Morgunblaðið - 24.12.1999, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
JÓLAMYNDIR KVIKMYNDAHÚSANNA
Háskólabíó
Augasteinn
og Bláskjár
ANNAN í jólum frumsýnir Háskóla-
bíd nýja mynd með Hugh Grant
sem heitir „Mikey Blue Eyes“ eða
Mikki bláskjár en hún er einnig
sýnd í Laugarásbíói. Aðrar jólamyndir kvik-
myndahússins eru spænska myndin Auga-
steinninn þinn eftir Fernando Trueba og
Einíold ráðagerð eða „A Simple Plan“, auk
þess sem Ungfrúin góða og húsið eftir Guð-
nýju Halldórsdóttur og Myrkrahöfðinginn
eftir Hrafn Gunnlaugsson verða sýndar yfir
jólin. Englar alheimsins eftir Friðrik Þór
Friðriksson verður síðan frumsýnd í bíóinu
1. janúar og verða því þrjár íslenskar mynd-
ir í Háskólabíói um áramótin.
Hugh Grant, Jeanne Tripplehorn og Jam-
es Caan fara með aðalhlutverkin í „Mikey
Blue Eyes“ en það er framleiðslufyrirtæki
Grants og konu hans, Elisabeth Hurley,
Simian Films, sem standa að baki myndar-
innar. Sagan breyttist nokkuð í meðförum
frá því Grant las handritið fyrst árið 1996
en þá var persóna hans bandarxskur lög-
fræðingur. I lokaútgáfunni leikur Grant
breskan uppboðshaldara í New York sem
verður ástfanginn af dóttur mafíósa (sem
Caan leikux-) með ófyrirséðum afleiðingum.
Þegar þau hjónakorn Grant og Hurley,
sem voru allt í öllu við gerð myndarinnar,
voru að ráða í hlutverk mafíósans rákust
þau fyrir tilviljun á James Caan fyrir utan
veitingahús í Los Angeles. „Allt í einu stóð
hann frammi fyrir okkur karakterinn sem
við höfðum verið að vinna með allan dag-
inn,“ segir Grant. Caan var ráðinn skömmu
síðar.
Grant og Hurley hafa áhuga á að fram-
leiða bíómyndir og hafa gert eina áður,
spennutryllinn „Extreme Measures", og
væntanlega hafa þau fleiri á prjónunum.
Spænski leikstjórinn Fernando Trueba er
kunnastur fyrir óskarsverðlaunamynd sína,
„Belle epouqe“ en gamandramað Auga-
steinninn þinn eða „La nina de tus ojos“ er
nýjasta mynd hans og gerist í Berlín árið
1938. Hún segir frá því sem gerist þegar
Franco hershöfðingi sendir lítinn hóp kvik-
myndagerðarmanna til Þýskalands Adolfs
Hitlers að kvikmynda tvær útgáfur, aðra á
spænsku en hina á þýsku, af andalúsíska
söngleiknum Augasteininum þínum. Mál
gerast gruggug þegar áróðursmeistari nas-
istanna, Josep Göbbels, verður ástfanginn af
ungu aðalleikkonunni í hópnum.
Með aðalhlutverkin fara Penélope Cruz,
Antonio Resines, Neus Asensi, Santiago Seg-
ura og Jesus Bonilla. Leikstjórinn Trueba er
fæddur árið 1955 í Madríd. Hann starfaði
sem kvikmyndagagnrýnandi á blaðinu EI
Pais á árunum 1974 til 1979 en stofnaði árið
1980 sitt eigið kvikmyndatímarit og nefndi
það Casablanca. Hann ritstýrði því fyrstu
tvö árin en var þá tekinn til við að gera sín-
ar eigin bíómyndir en Trueba er einn af ást-
sælustu leiksljórum Spánar. Aðalleikkonan í
Augasteininum fór með hlutverk í mynd
hans, „Belle epoque", en Penélope Cruz er
sögð ein eftirsóttasta leikkona Spánar.
REGNBOGINN
Börn með
snilligáfu
JÓLAMYND Regnbogans í ár er fjöl-
skyldumyndin „Baby Geniuses" eða
Lilli snillingur með Kathleen Turner
og Christopher Lloyd í aðalhlutverk-
um en aðrar myndir sem sýndar eru í kvik-
myndahúsinu yfír hátíðarnar eru m.a. Enda-
dægur með Arnold Schwarzenegger og „An
Ideal Husband“, sem byggir á leikriti Oscars
Wilde.
í Lilla snillingi leikur Kathleen Turner vís-
indakonu að nafni Elena Kinder, heimsþekkt-
an barnasérfræðing sem stjórnar rannsókn-
um hjá Babyco-fyrirtækinu en það sérhæfir
sig í hverskonar barnavarningi. Hún hefur
komist að því að sum börn eru fæddir snilling-
ar en við tveggja ára aldurinn þegar þau byrja
að tala í heilum setningum eða þar um bil,
tapa þau snilligáfunni ogverða eins og við hin.
Hún ætlar að nota niðurstöður rannsókna
sinna í mjög undarlegum og hættulegum til-
gangi en það eina sem stendur í vegi fyrir
ráðagerðum hennar er tveggja ára anginn Sly.
Turner og Christopher Lloyd, sem leikur
aðstoðarmann Kinder, fara með helstu hlut-
verk en aðrir leikarar í myndinni eru Kim
Cattrall, Peter MacNicol, Dom DeLuise, Kyle
Howard og Ruby Dee. Leikstjóri hennar er
Bob Clark sem starfað hefur við myndir eins
og „Turk 182“ og „Breaking Point“.
Eins og oft þegar ung börn eiga í hlut lentu
kvikmyndagerðarmennirnir í ýmsum vand-
ræðum. Að sögn leikstjórans, Clarks, var
ákaflega mikilvægt að ráða rétt í hlutverk
barnanna og hann skoðaði yfír 300 myndbönd
af ungum börnum, ferðaðist til átta borga og
hitti meira en 2000 tvíburapör í leit sinni að
leikurum í hlutverk Sly.
Á endanum urðu Fitzgerald-þríburarnir
fyrir valinu. „Stundum koma krakkar öðruvísi
út á myndbandi en þegar maður hittir þá per-
sónulega," er haft eftir Clark, „en þegar við
hittum Fitzgeraldana í eigin persónu vissum
við að við höfðum hitt á gullæðina." Og síðar
segir hann: „Við hefðum líklega ekki getað
gert þessa mynd án þeirra.“
„Ég veit engan bjartsýnni mann en Bob
Jólamynd Regnbogans, Lilli snillingur.
Clark,“ er haft eftir leikkonunni Kathleen
Turner. „Hann sýndi endalausan áhuga á því
sem við vorum að gera og var alltaf kátur og
glaðlegur og fullur af orku og okkur fannst að
við urðum að gera okkar besta fyrir hann.“
Gamanleikarinn Christopher Lloyd tekur
undir þessi orð leikkonunnar. „Ég hafði unnið
áður með Bob Clark,“ segir hann, „og hann er
frábær í samskiptum við okkur leikarana. Það
var mjög gaman að fylgjast með honum
vinna með börnunum við þessa mynd og sjá
hann ná svo miklu út úr þeim með þolin-
mæði og lagni.“
Einn af leikurum myndarinnar er Dom
DeLuise en hann var frægur á árum áður
fyrir leik sinn í gamanmyndum Mel Brooks
eins og „Blazing Saddles", „Silent Movie“
og „Spaceballs" svo nokkrar séu nefndar.
Stjörnubíó
Luc Besson og
Sendiboðinn
NÝJASTA mynd franska leikstjór-
ans Luc Bessons, Sendiboðinn:
Sagan um Jóhönnu af Örk, er
jólamynd Sljörnubíós í ár en með
aðalhlutverkið í henni fer Milla Jovovich.
Aðrar myndir sem sýndar eru í kvikmynda-
húsinu yfír hátíðarnar eru m.a. Warner-
teiknimyndin Járnrisinn, sem einnig er í
Sambíóunum, Nýja bíói Keflavík og Borgar-
bíói Akureyri og ný-sjálenska fram-
haldsmyndin Eitt sinn stríðsmenn 2.
Sagan um dýrlinginn Jóhönnu af Örk er
flestum kunn. Á fímmtándu öld fær ung
frönsk stúlka vitran og leiðir franska herinn
til sigurs gegn Englendingum við Orleans og
tekst að snúa við gangi hundrað ára stríðsins.
Hún var aðeins nítján ára þegar hún var
handtekin af Búrgundum og framseld Eng-
lendingum. í framhaldi af því var hún dæmd
fyrir villutrú og galdra og brennd á báli.
Sögu þessa segir Luc Besson með stór-
myndabrag í Sendiboðanum en bandarískir
aðilar lögðu fé til myndarinnar og hún er á
ensku með þekktum Hollywood-leikurum.
Með helstu hlutverk fara auk Millu m.a. Dust-
in Hoffman, John Malkovich og Faye Duna-
way ásamt Vincent Cassel og Tchécky Karyo.
Besson sagðist hafa lagt mikla áherslu á að
ná fram raunsæi í búningum, húsmunum og
orðfari. Þannig eru samtöl unnin beint úr
skjölum frá tímabilinu. „Það er nauðsynlegt
að hafa það þannig," er haft eftir leikstjóran-
um. „Jóhanna var til. Hún var raunveruleg.
Myndin yrði allt öðruvísi ef við byggðum á
skáldskap einum."
Besson tók mjög virkan þátt í kvikmynda-
gerðixmi á tökustað. „Luc er ótrúlegasti leik-
stjóri sem uppi hefur verið,“ er haft eftir
Millu, sem hreifst mjög af vinnubrögðum
hans. „Hann hékk fram af syllum með
myndavél í höndunum og gerði brjáluðustu
hluti í heimi. Hann er í drullunni í bardaga-
atriðunum. Hann er með fólkinu. Og fólkið
virðir hann fyrir það.“
„What Becomes of the Broken Hearted?"
heitir sjálfstætt framhald hinnar vinsælu
myndar, Eitt sinn stríðsmenn eða „Once
Were Warriors", er sýnd var hér á landi fýrir
Jóhanna (Jovovich) stýrir franska hernum til sigurs í mynd Luc Bessons.
fímm árum. Sömu aðilar og gerðu fyrri
myndina standa á bak við framlciðslu „Brok-
en Hearted"; rithöfundurinn Alan Duff gerir
handritið sem fyrr og Temuera Morrison og
Rena Owen mæta aftur til leiks í hlutverkum
sínum.
Alari Duff byggir kvikmyndahandritið á
sinni eigin skáldsögu með sama nafni sem
kom út árið 1997. „Miklar vinsældir fyrri
bókarinnar og þessarar seinni einnig virðast
undirstrika þá tilfinningu sem ég hef fundið,
að fólk hefur ekki enn fengið nóg af persón-
um sögunnar," er haft eftir rithöfundinum.
„Mér finnst frábært að skuli hafa tekist að
blása lífi í þær á hvíta tjaldinu í annað sinn.“
Myndirnar hafa ekki sama leikstjóra. Lee
Tamahori gerði fyrri myndina en í þetta sinn
er það Ian Mune sem situr í leiksfjórasætinu.
„Þetta framhald á eftir að höfða til allra
þeirra sem dýrkuðu fyrri myndina og þeirra
sem eru að kynnast íjölskyldu Jakes í fyrsta
skipti," segir hann í viðtali.