Morgunblaðið - 22.12.1999, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 22.12.1999, Blaðsíða 61
j MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 61_ I I ! kl. 10-21, föstud. kl. 10-17, laugard. (1. okt.-30. apríl) kl 13-17. BÓKASAFN SAMTAKANNA ‘78, Laugavegi 3: Opi< mán.-fim, kl. 20-23. Laugard: kl. 14-16.___________ GOETHE-ZENTRUM: Lindargötu 46, Reylyavík. Opk þriðjud. og miðvikud. kl. 16-19, fimmtud., föstud. o{ laugardaga kl. 16-18. Slmi 651-6061. Fax: 552-7570. HAFNARBORG, menningar og listastofnun HafnarQarða' opin alla daga nema þriðjud. frá kl. 12-18.__ KJARVALSSTAÐIR: Opið daglega frá kl. 10-18. Safna leiðsögn kl. 16 á sunnudögum.______________ LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN Opið mán. nmmtud. kl. 8.16-22. Föstud. kl. 8.15-19 oj laugd. 9-17. Sunnud. kl. 11-17. Þjóðdeild lokuö í sunnud. og handritadeild er lokuð á laugard. oj sunnud. S: 525-5600, bréfs: 525-5615.______ LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi Opið eftir samkomulagi. S. 482-2703._______ LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Safnið verður lokat í desember og janúar. Höggmyndagarðurinn er opini alla daga. ________________________________ LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11-17, loka< mánudaga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leið sögn: Opiö alla virka daga kl. 8-16. Bókasafn: Opi< þriðjud.-föstud. kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis á mið vikudögum. Uppl. um dagskrá á intemetinu http//www.natgall.is_________________________ LÍSTASAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið dagleg; kl. 12-18 nema mánud. ___________________ USTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opit laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Upplýsingar í sím; 553-2906.__________________________________ LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opi< alla daga frá kl. 13-16. Simi 563-2630.____ LYFJAFRÆÐISAFNID: Neströð, Seltjarnarnesi. Lokaí yfir vetrarmánuðina. Hópar geta skoðaö safnið eftii samkomulagi.__________________________ MINJASAFN AKUREYRAR, Miiyasafnið á Akureyri, Að alstræti 58, Akureyri. S. 462-4162. Opið frá 16.9.-31.6. í sunnudögum milli kl. 14-16. Einnig eftir samkomulag lyrir hópa. Skrifstofur opnar virka daga kl. 8-16._ mTnJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógun 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11 17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 mí reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögi eldri borgara. Safnbúð með mii\jagripum og handverks munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net fang minaust@eldhorn.is.___________________ MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðin; v/Elliðaár. Opið á sunnudögum kl. 16-17 og eftir sam komulagi. S. 567-9009. _______________________ minjasafn SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í suma: frá kl. 13-17. Hægt er að panta á öðrum tímum í sím; 422-7253.____________________________________ IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opiö frí 1. júní til 31. ágúst kl. 14-18, en lokaö á mánudögum Sími 462-3550 og 897-0206.___________________ MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein holti 4, sími 669-9964. Opið virka daga kl. 9-17 og á öör um tima efttr samkomulagi._________________ NXtTÚRUFRÆDISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12 Opið mlðvikud. og laugd. 13-18. S. 554-0630._ nKtTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir HverfUgMu 111 eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl 13.30-16.__________________________________ NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opiö sam kvæmt samkomulagi. _________________________ NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið. 13-18, sunnud. 14-17 Kaffistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud. PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar firði. Opið þriðjudaga og sunnudaga 16-18. Sími 665 _ 4321._______________________• RJÓMABÚID á Baugsstöðum. Safnið er opið laugardag; og sunnudaga til ágústsloa frá 1.13-18. S. 486-3369. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s 551-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl 13.30- 16._________________________________ SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, ei opið virka daga frá kl. 13.30-16, laugard. og sunnud. frí kl. 13-17 og eftir samkomulagi. S: 665-4442, bréfs. 665 4251, netfang: aog@natmus.is.________________ SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATÍ HINRIKSSONAR, Súðarvogi 4. OpiS þriðjud. - laugard ftikl. 13-17. S. 581-4677._________________ SJÓMINJASAFNIÐ A EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl llppl.l «483-1166,483-1443.__________________ SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10-18 Slmi 435 1480._______________________________ STÖFNUN ÁRNA MAGNÉSSONAR, Arnagarði v/SuSur götu. Handritasýning er opin þriðjudaga til föstudag; _ kl, 14-16 til 15. mai.________________________ SÍEINARÍKI ÍSLANDS A AKRANESI: Opið alla daga kl 13- 18 nema mánudaga. Simi 431-5566._______ ÍJÖÐMINJASAFN ÍSLANDS: OpiS alla daga nemr mánudagakl. 11-17.___________________________ AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga tU fðstu daga kl. 10-19. Laugard. 10-15.______________ LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl 14- 18, Lokað mánudaga.____________________ NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ á Akureyri, Hafnarstræti 81 Opið skv. samkomulagi yfir vetrartímann. Hafið sam band við Náttúrufræðistofnun, Akureyri, í síma 462 2983.________________________________________ NÖNNAHÚS, Aðalslræti 64. Opið a.d. kl. 10-17 frá 1. jún -1. sept. Uppl. 1 sima 462 3555._____________ NORSKA HÚSIÐ í STYKKISHÓLMI: Opiö daglega í sum _ arfrákl. 11-17.____________________________ ORÐ PAGSINS__________________________________ Rcykjavík sími 551-0000. ~ Akurcyri s. 462-1840. _____________________ SUNPSTAÐIR SUNDSTAÐIR í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl 6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opið í bað og heita potta all; daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8 19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50-21.30, helgar 8-19 Breiöholtslaug er opin v.d. kl. 6.50-22, helgar kl. 8-20 Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, hclgar kl. 8 20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.60-22.30, hclgar kl 8-20.30. Kjalarneslaug opin mán. og fimmt. kl. 11-16 _ þri-, mið. og föstud. kl. 17-21.___________ SUNDLAUG KÓI’AVOGS: Opin virka daga 6.30-22 Laugd. og sud. 8-18 (vetur) 8-19 (sumar).____ GARÐAB/ER: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd _ og sud. 8-17. Sölu hætt hálftima firir lokun._ HAFNARFJÖRDUR. Suðurbæjarlaug: Mád.-föst. 7-21 Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll HafnarQarðar: Mád. föst. 6.30-21. Laugd. og sunnud. 8-12._______ VARMÁRLAUG í MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl 6.30- 7.45 oK kl, 16-21. Um helgar kl. 9-18._ SUNDLAUGIN í GRINDAVÍK:Opið alla virka daga kl. 7 21 og kl 11-15 um helgar. Slml 426-7555. SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.46-8.30 og 14-22 helgar 11-18.____________________________ SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mánud.-fðstud. kl 7-21, Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 9-16.____ SUNDLAUGIN Í GARDI: Opin mán.-föst. kl. 7-0 og 15.30 21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300. SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard og sunnud. kl. 8-18. Slmi 461-2532.__________ SUNDIAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-föst. 7 20.30. Laugard. og sunnud. kl. 8-17.30.______ JADARSBAKKALAllG, AKRANESI: Opin mád.-föst. 7 21, laugd. og sud. 0-18, S: 431-2643.________ BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11-20, helgar kl. 10-21. ÚTIVISTARSVÆÐI HUSDYRAGARDURINN er opinn alla daga kl. 10-17. Lok að á miövikudögum. Kaffihúsið opið á sama tfma. Fjöl skyldugarðurinn er opinn sem útivistarsvæði á veturna Sími 5767-800. ____________________________ sorpa___________________________________________ SKRIFSTOFA SORPU er opin ki. 8.20-16.15. Endur vinnslustöðvar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaðai á stórhátíðum. Að auki verða Ánanaust, Garöabær oj Sævarhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.sími 620 Helga Ægisdóttir nýr eigandi Fóu feykirófu. Fóa feykirófa fær nýjan eiganda VERSLUNIN Fóa feykirófa á Skólavörðustíg la hefur skipt um eigendur. Nýr eigandi er Helga Ægisdóttir. Verslunin hefur unnið sér fastan sess á leikfangamarkaðnum með sölu á leikföngum sem oft fást ekki annars staðar, galdradóti, vísinda- dóti, ýmiss konar tréleikfóngum og öðrum skemmtilegum og vönduð- um vörum, segir í fréttatilkynn- ingu. Yfirlýsing frá Braga Asgeirssyni Fáein orð til safn- stjóra MORGUNBLAÐINU hefur borist yfirlýsing frá Braga Asgeirssyni list- gagnrýnanda vegna greinai- sem Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Kjarlvalsstaða og Ásmundasafns, ritaði í blaðið í gær. „Enn er Eiríkur Þorláksson á ferðinni og nú endurtekur hann þá undarlegu ósk sína og áráttu, að rýn- irinn, þ.e. undirritaður, biðjist afsök- unai- á sannfæringu sinni og skoðun- um. Eitthvað er maðurinn minna en skyldi lesinn í skrifum Þýðverjans Gotthold Eprahim Lessing, sem skilgreint hefur rýni einna best ásamt samtíðarmanni sínum Denis Diderot úr Frans, að málefnið eigi að ráða leið í allri rökræðu, ekki per- sónulegar kritur og dylgjur. Rýni á verk eftirkomanda Ás- mundar í híbýlum hans, vistarverum og vinnustofum þ.e. eftirkomenda, sem eru öðru fremur sporgöngu- menn hans í húsinu og nýir herrar þar, en engan veginn afkomendur, sem hér eru langt í frá inni í mynd- inni, er líkt við staðleysur og ómak- legar ásakanir. Hér er þyngdarpunkturinn, að það sem í fljótu bragði sýndist vera úr gifsi, mun vera ljós steypa, sem síðan er húðuð og varin með sterkum fljótandi verndarlagi eins og t.d. múr er skvettur eða veggur kalkaður. Hitt er vafalítið nýtt í dæminu, að nota yfirborðsmálningu, en kemísk efni eru stöðugt að verða betri. Yfir- borðið verður þá nokkuð annað, i senn glanskenndara og voðfelldara, eins og þykk húð á dúk jafnvel mars- ipan og nokkuð ólíkt hinu þurra og kalda gifsi og þar er komin samlík- ingin við möttul. En við það tapast nokkuð af hinni skýru og kláru mynd heildarinnar, í öllu falli saknaði ég gömlu hreinu áferðarinnar eins og hún birtist mér frá hendi listamanns- ins. Þessi sami áferðarmunur kemur og fram í litlum afsteypum sem til sölu eru á staðnum, en þar er matta áferðin til muna samkvæmust form- inu, en það tapar sér við allan glans. Þetta sér jafnvel venjulegt fólk sem er í kauphugleiðingum, þá ég hef út- skýrt þetta, þótt listsögufræðingar virðast eiga merkilega erfitt með að greina muninn. Vísa til og minni enn einu sinni á, að Denis Diderot sagði eitt sinn, að enginn ætti að rýna í málverk sem ekki hafi stungið þumalfingrinum inn um gatið á pall- ettinu, litaspjaldinu. Þá er ekki hægt að ætlast til þess að málari sé efna- fræðingur frekar en rýnir fagmaður á öll efni, hér er það sjálft málverkið sem gildir og formið hugmyndin og útfærslan í skúlptúrverkinu. Þá er með sérstakri húðun, eða patínu, eins og það nefnist á fagmáli, hægt að ná fram mismunandi áferð. Loks er sú viðkvæmni myndhöggvara al- þekkt, að ekki sé hróflað við upp- runalegri áferð verka þeirra, né op- inberum minnismerkjum. Hér hefur þó gerst í seinni tíð að óprúttnir eft- irkomendur hafa hagrætt áferðinni eftir eigin smekk og orðið til harðra viðbragðra listrýna og gagnmenn- taðra listsögufræðinga víða um heim. Ástæðan fyrir því að svar mitt birtist ekki fyrr voru ekki yfirlegur heldur miklar annir við skriftir í blaðið sem höfðu algeran forgang, snertur af flensu og að birting þess tafðist einhverra hluta vegna um nær 10 daga. Það er kannski klént svo jaðrar við ósvífni, að ætlast til ferskra upplýs- inga um það sem til sýnis er á söfn- um hér í borg til yfirlits á æviverki listamanna, einkum ef mögulegt er að vísa til endurútgáfu bóka um þá, ásamt 40 ára fróðleik um efnið í styttunum í enn öðrum bókum. Er þó algild regla og vafalítið veigamik- ið kennsluefni í safnfræði, museum- logi.“ Jóladjass á Selfossi KVARTETT Kristjönu Stefáns heldur árlega jólatónleika sína í kvöld á H.M. Café á Selfossi og hefj- ast þeir kl. 23. Sérstakir gestir verða að þessu sinni söngkonurnar Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir og Helena Kái-adóttir. Kvartett Kristjönu hafa skipað frá upphafi: Smári Kristjánsson bassa- leikari, Gunnar Jónsson trymbill, Vignir Þór Stefánsson píanóleikari og Kristjana Stefánsdóttir söng- kona. Á efnisskrá verða jólalög úr ýmsum áttum. Blúsmenn Andreu á Grandrokk BLÚSMENN Andreu leika á Grandrokk, Smiðjustíg 6, í kvöld, miðvikudagskvöldið 29. desember, kl. 22. Tónleikarnir eru þeir síðustu sem haldnir eru á Grandrokk á öldinni, en Blúsmenn Andreu Gylfadóttur hafa einmitt oft leikið á staðnum við mjög góðar undirtektir. Gestir eru hvattir til að mæta tímanlega. DREGIÐ hefur verið í netleik sem mbl.is stóð að ásamt Háskólabíói, Laugarásbíói, Japis, Rauðará, Mónó og Samvinnuferðum/Land- sýn. Leikurinn var í tilefni af sér- stakri jólasýningu á kvikmyndinni Mikki bláskjár (Mickey Blue Eyes) og gekk út á að svara lauf- léttum spurningum á mbl.is. Góð stemming var á jólaforsýningunni og var boðið upp á jólaveitingar. Vinningar í leiknum voru fjöl- margir. Aðalvinninginn ásamt mið- Jólalög við kertaljós MARGRÉT Árnadóttir sópran, Jón- as Þórir organisti og Martial Nar- deau flautuleikari flytja jólalög við kertaljós í Neskirkju í kvöld, mið- vikudagskvöld, kl. 20.30. Flutt verða m.a. gömul íslensk jólalög, Laudate dominom eftir W.a. Mozart, úr Jóla- oratoríunni eftir J.S. Bach og Mess- ías eftir Fr. Handel. Aðgangur er ókeypis en að tón- leikum loknum verða við anddyrið söfnunarbaukur Hjálparstofnunar kirkjunnar. Gönguferðir á vetrar- sólstöðum HAFNARGÖNGUHÓPURINN stendur fyrir gönguferðum í kvöld, miðvikudagskvöld, á milli Gróttu og gömlu hafnar í Reykjavík. í gönguferðunum verður farið frá Hafnarhúsinu, Miðbakkamegin, kl. 20 og frá ströndinni gegnt Gróttu kl. 21. I báðum ferðunum verður fylgt ströndinni og hafnarbökkum í gömlu höfninni. Allir velkomnir. um á myndina hlaut Ragnar Hlöð- versson (t.h.) sem á myndinni tekur við gjafabréfi upp á ferð til London hjá markaðsstjóra Há- skólabíós, Ægi Dagssyni. Meðal annarra vinninga voru miðar á kvikmyndina 10.000 kr. út- tekt á Rauðará steikhús og geisla- diskur frá Japis. Öllum vinnings- höfum hefur verið sendur tölvupóstur og vilja aðstandendur leiksins óska vinningshöfum til hamingju. Jólastyrkur ÍSAL til Hjálp- ræðishersins ÁRLEGUR jólastyrkur íslenska álfélagsins hf. kom að þessu sinni í hlut Hjálpræðishersins. .Jólastyrk- urinn var afhentur nýlega. ISAL færði Hjálpræðishernum tæp níu tonn af áli, andvirði einnar milljónar króna, og verður for- svarsmönnum hersins síðan gert kauptilboð. Gangi þeir að tilboðinu fá þeir eina milljón króna fyrir ál- ið. I fréttatilkynningu frá Isal seg- ir m.a: „Hjálpræðisherinn hóf starfsemi sína í London árið 1865 til bjargar þeim sem allra minnst - máttu sín þar í borg. Starfsemin breiddist út um allan heim á fáum árum og nú starfar Hjálpræðisher- inn í yfir hundrað löndum. íslands- deild Hjálpræðishersins var stofn- sett 12. maí 1895. Fagnaðarerindið í orði og verki hefur verið út- gangspunkturinn í starfi hersins, sem hefur verið sýnilegastur á Is- landi í kringum jólin. Með fádæma hógværð og kurteisi hafa hermenn Hjálpræðishersins safnað fé fyrir hver jól enda hafa margir leitað á náðir hans um hátíðarnar og m.a. notið góðs af jólamatnum í Her- kastalanum." Radíusbræður á Grandrokk RADÍUSBRÆÐUR skemmta á Grandrokk, Smiðjustíg 6, í kvöld, miðvikudagskvöldið 22. desember, og hefst dagskráin klukkan 22. Þeir félagar, Davíð Þór Jónsson og Steinn Armann Magnússon, hafa að undanförnu unnið nýtt skemmt- iefni og stjórna vinsælum útvarps- þætti á föstudögum á Mono. Gestir eru hvattir til að mæta tímanlega í kvöld. Miðaverð er 500 krónur. r Leiðrétt Ómsvörun í hljóðrými í UMFJÖLLUN minni um nýja geislaplötu Daða Kolbeinssonar, Josephs Ognibene og Harðar Ás- kelssonar, sem birtist nýlega, urðu mér á mistök sem ég harma. Upp- tökustjóri, Sveinn Kjartansson, hef- ur frætt mig á því að það sem ég kall- aði „bjögun" í grein minni mun ekki vera réttnefni heldur ætti fyrirbærið frekar rætur að rekja til ómsvörunar í hljóðrými því þar sem ég hlustaði á diskinn. Yfirleitt reyni ég að hlusta á plötur þær sem ég tek til umfjöllunar heima í stofu og þá gegnum hátalara. Heyrnartól nota ég aðeins í neyð. Sveinn fræddi mig á eðli þessara þriggja hljóðfæra, óbós, horns og orgels, sem eru erfið í upptöku og hafa mikinn óm sem við gefnar að- stæður (líkt og í stofunni minni) gætu hljómað þannig að hljóðmynd væri óskýr. Hvatti hann mig til að hlusta á plötuna í öðru rými og einn- ig með heyi'nartólum. Það hef ég nú gert og komist að því að ekkert af þeim atriðum sem ég nefndi upptök- unni til lasts átti við þegar hlustað var í heyrnartólum og í öðru rými (ég flutti hátalarana í annað herbergi). Ég vil því enn og aftur mæla heils hugar með þessari plötu þeirra fé- laga og bið hlutaðeigandi afsökunar á þeirri ónákvæmni sem fram kom b grein minni. Valdemar Pálsson Höfundur ekki leikstjóri MISHERMT var í leikdómi Soffíu Auðar Birgisdóttur um sýningu LA á Blessuð jólin, að Hlín Agnarsdóttir hefði verið leikstjóri frumuppfærslu leikritsins Láttu ekki deigan síga, Guðmundur. Hið rétta er að Hlín er annar tveggja höfunda, ásamt Eddu Björgvinsdóttur, en Þórhildui’ Þor- leifsdóttir leikstýrði frumuppfærsl- unni í Stúdentaleikhúsinu 1984. íslandsbanki gaf endurskinsvestin í FRÉTT í blaðinu í gær var sagt frá því að krökkunum í Garðaborg voru gefin endurskinsvesti. Þar láðist að geta þess að Islandsbanki hafi gefið vestin og er beðist velvirðingar á því. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jólaforsýning- á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.