Morgunblaðið - 24.12.1999, Síða 34

Morgunblaðið - 24.12.1999, Síða 34
34 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ KRISTNIBOÐS- OG HJÁLPARSTARF Sálusorgarinn. Víða leitaði fólk til Helga með margs konar málefni sem það vildi spjalla um. Greinilegt er að hann nýtur trausts og virðingar meðal Eþíópa sem hafa kunnað að meta störf hans í þágu þjóðarinnar, og margir þekkja hann vel eftir störf þar um árabil. og hann kveðst hafa bundið nokkr- ar vonh' við. Hjálparaðgerðimar eru meðal annars kostaðar af sameiginlegu framlagi norrænu kirknanna og framlagi frá Bandaríkjunum og Kanada og telur Helgi að aðgerðir á sínu svæði þurfi að standa fram í apríl eða maí og kosti vel yfir 100 milljónir króna en þegar er búið að verja kringum 80 milljónum til neyðarhjálpar þar. „Þá er miðað við að regntímabilið í apríl bregð- ist ekki og ef það stenst er búið að bjarga fólki yfir erfíðasta hjall- ann.“ A Borana-svæðinu í suðaustur- hluta landsins, þar sem Helgi hef- ur starfað mest á síðustu árin, segja yfirvöld að íbúafjöldinn sé nærri 800 þúsund en Helgi segir fjöldann mun minni, líklega ekki mikið meira en um 300 þúsund en svæðið er mjög víðlent. Þróunar- hjálpin sem Helgi hefur tekið þátt í síðustu tvö árin, þ.e. þegar ástandið er eðlilegt í landinu, mið- ar að því að koma fólki til sjálfs- hjálpar, útvega sáðkorn og verk- færi, byggja upp áveitukerfi og annað sem getur komið fólki til góða í lífsbaráttunni. Áframhaldandi þróunarhjálp „Við þurfum strax eftir neyðar- hjálp að leggja áherslu á að koma fólki til hjálpar á þann veg að það geti bjargað sér sjálft. Þess vegna erum við að undirbúa áframhald- andi dreifingu sáðkorns og land- búnaðarverkfæra ásamt því að byggja upp meira áveitukerfi og þannig reynum við að byggja fólk- ið upp áfram. Með því að útvíkka áveitur getur fólk tekið sér fastari búsetu og treyst því betur að upp- skeran skili sér.“ Helgi segist alltaf hafa tekið þátt í safnaðarstarfi kirkjunnar í Eþíópíu þrátt fyrir önnur störf sín. „Eg er ekki alveg bundinn við þró- unarstarf eða neyðarhjálp því þetta tengist mjög náið því sem . §#118 ‘v "; v í Öryggisgæsla. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins nálgaðist í Dollo Odo í flugvél með Helga og öðrum fulltrúum hjálparstai-fsins í Eþíópíu sáu þeir hermenn með loftvarnabyssur á jörðu niðri. Þegar lent var kom í Ijós að ekki var ætlunin að skjóta flugvélina niður heldur var hlutverk hermannanna að gæta öryggis flugvélarinnar. Hermennirnu• voru líka viðstaddir þegar úthlutun korns fór fram. i kirkjan er að gera enda snýst starf kirkjunnar um að huga að allri vel- ferð mannsins, líkama og sál, og ég hef nokkuð jöfnum höndum starf- að á þessum sviðum síðustu árin hér í Afríku." Ekki þurfti ljósmyndarinn að dvelja lengi með Helga til að sjá að þar fór maður sem Eþíópumenn á starfssvæði hans þekktu og fögn- uðu vel þegar hann fór hjá garði. Börnin komu hlaupandi og hróp- uðu Helgi! Helgi! Þeir fullorðnu höfðu mikið að spjalla, sóttu til hans ráð um hvaðeina eða ræddu bara daginn og veginn og alltaf var stutt í kristniboðann sem spurði líka hvernig samfélagið væri við Guð. Þegar samferðamennirnir eru af ýmsu þjóðerni - Islendingur, Norðmaður, Bandaríkjamaður - eins og þá daga sem ljósmyndar- inn fylgdist með störfum Helga fór ekki hjá því að tungumálin flæktust fyi-ir. Þegar íslending- arnir ræddust við byrjaði Helgi kannski á setningu á ensku sem snerist yfir á norsku og ef Eþíóp- íumaður hafði verið nærstaddur kom fyrst Borana-mál eða eitt- hvað allt annað þar til spurnar- svipur Islendingsins varð svo aug- ljós að Helgi áttaði sig og greip loksins til móðurmálsins. Bráðum heim? í lokin er Helgi spurður hversu lengi enn hann hyggist starfa í Eþíópíu. „Ég verð vonandi hér eitthvað áfram en starfstímanum á að ljúka á næsta sumri. Mér fynd- ist gott að geta fylgt eftir þeim þróunarverkefnum sem komin eru í gang og lokið þeim þannig að ekki væri úr vegi að geta starfað hér eitt til tvö ár til viðbótar Það var skemmtilegur tími þegar ég var prestur í Hrísey en Afríka tog- ar alltaf í mig og þess vegna kom ég hingað aftur frá Hrísey og hér hef ég verið svo mikinn hluta starfsævinnar. Það verður bara að koma í ljós hvað tekur við eftir þessa lotu.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.