Morgunblaðið - 22.12.1999, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 22.12.1999, Blaðsíða 68
í}8 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Robbie Coltrane nýtur þess að bjóða James Bond velkominn. Illmennin sem umgangast Bond. Af hverju er James Bond ennþá á lífi? Robert Carlyle er viðskotaillur í Bond-myndinni eins og sönnu illmcnni sæmir. JAMES Bond hefur verið fastur gestur á hvíta tjaldinu í 37 ár, sem er einstakt afrek í sögu kvikmynda. Fyrsta myndin Dr. No var sýnd 1962 og sú síðasta og nítj- ánda í seríunni var frumsýnd fyrir 'jíveimur vikum í Sambíóunum. Fimm leikarar hafa leikið James Bond og áhugi fólks fyrir myndaiiega breska spæjaranum virðist fremur fara vax- andi heldur en hitt. Ef ástæðan fyrir því er sú að fólk finnur tO samkenndar með persón- unni þá er Bond rétti maðurinn. Það eru engir eðalsteinar sem hann kann ekki að nefna, hann talar öll tungu- mál og þekkir öll vín. Svo má að sjálf- sögðu ekki gleyma að hann er fær í öllum íþróttum sem hægt er að nefna: skíðum, sundi, fallhlífarstökki, dýfmgum og hestaíþróttum svo eitt- hvað sé nefnt. Hann er líka betri bíl- stjóri en nokkur kappaksturskappi, getur flogið hvaða flugvél sem er og er heimsins besta skytta. ' En andstæðingar hans hafa held- ur ekld verið af verri endanum í gegnum árin. Hver og einn hefur ver- ið svikull, gráðugur og ólýsanlegt ill- menni, - sem sagt alveg ómissandi. í nýjustu Bond-myndinni eru óþokkamir tveir leiknir af skoskum leikurum. Aftur rússneskur njósnari Sá fyrsti kemur kunnuglega Bond-aðdáendum kunnuglega fyrir sjónir. Rússneski KGB-njósnarinn, Valentin Zukovsky, var endurvakinn fyrir síðustu Bond-myndina en hann kom fyrst fram í Goldeneye. „Það er mjög sérstakt að fá tækifæri til að leika illmennið £ Bond-mynd,“ sagði leikarinn Robbie Coltrane þegar blaða- maður hitti hann í Lon- don á dögunum. „Maður áttar sig fljót- lega á því að maður á þátt í frábærum flokki kvik- mynda. Ég tala nú ekki um fyrst ég fæ tækifæri í þessari til að segja fræg- ustu orð myndanna: „Bond, James Bond, velkominn." Það fannst mér vera hápunkturinn." En hvemig vnr að taka þátt ísvona viðamikilli framleiðslu tvisvar? '' „Það er alveg frábært - ég fór á frumsýninguna í Los Angeles og fólk stóð meira að segja upp og klappaði. Ég hélt að svoleiðis gerðist ekki í Bandaríkjunum; þeir eru alltaf eitt- hvað svo stffír." Annað gildir um Bretland þar sem Bond-myndimar hafa alltaf notið gíf- urlegrar velgengni. Af hverju stafar það? „Ég held að það sé að hluta til- vegna þess að þær eru svo alþjóðleg- ar. Fólk vill alltaf horfa á Bond- myndir. Þetta er í fyrsta skipti sem illmennin eru leikin af Bretum, nánar tiltekið Skotum. Það hefur alltaf ver- ið passað upp á að hafa erlenda leik- ara. Það skiptir lika miklu máli að Bond sjálfur er allt öðruvísi en flestar hasarhetjur. Hann fær sér bara vodka Martini og sefur hjá þremur konum á milli þess sem hann bjargar heiminum. Hann er þannig gerður að karlmenn vilja fara með honum á krána og fá sér bjór og konur - ja... þær vilja gera eitthvað allt annað með honum,“ segir Robbie og bætir svo við, „nema þær séu einhvem veg- inn á skjön við alla aðra.“ í Goldeneye var hjá- kona Zukovskys leikin af bresku leikkonunni Minnie Driver. Saknað- irðu hennar í þessari mynd? „Þú getur rétt ímynd- að þér, - hún er alveg stórkostleg og undursam- legt að heyra hana syngja með rússneskum hreim.“ Af hverju stakkstu ekki upp á að Zukovsky tæki lagið í þessari mynd? „Þetta er frábær hugmynd, þið Is- lendingar eruð ekki svo vitlausir. Þetta gæti verið leiðin inn í þriðju myndina fyrir mig,“ segir Robbie og syngur Fly Me to the Moon með óað- finnanlegum rússneskum hreim fyrir blaðamanninn frá Fróni. Það hafa alltafverið ákveðin tengsl á milli íslands og Skotlands og blaða- maðurspurði Robbie hvað hann vissi um land og þjóð. „Eruð þið ekki öll svo gáfuð þarna fyrir norðan?“ spyr hann á móti. Blaðamaður ákveður að neita því ekki og Robbie heldur áfram: „Pabbi minn er góður vinur Magnúsar Magnússonar og hann er nú alveg sérstakur. Við hittumst síðast í fiug- vél og hann sat þarna bara í mestu rólegheitum og þýddi eina íslend- ingasögu eða svo. Alveg ótrúlegur maður.“ En Coltrane viðurkennir að hafa ekki lesið neina þeirra. Hann er hins vegar óður og uppvægur að láta frek- ari þekkingu sína íljós. „Ég hef líka heyrt að nafnið ísland hafí verið hálfgerð mistök því ef sá sem nefndi það hefði komið að sumri til þá hefði hann kallað það Græn- land; ferleg óheppni, fínnst þér ekki? Ég hef ekki ráðgert að fara þangað, en í mínu starfí er aldrei að vita, ég gæti verið að vinna þar í næstu viku.“ Stefnt að heimsyfirráðum Hinn Skotinn leikur versta ill- menni myndarinnar, hinn ódrepandi Renard sem ætlar sér ekkert minna en heimsyfírráð með aðstoð Carmen Elektra, sem leikin er af Sophie Marceau. ,Jið leika illmenni í Bond-mynd er algjör hápunktur á ferlinum," segir Robert Carlyle. „Maður getur verið eins vondur og manni sýnist. Það eru engin takmörk." Robert er í góðum hópi leikara sem hafa gert líf James Bond eriið- ara eins og Robert Shaw og Crist- opher Walken. Hvað fínnst honum um það? „Ég horfði á margar af gömlu Bond-myndunum áður en við hóf- umst handa og það er, eins og flestir hinna leikaranna munu segja líka, gífurlegur heiður að taka þátt í Bond- mynd. Þær eru svo stór hluti af kvik- myndasögunni." Það sem vekur ef til vill mesta at- hygli þegarkemurað þessu nítjánda. Ég var í samn- ingaviðræðum við Friðrik Þór Friðriksson um að gera kvik- mynd en ekk- ert hefur kom- ið út úr því ennþá. ífyrstu 17 myndum sínum hefur Bond: | 1. Heimsótt 35 lönd ifl|7r§ 2. Verið sagt 35 sinnum að hann muni deyja 3. Pantað24 Vodka Martini m 4. Sofið hjá 55 konum - 27 dökkhærðum - 24 Ijóshærðum - 4 rauðhærðum j XI Bond hefur alls sofið hjá 76 sinnum í myndunum 17 d hefur sofið hjd 76 sinnum: 18 x á hótelberginu sínu 2 x í íbúð sinni í London 14xheimahjá henni 1 x heima hjá öðrum 3 x í lest 2 x í hlöðu 2 x úti í skógi 1 x í geimnum 2 x í sígaunatjaldi 2 x á spítala 2 x í flugvél 1 x í kafbáti 1 x í bíl 1 x í vélknúnum ísjaka 24 x í, við eða undir vatni Vodka Martini - hristur ekki hrœrður Sagt er að lan Fleming hafi þótt þessi drykkur góður og þaðan sé ástríða Bonds fyrir drykknum sprottin. Þegar Martini er hrærður með klökum er drykkurinn glær en James Bond vill hann hristan því þá verður hann kaldari og móðukenndur á litinn. BOND MARTINI Þrefaldur Gordon Gin Einfaldur vodki Hálfur Kina Lillet Vermouth Hristur vel þangað til hann er ískaldur. Borinn fram í kampavínsglasi skreyttur með sítrónu. illmenni Bond-myndanna er að það vottar fyrir örlítilli samúð áhorfenda með honum. „Það tók þónokkuð á að skapa hann og ég er ánægður með útkom- una. Hann er að deyja mjög hægum dauðdaga með byssukúlu í höfðinu, sem er frekar erfitt að ímynda sér. Én ég held að það sé þaðan sem sam- úðin kemur. Ahorfendur vita að hann kemur til með að deyja að lokum og ég hef heyrt frá nokkrum sem hafa séð myndina að þetta sé í fyrsta skipti sem þeir nánast vildu að Bond tækist ekki ætlunar verk sitt. Það myndi hins vegar eyði- leggja þetta vörumerki Bonds.“ Robert Carlyle skaust upp á stjörnuhimininn sem atvinnulausa fatafell- an í The Full Monty. En hlutverk Renard er langt frá stálsmiðjunum í Shef- fíeld íNorður-Englandi. „Þetta er alveg ótrú- leg kvikmyndagerð og í fyrsta skipti sem ég tek þátt i svona risastóru verkefni," segir hann. „Það var frek- ar erfítt að venjast þessu, ekki síst vegna þess að maður fær eiginlega bara eitt tækifæri til þess að standa sig. Ef eitthvað fer úrskeiðis getur tekið heilan dag að undirbúa nýjar tökur sem kostar auðvitað gríðarleg- ar upphæðir. Það tók t.d. fjórar vikur að taka upp neðanjarðaratriðið þegar Ren- ard reynir að sprengja Bond og stelpuna hans í loft upp. I raunveru- leikanum tók það mig 30 sekúndur að ganga þessa vegalengd." En hvað með framtíðina, stefnir hann að því að gera fleiri stórar Hollywood-myndir eins ogþessa? „Ég bara veit það ekki, íyrir mig skiptir hlutverkið mestu máli. Ég nenni ekki að leika leiðinlegar eða óáhugaverðar persónur. Næsta verk- efni mitt er t.d. tekið upp í Manchest- er og kostar 2 milljónir punda [um 240 milljónir króna] sem er líklegast það sem Bond-myndin kostar á dag en hlutverkið er mjög áhugavert." Robert Carlyle er alinn upp í Glas- gow þar sem hann lærði jafnframt leiklist. Honum er mjög annt um heimabæ sinn og stendur þar oft fyrir góðgerðar- sýningum og öðrum slík- um atburðum. „Ég myndi ekki vilja búa neins staðar annars staðar. Það er að sjálf- sögðu mikið af vandamál- um í Skotlandi en ég trúi því að það sé hægt að leysa þau með tímanum.“ Hvað um Island, veit þessi frægi Skoti eitthvað um nágrannaland sitt? „Já, ég geri það nú reyndar. Dam- on AJbarn, söngvarinn í Blur, er góð- ur vinur minn og hann hefur sagt mér ýmislegt. Mér skilst að þið kunn- ið aldeilis að skemmta ykkur þarna í kuldanum. Ég hef reyndar aldrei heimsótt landið. Ég var hins vegar í samningaviðræðum við Friðrik Þór Friðriksson um að gera kvikmynd en það hefur ekkert komið út úr því enn- þá. Ég myndi gjarnan vilja vera þátt- takandi í verkefni á Islandi. Ég hef aldrei heyrt neitt nema gott um land- ið.“ Hann er þannig gerður að karl- menn vilja fara með honum á krána og fá sér bjór og konur - ja... þær vilja gera eitthvað allt annað með honum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.