Morgunblaðið - 24.12.1999, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999 57
]
1
MINNINGAR
SIGÞRÚÐUR JÓNÍNA
SIG URÐARDÓTTIR
+ Sigþrúður Jónína Sigurðar-
dóttir, dvalarheimili aldraðra
Skjóli, fæddist að Ásmundanesi í
Kaldrananeshreppi Strandasýlu
6. október 1915 . Hún andaðist á
heimili sínu 15. deseniber síðast-
liðinn. Sigþrúður var dóttir hjón-
anna Sigurðar Guðjónssonar, f.
23.4. 1886 í Birgisvík í Árnes-
hreppi og Guðrúnar Benjamíns-
dóttur, f. 8.4.1888 að Asparvík í
Þrúða, eins og hún var kölluð í
fjölskyldu minni, var kona með stórt
og kærleiksríkt hjarta. Ég kynntist
henni fyrst daginn sem ég fæddist.
Það var í ofsaveðri norður í Stranda-
sýslu. Engin ljósmóðir gat komist á
staðinn í þessu veðri, en Þrúða bjó
tvær bæjarleiðir frá heimili mínu og
lagði út í óveðrið ásamt systkinum
sinum til að aðstoða mig í þennan
heim. Hún hafði aldrei tekið á móti
barni og var ekki menntuð til þess.
Með hjálp systur hennar, Mundu,
gekk koma mín í þennan heim prýð-
isvel, enda Þrúða við stjórnvölinn.
Kaldrananeshreppi. Hún átti sjö
systkini þau eru: Ingibjörg, f.
11.6. 1913; Benjamín Magnús, f.
30.10. 1917; Bernódus, f.
9.9.1920; Andres, f. 28.4. 1924;
Guðmundína Sigurey, f. 1.1.1929;
Þóra Svanhildur, f. 22.2. 1932, og
Guðmundur sem dó í frum-
bernsku.
Útför Sigþrúðar fór fram frá
Fossvogskapellu 21. desember.
Ég var fyrsta barnið sem hún tók á
móti, en ekki það síðasta.
Næst þegar ég hitti Þrúðu var ég
tólf ára. Þrúða fluttist á Akranes
ásamt föður sínum, afa mínum, þeg-
ar ég var þrettán ára. Það var hlý-
legt að heimsækja hana, alltaf
nýbakaðar kökur og mjólk til reiðu.
En það sem mér fannst best við
heimsóknirnar var að hún var alltaf
með einhverja handavinnu í höndun-
um. Ég hafði gaman af að sjá hvem-
ig hún notaði nálina í útsaumi og
taka eftir flíkunum sem runnu út úr
fótstignu saumavélinni hennar. Þeg-
ar ég fór seinna að sauma sjálf
minntist ég oft Þrúðu, en ég komst
aldrei með tærnar þar sem hún
hafði hælana. Frá henni hafði ég
fengið löngunina til að takast á við
hannyrðir, sem veitti mér oft
ómælda ánægju.
Ég ræktaði ekki sambandið við
þessa heiðursfrænku mína, lét hana
afskiptalausa og gaf henni ekki tíma
og pláss í lífi mínu. Þegar ég skoðaði
líf mitt rækilega sá ég hversu eigin-
gjörn ég hafði verið. Ég vil biðja þig,
Þrúða mín, fyrirgefningar á tillits-
leysi mínu. Mig langar líka að segja
þér hversu vænt mér þykir um þig.
Þegar ég er að skrifa þetta finn ég
fyrir sorg yfir þeim árum sem ég gaf
þér ekki hlutdeild í lífi mínu og tók
ekki þátt í þínu. Nú ert þú farin til
Jesú, sem þú elskaðir, og hann hefur
örugglega tekið fagnandi á móti þér
með lúðrablæstri og himneskum
hersveitum. Drottinn blessi sálu
þína.
Ljóssins faðir, leið þig inn
lífs-til-dýrstu-halla.
Pegarlausnarlúður þinn
læturhljóminngjalla.
(Sig. Rós.)
Guðrún Magndís
Sigurðardóttir.
BJORN RIKARÐ UR
LÁRUSSON
+ Björn Ríkarður
Lárusson fæddist
í Reykjavík 7. nóv-
eniber 1942. Hann
varð bráðkvaddur á
heimili sínu 6. des-
ember síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Hallgríms-
kirkju 15. desember.
Björn vinur minn
var stór maður í fleiru
en einu tilliti. í einum
og sama manni sam-
einaðist heljarmennið,
hugvits- og hagleiks-
maðurinn Björn Lárusson, honum
var margt til lista lagt, íþróttamað-
ur góður, skákmaður snjall og hag-
ur smiður svo eftir var tekið. Eg
kynntist Birni ungur í gegnum
gamla góða KR eins og okkur er
tamt að kalla félagið okkar og átti
því láni að fagna að starfa með hon-
um að íþrótta- og félagsmálum um
langt árabil. Björn var ákaflega
traustur og ósérhlífinn félagi og má
þar t.d. nefna hans þátt í að bæta
aðstöðu lyftingadeildar KR er við
nokkrir félagarnir innréttuðum
gamla þvottalaugahúsið í Laugar-
dal 1977. í kjölfarið gerðist hann öt-
ull talsmaður þess að félagið kæmi
upp alhliða þrekæfingahúsi er nýt-
ast mætti öllum deildum til bætts
árangurs. Það gaf oft á bátinn hjá
okkur á þessum árum en þolinmæði
þrautir vinnur allar og upp fór hús-
ið um síðir. Björn var vakinn og sof-
inn fyrir velferð félagsins og beitti
sér óspart fyrir framgangi þess á
mörgum vígstöðvum. Mér er minn-
isstætt í upphafi knattspyrnuvertíð-
ar 1998 er hann heimsótti mig á
vinnustað og tilkynnti glaður í sinni
að nú kæmi Islandsbikarinn því
hann hefði dreymt fyrir því. I stuttu
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útfór hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
máli var draumurinn á
þann veg að hann er
staddur í bikarher-
berginu við Frosta-
skjól og sér þar í skáp
spýtukubb sem búið er
að rista í töluna 30.
Þetta sagði hann vís-
bendingu um að titill-
inn yrði í höfn það árið
því 30 ár væru liðin frá
síðasta Islandsmeist-
aratitli. Ræddum við
þetta ekki meir fyrr en
að hausti að ég hitti
Björn að máli og segi
drauminn því miður ekki hafa ræst,
enn þurfum við að bíða. Viku seinna
eða svo kemur Björn aftur og segir
að hann hafi gert mistök í draum-
ráðningunni, hann beri að skilja svo
að KR yrði íslandsmeistari 1999
þegar 30 ár væru liðin frá því félag-
ið lét bikarinn af hendi en það var
ekki fyrr en haustið 1969. Allt gekk
þetta eftir og meira til líkt og alþjóð
er kunnugt.
Þessi saga segir margt um mann-
inn, það var aldrei gefist upp þó
móti blæsi og ætíð horft með djörf-
ung og stolti fram á veginn.
Kæra Edda og börn, ykkar harm-
ur er mikill og sendum við gamlir
félagar ykkur hugheilar samúðar-
kveðjur. Það verður bjart yfir
minningu vinar míns Björns Lárus-
sonar um alla framtið.
Birgir Þór Borgþórsson.
+
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
SOFFÍA VALGEIRSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju þriðjudaginn 28. desember
kl. 13.30.
Sólrún Aspar Elíasdóttir, Sigmar Ingvarsson,
Soffía Gestsdóttir,
Valgerður Gestsdóttir,
Jóhannes H. Sigmarsson,
Sigrún íris Sigmarsdóttir,
Sunna Hrönn Sigmarsdóttir
og barnabarnabörn.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ÁSTA ÓLÍNA JÚNÍUSDÓTTIR,
Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði,
lést fimmtudaginn 23. desember á St. Jósefs-
spítala, Hafnarfirði.
Vigfús Sigurðsson,
Inga Sigrún Vigfúsdóttir, Óli Rafn Sumarliðason,
Guðfinna Vigfúsdóttir, Eyjólfur Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát
INGIBJARGAR GUNNARSDÓTTUR
hárgreiðslumeistara.
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól.
Björn R. Einarsson
og fjölskylda.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARÍA EINARSDÓTTIR,
áður til heimilis
á Jófríðarstaðavegi 12,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu við Skjólvang þriðjudaginn
21. desember.
Útförin verður gerð frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 29. des-
ember kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent
á Hrafnistu og Slysavarnafélag íslands.
Sérstakar þakkir eru sendar til starfsfólks Hrafnistu sem annaðist hana
meðan hún dvaldi þar.
Fyrir hönd vandamanna,
Ásmundur Ársælsson, Anna Ársælsson,
Guðrún Ársælsdóttir, Steinmóður Einarsson,
Jóhann Ólafur Ársælsson, Sigríður Karlsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
ÓLAFUR BALDUR ÓLAFSSON
framkvæmdastjóri,
Kirkjusandi 1,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðju-
daginn 28. desember kl. 10.30.
Blóm og kransar afbeðnir.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Heimahlynningu Krabbameins-
félagsins.
Hildur Guðmundsdóttir,
Kristín Lára Ólafsdóttir,
Magnús Eyjólfsson,
Tómas Óli Magnússon.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
STEFÁN PÁLL BJÖRNSSON
læknir,
er látinn.
Ásta Lára Guðmundsdóttir,
Guðmundur Stefánsson,
Björn Stefánsson,
Stefán Lárus Stefánsson,
Sigríður Stefánsdóttir,
Steingrímur Páll Stefánsson
og fjölskyldur.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SÍMON ÓLAFUR MAGGI ÁGÚSTSSON
vélstjóri,
Bakkatúni 16,
Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn
22. desember.
Anney B. Þorfinnsdóttir,
Ágúst Símonarson, Sigríður Sigurðardóttir,
Svana M. Símonardóttir, Valdimar Sveinsson,
Hjördís Símonardóttir Fruson, Dwight Fruson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns míns,
JÓNS BJÖRNSSONAR
frá Gerði,
Vestmannaeyjum,
Heiðvangi 1,
Hafnarfirði.
Oddný Larsdóttir.