Morgunblaðið - 24.12.1999, Side 60
60 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
1
JÓLASKÁK
MINNINGAR
Jólaskákþrautir
SKAK
S (> x skák|iraiitir
JÓLASKÁKÞRAUTIRNAR eru
fjölbreyttar eins og oft áður. Sumar
þeirra mundu vanir menn telja létt-
ar, en öruggt er, að a.m.k. ein þeirra
telst allt annað en létt. Allir ættu að
reyna við fyrstu þrautina, sem er
þríleiksdæmi. Önnur og þriðja þraut
eru báðar tvfleiksdæmi, sú fyrri frá
þriðja áratug aldarinnar og sú síðari
frá þeim sjötta.
Þijár síðustu þrautimar eru síðan
tafllok, þ.e. markmiðið er að finna
vinnings- eða jafnteflisleið, en ekki
mát í ákveðnum fjölda leikja. I fjórðu
þrautinni virðist hvítur vera í veru-
legum vandræðum vegna svarta
peðsins á b3, en hann á björgunar-
leið ef vel er að gáð! Lausn fimmtu
þrautarinnar er skemmtileg og hlýt-
ur að koma öllum í jólaskap sem
hana finna. Sjötta þrautin er fyrir þá
sem eru tilbúnir til að leggja svolítið
á sig og læra mikið í leiðinni. Hún er í
flokki út af fyrir sig og ekkert er gef-
ið upp um það hvort hvítum tekst að
bjarga sér úr klípunni.
Þó er óhætt að segja að málið er
- ekki einfalt og ótrúlegir möguleikar
leynast í stöðunni. Þetta er þraut þar
sem skákforrit koma að takmörkuðu
gagni og menn eru hvattir til að
kanna hvað skákforrit hafa um þessa
stöðu að segja.
Hvítur á leik í öllum þrautunum.
Lausnir verða birtar eftir jólin.
Daði Örn Jónsson
[i«® y Negro
Skólavörðustfg 21 a
101 Reykjavík
Sími/fax
552 1220
Netfang:
blanco@itn.is
Veffang:
www.blanco.ehf.is
1. Hvítur mátar
í þriðja leik
2. Hvítur mátar
í öðrum leik
5. Hvítur leikur
og vinnur
6. Hvítur leikur.
Nær hann jafntefli?
I Það eru (
Í56
Það eru ótrúlegir hlutir að gerast - Hringdu!
-1-
GUÐRUNINGIBJORG
JÓHANNESDÓTTIR
+ Guðrún Ingi-
björg Jóhannes-
dóttir fæddist í
Reykjavík 22. aprfl
1903. Hún lést í
hjúkrunarheimilinu
Skjóli 2. desember
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Fossvogskapellu
9. desember.
Mig langar að skrifa
nokkur kveðjuorð um
ömmu mína. Amma var
sterkur persónuleiki,
komst það sem þurfti
og var nægjusöm. Við syskinin og
mamma fórum oft á laugardögum til
ömmu og frá þeim stundum á ég
mínar bestu minningar um hana.
Hún bauð þá upp á þykkan gijóna-
graut með rúsínum og súkkulaði sem
við rifum franskbrauð
útí. Stóru svalirnar á
Klapparstíg sem við
bræðumir stálumst til
að fara út á, en þar var
ekkert handrið. Bolta-
leikjum okkar bræðr-
anna á ganginum
fylgdu oft mikil læti.
Eg man að ég heimsótti
hana á Borgarspítalann
og var mér þá sagt að
hún ætti ekki langt eft-
ir. Við töluðum lengi
saman og ég bað til
Jesú um að hann lækn-
aði hana og var hún
mjög ánægð með að ég bæði fyrir
henni. Sólarhring seinna var hún
komin heim, en hún var ekki mjög
trúuð fyrir og ég veit að þetta gaf
henni frið.
Halldór Eyþórsson.
ÁRNIG.
MARKÚSSON
+ Árni G. Markús-
son fæddist á
Sjónarhóli í Súðavík
30. janúar 1929.
Hann lést á hjúkrun-
arheimilinu Skógar-
bæ 27. nóvember síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Breið-
holtskirkju 6. desem-
ber.
Elsku bróðir og
mágur. Við kveðjum
þig með klökku hjarta,
en nú vitum við að þú
ert laus við allar þær
þrautir sem þú hefur
þurft að þola og það
verður tekið vel á móti
þér hinum megin. Við
biðjum Guð að styðja
og styrkja eiginkon-
una sem stóð sem
klettur alla daga við
rúmið þitt og stóra
barnahópinn þinn, afa-
og langafabörn.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og
allt.
(V. Briem)
Guðríður
og Hermann.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper-
fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á
netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem
viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Hafnarfjörður
— bókhald
Endurskoðunarstofa í Hafnarfirði vill ráða sem
fyrst starfsmann í hlutastarf til bókhaldsstarfa
(TOK). Góð bókhaldskunnátta og reynsla
nauðsynleg. Reyklaus vinnustaður.
Öllum umsóknum svarað.
Umsóknir, er greini frá menntun og fyrri störf-
um, sendist á netfangið hyggir@simnet.is fyrir
5. janúar nk.
Blaðbera vantar
Mosfellsbæ - Þverholt
Kópavog - Kópavogsbraut
§?- Upplýsingar í síma 569 1122.
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í'
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 i Reykjavík þar sem eru yfir
300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Ert þú
hárgreiðslumeistari?
Meistari óskast á flotta stofu miðsvæðis í
Reykjavík. Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Áhugasamir hringi í síma 565 4425/862 4425.
Framkvæmdastjóri
NAC&C (North Atlantic Construction
& Consulting)
Nýttfyrirtæki, NAC&C, í eigu 5 málmiðnaðar-
fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu, óskar að
ráða framkvæmdastjóra nú þegar. Markmið
fyrirtækisins er verktaka í málmiðnaði, bæði
innanlands og utan.
Verksvið framkvæmdastjóra verður:
• Uppbygging hins nýja fyrirtækis frá grunni.
• Kynning og markaðsmál.
• Verkefnaöflun og tilboðsgerð.
Leitað er að vönum manni með verk-/tækni-
fræðimenntun, með reynslu á sviði stjórnunar
og þekkingu úr verktakastarfsemi. Umsækjandi
þarf að vera reglusamur, stjórnsamur og eiga
gott með að umgangast fólk. Gott vald á enskri
tungu er skilyrði.
Umsóknirsendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
,,F — 9063", fyrir 5. janúar.
Ollum umsóknum verður svarað og farið með
allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Gleðileg jól
Óskum viðskiptavinum okkar, starfsmönnum
og umsækjendum gleðilegra jóla og farsældar
á komandi ári með þökkum fyrir samstarfið
árinu sem er að líða.
Opnunartími skrifstofu okkar yfir hátíðimar
verður sem hér segir:
Þorláksmessa opið kl. 9-12, lokað aðfangadag,
mánudaginn 27. og gamlársdag. Opið
samkvæmt venju 28. til 30. desember.
Minnum á heimasíðu okkar:
www.lidsauki.is
Fó/k og þekking
Udsauki 0
Skipholt 50c, 105 Reykjavik simi 562 1355, fax 562 3767
Netfang: www.lidsauki.is
Tölvupóstur: lidsauki@lidsauki.is