Morgunblaðið - 24.12.1999, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999 63
Háskóli íslands
Viðskipta-
og hagfræðideild
í Viðskipta- og hagfræðideild er laust til um-
sóknar kennarastarf í stjómun eða
markaðsfrædi. Ráðinn verður lektor eða dós-
ent eftir atvikum. Lágmarksskilyrði er meistara-
próf en æskilegt að viðkomandi hafi meiri
menntun. Stefnt er að ráðningu frá 1. ágúst
2000.
Umsókn þarf að fylgja greinargóð skýrsla um
vísindastörf umsækjanda, rannsóknir og rit-
smíðar (ritaskrá), svo og yfirlit um námsferil
og störf (curriculum vitae) og eftir atvikum
vottorð. Með umsókn skulu send þrjú eintök
af vísindalegum ritum og ritgerðum, birtum
og óbirtum, sem umsækjandi óskar eftir að
tekin verði til mats. Þegar höfundar eru fleiri
en umsækjandi skal hann gera grein fyrir hlut-
deild sinni í rannsóknum sem lýst er í ritverk-
unum. Ef um er að ræða mikinn fjölda ritverka
skal innsending af hálfu umsækjanda og mat
dómnefndar takmarkast við 20 helstu fræðileg
ritverk sem varða hið auglýsta starfssvið. Æski-
legt er að umsækjandi geri grein fyrir því hverj-
ar rannsóknarniðurstöður sínar hann telur
markverðastar. Ennfremur er óskað eftir grein-
argerð um þær rannsóknir sem umsækjandi
vinnur að og hyggst vinna að verði honum
veitt starfið (rannsóknaráætlun) og þá aðstöðu
sem til þarf. Loks er ætlast til þess að umsækj-
andi láti fylgja með umsagnir um kennslu- og
stjórnunarstörf sín eftir því sem við á.
Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskóla-
kennara og fjármálaráðherra og raðast starf
lektors/dósents í launaramma B/C.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2000, og
skal umsóknum skilað í þríriti til starfsmanna-
sviðs Háskóla íslands, Aðalbyggingu, við Suð-
urgötu, 101 Reykjavík. Öllum umsóknum verð-
ur svarað og umsækjendum tilkynnt um ráð-
stöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið
tekin.
Nánari upplýsingar veitir Snjólfur Ólafsson,
formaður viðskiptaskorar, í síma 525 4570
(netfang: snjolfur@hi.is).
http://www.starf.hi.is
Sjómælingar íslands
auglýsa eftir deildarstjóra í sjókortagerð
og sjómælingamanni
Deildarstjóri
sjókortagerðar
Starfssvið: Dagleg stjórnun sjókortadeildar.
Stjórnunarleg staða: Stjórnunarlega heyrir
staðan undir forstöðumann.
Starfshlutfall: Um er að ræða fullt starf.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjandi þarf að hafa reynslu í sjókorta-
gerð, hand- og tölvuvinnslu. Góð íslensku-
og enskukunnátta nauðsynleg og hæfni í
mannlegum samskiptum.
Starfskjör: Starfskjör ráðast af kjarasamningi
milli fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og viðeig-
andi stéttarfélags.
Miðað er við að ráðið verði í stöðuna 1. febrúar
nk.
Sjómælingamaður
Starfssvid: Starf sjómælingamannsfelst í
dýptarmælingum umhverfis landið, úrvinnslu
gagna og aðstoð við sjókortagerð.
Starfshlutfall: Um er að ræða fullt starf.
Stjórnunarleg staða: Stjórnunarlega heyrir
staðan undir deildarstjóra mælingadeildar.
Menntunar- og hæfniskröfur: 3. stigs skip-
stjórnarréttindi, reynsla áskilin. Góð stærð-
fræði-, íslensku-, ensku- og tölvukunnátta auk
hæfni í mannlegum samskiptum.
Starfskjör: Starfskjör ráðast af kjarasamningi
milli fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og viðeig-
andi stéttarfélags.
Miðað er við að ráðið verði í stöðuna 1. febrúar
nk.
Umsóknum ber að skila til Sjómælinga íslands,
Seljavegi 32, Reykjavík, fyrir 7. janúar nk.
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Helgason
forstöðumaður og Magnús Gunnarsson fjár-
málastjóri í síma 511 2222.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un hefur verið tekin.
:;:=
Óskum öllum landsmönnum
gleðilegra jóla með von um
bjarta framtíð. Viðskiptavinum
og umsækjendum þökkum við
mjög gott samstarf á árinu sem
er að Ijúka.
GALLUP
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Smiöjuvegi 72, 200 Köpavogl
S!mi: 540 1000 Fax: 564 4166
Netfang: radningar@gallup.is
/ samstarfi við RÁÐGARÐ
Gleðileg jól og
farsælt komandi árl
Starfsfólk Ráðningarþjónustunnar
þakkar viðskiptavinum sínum
samstarfið á árinu sem er að líða.
RÁÐNINGAR
^ÞJÓNUSTAN
r^ttur maður í rétt starf.
Háalcitísbraut 58-60
^108 Reykjavík, sími: 588 3309
Netfeng:radning 'a jadning. is
Veffang: http://w\vw/radning.is
Laus staða aðstoðar-
forstjóra Hafrann-
sóknastofnunarinnar <
Staða aðstoðarforstjóra við Hafrannsókna-
stofnunina er laus til umsóknar. Við stofnunina
skulu starfa tveir aðstoðarforstjórar er sjávarút-
vegsráðherra ræður og er auglýst eftir um-
sækjendum um stöðu aðstoðarforstjóra á vís-
indasviði. Umsækjendur skulu fullnægja skil-
yrðum 13. gr. 1. nr. 64/1965 um rannsóknir í
þágu atvinnuveganna með síðari breytingum.
Ráðið verður í starfið frá 15. janúar 2000.
Umsóknir skulu sendar sjávarútvegsráðuneyt-
inu fyrir 10. janúar 2000. Nánari upplýsingar
fást hjá sjávarútvegsráðuneytinu.
Sjávarútvegsráðu neytið,
21. desember 1999.
Olíufélagið hf. óskar að ráða viðskiptafræðing eða mann/konu með
hliðstæða menntun, í bókhaldsdeild félagsins. Um er að ræða nýtt
og krefjandi starf með megináherslu á eftirlit með þjónustustöðvum
félagsins. Viðkomandi þarf að geta séð um gerð tillagna og mótun
nýrra vinnuferla, afstemmingar og önnur störf tengd bókhaldi.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynsiu og þekkingu á ofangreind-
um atriðum, geti sýnt frumkvæði í starfi og hafi ánægju af mann-
legum samskiptum.
Upplýsingar veitir Ingvar Stefánsson alla virka daga
í síma 560 3300. Umsóknum um aidur, menntun og fyrri störf
skalskila fyrir 28. desembernk., merktum:
Olíufélagiö hf., b.t. Ingvars Stetánssonar,
Suðurlandsbraut 18,108 Reykjavík
Oliufélagið hf. er alíslenskt olíufélag og eru hluthafar um 1300. Samstarfs-
samningur Olíufélagsins hf. við EXX0N veitir því einkarétt á notkun vöru-
merkis ESS0 á Islandi, án þess að um eignaraðild sé að ræða. Ollufélagið hf.
er stærsta oliufélagið á íslandi með um 42% markaðshlutdeild.
Höfuðstöðvar Olíufélagsins hf. eru að Suðurlandsbraut 181 Reykjavik en
félagið rekur 100 bensin- og þjónustustöðvar vltt og breitt um landið.
Starfsmenn Oliufélagsins hf. eru rúmlega 400.
Olíufélagíðhf
www.esso.lt
AUK k15d11-1450 sia.is