Morgunblaðið - 24.12.1999, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi
Útskriftarhópur Fjölbrautaskóla Akraness
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
41 brautskráður
á haustönn
Akranesi - Skólaslit Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi á
haustönn 1999 fór fram laugar-
daginn 18. desember við hátíðlega
athöfn í skólanum og við það
tækifæri var brautskráður 41
nemandi, þar af 34 stúdentar, 3
nemendur í rafvirkjun, 2 nemend-
ur í vólsmíði, 1 nemandi af upp-
eldisbraut og 1 nemandi í rafsuðu.
Hörður Ó. Helgason aðstoðar-
skólameistari flutti yfirlit yfir
skólastarfið á haustönn. Hann
fjallaði m.a. um notkun upp-
lýsingatækni í námi og kennslu
sem er sívaxandi þáttur í skóla-
starfinu. I máli Harðar kom fram
að Fjölbrautaskólinn hefur skipað
sér í fremstu röð íslenskra fram-
haldsskóla á þessu sviði og sífellt
fleiri kennarar nýta sér tæknina í
kennslustarfínu.
Nauðsyn að efla skólann.
Hörður ræddi um hlutverk Fjöl-
brautaskólans sem svæðisskóla á
Vesturlandi og nauðsyn þess að
halda áfram að efla hann svo skól-
inn gæti ávallt boðið nemendum
sínum fjölbreytt námsframboð,
góða kennslu og góða þjónustu
m.a. með þvi að stækka heimavist
skólans svo allir nemendur sem
búsettir cru utan Akraness eigi
þess kost að búa þar. En viðræður
eru hafnar við menntamálaráðu-
neytið um íjölgun heimavistar-
plássa á Akranesi.
Þórir Ólafsson skólameistari
ávarpaði útskriftarnemendur og
hvatti þá til að nýta vel menntun
sína, nota hana sem lykil að heild-
stæðari skilningi á Ii'finu, lykil að
frekari menntun og betra lífi.
„Notið menntunina til að láta gott
af ykkur leiða fyrir ykkur sjálf og
aðra,“ sagði Þórir að lokum.
Afbragðsárangur
margra nemenda
Mjög margir af þessum nem-
endum náðu afbragsgóðum náms-
árangri og hlutu ýmsar viður-
kenningar fyrir. Viðurkenningu
fyrir bestan árangur á stúdents-
prófi hlaut Gauti Jóhannesson, en
námsárangur hans var sérlega
glæsilegur. Gauti hlaut einnig við-
urkenningu fyrir ágætan námsár-
angur 1 raungreinum, íslensku,
sögu og stærðfræði. Veitt voru
verðlaun úr minningarsjóði Þor-
valdar Þorvaldssonar, fyrrverandi
kennara skólans, verðlaunin hlaut
Unnar Bachmann fyrir fram-
úrskarandi árangur í stærðfræði
og eðlisfræði. Hann hlaut einnig
viðurkenningu fyrir ágætan
námsárangur í náttúrufræði,
sögu, tölvufræði og þýsku. Anna
Berglind Halldórsdóttir hlaut við-
urkenningu fyrir ágætan árangur
í stærðfræði, þýsku og við-
skiptagreinum. Ingibjörg Gests-
dóttir hlaut viðurkenningu fyrir
góðan árangur í dönsku. Sigrún
Halla Gísladóttir hlaut viðurkenn-
ingu fyrir góðan árangur í eðlis-
fræði, efnafræði, líffræði, stærð-
fræði, þýsku og viðskiptagreinum.
Valþór Asgrímsson hlaut viður-
kenningu fyrir ágætan árangur í
ensku, frönsku, raungreinum og
stærðfræði. Þóra Björg Jónsdóttir
hlaut viðurkenningu fyrir ágætan
námsárangur í íslensku, dönsku,
ensku og þýsku. Loks hlaut Þór-
bergur Guðjónsson viðurkenningu
fyrir ágætan árangur í dönsku,
stærðfræði og viðskiptagreinum.
Verslunarmannafélag Akraness
gaf verðlaunin fyrir námsárangur
í viðskiptagreinum.
Nemendur önnuðust dagskrá
dagsins. Gauti Jóhannesson ný-
stúdent ávarpaði samkomuna fyr-
ir hönd útskriftarnema og rifjaði
upp atburði úr skólagöngunni og
þakkaði starfsfólki skólans fyrir
samveruna á liðnum árum. Nem-
endur skólans sáu um stóran
hluta dagskrárinnar á þessari há-
tíðlegu athöfn. Skólakórinn söng,
undir stjórn Heiðrúnar Hámund-
ardóttur. Nokkrir úr hópi út-
skriftarnema lásu ljóð og kafla úr
Sjálfstæðu fólki sem tengdist jól-
unum. Þá lék Rósa Sveinsdóttir á
þverflautu við píanóundirleik Við-
ars Guðmundssonar. Loks lék Við-
ar einleik á píanó verk eftir Franz
Liszt. Að athöfn lokinni þáðu allir
viðstaddir veitingar í boði skól-
ans.
*
I sögustund
í Flateyr-
arkirkju
Flateyri-Það ríkti míkil and-
akt hjá börnunum af leikskól-
anum Grænagarði á Flateyri
þegar þau hlýddu á jólaguð-
spjallið hjá séra Agnesi Sig-
urðardóttur í Flateyrarkirkju,
ásamt fóstrum sínum. Þau
sátu stillt og prúð og hlýddu á
hvert orð séra Agnesar þegar
hún sagði þeim frá jólaboð-
skapnum.
Eftir að hafa hlýtt á boð-
skapinn mynduðu börnin
hring ásamt fóstrum sínum og
dönsuðu kringum ímyndað
jólatré. Að lokinni sögustund
kvaddi séra Agnes hvern og
einn og óskaði þeim gleðilegra
jóla.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Fjölgun
á Suðurnesjum
Suðurnesin eru orðin eftirsóttur
staður til búsetu, enda fasteignaverð
mun lægra en á höfuðborgarsvæð-
inu. Gott samgöngukerfí, nálægð við
höfuðborgina og öruggt samfélag
gera Suðurnesin að vinsælu íbúa-
svæði. Vegna mikillar eftirspurnar á
árinu er svo komið að lóðaskorts er
farið að gæta hjá stærstu sveitarfé-
lögunum á Suðurnesjum.
Grindvíkingum hefur t.a.m. fjölg-
að mikið á árinu sem er að líða, eða
um 2,35% sem er tvöföld fjölgun á
landsvísu. Grindvíkingar eru nú
2.223 talsins, en árið 1999 er fyrsta
árið sem íbúafjöldi í Grindavík fer yf-
ir 2.200 manns. Til samanburðar má
nefna að fjölgun íbúa í Reykjavík er
aðeins 1,33 % og á öllu höfuðborgar-
svæðinu 2,12% (sjá mynd). Grinda-
vfkurbær hefur úthlutað öllum laus-
um lóðum í sveitarfélaginu, alls um
35 íbúðalóðum auk 27 íbúða í fjölbýl-
ishúsum. Fyrirséð er að enn mun
fjölga í sveitarfélaginu og verður út-
hlutað 40 lóðum í nýju íbúðarhverfí
fljótlega á næsta ári.
Einar Njálsson, bæjarstjóri
Grindavíkur, segir atvinnuástand í
Grindavík það gott að sveitarfélagið
hafí metnað til að fjölga verulega
íbúum á næstu árum. A næsta ári
verður gi-unnskólinn einsetinn og
nýr leikskóli tekinn í notkun. Þjón-
usta í Grindavík verður þá með besta
móti, segir hann.
Morgunblaðið/Silli
Frá Qölskylduhátíðinni í Húsavíkurkirkju.
Hátíð æskulýðs-
starfsins á Húsavík
Húsavík-Sunnudagaskóli Húsavík-
urkirkju hefur í vetur verið rekinn
undir stjórn Fjalars Fr. Einarsson
og skipst í þrjá aldursflokka. Þetta
skipulag hefur tekist vel og boðuðu
ungmennin til fjölskylduhátíðar í
Húsavíkurkirkju fyrir skömmu.
Þar sýndu þau m.a. helgileikinn
Jóla-Salti og skemmtu með upp-
lestri og söng.
Foreldrar fjölmenntu og fyrir
utan að hlýða á þann boðskap sem
börnin fluttu var ekki síður
ánægjulegt að sjá hve glöð börnin
voru yfir því að fá að flytja orð
Guðs.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Jólaföndur barna
og fullorðinna
Flateyri-Einhugur ríkti á mcðal
barna og fullorðinna í jólaföndri í
mötuneyti Kambs á Flateyri. Það
voru Foreldrafélag Grunnskólans á
Flateyri og handverkshúsið
Brynjubæ sem stóðu að árvissu
jólaföndri. Brynjubær lagði til
fóndrið. Skorið var út í laufabrauð
og einnig voru búnir til jólasveinar
úr eldspýtustokkum.
Góð þátttaka var og mikil
stemmning þegar bæði feðgin og
mæðgin lögðu saman í púkk í jóla-
föndrinu.