Morgunblaðið - 05.11.1999, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 29
ERLENT
Rannsókn á hrapi EgyptAir-þotunnar
Fá að sofa
Virðist hafa
brotnað í lofti
Niki Lauda segir fráleitt að
knývendir hafí bilað
Newport. Reuters.
BEÐIÐ var í gær eftir að veður
lægði þar sem farþegaþotan frá Eg-
yptAir hrapaði í sjóinn undan
ströndum Massachusetts í Banda-
ríkjunum sl. sunnudag. Fyrr verður
ekki unnt að reyna að ná upp svörtu
kössunum. Hugsanlegt er, að þeir
geti skýrt hvers vegna þotan
steyptist beint niður á gífurlegum
hraða og klifraði síðan aftur rétt áð-
ur en hún lenti í sjónum.
Athuganir á ratsjármerkjum
sýna, að eitthvað mikið hefur gengið
á áður en þotan fórst en menn eru
þó engu nær um það enn hvað það
var. Ljóst þykir, að vélin hafi tekið
krappa dýfu á næstum hljóðhraða,
fór úr 33.000 fetum í 16.700 fet, en
síðan klifrað mjög bratt upp aftur í
24.000 fet. Þá tók hún aðra dýfu nið-
ur í 10.000 fet en ratsjármerkin
benda til, að þá hafi þotan verið far-
in að brotna í sundur. Eftir það lenti
vélin eða brakið úr henni í sjónum.
Bíða með fjarstýrt tæki
Bandarískt björgunarskip er til-
búið með fjarstýrt tæki, sem sent
verður niður á hafsbotn til að ná í
svörtu kassana, en ekki er búist við,
að veðrið batni fyrr en um helgina.
Svörtu kassarnir geta væntanlega
svarað þeirri spumingu hvort kný-
vendar hafi verið ræstir í flugi en
þeir eru notaðir til að hægja á vél-
inni í lendingu. Fari þeir í gang í
flugi getur það tortímt vélinni.
Flugmenn, sem flugu þotunni frá
Kairó til Bandaríkjanna, hafa skýrt
frá því, að knývendirinn á vinstra
hreyfli hafi verið bilaður er farið var
frá Kairó.
Niki Lauda, eigandi Lauda Air,
segir hins vegar, að útilokað sé, að
knývendir hafi valdið slysinu. Eftir
að flugvél frá Lauda Air fórst hafi
Boeing-verksmiðjumar gert kerfið
þannig úr garði, að það geti ekki
sjálft ræst knývendinn.
Starfsmenn bandarísku strandgæslunnar með hluta af því litla
braki, sem náðst hefur úr EgyptAir-þotunni.
á dýnu
Kúala Lúmpúr. Reuters.
STJÓRNVÖLD í Malasíu hafa
ákveðið að framvegis skuli fangar fá
dýnur til að sofa á í fangelsum
landsins en þeir verða nú að sofa á
bera steingólfinu.
Mannréttindasamtök hafa gagn-
rýnt aðbúnað í fangelsum landsins
og sagt að hann sé ómannúðlegur
og niðurlægjandi. Fram til þessa
hefur þeirri gagnrýni verið vísað á
bug. Forsætisráðherrann, Abdullah
Ahmad Badawi, sagði fyrr á árinu
að fangar gætu ekki búist við að fá
sams konar atlæti og tíðkaðist á
„þriggja-, fjögurra- eða fimm
stjama hótelum".
Gagnrýnin á aðbúnaðinn jókst
mjög þegar Anwar Ibrahim, fyrr-
verandi fjármálaráðherra, var fang-
elsaður og meðal annars sakaður
um spillingu. I klefa hans var engin
dýna, borð eða stóll, klefinn var
gluggalaus og ljós látið loga allan
sólarhringinn.
Óvissa um umbætur í breska velferðarkerfínu
Uppreisn í þingliði stjórnarinnar
London. Daily Telegraph.
FYRIRHUGAÐÁR umbætur bresku stjómar-
innar á velferðarkerfinu era í nokkurri óvissu
eftir að 53 þingmenn Verkamannaflokksins sner-
ust gegn lækkun örorkubóta. Er fátítt, að jafn
margir stjórnarþingmenn snúist gegn ríkis-
stjórninni en þeir neita að aðstoða ráðherrana við
að vinna bug á andstöðu lávarðadeildarinnar og
krefjast þess, að dregið verði verulegu úr þeim
takmörkunum, sem settar hafa verið við greiðslu
örorkubóta.
Vegna andstöðu þingmannanna er meirihluti
Verkamannaflokksins í neðri deildinni ekki leng-
ur 178, heldur 58 og það er ávísun á aukin átök
við lávarðadeildina um framvörpin um umbætur
á velferðarkerfinu og lífeyrisgreiðslur á síðustu
dögum þingsins að sinni en þinghlé verður gert í
næstu viku.
Lávarðadeildin felldi framvörp stjómarinnar
með 156 atkvæðum í síðasta mánuði og andstaða
þingmannanna 53 jafngildir næstum, að deildin
hafi umboð til að taka upp aftur þær breytingar,
sem hún gerði á frumvörpunum.
Þingmenn Ihaldsflokksins fögnuðu uppreisn
Verkamannaflokksþingmannanna og sögðu
hana vera „siðferðilegan sigur“ fyrir örorku-
þega en „niðurlægingu" fyrir stjórnina. Alistair
Darling félagsmálaráðherra reyndi hins vegar
að bera sig vel og kvaðst bara ánægður með
framvindu málsins enn sem komið væri. Tony
Blair forsætisráðherra hefur áður rökstutt um-
bætur á velferðarkerfinu með því að benda á,
að frá 1979 hafi tala örorkuþega í Bretlandi
hvorki meira né minna en þrefaldast. „Þegar
allt kemur til alls snýst málið um það hvernig
við verjum því fé, sem fer til velferðarmála,"
sagði Blair.
afs/,
2
af öllum
herrafatnaði
til sunnudags
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup