Morgunblaðið - 05.11.1999, Síða 64
f 4 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
MorgunblaðiðA^aldimar Kristinsson
Heimsmeistaramótið var vinsælt sjónvarpsefni, en um 38% þjóðarinnar horfðu á sjónvarpsþátt um mótið.
38 prósent þjóðarinnar
horfðu á þátt um
Heimsmeistaramótið
NIÐURSTÖÐUR Gallup könnunar
benda til að um 38% þjóðarinnar
hafí horft á sjónvarpsþáttinn um
Heimsmeistaramót íslenskra hesta í
Þýskalandi sem var á dagskrá Sjón-
varpsins sunnudagskvöldið 10. októ-
ber síðastliðinn. Tæplega 89%
þeirra sögðu að þátturinn hafí höfð-
að mjög vel eða frekar vel til þeirra.
Niðurstöður þessar voru kynntai-
á 50. ársþingi Landssambands
hestamannafélaga um síðustu helgi,
en könnunina gerði Gallup fyrir
LH. Markmið hennar var að kanna
áhorf á sjónvarpsþáttinn auk þess
að kanna viðhorf til kynningar á Is-
landi erlendis. Könnunin var fram-
kvæmd í gegnum síma dagana 12.
til 25. október sl. Gert var tilviljun-
arúrtak 1.000 einstaklinga af öllu
landinu á aldrinum 16-80 ára úr
þjóðskrá. Nettósvörun var 72,1%.
Þegar spurt var: hversu miklu
eða litlu máli telur þú það skipta að
við nýtum okkur íslenska hestinn í
kynningu á Islandi erlendis? svör-
uðu 36% að það skipti mjög miklu
máli og 35% að það skipti frekar
miklu máli. 7% sögðu það skipta
mjög litlu máli og 11% frekar litlu
máli. Aftur á móti sögðu 67% að ís-
lensk náttúrafegurð og hreinleiki
landsins skiptu mjög miklu máli og
30% frekai’ miklu og 53% töldu
menninguna og söguna skipta mjög
miklu máli og 37% frekar miklu.
Þóra Ásgeirsdóttir hjá Gallup
sagði í samtali við Morgunblaðið að
það þætti mjög gott að 38% lands-
manna horfðu á sjónvarpsefni. Það
væru álíka margir og horfðu á stóra
íþróttaviðburði og innlenda
skemmtiþætti samkvæmt annarri
fjölmiðlakönnun sem Gallup hefur
gert. Hún sagði einnig að niðurstað-
an úr könnuninni á mikilvægi ís-
lenskra hesta við landkynningu
væri mjög góð. Umræða um hestinn
við landkynningu sé tiltölulega ný
af nálinni á meðan náttúrufegurð,
hreinleiki, menning og saga væri
það sem búið væri að leggja áherslu
á í landkynningu áratugum saman.
Jón AJbert Sigurbjömsson for-
maður LH sagði að tilgangur könn-
unarinnar hafi meðal annars verið
sá að sýna fram á að íslenski hest-
urinn væri vinsælt sjónvarpsefni.
Niðurstaðan hefði staðfest það.
Hann sagðist vona að hún hefði þau
áhrif að meira yrði fjallað um hesta,
hestamennsku og málefni hesta-
manna í fjölmiðlum.
Nýr valkostur f sjóflutningum
Danmörk - ísland - Danmörk
á 3ja vikna fresti
M.v. Florinda hefur fastar viðkomur í Esbjerg.
Lestunardagur 15. nóv. 1999.
Almenn vara - frystivara - gámar - búslóðir
Gott verð - Dæmi: Sjófrakt 2D ft.
Allir með bestu kjör
(ft 7 Gunnar Guðjónsson sf.
_ ■ "__"Ka ftími 0900 - Fav
elriri'amifthm 562 9200 • Fax 562 3116
5IU|I<1IIIIUIUII Netfang ggship@vortex.is
Undirbúningur
Landsmóts 2000
gengur vel
Undirbúningur fyrir Landsmdt
2000 sem haldið verður á félags-
svæði hestamannafélagsins Fáks í
Víðidal 4.-9. júlí 2000 er í fullum
gangi. Að sögn Haraldar Haralds-
sonar, formanns stjdrnar Lands-
mdts 2000, er hann að mestu sam-
kvæmt áætlun. Vinna við svæðið
hefur gengið hægar en áætlað var
en engin ástæða væri til að dttast
að verkinu Ijúki ekki í tæka tíð.
Bæklingur var gefinn út á ensku
og þýsku fyrir Heimsmeistara-
mdtið í Þýskalandi sl. sumar og
hefur honum verið dreift víða er-
lendis. Einnig hefur mdtið verið
auglýst í Eiðfaxa International.
Haraldur sagði að fljdtlega yrði
farið að auglýsa mdtið meira hér
innanlands.
„Við höfum fengið mjög já-
kvæð viðbrögð hvarvetna,11 sagði
hann. „Nú leggjum við mikla
áherslu á að útvega beitarlönd í
nágrenni svæðisins, enda höfum
við heyrt um marga sem ætla að
koma riðandi á mdtið. Einnig er-
um við að setja okkur í sambandi
við innlend og erlend hesta-
mannafélög og fara fram á að
þau tilefni þátttakendur í 2000
manna og hesta reiðtúr sem far-
inn verður í kringum Rauðavatn
eftir opnunarhátiðina þriðjudag-
inn 4. júlí. Fremstir í fiokki verða
forseti Islands, borgarstjdri og
ráðherrar."
Haraldur segir að reynt verði að
bijdta upp mdtshaldið og bryddað
upp á ýmsum nýjungum. A nýaf-
stöðnu ársþingi Landssambands
hestamannafélaga var einmitt
samþykkt að í tilraunaskyni yrði
gæðingakeppninni breytt þannig
að fullnaðarddmur yrði kveðinn
upp yfir hveijum keppanda sem
væri einn inni á velli í einu. En í
úrslitakeppni lentu hestar í 8.-15.
sæti í B-úrslitum og hestur í 1.-7.
sæti í A-úrslitum auk sigurvegara
úr B-úrslitum. Meira verður um
sýningar og stærri uppákomur á
kvöldin en áður hefúr tíðkast og
sagði Haraldur það meðal annars
gert til þess að fdlk á höfuðborgar-
svæðinu sem hefði gaman af að
koma og fylgjast með þyrfti ekki
að taka sér frí frá vinnu. Þeir sem
áhugasamastir væru gætu fylgst
með kynbötaddmum og forkeppni
á daginn en á kvöldin yrðu úrslit
og veðreiðar.
A næstunni mun Haraldur
mæta á fundi sem Félag tamn-
ingamanna gengst fyrir á
nokkrum stöðum á landinu þar
sem Landsmdt 2000 verður kynnt
og hestamönnum mun gefast
tækifæri til að spyija um tilhögun
þess.
MorgunblaðiðA^aldimar Kristinsson
Frá hdpreið á landsmdtinu á Melgerðismelum 1998. Á Landsmdti 2000
verður bryddað upp á ýmsum nýjungum.
HÚSASKILTI
Pöntunarfrestur fyrír
jól er 20. nóvember
PIPAR0GSALT
Klapparstíg 44 ^ Sími 562 3614
3 LISTHUS REKIN AF
15 LISTAMÖNNUM
U Ci&t
INGA EUN
ÓFEIGUR
MEISTARIJAK0B
Byggingaplatan WD(M)©®
sem allir hafa beðið eftir
VIROCbyggingaplatan er fyrir
veggi, loft og gólf
VIROC®byggingaplatan er eldþolin,
vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og
hljóðeinangrandi
VlRQC'byggingaplötuna er hægt
að nota úti sem inni
VIRQC® byggingaplatan
er umhverfisvæn
VlROC®byggingaplatan er platan
sem verkfræðingurinn getur
fyrirskrifað blint.
ÞÞ
&co
I.eiíii) jrekari upplýsinga
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 & 568 6100
Fréttir á Netinu
<H>mbUs