Morgunblaðið - 24.12.1999, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Starfskonur
dómsmála-
ráðuneytis í
fríi
ÞEIR sem þurfa að hafa samband
við dóms- og kirkjumálaráðuneytið í
dag, aðfangadag, mega eiga von á að
til svara verði karlmannsrödd í stað
hljómþýðrar konuraddar. Öllum
kvenkyns starfsmönnum ráðuneytis-
ins hefur nefnilega verið gefið frí
vegna hátíðanna.
Að sögn Ingva Hrafns Óskarsson-
ar, aðstoðarmanns Sólveigar Péturs-
dóttur dómsmálaráðherra, var það
mat Bjöms Friðfinnssonar ráðun-
eytisstjóra að óþarfi væri að hafa
ráðuneytið fullmannað á aðfangadag
og gamlársdag og ákvað hann því að
bjóða starfskonum ráðuneytisins frí
þessa tvo daga, enda hefðu þær að
öllu jöfnu fleiri heimilisverkum að
sinna en karlpeningurinn.
Aðspurður kvaðst Ingvi Hrafn nú
telja að einstök heiðursmennska
Björns réði þessari ákvörðun hans
fremur en að um karlrembu væri að
ræða og aukinheldur væri karlkyns
starfsmönnum ráðuneytisins Ijúft að
hliðra til með samstarfskonum sínum
með þessum hætti. Þær litu síðan á
fríið sem óvæntan jólaglaðning. Ekki
fylgdi þó sögunni hvort boð ráðun-
eytisstjórans næði einnig til sjálfs
ráðherrans, Sólveigar Pétursdóttur.
Morgunblaðið/Golli.
Skötuveisla á Borginni
EINS og vera ber var kæst skata á boðstólum á mat- ar. Myndaðist biðröð eftir kræsingunum og var ekki
seðlinum á Hótel Borg í gær í tiiefni Þorláksmessunn- laust við að eftirvænting skini úr andlitum gesta.
Ríkissj ónvarpið
flytur í Efstaleiti
Flutn-
ingum
lýkur í
ágúst
STEFNT er að því að starfsemi
Sjónvarpsins verði flutt í Útvarps-
húsið við Efstaleiti í ágúst á næsta
ári. Rúm tvö ár eru síðan Ríkis-
stjórn íslands gaf leyfi til flutning-
anna. Aætlaður kostnaður við þá
er einn milljarður króna.
Unnið er að flutningi Sjónvar-
psins eftir verkáætlun sem var
uppfærð fyrr í þessum mánuði, að
sögn Bjarna Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra Sjónvarps.
„Ráðgert er að framkvæmdum við
húsbygginguna og uppsetningu og
prófun á tæknibúnaði ljúki seint í
júní á næsta ári. Strax að fram-
kvæmdum loknum verður síðan
hafist handa við að flytja starfsemi
Sjónvarpsins í Útvarpshúsið við
Efstaleiti,“ sagði Bjarni. Hann
segir gert ráð fyrir að flutningum
og þjálfun starfsmanna ljúki í
ágúst.
S
\
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Skata handa öllum
í TILEFNI Þorláksmessu var börnum á leikskólan- Sumir brostu barasta breitt yfir trakteringunum en
um Sólborg á Isafirði boðið í gær að bragða á aðrir virtust ekki alveg eins ánægðir með það sem
kæstri skötu í samræmi við forna íslenska hefð. borið var fyrir þá.
Endurgreiðslur til lífeyrisþega
vegna tannhreinsunar
Endurgreitt þar
til reglugerð verð-
ur endurskoðuð
TAKMARKALAUS endurgreiðsla
til örorku- og ellilífeyrisþega vegna
tannhreinsunar verður væntanlega
í gildi fram í janúar, þegar reglu-
gerð um það verður breytt.
Tannlæknafélag Islands taldi
ekki koma skýrt fram í reglugerð
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
uneytisins hver þátttaka Trygging-
astofnunar ríkisins í kostnaði við
tannhreinsun skyldi vera. Félagið
leitaði lögfræðilátis á túlkun reglu-
gerðarinnar og var niðurstaðan sú
að endurgreiðsla vegna tannhreins-
unar til elli- og örorkulífeyrisþega
skyldi ekki vera takmörkuð við
tvær til fjórar tímaeiningar á ári,
eins og Tryggingastofnun hafði
miðað við frá gildistöku reglugerð-
arinnar í janúar 1998. Nokkrir li-
feyrisþegar leituðu réttar síns og
hefur Tryggingastofnun nú greitt
slíka reikninga frá því í byrjun des-
ember sl., samkvæmt upplýsingum
frá Tannlæknafélagi íslands.
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
deildarstjóri í heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu, segir að
reglugerðin sé óskýr hvað umrætt
atriði varðar. Hins vegar hafi ætl-
unin verið, við samningu reglugerð-
arinnar, að takmarka ótakmarkaða
endurgreiðslu vegna tannhreinsun-
ar við börn og unglinga. Hann segir
að eftir athugasemdir TFÍ hafi ráð-
uneytið dregið þá túlkun til baka og
nú sé endurgreiðsla til lífeyrisþega
ekki takmörkuð við 2-4 tímaeining-
ar á ári. Hann væntir þess að reglu-
gerðin verði endurskoðuð í janúar.
Þá verði óljós atriði bætt og reglum
um endurgreiðslu vegna tann-
hreinsunar væntanlega komið í það
horf sem upphaflega var ætlað með
reglugerðinni. Á meðan reglugerðin
gildir verði hins vegar greitt sam-
kvæmt henni. Jón Sæmundur seg-
ist þó eiga von á að fáir einstakling-
ar hafi þörf fyrir meira en fjögurra
tímaeininga tannhreinsun á ári.
Undirbúningsfundir Hæfís, Norsk Hydro og Landsvirkjunar vegna álvers í Reyðarfírði
Formlegur orku-
kaupandi verður að
liggja fyrir
FYRSTI sameiginlegi fundur Hæf-
is og Norsk Hydro við Landsvirkj-
un um orkusölu til álvers í Reyðar-
firði fór nýverið fram. Friðrik
Sophusson, forstjóri Landsvirkjun-
ar, segir nauðsynlegt að stofnað
verði formlegt félag sem reisa mun
og reka álver í Reyðarfirði svo
Landsvirkjun geti gert samninga
um orkusölu. Stjórnarformaður
Hæfis, segir mikilvægt að ná sam-
komulagi um ýmis efnisatriði máls-
ins áður en formlegt félag verði
stofnað.
Hæfi og Norsk Hydro hafa ekki
stofnað sameiginlegt félag sem
verður kaupandi orku frá Fljóts-
dalsvirkjun, en í yfirlýsingu Norsk
Hydro, íslenskra stjórnvalda og
Landsvirkjunar frá því sl. sumar er
gert ráð fyrir að drög að hluthafa-
samningi um eignarhlut í álverinu
hafi verið gerður um komandi ára-
mót. Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir Ijóst að svo
verði ekki.
„í Hallormsstaðaryfirlýsingunni
var gert ráð fyrir að um næstu ára-
mót lægju fyrir drög að raforku-
samningi milli aðila. Nú er ljóst að
af því getur ekki orðið, og að það
mun frestast um sinn. Ein af ástæð-
unum er sú að það hefúr gengið
hægar, en búist var við þegar yfir-
lýsingin var undirrituð, að stofna fé-
lagið sem mun reisa og reka álverið
í Reyðarfirði. Við höfum hins vegar
rætt óformlega við fulltrúa Hæfis
og Norsk Hydro sameiginlega und-
anfarið, en fyrst og fremst um þær
aðferðir sem við ætlum að nota þeg-
ar kemur til efnislegra umræðna,"
segir Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar.
Efnisatriðin mikilvæg
Erlendur Magnússon, stjórnar-
formaður Hæfis, undirbúningsfé-
lags um byggingu álvers í Reyðar-
firði segir að ekki hafi verið tekin
sameiginleg ákvörðun af Hæfi og
Norsk Hydro um það hvort stófnað
verði formlegt félag sem reisir og
rekur álver í Reyðarfirði. Hann seg-
ir að sameiginlegar viðræður félag-
anna tveggja við Landsvirkjun hafi
farið fram fyrir skömmu og verið sé
að vinna að fjölmörgum atriðum
sem þurfi að vera ljós áður en unnt
sé að taka ákvörðun. Hann bendir á
að í umræðunni hafi of mikið verið
einblínt á það hvenær formlegt fé-
lag verði stofnað. Ekki sé síður mik-
ilvægt að ná samkomulagi um ýmis
efnisatriði, sem séu fjölmörg, áður
en eiginlegt félag sem rekur og reis-
ir álverið verði stofnað.
I