Morgunblaðið - 05.11.1999, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 61
f
UMRÆÐAN
Er kjarnorkuver
betri kostur?
HVERS vegna
þessi ásókn munaðar-
lausra Framsóknar-
forkólfa (frá því SÍS
leið) í moldarbörð og
glórulaust rót á við-
kvæmu landi efst í
fjallasal? Ríkseinok-
unarfyrirtækið
Landsvirkjun hefur
ekki enn verið lagt
niður. Er það miður.
Þetta fomaldardýr víl-
ar ekkert fyrir sér til
að viðhalda sjálfu sér
og sínum limum. Víða
úti í heimi, gott ef ekki
í einhveju samveldis-
landi Bretadrottning-
ar, hafa áþekk vatnsaflsfyrirtæki á
að skipa vopnuðum ribbaldasveit-
um til að vinna lönd undir lón. Víða
á byggðu bóli hentar að reisa stíflur
til að hemja árviss og mannskæð
flóð jafnframt rafmagnsspennu-
vii'kjunum. Heitir það að slá tvær
flugur í einu höggi. íslenskur
mannauður og hugvit eru á heims-
mælikvarða og samkeppnisfær í
þessum geira og ágætlega hæf til
útflutnings.
Fáir hér á landi velta því mikið
fyrir sér hvað í sið eða menntun
felst. íslendingar, og ekki síst
stjómvöld eiga fyrir þá sök ekki
nógu styrkan bakhjarl og vantar
þar af leiðandi eðlilegan metnað,
sem vissulega er skaði þegar taka
skal stórar ákvarðanir. Hrekur
margt til skaðsemdanna. I vel
hönnuðum kjamorkuvemm er
ítmstu nákvæmni gætt í hvívetna
og í lítilli byggð eins og Fjarða-
byggð mætti vel hugsa sér að reisa
skóla, sem miðaði námskrá við
þarfir fólks, sem vinnur í kjarn-
orkuveri.
Samkvæmt nýrri námskrá fyrir
gmnnskólann skal höfuðmarkmið
nemendanna vera að breyta náms-
efni með aukinni þjálfun og þroska í
söluhæfa vöru, ástundun fyrst og
fremst miðast við hneigðir hvers og
eins. Snemma beygist krókurinn til
þess, sem verða vill. Þarfir nema-
ndans í fyrimúmi heitir það. Bless-
uð litlu bömin. Hvað ætla þau að
verða þegar þau em orðin stór?
Hvað er orðið um sameiginlega
undirstöðu, réttlætið og jafnréttið?
Nú um stundir flokkast starfsþjálf-
un, aukin fæmi vinnuafls, mis-
björgulegir klækir undir menntun í
tali fólks þó bundnara sé áreiti,
sóðahætti og margskyns prettum
fremur en farsælum gáfum, mann-
viti, hjartaprýði eða
ljóði. Huldur, draumar
og veruleiki fortíðar
klingir hvorki bjöllu í
blöðm eða maga, veld-
ur aðeins hroðalegum
uppsölum.
Nú, 23/10 þegar
Þjóðhagsstofnun hef-
ur birt hagkvæmnis-
niðurstöður á álveri í
Reyðarfirði kemur
hvað í ljós. Þessi ríkis-
stofnun með alla sína
snyrtipinna, lætur
kinnroðalaust hafa sig
í að sleppa helming-
num af forsendum
reikningsins. Virkjun-
unum er sleppt, sem kosta hvað,
100 til 120 milljarða, 200 milljarða?
Eiga þessir garpar ekki von á því
að vera úthrópaðir faktúmfalsarar
eða hundingjar hvar sem í þá næst?
Skuldir við útlönd munu aukast um
10% segir þar. En hvað með orkuv-
irkið? Bætast 20% við hin tíu? 30%?
Til þess að þessum málpípum
glópagullsins sé nokkumveginn líft
þurfa fjölmiðlar að lúta sýnd, blaða-
menn að heisa upp um sig skinn-
brókina góðu, fjalla um annað. Er
ekki gaman að fjasa og fá sér þess á
milli hal? Og það er smáskítlegur
terror í gangi, sem magnar fram
ritskoðun á fjölmiðlum og deginum
ljósara að upphaf þessa má snurðu-
laust rekja til lágkúm landsfeðr-
anna. Mönnum er vikið til, saman-
ber siðanefnd af þeirri einu ástæðu
að þeir þykja vera til óþæginda.
Heimsálfurnar sjö hann sá/hinar
fjórar aldrei fann.
Lítilmannlegt er yfirlæti valda-
manna, sem klúka undir merkjum
frjálslyndis og víðsýnis en era fyrst
og síðast tötralegt handreipi þjófs-
nauta, kvótagreifanna, fastir í gísl-
ingu rányrkjuframkvæmda og fár-
Orkumál
Með stórvirkjunum er
aðeins verið að stórauka
-----------7------------
álögur á Islendinga,
segir Jón Bergsteins-
son, áratugi fram í
tímann.
ánlegs kjördæmapots. Ljótt er.
Einu gildir um úrelt stóriðjuáform
og háskalega sóun fjármuna til
skaða landi og lýð. Þessir menn
virðast vera tilbúnir að blekkja og
falsa endalaust, finnst mest um
vert að auðsýna kontór Landsvir-
kjunar og forystubófa litlu Fram-
sóknar tilhlýðilegan þakklætisvott
með kveðju frá kvótaeigendum.
Dýrkeypt spaug það. Með ráðherra
riðandi og rambandi skal jafnvægið
í byggð landsins mælt í tonnum og
hlutfalli úrgangs giska ég á því
þungt skal vega. Gmnnslóðin
teppt, lokuð. Það skal hvað sem það
kostar í fyrirskipaðan tröllaslag við
meinvilltan engil í óspilltum reit, í
því Colosseum, sem heimurinn
þekkir. Þétting byggðar á fjörðum
útheimtir bæði blótstall og fórnir.
Er mönnum ráðin glíman?
Og eignast nú bráðum allir litlir
snáðar og snótir kynhverfa ömmu
með typpi og húfu og rauðan skúf í
peysu? Fá blessuð litlu greyin
sömu vild og vemd og jafnréttháir
faktúmfalsarar íslenska ríkisins
eður ei? Sagði ekki Finnur Ingólfs-
son á dögunum eitthvað á þá leið,
að svo og svo mikill hluti af upp-
sveiflunni í hagkerfinu mætti rekja
beint til stóriðjuframkvæmdanna í
Hvalfirði og víðar um land? Var
Gífurlegt urval af
nýjum jólaefnum
V/RKA
Mörkin 3 - Sími 568 7477»
Opið
Mánud.-fbstud. ld. 10—18
Laugard. kl. 10—16
til 20/12
Jón
Bergsteinsson
ekki Jóhannes Geir nærstaddur? í
þeim töluðu orðum hóf ráðherrann
upp lánsfé vegna framkvæmdanna
í himnaranninní sama hólf og allar
fyrndar íslenskar skuldir fyrr og
síðar eða gjafafé, sem oft og tíðum
er eitt og hið sama. Shó Watt. Er
ekki vani að klappa mönnum lof í
lófa sé lófinn á staðnum og einhver
til að klappa fyrir? Þvílík háðung.
Finnur Ingólfsson og allt þitt ráðs-
lag.
Til hvers ætli búrtíkur ríkisalds-
ins gripu, væntanlega við höfðalag-
ið, ef gengið yrði í að taka stórfeng-
leg lán, sem næmu líkt og skuldir
Landsvirkjunar uppundir helmingi
af skuldum íslenska ríkisins við út-
lönd og einhent yrði sér í að minnka
launa- og aðstöðumun í landinu?
Þetta yrði ekki gert nema í trássi
við verkalýðshreyfinguna. Það er
alveg ljóst. Þyrfti jafn bíræfinn kall
og sitjandi iðnaðarráðherra til að
lýsa þeirri ógnarkýttu uppsveiflu,
líka í tekjum ríkissjóðs, sem í
kjölfarið fylgdi? Það vill gleymast
að skattgreiðendur eru ríkissjóður
og ríkissjóður skattgreiðendur. Þó
stunda vissir stjómmálamenn á
þennan sameiginlega sjóð eins og
ránsfeng sinn eða tæki til að auga
sig og sín hlöðukálfa. Mönnunum er
fyrirmunað að þekkja nokkurn
mun á daglegum ránsfeng sínum og
gróða, sem giftusamlega er sáð til.
Með stórvirkjunum er aðeins
verið að stórauka álögur á íslend-
inga áratugi fram í tímann. Tima-
bundinn gróða hirða fáeinir styrkt-
araðilar stjómmálaflokkanna rétt á
meðan á framkvæmdum stendur og
vitaskuld ríkissjóður, apparatið at-
ama. Alögur vara mannsaldra. Yfir
þessu kjósa reiknimeistarar að
þegja meðan beðið er eftir lánsfúlg-
um. Er mönnum gert skylt að
þegja, hlýða?
Austfirðingar þurfa síst á öðru
eins hervirki að halda til að efla
blómlegt mannlíf. Þótt einhverja
klæi í fingurna, þegar þeir sjá fram
á alvömspekúlasjón á borð við
hermang, þá á óværan ekki að
þurfa að breiða úr sér um allt sem
faraldur. Hvort Fjarðabyggð muni
styrkjast og þéttast þótt þar komi
álver? Töluverðu þarf til að kosta til
að ganga úr skugga um það. Og í
því einhver hagnaðarvon fyrir
suma. Við Islendingar erum heill-
um horfnir heims um ból ef engir
verða til að vinda ofan af þeirri
stöðnuðu vitleysu, sem hér ríður
húsum. Gefi að úr rætist.
Höfundur er verkamaður.
Microsott NovelL^
SVMANTI-C.
p Adobe
Eru hugbúnaðarmál! lagi
...hjá þínu fyrirtæki?
Hugbúnaður er verndaður af lögum um höfundarétt.
Margir tölvunotendur skáka í því skjólinu að þeir viti
ekki hvort forrit eru afrituð eða ósvikin. Þetta er ekki
gild afsökun. Nú er verið er að skera upp herör gegn
hugbúnaðarstuldi — ert þú með hreina samvisku?
Fengi tölvan þín hreint sakavottorð?
©
550-4000
...hringdu núna
Þjónusturáðgjafar Tæknivals veita öll svör við
spurningum um hugbúnað og þau leyfi sem
nauðsynleg eru fyrir löghlýðna tölvunotendur.
Tæknival
www.taeknival.is
borð 160x90 og 4 stólar