Morgunblaðið - 22.12.1999, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.12.1999, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ afsláttur af öllum bókum <m\m MÖUtt Laugavegi 54, s. 552 5201. ii** Ullarjakkar 'V'- a Kr. 9.990 Góðar rekstrarhorfur Balkanpharma sem Iconsjóðurinn á verulegan hlut í Búist við 720 millj- óna króna hagnaði á næsta ári ÁÆTLAÐ er að hagnaður lyfjafyr- irtækisins Balkanpharma, sem á þrjár af fjórum stærstu lyfja- verksmiðjunum í Búlgaríu, verði um 10 milljónir bandaríkjadollara á næsta ári, eða um 720 milljónir ki-óna, en fjárfestingarfélagið Icon- sjóðurinn ehf., sem er í eigu lyfjafyr- irtækisins Pharmaco og Amber Int- ernational Ltd. keypti meirihluta hlutafjár í Balkanpharma fyrr á þessu ári ásamt Deutsche Bank. Að sögn Sindra Sindrasonar, framkvæmdastjóra Phaimaco, er Balkanpharma orðið að eignarhalds- félagi með höfuðstöðvar í Sofiu í Búlgaríu, og þaðan er aðdráttum, sölu- og markaðsmálum fyrir lyfja- verksmiðjurnar, stjórnað. Sindri sagði í samtali við Morgun- blaðið að lyfjaverksmiðjurnar væru reknar sem framleiðslueiningar undir stjórn eignarhaldsfélagsins, og töluverður árangur hefði nú þeg- ar náðst í samlegðaráhrifum með því að semja í heildina fyrir öll fyrirtæk- in í hráefnakaupum og þess háttar. „Menn hafa samið nú þegar um HÆKKANIR á gengi hlutabréfa Össurar hf. voru gerðar að umtals- efni í Morgunfréttum F&M í gær, en þar sagði að rekja mætti hækkanirn- ar til orðróms um að stutt sé í til- kynningu um kaup fyrirtækisins á erlendum keppinaut, og tilgangur nýafstaðins hlutafjárútboðs hafi ver- ið að auka fjárhagslegan styrk Öss- urar til slíkra aðgerða. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekkert hefði gerst sem gæfi tilefni til slíkrar fréttar, en það væri hins veg- verulega fækkun starfsmanna, en þarna voru samtals um 6.000 starfs- menn þegar við komum að þessu. Það er búið að semja um fækkun um 1.800 manns sem klárast nú út jan- úar. Einungis þetta þýðir lækkun launakostnaðar um 4-5 milljónir dollara. Áætlað er að salan á næsta ári verði um 114 milljónir dollara í heildina og af því er um það bil helm- ingurinn útflutningur," sagði Sindri. Hagnaðurinn í ár um 72 millj- ónir króna Hann sagði að áætlaður hagnaður á næsta ári væri um 10 milljónir dollara, en á þessu ári er gert ráð fyrir að hagnaðurinn verði um ein milljón dollara, eða um 72 milljónir króna. „Á þessu ári erum við 1 rauninni eingöngu með hálft ár í rekstri þarna inni, og auðvitað hefur verið ákveðinn byrjunarkostnaður í tengslum við þetta og það hefur ver- ið tekið til á ýmsan hátt upp á fram- tíðina að gera. Næsta ár verður hins vegar gott,“ sagði Sindri. ar ekkert launungarmál að það væri eitt af markmiðum fyiirtækisins að nýta fjárhagslegan styrk til þess að kaupa fyrirtæki erlendis eða taka upp samstarf við fyrirtæki. „Þetta kom fram í útboðslýsing- unni á sínum tíma og þetta er ein- ungis eitt af þeim markmiðum sem við vinnum að. Eg get staðfest að við erum að skoða fleiri en eitt fyrirtæki erlendis, en það er ekki komið að neinum þeim vatnaskilum að hægt sé að segja eitthvað afgerandi um þróun mála,“ sagði Jón. Flugleiðir selja þriðjung hlutabréfa sinna í Equant Hagnað- urinn 430 milljónir króna FLUGLEIÐIR hafa selt 34% af hlut sínum í alþjóða fjar- skiptafélaginu Equant, og er söluverð bréfanna að frádregn- um sölukostnaði 430 milljónir króna, sem er beinn hagnaður félagsins og kemur í rekstrar- reikning og efnahagsreikning ársins 1999. Equant varð til út úr starf- semi SITA, fjarskiptafélags flugfélaga. Fyrirtækið er al- hliða fjarskiptafyrirtæki á al- þjóðamarkaði. Hlut SITA í Equant var skipt milli aðildar- flugfélaga SITÁ í hlutfalli við viðskipti félaganna við SITA á árunum 1990-1998. Samkvæmt upplýsingum frá Flugleiðum komu þannig liðlega 200 þús- und hlutir í Equant í hlut Flug- leiða fyrr á þessu ári. Verðmæti þeirra bréfa, sem Flugleiðir eiga eftir í Equant, er um 920 milljónir króna miðað við mark- aðsverð um þessar mundir. Verslun með bréf í Equant háð ákvörðun SITA Found- ation Verslun með bréf flugfélaga í Equant er ekki frjáls heldur háð ákvörðunum SITA Foundation, dótturfélags SITA. Það var fyrir milligöngu SITA Foundation að Flugleiðir seldu um þriðjung hlutabréfa sinna í Equant á opnum mark- aði. Félagið heldur eftir um tveimur þriðju hluta bréfanna. Ákvarðanir SITA Foundation um viðskipti með hlutabréf flugfélaga í Equant eru teknar með það að markmiði að há- marka afrakstur eigenda bréf- anna af viðskiptunum. • • Ossur skoðar erlend fyrirtæki Viðskiptaverðlaun DV, Viðskiptablaðsins og Stöðvar 2 árið 1999 Morgunblaðiö/Þorkell Össur Kristinsson, stofnandi Össurar hf., og Gunnar Örn Kristjánsson, for- stjóri Sölusamtaka íslenskra fiskframleiðcnda. • • Gunnar Orn Kristjáns- son maður ársins GUNNAR Örn Kristjánsson, for- sijóri Sölusamtaka íslenskra fisk- framleiðenda, hlaut Viðskiptaverð- launin 1999 sem maður ársins í i'slensku viðskiptalífi, sem veitt eru af Viðskiptablaðinu, Stöð 2 og DV. Verðlaunin voru veitt í gær af Hall- dóri Ásgrímssyni utanríkis- ráðherra, og við sama tækifæri var tilkynnt að Össur Kristinsson, stoð- tækjasmiður og stofnandi stoð- tækjafyrirtækisins Össurar hf., hefði verið valinn frumkvöðull árs- ins. Halldór Ásgrímsson sagði m.a. við þetta tækifæri að þau verðlaun sem veitt væru snertu mjög utan- ríkisviðskipti. Hann sagði að miklar breytingar hefðu átt sór stað hjá SÍF, sem stofhað var árið 1932, og ekki síst í tíð Gunnars sem tók við stöðu forstjóra árið 1994, en fyrir- tækið hefði farið út í mikla al- þjóðavæðingu. „Undir forystu Gunnars hefur SIF náð einstökum árangri á þessu sviði. Fyrirtækinu hefur tekist að stofna mörg fyrir- tæki sem hafa eflt fyrirtækið og ís- lenskan sjávarútveg í heild sinni,“ sagði Halldór. Hann sagði jafnframt um Össur Kristinsson að hann þekkti til þess sem Össur hf. hefði gert fyrir fólk sem orðið hefði fyrir útlimamissi vegna stríðsins í Bosníu. „Það sem þeir hafa gert hefur skipt fólk miklu máli og aukið hróður fslensks samfélags, og lagt sitt af mörkum við að hjálpa stríðshijáðum þjóð- um.“ Gunnar Örn Kristjánsson sagði í ávarpi sfnu m.a. að seinustu 4-5 ár- in hefðu orðið miklar breytingar hjá SIF og væri ekki séð fyrir end- ann á þeim. Hann sagðist vona þeir myndu ná að búa til öflugt fyrir- tæki sem yrði íslensku atvinnulífi, fiskframleiðendum og útgerðar- mönnum til hagsbóta. „Það þarf á því að halda að við höfum sterk og öflug fyrirtæki í samkeppni erlend- is. Sú samkcppni mun ckki minnka á næstu árum heldur þvert á móti sjáum við fram á mun harðari sam- keppni," sagði Gunnar Örn. Össur Kristinsson sagði að bak við frumkvöðla stæðu ávallt ein- hverjar máttarstoðir. Hann sagði að ótalmargir hefðu komið að upp- byggingu Össurar hf. en þakkaði sérstaklega konu sinni Björgu Rafnar og Jóni Sigurðssyni, for- stjóra fyrirtækisins, og Pétri Guð- mundarsyni. „Það er ánægjulegt að sjá að í staðinn fyrir að vera í for- ystu er maður farinn að styðja við bakið á þeim sem raunverulega láta hlutina gerast. Eg hef dregið mig í hlé og sit í stjórn fyrirtækins auk þess að taka þátt í þróunarstarfi, en mitt hlutverk er nú að styðja við bakið á frábæru starfsliði Ossurar,“ sagði Össur Kristinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.