Morgunblaðið - 05.11.1999, Side 62
62 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bréf til Morgunblaðsins
frá dr. Efraim Zuroff
VIRÐULEGI rit-
stjóri.
Þar sem ég er ekki
fastur lesandi dag-
blaðs yðar, leið nokk-
ur tími þangað til ég
heyrði um hið
hneykslanlega viðtal,
sem birtist við Atla
Eðvaldsson í Morg-
unblaðinu 3. október
síðastliðinn undir
heitinu Djöfullinn
sefur aldrei. Eftir að
hafa verið gert kunn-
ugt um efni greinar-
innar, flýtti ég mér
að svara út frá þeirri
vissu, að því lengur sem ósannindi
fá að standa án þess að andmæl-
um sé hreyft, því meiri sé mögu-
leikinn á því að einhver muni í
raun trúa þeim.
Það er afar dapurlegt er börn
trúa ósannindum um foreldra
sína, en það er greinilegt að Atli
Eðvaldsson óskar ekki einungis
að trúa ósannindum um föður
sinn, heldur er einnig mjög ákaf-
ur að dreifa þeim til eins stórs
lesendahóps og mögulegt er, eins
og fram kemur í viðtalinu við
hann. Hinn dapurlegi sannleikur
er hins vegar sá að ævisagan, sem
hann leggur fyrir lesendur blaðs-
ins, er einfaldlega ekki sönn. Ev-
ald Mikson var langt frá því að
vera fórnarlamb kommúnistaof-
sókna, hann var í raun og réttu
nasískur morðingi og samverka-
maður.
Byrjum á meginstaðreyndum.
Þegar nasistar réðust
inn í Sovétríkin, var
Mikson foringi
Omakaitse, sem var
sjálfskipuð, þjóðern-
issinnuð og and-
kommúnísk lög-
reglusveit í
Vonnu-héraði. Deild
hans tók virkan þátt í
ofsóknum og morðum
á fjölda manns, fyrst
og fremst á kommún-
istum og gyðingum,
sem þeir litu á sem
fjendur. Meðal fórn-
arlamba þeirra, sem
voru myrt án dóms
eða nokkurra réttarhalda, var
fjöldi saklausra og óbreyttra
borgara. Samkvæmt vitnisburði,
sem Stofnun Simons Wiesenthals
uppgötvaði í Tallinn, myrti Mik-
son sjálfur 30 manns í Vonnu-hér-
aði og bar ábyrgð á morðum á 150
mönnum til viðbótar, sem myrtir
voru undir hans stjórn.
Sérstaklega óhugnanlegur var
vitnisburður Hiku Mootse, sem
lýsti því hvernig Mikson nauðgaði
móður og dóttur, sem voru gyð-
ingar. Hún lýsir atburðinum
þannig: „Er ég var tekin til fanga
í Vonnu-héraði, sá ég ásamt öðr-
um föngum í gegnum glugga
kjallara, hvernig Mikson ásamt
hópi Omakaitse-manna, 6 eða 7
talsins, tóku tvær gyðingakonur
út á götuna, móður um fertugt og
dóttur hennar, sem var 17 til 19
ára gömul, afklæddu þær, settu
keðjur um háls þeirra, bundu
hendur fyrir aftan bak og byrjuðu
að hæðast að þeim. Verðirnir
drógu konurnar eftir jörðinni,
neyddu þær til þess að beygja sig
niður og bíta gras og ýttu þeim
síðan niður að jörðu og nauðguðu
Bréf
Mér þykir leitt að heyra
að Atla og systur hans
hafí borist hótanir, segir
Efraim Zuroff. Þau
bera vissulega enga sök
á glæpum föður síns.
þeim. Ég sá hvernig Mikson
nauðgaði konunum fyrstur og á
eftir honum gerðu allir hinir verð-
irnir það einnig. Konurnar voru
niðurbrotnar og voru síðan dregn-
ar bak við skúr og skotnar til
bana.“
Eftir verk sín í Vonnu-héraði
hélt Mikson til Tallinn í Harju-
héraði, þar sem hann þjónaði sem
aðstoðarforingi í pólitískri lög-
reglu Eistlands í borginni. I því
embætti tók hann einnig virkan
þátt í ofsóknum og morðum á óbr-
eyttum borgurum, þar á meðal á
gyðingum. Skjöl þau, sem greini-
lega sanna virkan þátt hans í
þessum glæpum, voru birt á Isl-
andi árið 1992 af íslensku blaða-
mönnunum Þór Jónssyni og Karli
Th. Birgissyni. Þau sýna hið mik-
Efraim Zuroff
ilvæga hlutverk sem Evald Mis-
kon lék við útrýmingu gyðinga í
Tallinn og við morð á mörgum
saklausum Eistlendingum. Hlut-
verk hans sem samverkamanns
nasista og fjöldamorðinga leiddi
til þess að hann flýði til Svíþjóðar,
til að komast undan refsingu So-
vétmanna, sem á endanum hern-
ámu ættland hans. Að greina frá
þeim flótta, eins og að hann hafi
einvörðungu byggst á ráðum
ömmu Atla er hlægilegt. Mikson
flýði til Svíþjóðar, eins og svo
margir úr fremstu röð eistneskra
samverkamanna nasista, vegna
þess að hann vissi að Sovétmenn
myndu veita þeim Eistlendingum,
sem höfðu haft samvinnu við nas-
ista, harða refsingu og vildi hann
sjálfur komast undan þeim örlög-
um.
Hvað varðar frásögn Atla af
veru föður hans í Svíþjóð, þá held-
ur hann áfram að segja ævintýri.
Þegar mál Miksons, eins og ann-
arra eistneskra flóttamanna, var
rannsakað af sænskum yfirvöld-
um, uppgötvuðust glæpir hans og
það var þess vegna ákveðið að
hann ætti að verða sendur aftur
til Eistlands. Hann slapp að lok-
um undan þeim örlögum, ein-
göngu vegna þess að vinveittur
sænskur embættismaður leyfði
honum að yfirgefa prísundina og
stíga á fjöl skips sem hélt til Ven-
ezuela. Skip þetta varð að hafa
viðdvöl á Islandi vegna einhvers
konar vélarbilunar, og það var
þannig sem Evald Mikson á end-
anum varð Eðvald Hinriksson.
Hvað varðar frásögnina um
hvað gerðist á Islandi, gleymir
Atli ef til vill mikilvægasta þætt-
inum, því að Hallvarður Einvarðs-
son ríkissaksóknari tilkynnti hinn
13. ágúst 1993, að rannsókn á
meintum glæpum Eðvalds Hin-
rikssonar væri hafin hjá embætti
hans. Þeirri rannsókn var hætt
eftir að Eðvald Hinriksson lést
27. desember 1993. Það er mjög
líklegt að ef fráfall hans hefði ekki
borið að, þá hefði hann verið sótt;
ur til saka á Islandi fyrir morð. í
þessu sambandi er auðveldast að
kenna djöflinum, „sem aldrei sef-
ur“ um. En hvernig skýrir Atli
það, að sakarannsókn hófst í
Reykjavík, en ekki í Moskvu
kommúnismans?
Mér þykir leitt að heyra að Atla
og systur hans hafi borist hótanir.
Þau bera vissulega enga sök á
glæpum föður síns. En Atli ber
ábyrgð á einum neikvæðum þætti.
Með því að greina rangt frá glæp-
um þeim sem faðir hans framdi í
Eistlandi, en óljóst er hvort Atli
gerir svo vísvitandi eður ei, er það
vanvirðing við minningu fórnar-
lamba Evalds Miksons og á vissan
hátt ófræging á þeim sem reyndu
að sækja hann til saka. Fórnar-
lömb Miksons geta því miður ekki
varið mannorð sitt, en þau okkar,
sem reyndu að leiða fjöldamorð-
ingja fyrir dómstól, eru hér enn,
reiðubúin að leggja fram sagn-
fræðilegar staðreyndir.
Ég er viss um að AtU Eðvalds-
son er frækinn íþróttamaður, en
afrek í íþróttum gefa ekki mönn-
um visku eða ónæmi gegn ósann-
indum, sér í lagi þeim sem ást-
kærir foreldrar fara með. Eins
sársaukafullt og það hlýtur að
vera, er tími til kominn fyrir Atla
að sætta sig við sannleikann um
föður sinn. Eg kenni í brjósti um
hann hvað það varðar, en ég missi
alla samúð er hann reynir að
hylja yfir hina hræðilegu glæpi
sem voru hluti af helförinni.
Virðingarfyllst,
DR. EFRAIM ZUROFF
Höfundur eryfirmaður Stofnunar
Simons Wiesenthals íJerúsalem.
Helena
Rubinstein
Two Way
POWDERCAKEMAKE-UP
Nýr púðurfarði, sem nota
má þurran eða með
rökum svampi. Fljótlegur
í notkun og samlagast
húðinni fullkomlega.
Kynning í dag og á morgun.
LÍTTU VIÐ OG FÁÐU RÁÐGJÖF.
UtttttU
Glæsilegur kaupauki
fylgir þegar verslað er
Kringlunni, H Y G E A
fyrir 4.000 eða meira. sími 533 4533 tnyrtivdruvcrjlun
Nýr maskari frá
Elizabeth Arden!
Kvnning í llvgea á Laugaveginum í dag og á morgun
Nýi maskarinn frá Arden gerir
augnahárin að óaðfínnanlegri
heild, aðskilur hvert hár og gerir
þau mjúk og létt.
Verið velkomnar!
Ath. glæsileg tilboð á kremum
og ilmvötnum
lizabeth Arden
Fegurðarinnar fremsta nafn