Morgunblaðið - 24.12.1999, Síða 87
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1999 87
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Regnboginn frumsýnir gamanmyndina „Baby Geniuses“
með Kathleen Turner og Christopher Lloyd í aðalhlutverkum
Snilligáfa barnanna
Frumsýning
DR. ELENA Kinder (Kat-
hleen Tumer) er heims-
þekktur barnasérfræðingur
sem stjórnar rannsóknum hjá Baby-
co-fyrirtækinu en það sérhæfir sig í
hverskonar barnavarningi. Hún hef-
ur komist að því með umfangsmikl-
um rannsóknum að sum böm era
fæddir snillingar en við tveggja ára
aldurinn þegar þau byrja að tala í
heilum setningum eða þar um bil,
tapa þau snilligáfunni og verða eins
og við hin.
Elena Kinder gerir sér
grein fyrir að uppgötvun
hennar mun tryggja henni
Nóbelsverðlaunin en það er
t'eyndar ekki markmið henn-
ar. Hún og aðstoðarmaður
hennar, Heep (Christopher
Lloyd), hafa engum sagt frá
því að þau ætla að nota niður-
stoður rannsókna sinna í
mjög undarlegum og hættu-
legum tilgangi en það eina
sem stendur í vegi fyrir þeim er
tveggja ára anginn Sly.
Þannig er söguþráðurinn í gaman-
myndinni „Baby Geniuses", sem er
jólamynd Regnbogans í ár. Með að-
alhlutverkin fara Kathleen Turner
og Christopher Lloyd en aðrir leik-
arar í myndinni eru Kim Cattrall,
Peter MacNicol, Dom DeLuise, Kyle
Howard og Ruby Dee.
Leikstjóri myndarinnar er Bob
Clark. Hann er hefur starfað sem
handritshöfundur, leikstjóri og
framleiðandi og hefur komið að gerð
fjölda mynda af ýmsum gerðum og
stærðum ýmist sem leikstjóri eða
framleiðandi. Kannski kunnastar
þeirra séu „Porky’s", „Turk 182“,
„Murder by Degree“ og „Breaking
Point“.
Kathleen Tumer hefur ekki verið
áberandi í kvikmyndunum undanfar-
in ár. Hún vakti gríðarlega athygli
sem femme fatale í glæpamynd
Lawrence Kasdans, „Body Heat“, á
móti William Hurt. Síðan þá hefur
hún leikið í fjölmörgum myndum
fyrir leikstjóra á borð við Carl Rein-
Þríburar fóru með hlutverk
barnungans Sly í fjölskyldu-
myndinni um snillingana.
er og Francis Ford Coppola. Þekkt-
astar þeirra era án efa „Romancing
the Stone“ og „Peggy Sue Got Marr-
ied“ að ógleymdri „Prizzi’s Honor“
þar sem hún lék á móti Jack Nichol-
son undir leikstjóm John Hustons.
Þá lék hún fyrir Danny DeVito í
„War of the Roses“ á móti Michael
Douglas og fyrir John Waters í „Ser-
ial Mom“.
„Elenu finnst ekki að hún sé
óþokki,“ er haft eftir leikstjóranum
Clark þegar hann ræðir um hlutverk
Turner í myndinni. „Henni finnst að
hún sé að gera rétt alveg öfugt við
frændfólk hennar sem hún á í mestri
samkeppni við á barnavöramarkað-
inum. Hún hefur mikla trú á aga og
stöðugri þjálfun en frændfólkið legg-
ur meiri áherslu á ástúð.
Gamanleikarinn Christopher
Lloyd fer með annað aðalhlutverkið í
myndinni en hann fór með hlutverk í
mynd Milosar Fonnans, Gauks-
hreiðrinu, á sínum tíma. Þekktastur
er hann fyrir að leika á móti Michael
J. Fox í tímaflakksmyndunum Aftur
til framtíðar.
Kathleen Turner er engin barnagæla í myndinni þótt hór sýnist annað.
MYNDBÖND
Jordan á villigötum
Draumaheimur
(In Dreams)
Hrollvekja
Framleiðandi Stephen Wolley.
Leikstjóri: Neil Jordan. Handrit:
Bruce Robinson og Neil Jordan. Að-
aJhlutverk: Annette Bening, Aidan
Quinn og Robert Downey Jr. (90
mín.) ClC-myndbönd, desember
1999. Bönnuð innan 16 ára.
Leikstjórinn
Neil Jordan hef-
ur getið sér gott
orð fyrir vandað-
ar og óvenjuleg-
ar kvikmyndir á
borð við „Inter-
view with a
Vampire", „The
Crying Game“
og „The Butcher
Boy“. Það getur því tekið áhorf-
andann dálítinn tíma að átta sig á
að Draumaheimur er lítið annað en
ómerkileg klisja. Um er að ræða
raðmorðingjamynd í anda „Psycho"
með dulrænu sjónvarpsmyndar-
ívafi. Utlit og umgjörð eru síðan í
„Seven“ -stílnum. Þessi samsetn-
ing gæti reyndar gengið upp ef
ekki væri fyrir hið áberandi illa
skrifaða handrit myndarinnar.
Annette Bening berst hetjulega við
mis-misheppnað hlutverk aðalper-
sónunnar en hinn annars ágæti
leikari Robert Downey Jr. verður
fullkomlega hjákátlegur í hlutverki
morðingjans. Upphafsatriði þessar-
ar hrollvekju er áhrifaríkt en eftir
það liggur leiðin hratt niður á við.
Heiða Jóhannsdóttir'
saniSPU.
Bjarni Arason
Ragnar Bjamason
Sími 552 9900
JÓLA-
DANSLEIKUR
' MILLJÓNAMÆRINGANNA '
ásamt
Bjarna Arasyni, Ragnari Bjarnasyni, Bogomil Font og Páli Óskari,
26. desember, annan í jólum, í Súlnasa! á Hótel Sögu
Bogomil Font ,
Páll Óskar
Laugaveg 168 - www.centrum.is/samspil
Forsala aðgöngumida í andyri
Súlnasals á Hótel Sögu
26, desember frá kl, 13*20
Spariklæðnaður
Miðaverð kr, 1,800
Húsið opnað kl, 22,00