Morgunblaðið - 24.12.1999, Side 56
56 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER1099
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
JON GUNNAR
ARNDAL
+ Jón Gunnar
Arndal fæddist
26. október 1930.
Hann lést 4. desem-
ber síðastiiðinn og
fdr útför hans fram
frá Fossvogskapellu
14. desember.
Þegar okkur barst
sú fregn að vinur okkar
og félagi, Jón Gunnar
Arndal, hefði kvatt að
morgni 4. desember sl.
var félagsmönnum og
starfsmönnum
Blindrafélagsins mjög
brugðið. Fréttin kom sem reiðarslag
því Jón Gunnar var í fullu fjöri dag-
inn áður og á þessu áttum við síst
von.
Jón Gunnar var mjög virkur í
starfí Blindrafélagsins í marga ára-
tugi. Hann bjó í húsi félagsins, með
stuttum hléum, í rúma þrjá áratugi.
Hann tók virkan þátt í félagsstarfí
Blindrafélagsins og þær voru fáar
skemmtanirnar og leikhúsferðirnar
þar sem Jón Gunnar var ekki mætt-
ur. í mörg ár stóð hann fyrir því að
skipuleggja leikhúsferðir fyrir fé-
lagsmenn Blindrafélagsins. Segja
má að hann hafi verið frumkvöðull
þess að blindir og sjónskertir fóru að
sækja leikhús reglulega. Hann var
til margra ára formaður skemmti-
nefndar félagsins og oft heyrði ég
hann segja frá ýmsu skemmtilegu
sem brallað var „í gamla daga“.
Jón Gunnar tók virkan þátt í að
skipuleggja happdrættissölu
Blindrafélagsins á árum áður og
sjálfsagt muna margir eftir honum
við sölu happdrættismiða. Eg kynnt-
ist Jóni Gunnari fyrir rúmum tíu ár-
um þegar ég fluttist í hús Blindrafé-
lagsins í Hamrahlíð 17. Ég var svo
lánsamur að íbúðin sem ég leigði var
við hliðina á íbúð Jóns Gunnars
þannig að við hittumst oft. Fljótlega
tókust með okkur góð kynni og alltaf
var gott að ræða málin við hann og
þiggja af honum góð ráð. Hann bjó
sér afskaplega fallegt og hlýlegt
heimili þar sem gott var að koma,
þiggja kaffi og meðlæti, gjarnan
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir OLsen,
útfararsfíóri
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Útfararstofa Islands
SuðurhUð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
AR9.
\1 v- -4 o
OSWALDS
siMi 5513485
ÞjÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
ADALSI RÆTI 4B • 101 RÉyivJAVÍK
Díwíð Inger Ölafíir
Ihfamrstj. Umsjón Utfimrstj.
LÍKKISI UVINNUSTOFA
EYVINDAR ÁRNASONAR
heimabakað.
Ófáar eru þær
stundir sem ég lá á
nuddbekknum hans.
Jón Gunnar var mjög
fær sjúkranuddari og
hefur hjálpað mörgum
til að komast til heilsu á
ný. Hann gleymdi sér
oft við nuddið og þá
urðu nuddtímamir
stundum lengri en gert
var ráð fyrir. Hann
stundaði nuddstörfín af
lífí og sál og var mjög
umhugað um skjól-
stæðinga sína.
Jón Gunnar var mjög hlýlegur í
viðmóti og eitt aðaleinkenni hans var
góða skapið og glettnin. Hann var
rólyndur maður og manni leið ætíð
vel í návist hans. Jón Gunnar var
orðvar og aldrei heyrði ég hann hall-
mæla nokkrum manni.
Eins og áður segir þótti mér ætíð
gott að þiggja af honum góð ráð en
hann miðlaði mér ekki síður af
reynslu sinni og þekkingu á málefn-
um Blindrafélagsins. Hann þekkti
sögu félagsins vel og ég sem ungur
formaður þess gat ætíð sótt til hans
upplýsingar og holl ráð.
Fjölmargar góðar og Ijúfar minn-
ingar á ég um Jón Gunnar og ég veit
að hið sama er að segja um félags-
menn og starfsfólk Blindrafélagsins.
Það er sárt að missa svo góðan fé-
laga og vin með svo snögglegum
hætti. Ég veit að minningin mun lifa
með okkur um ókomin ár. Fjöl-
skyldu, ættingjum og öllum vinum
Jóns Gunnars votta ég mína dýpstu
samúð. Guð styrki ykkur í sorginni.
Halldór Sævar Guðbergsson,
formaður Blindrafélagsins.
Við fráfall Jóns Gunnars Arndals
hefur Sjúkranuddarafélag íslands
(SNFÍ) misst einn mikilsvirtasta og
besta félaga sinn. Hann vann hug og
hjörtu allra sem honum kynntust
með ljúfmennsku sinni og fram-
komu.
Það voru ávallt birta og notaleg-
heit í kring um Jón hvar sem hann
fór, sem bar vott um virðingu hans
fyrir mannlífinu. Jón Gunnar var
mikill félagsmálamaður og naut þess
að vera meðal sinna félaga og ræða
af fagmennsku um málin og um lífið
og tilveruna yfirleitt. Ekki síst bar-
áttumál sjúkranuddara á sínum tíma
sem fólust í því að að fá starfið viður-
kennt af íslenskum heilbrigðisyfir-
völdum. Hann var með frá upphafi í
þeirri baráttu og einn af stofnendum
félagsins. Fyrstu fundir um þetta
baráttumál voru einmitt haldnir að
hans tilstuðlan í Blindrafélagshús-
inu við Hamrahlíð. Jón fékk góðan
lögfræðing til liðs við okkur til að
gera drög að lögum fyrir væntan-
lega félagsstofnun.
Þetta var mjög spennandi tímabil
fyrir okkur sex, nýútskrifaða sjúkra-
nuddara, þegar við komum heim frá
námi úr viðurkenndum erlendum
skólum í Finnlandi, Þýskalandi og
Kanada. Öll vildum við fá menntun
okkar viðurkennda hérlendis hið
snarasta. Jón Gunnar var ávallt
bjartsýnn á það og lét engan bilbug á
sér finna hvað sem á dundi.
Þegar SNFI var svo formlega
stofnað árið 1981 kom aldrei annað
til greina en að hann yrði fyrsti for-
maður félagsins. Þáttur hans í fé-
lagsstofnunni var svo stór og for-
ystuhæfileikar hans svo miklir að
hann var sjálfkjörinn sem formaður.
Undir hans leiðsögn héldum við svo
ótrauð áfram og náðum loksins
fyrsta skrefinu sem var löggilding
starfsheitisins „sjúkranuddari" árið
1986.
Ef til vill á orðatiltækið „Blindur
leiðir haltan“ vel við í þessu tilviki,
því Jón sá oft mikið betur en við sjá-
endur gerðum og leiddi okkur á
rétta braut með þolinmæði sinni og
visku. Jón var, að öllum öðrum fé-
lagsmönnum ólöstuðum, sá sem
flesta fundi sótti. Brennandi áhugi
hans á öllu sem við kom félaginu og
málefnum þess var viðbrugðið.
Stuttu fyrir starfslok hans var Jón
Gunnar sæmdur heiðursfélagi
Sjúkranuddarafélags Islands sem
hann svo sannarlega hafði unnið til.
Mér er í minni hversu gleði hans
og hamingja var fölskvalaus af þessu
tilefni.
Við sviplegt fráfall Jóns Gunnars
er einn af forystumönnum sjúkra-
nuddara sárt saknað hvort sem litið
er til félagslífs eða baráttufunda fyr-
ir rétti félaganna.
Hann var hrókur alls fagnaðar og
sannkallaður lífskúnstner. Við sem
störfuðum með honum og nutum
samvista við hann svo og allir í SNFÍ
sendum ættingjum hans og ástvin-
um innilegustu samúðarkveðjur.
Minning um góðan dreng lifir.
Fyrir hönd Sjúkranuddarafélags
Islands,
Harpa Harðardóttir.
Markmið Útfararstofu íslands er að veita trausta og persónulega þjónustu.
Aðstandendur geta leitað til útfararstjóra hvenær sólarhrings sem er.
Útfararstofa íslands er aðstandendum innan handar um alla þá þætti er
hafa ber í huga er dauðsfall verður. Útfararstjórar Útfararstofu íslands
búa yfir mikilli reynslu og hafa starfað við útfararþjónustu um árabil.
Útfararstofa íslands sér um:
- Útfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar
í samráði við prest og aðstandendur.
- Flytja hinn látna af dánarstað í líkhús.
- Koma á sambandi við þann prest sem
aðstandendur óska eftir.
- Aðstoða við val á kistu og líkklæðum.
- Búa um lík hins látna í kistu og snyrta ef með þarf.
- Fara með tilkynningu í fjölmiðla.
Útfararstofa íslands útvegar:
- Stað og stund fyrir kistulagningu og útför.
- Legstað í kirkjugarði.
- Organista, sönghópa, einsöngvara,
einleikara og/eða annað listafólk.
- Kistuskreytingu og fána.
- Blóm og kransa.
- Sálmaskrá og aðstoðar við val á sálmum.
- Dánarvottorö og líkbrennsluheimild.
- Duftker ef líkbrennsla á sér stað.
- Sal fyrir erfidrykkju og gestabók ef óskað er.
- Kross og skilti á leiði.
- Legstein.
- Flutning á kistu út á land eða utan af landi.
- Flutning á kistu til landsins og frá landinu.
Sverrir Einarsson
útfararstjóri
Sverrir Olsen
útfararstjóri
Utfararstofa Islands
Sími 581 3300 -
Suðurhlíð 35 — Fossvogi.
Alian sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
SIGRÍÐUR ARIN-
BJARNARDÓTTIR
+ Sigríður Arin-
bjarnardóttir
fæddist í Vestur-
hópshólum í V-Húna-
vatnssýslu 2. mars
1919. Hún lést 29.
nóvember síðastlið-
inn og fór útför
hennar fram í kyrr-
þey 4. desember.
Þúólstsembamvið
heiðbjart Húnaþing,
og horfðir skyggn á bláan
fjallahring.
Þú tíndir margan fagran
furðustein
og fórst á léttum hesti’ um grundir ein.
Þú áttir alltaf hlýja hjartarót
sem lífið hefði lítil
markað spor
en lagt þér til sitt geisla-
ríkavor.
Hve tómlegt er nú að horfa á
húsið þitt,
en hlýju þaðan geymir
brjóstið mitt
Og ætíð var mér koma þín
svo kær,
þú komst til mín sem ferskur
æskublær.
Hve björt þú varst er síðast
þigégsá
með svefni blandinn frið um
enni’ogbrá.
Nú húmar fast er færast nærri jól.
Hvað fljótt - þú kvaddir okkar jarðar sól.
með heiðskírt Norðurlandsins ættarmót
Og skáldi þínu varstu gæfa og vöm
svo vel þar prýddu garðinn ykkar böm.
Þótt liðið væri langt á daginn þinn,
hve ljós þú varst og fríð og björt á kinn,
Nú áttu þá - með Jesú sjálfum jól,
þar Jesús gefur þér sitt náðarskjól.
Þú færð að sjá þá helgu himnadýrð
er hér á jörðu verður aldrei skýrð.
Rósa B. Blöndals.
EDDA EINARS
ANDRÉSDÓTTIR
+ Edda Einars Andrésdóttir
fæddist í Reykjavík 27. júlí
1935. Hún lést á Vífilsstaðaspítala
6. desember síðastliðinn og fór út-
för hennar fram frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum 18. desember.
Vinkona mín og fyrrverandi sam-
starfskona, Edda Einars Andrés-
dóttir, hefur gengið lífsins veg á
enda eftir langa baráttu. Margar
minningar komu í hugann þegar ég
fékk þessar fréttir, og þá sérstak-
lega hvað hún reyndist mér vel þeg-
ar ég fluttist til Grindavíkur í desem-
ber 1987. Edda var alltaf tilbúin til
að rétta fram hjálparhönd og mátti
ekkert aumt vita, þá var hún mætt til
aðstoðar. Oft var glatt á hjalla í eld-
húsinu hjá henni, mikið rætt um það
sem var að gerast í þjóðfélaginu
hverju sinni og svo einnig um vinn-
una. Hún var ósérhlífin til vinnu,
einn af þessum starfskröftum sem
allir vildu hafa því að á Eddu var
hægt að treysta. Hennar verður sárt
saknað.
Þú áttir þrek og hafðir verk að viima
og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð,
þú vaktir yfir velferð bama þinna.
Þú vildir rækta þeirra ættarjörð.
Frá æsku varst þú gædd þeim góða anda
sem gefur þjóðum ást til sinna landa
ogeykuraflogtrú.
Það er eðli nyúkra móðurhanda
að miðla gjöfúm eins og þú.
(Höf. ók.)
Aðstandendum votta ég mína
dýpstu samúð.
Harpa Fold Ingólfsdóttir.
Skilafrestur
minnmgargreina
EIGI minningargrein að birtast á út-
farardegi (eða í sunnudagsblaði ef
útför er á mánudegi), er skilafrestur
sem hér segir: I sunnudags- og
þriðjudagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í miðviku-
dags-, fimmtudags-, föstudags- og
laugardagsblað þarf greinin að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virkum dög-
um fyiir birtingardag. Berist grein
eftir að skilafrestur er útrunninn eða
eftir að útför hefur farið fram, er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins til-
tekna skilafrests.
© ÚTFARARÞJÓNUSTAN
Stofhað 1990
Persónuleg þjónusta
Aðstoðum við skrif minningarrgrcina
Sími: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is
Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofan annast meginhluta allra útfara d höfuSborgarsvæSinu.
Þar starfa nú 15 manns við útfararþjónustu og kistuframleiðslu.
AlúSteg þjónusta sem byggir á langrí reynslu
J’
Utfararstofa Kirkjugarðanna ehf.
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími 551 1266-www.utfarastofa.com