Morgunblaðið - 24.12.1999, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999 33
KRISTNIBOÐS- OG HJÁLPARSTARF
Farartálmar. Á regntímanum og á regnsvæðunum er torfarið um moldarvegi ogþar er algengt að menn aki fram á rútur sem sitja fastar. Búfénaður fetar sig írólegheitum um veginn og
lætur aðra vegfarendur ekki trufla sig. Stundum geturþví tekið heilan dag að ferðast fáeina kílómetra.
:
Aðstaðan. Stundum þarf að gista á hótelum og þau eru ekki endilega með rennandi vatni eða vaski á
herbergjunum. Enda oft alveg eins hressandi að þvo sér ograka sig utan dyra.
skerubrestur algjör og þá verður
fátt mönnum bjargar.“
Starf kristniboðanna í Eþíópíu
hefur síðustu árin verið skipulagt
þannig að lútherska kirkjan í land-
inu, sem stofnuð var fyrir tilstilli
þeirra fyrir nokkrum áratugum,
leggur fram óskir sínar og skipu-
leggur starfið. Norræn kristni-
boðsfélög hafa síðan samráð sín á
milli um hvernig þessum óskum
um mannafla og fjármögnun verk-
efna er mætt en innlenda kirkjan
tekur sífellt meira á sig ábyrgð á
öllu starfinu. Afram verður þó þörf
kristniboða til ráðgjafar, ekki síst
þegar verið er að undirbúa starf á
nýjum stöðum.
Tugir tíu tonna
bíla með matvæli
„Það hefur lent á mér að skipu-
leggja hjálparstarfið að undan-
fórnu,“ segir Helgi og því hefur
minna en ella farið fyrir beinu boð-
unarstarfi en kristniboðar prédika
reglulega við hinar ýmsu kirkjur á
svæðum sínum. Þegar hringt var í
Helga á dögunum var hann stadd-
ur í höfuðborginni, Addis Abeba,
til að gefa skýrslu hjá yfirmanni
hjálparstofnunar norsku kirkjunn-
ar um framgang starfsins, veita
upplýsingar um þörfina og leggja á
ráðin um næstu skref. Einnig hef-
ur verið rætt um áframhaldandi
þróunaraðstoð. „Síðan fer ég aftur
suðureftir til að vera við dreifingu
á næsta matvælaskammti sem við
fáum en það verða 20 tíu tonna bíl-
ar. í janúar eigum við síðan að fá
100 tíu tonna bíla,“ segir Helgi en
sá skammtur kostar kringum 40
milljónir. Hann sér því ekki fram á
að komast heim um jólin eins ►
Flugmaðurinn. Helgi hefur einkaflugpróf og segir að litlar flugvélar komi
að góðu gagni við starfið í Eþíópíu enda landið strjálbýlt og erfítt yfírferð-
ar á jörðu. Hann hcfur sjálfur hugáað útvega sér slíka vél til að nota en
veit ekki hvort það gengur tæknilega eða hvort leyfí fæst fyrir því. Víða í
Eþíópíu eru líka ákveðin flugbannsvæði vegna hemaðarnota og villist
flugmenn inn á slík svæði eru dæmi um að þeir fái ekki mörg tækifæri til
að forða sér áður en her landsins jafnvel skýtur slíkar vélar niður.