Morgunblaðið - 22.12.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999
UMRÆÐAN
Er almenningsálitið
magnlaust?
„EG LAS nýlega í er-
lendu riti um Islend-
inga, að engin þjóð í
heimi mundi vera svo
grandvör og löghlýðin.
Fangelsin stæðu tóm og
hegningardómamir
væri óvenjulega fáir í
hlutfalli við mannfjölda.
Þá datt mér í hug sam-
tal, sem eg átti í fyrra
við einn af helztu lög-
fræðingum vorum.
Hann var að segja mér
frá meðferð einnar ís-
lenzkrar peningastofn-
unar, sem nýlega var Þorvaldur
komin í fjárþröng. Sög- Gylfason
umar voru svo hroða-
legar, að hárin risu á höfði mér. „En
er þetta ekki hegningarvert?" spurði
eg. „Það mundi það vera alls staðar
nema á íslandi,“ svaraði hann rólega.
En er það ekki svo, að hér sé framinn
grúi lagabrota, sem era á almanna
vitorði, en enginn hróflar við? Er ekki
spillingin í þjóðfélagi vora orðin al-
mennt umtalsefni, án þess að rönd
verði við henni reist? Almenningsálit-
ið er magnlaust, af því að lífsskoðun
almennings stefnir öll að vorkunn-
semi. Yfir allt er breidd blæja, þar
sem kærleikur kann að vera uppi-
staðan, en kæraleysi er áreiðanlega
ívafið."
Orðin hér að ofan era tekin úr
grein, sem Sigurður Nordal prófess-
or skrifaði í tímaritið Skími árið 1926.
Síðan era liðin 74 ár, en orð hans eru
eigi að síður tímabær, eins og banka-
málum landsins hefur verið háttað æ
síðan og er að nokkru leyti enn um
okkar daga. Þá á ég ekki fyrst og
fremst við ítrekaðar uppljóstranir
íyrram bankastjóra Landsbanka ís-
lands um meint misferli í bankanum
frá allra síðustu árum, misferli, sem
er „á almanna vitorði, en enginn
hróflar við“. Nei, nú á ég við Seðla-
bankann. Það mun vera einsdæmi
norðan Miðjarðarhafs á okkar öld, að
fyrrverandi formaður seðlabanka-
ráðs saki yfirboðara bankans um
spillingu, eins og gerðist hér heima
fyrir fáeinum dögum (sjá vefsíður
Agústs Einarssonar prófessors).
Tilefnið er þetta. Nú hefur verið
auglýst laus til umsóknar banka-
stjórastaða í Seðlabanka íslands,
staða, sem hefur verið ómönnuð hátt
á annað ár. Sá, sem áður gegndi stöð-
unni, hefur mælt með því opinber-
lega, að enginn taki við henni - og má
af því ráða, hvaða nauðsyn ber til þess
að fylla hana á ný. Allir vita, að
auglýsingin er skrípaleikur einn, því
að það er næstum áreiðanlega búið að
ákveða, hver verður ráðinn. Umsókn-
arfrestur rennur út hinn 27. desem-
ber, en staðan er laus frá 1. janúar.
Bankaráðið og ráðherrann þurfa sem
sagt ekki nema örfáa daga milli jóla
og nýárs til að meta hæfi umsækj-
enda. Þeir virðast reiða sig á það, að
enginn hreyfi andmælum um hátíð-
amar, hversu yfirgengUeg sem emb-
ættisveitingin kann að þykja.
Þetta er samt ekki allt. Hinn 1. jan-
úar taka gildi ný lög, sem færa yfir-
stjóm Seðlabankans frá iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytinu yfir til forsætis-
ráðuneytisins. Með þessari breytingu
er verið að stíga skef, sem gengur
þvert á þróun seðlabankamála í ná-
lægum löndum. Þar hafa seðlabankar
smám saman verið að öðlast meira
Vandaðar yfirhafnir
frá
Barbour
og
BURBERRY
t w K » o N
íjfö/'exÁa áúxíf/i
^g^Laugavegi 54 S. 552 2535
kvæmdavaldsins til að
misnota seðlabankana
til að prenta peninga í
pólitískum tilgangi og
þess háttar. Erlendis
hafa verið sett lög í
hverju landinu á eftir
öðra til að marka skýr-
ari skil á milli banka-
mála og stjómmála.
Reynslan sýnir, að
auknu sjálfstæði seðla-
banka, sjálfstæði með
ábyrgð gagnvart lýð-
kjörnu löggjafarþingi,
fylgir allajafna minni
verðbólga að öðra
jöfnu. Ætla mætti, að
ferill stjómmálamann-
anna í bankakerfinu hér heima, eftir
öll útlánatöpin og spillingarhneykslin
undangengin ár, hefði vakið ein-
hverja þeiira til umhugsunar um það,
að nú væri orðið tímabært að leysa
Seðlabankann úr viðjum stjómmála-
flokkanna (og þótt fyrr hefði verið),
en þess sjást þó engin merki enn.
Nei, þvert á móti: stjómarvöldin
telja sig bersýnilega hafa efni á að
virða reynslu annarra þjóða að vett-
ugi, enda þótt verðbólgan sé enn á ný
orðin mun meiri hér heima en í öllum
nálægum löndum og erlendar skuldir
þjóðarbúsins séu í þann veginn að
komast í sögulegt hámark miðað við
landsframleiðslu samkvæmt upplýs-
ingum frá Seðlabankanum. A sama
tíma er gjaldeyrisforði Seðlabankans
hættulega lítíll: hann dugir fyrir inn-
flutningi í aðeins sex vikur, sem er
langt undir alþjóðlega viðurkenndum
öryggismörkum. Hitt er þó sýnu al-
varlegra, að erlendar skammtíma-
skuldir þjóðarbúsins era nú orðnar
helmingi meiri en gjaldeyrisforðinn,
en það er algeng viðmiðun útí í heimi,
að þær megi helzt ekki - sumir
myndu segja alls ekki! - fara upp fyr-
ir gjaldeyrisforðann. Hugsunin þar
er sú, að gjaldeyrisforðinn verði á
hveijum tíma að duga fyrir skyndi-
legri endurgreiðslu skammtíma-
skulda, ef á þyrfti að halda. Það var
einmitt þetta, sem brást í Taílandi
Efnahagsmál
Bankinn hefur að und-
anförnu varað stjórn-
völd við ofþenslu og yf-
irvofandi hættu á fjár-
málakreppu. Það er allt
í áttina, segir Þorvaldur
Gylfason. Bankanum
hefur á hinn bóginn
mistekizt að halda aftur
af útlánaþenslu banka-
kerfisins og aukinni
verðbólgu auk annars.
sumarið 1997, þegar erlendir bankar
veigraðu sér við því að halda áfram að
dæla skammtímalánsfé inn í landið,
svo að Taílendingar neyddust fyrst til
að ganga mjög á gjaldeyrisforða sinn
til að brúa bilið og síðan að fella gengi
bahtsins með illum afleiðingum.
Seðlabanki íslands hefur að sumu
leyti bragðizt vel við þeirri gagnrýni,
sem hann hefur orðið fyrir undan-
gengin ár. Bankinn hefur að undan-
fömu, ásamt öðrum, varað stjómvöld
við ofþenslu og yfirvofandi hættu á
Qármálakreppu. Það er allt í áttina.
Bankanum hefur á hinn bóginn mis-
tekizt að halda aftur af útlánaþenslu
bankakerfisins og aukinni verðbólgu
auk annars. Það fer því ekki vel á því,
að bankinn sé nú færður frá fagráðu-
neyti undir sjálft forsætisráðuneytið,
sem er taugamiðja stjómmálanna á
hverjum tíma. Slík tilfærsla hlýtur að
gera bankann enn hallari undir
stjómmálahagsmuni en áður og
draga með því móti úr getu bankans
til að rækja skyldur sínar við fólkið í
landinu.
Höfundur er prófessor.
LAUNÞEGAR
Munið að gréiða
íöbotariögj
Cv
Nýttu þér netið. í dag!
vib.is
Kirkjusandur, sími: 560 8900
og íslandsbanki, sími: 575 7575
11
B
T□LVU B□RÐ
FYRIR TÖ LVU SNILLINGINN
Á HEIMILINU
T□LVUBORÐ
6.9 □ □ , -
mahdgdny
AA
Þ R R S E M #H J H R T H R SLŒR
flLf
Sími skrifstofu: 568 - 9200 Upplýsingasími: 588 - 7788
ÍJ* u
Komdu í Kringluna
og upplifóu skemmtilega
og notalega stemmningu
á Þorláksmessu
Verslun,
veitingar
og skemmfun
lýlegu umhverfi.
Opid t«l kl. 22:00 dlla (hupi t«l |i»Li