Morgunblaðið - 24.12.1999, Síða 82
82 FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Hundalíf
Ljóska
PAÐ KEMUR J Vlí> ÆTTUM A6 UTVESA
SVOÍSKALD- ]>0KKUR FALLEGAR PEYSUR
UR BLÁSTURrA ME6 MERtŒNU OKKAR Á
Smáfólk
Sæll Stjáni, farðu og spyrðu hundinn
þinn hvað varð um skilaboðin
sem hann tók fyrir mig.
BREF
ITL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Alheimsvið-
skiptastofnunin
Frá Snorra Bjamasyni:
EG er orðinn gamall maður og er
búinn að fylgjast með framvindu
mála í landinu og reyndar í heim-
inum, í meira en sextíu ár og leyfi
mér á þeim forsendum að senda
þjóðinni nokkrar línur. Eg ætla
mér nú ekki að fara að rekja alla
þá sögu, en langar til að minnast á
það sem heitast brennur og mest
er í umræðunni. Þá nefni ég fyrst
það alheimsböl sem er vímuefna-
neyslan og salan á efnum til þeirra
nota mun vera lang fyrirferðamest
og velta stærstu fjárfúlgunum í
þessum rómuðu alheimsviðskipt-
um, þó þau viðskipti séu ólögleg.
íslenska lögreglan í samvinnu inn-
byrðis og við aðrar þjóðir, hefir
náð aðdáunarverðum árangri und-
anfarið við að hafa hendur í hári
þeirra sem fjármagna, flytja inn
og selja þessi hættulegu efni.
Þetta er allt þakkarvert og eins
það sem gert er til að hjálpa þeim
börnum og unglingum, sem hafa
orðið fórnarlömb vímuefna, að
komast á réttan kjöl. En ef við
ætlum í alvöru að komast að rótum
vandans, þá verðum við að endur-
skoða alla okkar lífshætti og líta til
gamalla gilda. Tæknin hefur fært
okkur marga dásamlega hluti sem
létta okkur lífið og gera það
skemmtilegra, en þessi blinda
tæknidýrkun sem heimtar meiri og
meiri hraða og notuð er í glæp-
samlegum tilgangi er að eyðileggja
allt líf á jörðunni. Það sem við
þurfum að leggja áherslu á er að
endurreisa heimilin og gefa okkur
tíma til að sinna börnunum alveg
frá fæðingu, því lengi býr að
fyrstu gerð. Þeir peningar sem
varið er í barnapössun væru betur
komnir beint til heimilanna og for-
eldrum gert kleift að vera heima
með börnum sínum. Það væri
þroskandi fyrir bæði foreldra og
börn, en ungir foreldrar sem sjálf-
ir fóru á mis við móður- og föður-
umhyggju þurfa að fá fræðslu hjá
góðu og þroskuðu fólki, svo þeir
verði færir um að gefa börnunum
gott fordæmi og kenna þeim að
þekkja muninn á réttu og röngu.
Þó það séu margir sem leggja sig
fram um að vinna gegn þessum
ósóma, þá eru aðrir sem vinna í öf-
uga átt og heimta að áfengi sé selt
í matvörubúðum svo hægt sé að
setja það í körfuna með mjólkinni.
Eitt er það mál sem þjóð og þing
glímir nú við, en það er álmonell-
usýkingin sem herjar á Austfirð-
inga og margir hafa veikst af. Ut-
anríkisráðherra og þó sérstaklega
iðnaðarráðherra ei'u mjög þungt
haldnir af þessari pest. Þeir halda
nú samt að pestin geti orðið til
gagns og muni efla atvinnulíf og
velmegun á Austurlandi og jafnvel
í öllum fjórðungum landsins ef hún
breiðist út. Þetta byggist á því að
fallegu landi sé sökkt og byggð
stór raforkuver og síðan reist mik-
ið álver við Reyðarfjörð. Alheims-
viðskiptastofnunin hélt stóra ráð-
stefnu í Seattle í Bandaríkjunum,
sem dró að sér þúsundir mótmæl-
enda sem vildu mótmæla alheims-
kunni og afleiðingum hennar. Hall-
dór Asgrímsson utanríkisráðherra
var þar fulltrúi okkar íslendinga
og honum rataðist satt orð á
munn, þegar hann sagði að við
værum að stuðla að því að halda
uppi barnaþrælkun í Asíu með því
t.d. að kaupa flugelda til að skjóta
upp á gamlárskvöld. Hann sagði
að það væru börn sem væru látin
vinna að framleiðslunni og það
hefðu hlotist af því mörg stórslys.
En er það ekki einmitt þetta sem
þessi svokallaða alheimsvæðing
byggist á, að kaupa vörur þar sem
þær fást ódýrastar og láta sér
ekkert koma við af hverju þær eru
ódýrar? Það eru fluttar inn iðnað-
arvörur í miklu magni á svo lágu
verði að það virðist útilokað að það
geti staðist að hægt sé að fram-
leiða þær og flytja heimshorna á
milli. Vilji maður sjálfur smíða eða
sauma einhvern hlut og fari í búð
til að kaupa sér efni, þá reynist
hægt að fá hlutinn tilbúinn á sama
verði og efnið kostar. Það hlýtur
þá einhverstaðar að vera vitlaust
gefið og einhver hafi svikið lit.
Leiti maður eftir skýringum á
þessu, þá eru svörin jafnan þau að
þetta sé hagur neytenda, eins og
þeir séu hópur sem geri ekki ann-
að en vera neytendur og aðrar
hræringar í þjóðfélaginu snerti þá
ekki. Þetta er alheimskan í hnot-
skurn. Það sem á að vera for-
gangsverkefni hverrar ríkisstjórn-
ar er að búa svo um hnútana að
allir hafi atvinnu við sitt hæfi,
bæði til aðfullnægja athafnaþörf-
inni og geta séð sér og sínum far-
borða með vinnu sinni. Sú ríkis-
stjórn sem nú situr, ætlar ekki að
láta standa upp á sig og hún kann
eitt ráð og það er að fá útlendinga
til að virkja ár og fossa, til að
knýja stór álver, sem þeir byggja
á sinn reikning. Atvinnuleysingjar
í sjávarplássunum geta þá hætt að
standa á bryggjunum og góna út á
sjóinn þar sem þeir vita af fiskin-
um, sem þeir mega ekki veiða.
SNORRI BJARNASON,
ökukennari Blönduósi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Bru rímlagardinurnar óhreinar?
Við hreinsum:
Viðarrimla, strimla, plíseruð og sólargluggatjöld.
Setjum afrafmagnandi bónhúð.
Sækjum og sendum ef óskað er.
tzáimuhn GSM 897 3634