugardaga og stendur til 4. desember. Salerni Með lokuðum fæti og setu 15.990 kr. HUSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is YERSLUNIN HÆTTIR ALLT Á AÐ SELJAST Dæmi um verð: Vindjakkar 990 - Skór 990 - Bolir 990 - Síðbuxur 500 - Peysur 990 Bakpokar 990 - Úlpur 2.990 - íþróttagallar 1.990 Vorum að taka upp nýjar vörur Opið: Mán.-fös. 10-18 Laugardaga 10-16 iþrótt Skipholti 50d, sími 562 0025. /Xxzvxu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.