Morgunblaðið - 22.12.1999, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 22.12.1999, Blaðsíða 64
»64 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 I DAG MORGUNBLAÐIÐ Sævar sigrar á skákmóti Guð- mundar Arasonar SKAK Íþróftuliiísi ö Strandgötu 1 V. SKÁKMÓT GUÐMUNDAR ARASONAR 12.-20. des. 1999 ■f SÆVAR Bjarnason vann góð- an sigur á fímmta alþjóðlega skákmóti Guðmundar Arasonar sem lauk í Hafnarfírði á mánu- daginn. Urslit síðustu umferðar urðu þessi: Sævar Bjarnason - Agúst Sindri Karlsson 1-0 Kristján Eðvarðsson - Heikki Westerinen 1-0 Stefán Kristjánss. - Þorvarður F. Ólafsson 1-0 Alexander Raetsky - Jacob Aagaard V2-V2 Manuel Bosboom - Björn Freyr Björnsson 1-0 Lokaröð keppenda: 1. Sævar Bjarnason....6‘/z v. , 2.-3. Manuel Bosboom.....6 v. 2.-3. Kristján Eðvarðsson....6 v. 4.-6. Jacob Aagaard .......5/2 v. 4.-6. Alexander Raetsky...5!/z v. 4.-6. Ágúst Sindri Karlsson . .5/2 v. 7. Stefán Kristjánsson.....4/2 v. 8. Heikki Westerinen ......3!4 v. 9. Björn Freyr Björnsson ....2 v. 10. Þorvarður F. Olafsson ...0 v. Sævar er fyrsti íslendingur- inn sem nær efsta sætinu óskiptu í þessari mótaröð. Aður hafa þeir Þröstur Þórhallsson og Jón Viktor Gunnarsson deilt efsta sætinu með erlendum skákmönnum. Til þess að ná alþjóðlegum áfanga á mótinu þurfti að fá 6Vi vinning. Sævar Bjarnason, sem þegar er alþjóðlegur meistari, var sá eini sem náði því marki. Hins vegar sýnir það gildi þessara móta, að tveir íslenskir skákmenn voru hársbreidd frá því að næla sér í alþjóðlegan áfanga. Agúst Sindri hefði náð því marki með sigri gegn Sævari í síðustu um- ferð og Kristján Eðvarðsson vantaði einungis hálfan vinning upp á að klára dæmið. Frammi- staða Ágústs Sindra kemur skemmtilega á óvart, þar sem hann hefur sáralítið teflt undan- farin ár og það kom ýmsum á óvart að hann skyldi yfirleitt geta gefíð sér tíma til að taka þátt í mótinu. Kristján er hins vegar í betri æfíngu, en engu að síður verður árangur hans að teljast af- ar óvæntur því hann er með +2,85 vinninga í plús, miðað við Elo-stig. Vonandi verður þetta Kristjáni hvatning til að taka þátt í fleiri alþjóðlegum skákmótum. Stefán Kristjánsson má vel við una, en hann hafði mikil áhrif á úrslit mótsins. Með sigri sínum á alþjóðlega meistaranum Manu- el Bosboom kom Stefán í veg fyrir að Hollendingurinn sigraði á mótinu tvö ár í röð. Þá náði Stefán fyrsta sigrinum gegn stórmeistara þegar hann lagði Finnann Heikki Westerinen í sjöundu umferð mótsins. Þeir Björn Freyr og Þorvarð- ur Ólafsson eru varla ánægðir með frammistöðuna á mótinu. Þegar litið er á gang mála hjá Birni Frey er t.d. óskiljanlegt hvernig honum tókst að lenda svo neðarlega á mótinu. Hann vinnur fyrstu skákina, en gerir síðan jafntefli við alþjóðlegan meistara í annarri umferð og aftur jafntefli við stórmeistara í + þriðju umferð. Af einhverjum ástæðum missir hann þá þráðinn og tapar þeim skákum sem eftir eru. Líklega er þetta einsdæmi á skákferlinum hjá Birni Frey sem hefði átt skilið að fá fleiri vinninga. Teflt var í íþróttahúsinu Strandgötu 1. Skákstjórar voru Gunnar Björnsson, alþjóðlegur skákdómari, og Sigurbjöm Björnsson. Eins og áður var mótið mjög myndarlega styrkt af Guðmundi Arasyni, sem mótið er kennt við, en að þessu sinni veitti heimabærinn, Hafnar- fjörður, mótinu einnig mjög góð- an stuðning. Hannes sigrar eftir spennandi baráttu Hannes Hlífar Stefánsson sigraði á fírnasterku jólahrað- skákmóti Skákfélags Grandrokk eftir æsispennandi keppni við Jóhann Hjartarson. Mótið, sem fram fór sunnudaginn 20. des- ember, var afar vel skipað. Auk Hannesar og Jóhanns voru stór- meistararnir Margeir Péturs- son, Jón L. Árnason og Helgi Ólafsson meðal keppenda. Hannes, Jóhann og Margeir stungu af í upphafí og voru með fullt hús eftir sex umferðir. Þá heltist Margeir úr lestinni eftir tap gegn Hannesi og Jóni L. en hann átti engu að síður eftir að reynast örlagavaldur í síðustu umferðinni. Þá voru þeir Hannes og Jóhann efstir með 10% vinn- ing af 11 og í húfí var óskiptur verðlaunapottur upp á 50 þús- und krónur, sem Grandrokk og Heineken-umboðið á íslandi lögðu til. í síðustu umferðinni náði Hannes aðeins jafntefli gegn Þorsteini Þorsteinssyni en Jóhann háði harða glímu við Margeir. Eftir mikið tímahrak náði Margeir að máta og þar með stóð Hannes einn uppi sig- urvegari og með glæsilegt vinn- ingshlutfall: 11 vinninga af 12. Jóhann hlaut 10% og Margeir 10. Næstir komu Jón L. og Helgi með 8 vinninga og Þorsteinn Þorsteinsson fékk 7. Róbert Harðarson var efstur liðsmanna Skákfélags Grandrokks og lagði m.a. tvo stórmeistara í síðustu umferðunum. Aðrir þátttakend- ur voru Tómas Björnsson, Sig- urður P. Guðjónsson, Kristján Örn Elíasson, Grímur Grímsson, Birgir Berndsen og Bjarni Hjartarson. Jólamótið fór í alla staði fram með ágætum og þeg- ar er byrjað að skipuleggja sterka mótaröð fyrir árið 2000. Skákstjóri var Hrafn Jökulsson. Dagnr sigrar á jólaæfingu TR Jólapakkamót Taflfélags Reykjavíkur fór fram laugar- daginn 18. desember í félags- heimili TR í Faxafeni. Tefldar voru sjö umferðir með 10 mín. umhugsunartíma. Keppt var í drengja- og stúlknaflokki og urðu úrslit sem hér segir: 1. Dagur Arngrímsson..........7 v. 2. Hilmar Þorsteinsson .......5 v. 3. Víkingur Fjalar Eiríksson .. .5 v. 4. Guðmundur Kjartansson . . . .5 v. 5. Birgir Þór Magnússon.......5 v. 6. Grímur Daníelsson.........4% v. 7. Víðir Petersen ............4 v. 8. Eydís Arna Sigurbjörnsdóttir4 v. 9. Loftur Ingi Bjarnason......4 v. 10. Pétur Freyr Pétursson ... .4 v. 11. Arni Freyr Snorrason .....4 v. o.s.frv. Bestum árangri stúlkna náðu eftirtaldar: 1. Eydís Arna Sigurbjörnsd. .. .4 v. 2. Hallgerður Helga Þorsteinsd. 3 v. 3. Hlín Önnudóttir............2 v. Hlé verður gert á unglinga- starfi félagsins yfír jól og ára- mót og hefst það aftur laugar- daginn 8. janúar kl. 14. Skákmót á næstunni 26.12. TK. Jólamót 28.12. SA. Jólamót 28.12. TR. Jólamót 30.12. TG. Jólamót 30.12. SA Hverfakeppni 3.1 Hellir. Atkvöld Daði Örn Jónsson. VELVAKAJVÐI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Þjóðin á eyðslu- fylliríi ÖLL þjóðin er á eyðslu- fyllirí, það hljóta allir að vera sammála um, ríkis- stjórn, bæjarfélög og al- menningur heimta menn- ingarhallir, íþróttahús og reiðhallir á sama tíma og illa horfir í þjóðarbúskapn- um. Ofveiði er í öllu sjávar- fangi, meðal annars síld og loðnu og lækkandi afurða- verð sem nemur um 50%. Aldrei átti að leyfa upp- sjávartroll á síldveiðum, en nú er síðasta síldin skafin við botn og nætur rifnar. I listageiranum er verið að koma upp listaháskóla og þar dugar ekki SS-húsið og Akureyringum dugar ekki Listagilið og vilja líka sína menningarhöll við höfnina. Hræddur er ég um að þjóðin verði að láta renna af sér ef fiskafli bregst, ásamt markaðnum fyrir hann. Við lifum nú ekki eingöngu á tölvum, Neti, símum og fjarskipt- um. Nema við björgumst á járnblendi og álverum? Sigdór Ólafur Sigmarsson. Jólakveðja til aldraðra og öryrkja NÚ hafa stjómarflokkam- ir sent jólakveðju til aldr- aðra og öryrkja, með því að fella allar tihögur stjórnar- andstöðunnar og frjáls- lynda flokksins um bætt kjör til aldraðra og öryrkja á Islandi í dag, í öllu góð- ærinu og tekjuafgangi rík- issjóðs. Nú hafa þessir herrar og þessar dömur sýnt sín réttu andlit. Skyldi samviska þessa fólks ekki vera slæm? Nú verða aldr- aðir og öryrkjar að muna vel eftir þessu fólki í næstu kosningum og minnast þess sem þeir færðu öldruðum og öryrkjum í jólagjöf. Þess vegna ættu aldraðir og öryrkjar að gefa þessu fólki hvíld í næstu kosningum. En þeir stóla á það, að fólk sé búið að gleyma, þegar kemur að því að kjósa. Þingmönnum er óskað gleðilegra jóla. Oryrki. Þakkir til snyrtistofu KONA hafði samband við Velvakanda og vildi koma á framfæri þakklæti til Snyrtistofu Hönnu Krist- ínar á Laugavegi 40a. Hún var að fara til útlanda og uppgötvaði sér til skelfing- ar að hún þurfti að komast í naglasnyrtingu og láta setja á sig gervineglur. Hún settist við símann og var búin að hringja á margar stofur. Hanna Kristín bauðst til þess að taka hana eftir vinnu ef hún gæti komið þá. Lang- aði hana að þakka fyrir þessa einstaklega ljúfu og lipru þjónustu og óska þeim gleðilegra jóla Höfum ljósin kveikt VELVAKANDI minnir áskrifendur á að hafa úti- ljósin kveikt fyrir blaðbera í svartasta skammdeginu. Tapað/fundið Hvar er úlpan mín? 3 I í MR hélt veislu á Flókagöu miðvikudaginn 14. desember sl. Þar var svört úlpa tekin í misgrip- um. I vasanum voru svart- ir prjónaðir vettlingar og blár gsm-sími. Önnur úlpa var skilin eftir, sem er svipuð, en minni. Vinsam- legast hafið samband við Eyrúnu í síma 551 1628. Kvengullúr fannst MÁNUDAGINN 27. októ- ber sl. fannst kvenmanns- gullúr með svartri leðuról við Rauðarárstíg. Upplýs- ingar í síma 699 5649. Dýrahald Svartur kettlingur í óskilum SVARTUR kettlingur, ómerktur en með endur- skins hálsól, er í óskilum á Víðimel 38. Hann er mjög bh'ður og góður. Uppl. í síma 562 8339 eða 551 4710. SKAK Umsjón Margcir Pétursson STAÐAN kom upp á fímmta alþjóðlega Guð- mundar Arasonarmótinu sem lauk á mánudags- kvöldið. Hollendingurinn Manuel Bosboom (2.476) var með hvítt, en Stefán Kristjáns- son (2.278) hafði svart og átti leik. Hvítur átti vænlega stöðu, en lék síðast 33. g2- g3? sem hann hefði betur látið ógert. 33. - Bxf2+!! og hvítur gafst upp, því 34. Kxf2 - Dc2+ er vonlaust með öllu. Sævar Bjama- son, alþjóðlegur meistari, sigraði á mótinu með 6% v. af 9 mögulegum, 2.-3. Kristján Eðvarðsson og Bosboom, Hollandi 6 v., 4.-6. Aagard, Danmörku, Ágúst Sindri Karlsson og Raetsky, Rússlandi 5%v., 7. Stefán Kristjánsson 4% v., 8. Westerinen, Finn- landi 3% v. 9. Björn Freyr Bjömsson 2 v. 10. Þor- varður F. Olafsson 0 v. Svartur leikur og vinnur. Með morgunkaffinu Alltaf þarf hann að vera öðruvísi. Hæ. Má Magga koma út að leika? Má ég fyrst fara á kló- Ekki þú ffflið þitt settið? Víkverji skrifar... TÝNDUR farangur eftir flug- ferð milli landa hefur stundum komið til umræðu hjá Víkverja og verður það enn tilefni umfjöllunar í dag. Þeir sem ferðast nokkuð hafa áreiðanlega margir orðið fyrir því að taska þeirra hefur orðið viðskila við hann. Oftast kemur hún fram en einnig kemur fyrir að töskur týnist. Er það þó fremur sjaldgæft að mati Víkverja. En þegar tösku seinkar og ferðalangurinn fær hana ekki fyrr en næsta dag getur orðið illt í efni. Þá vantar kannski réttu fötin, í það minnsta hrein og geðsleg föt innst sem yst og getur ferðamaður haft af því hina mestu armæðu. Get- ur kannski enga aðra björg sér veitt í fatamálum en þó er kannski al- gengara að hann nái í næstu versl- un og bjargi málum. Þetta allt veld- ur í það minnsta óþægindum og oft kostnaði. Flugfélög hafa litlar skyldur í þessum efnum og komi farangurinn í leitimar eru þau laus allra mála. Maður sem kom að máli við Víkverja vildi vekja athygli á þeirri hugmynd sem hann hafði rek- ist á að flugfélög bættu farþegum sínum þessi óþægindi með því að gefa þeim ferðapunkta. Mætti til dæmis snara 10 til 20 þúsund punktum fyrir hverja tösku sem seinkar í sólarhring. Eða tvöfalda ferðapunktana eða þrefalda. Varla yrði það mjög útlátamikið fyrir fé- lögin að fara einhverja slíka leið tU að bæta geð viðskiptamanna sinna eftir slíkar hremmingar. XXX NOKKUR auglýsingaskilti í Reykjavík hafa undanfarið vakið athygli á þeim boðskap kristninnar að Jesús elski manninn. Segja má að þessar auglýsingar stingi allmjög í stúf við flestar eða allar aðrar auglýsingar sem snúast um þessar mundir um kaupæði og jólaundirbúning. Er ánægjulegt að sjá að einhverjir skuli vilja leggja fjármuni í að vekja beinlínis athygli á fagnaðarerindinu á þennan hátt. Það veitir ekki af að nota allar þær aðferðir sem nútíminn og tæknin bjóða upp á til að ná til fólks með fréttir, upplýsingar og boðskap og því skyldu ekki kirkjur eða trúfélög gera það líka? Minna má einnig á í þessu sambandi að messur hafa ver- ið settar inn á Netið og það er bara eðlileg þróun í kirkjunni að nýta sér slíkt. XXX Á ER ekki síður ástæða til að vekja athygli á símerkUegu starfi Blóðbankans við Barónsstíg í Reykjavík sem bjargar mannslífum dag hvern. Hefur líka til þess vaska sveit sem lætur tappa af sér reglu- lega og telur ekki eftir sér. Slíkt er ómetanlegt. I seinni tíð hefur borið meira á auglýsingum frá Blóðbank- anum enda verður hann eins og aðr- ir aðilar að taka þátt í markaðs- og samkeppnissamfélaginu sem við höfum búið okkur. Ekki verður hjá því komist að taka þátt í þeim leik ætli menn sér að vera með. Beita verður þeim aðferðum sem unnt er og hæfa málefnunum og spurning er hvort Blóðbankinn hefur nýtt sér Netið. Það þýðir kannski ekki að búast við beinum útsendingum frá blóðgjöfum, enda kannski lítið spennandi en eflaust væri hægt að komast í tæri við nýjan flokk blóð- gjafa með því að nýta sér þá upplýs- ingaveitu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.