Morgunblaðið - 31.12.1999, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
b
FRETTIR
Norsk Hydro segir stækkun álvers forsendu þátttöku
Ekki loforð um stækk-
un í viljayfirlýsingunni
Óvíst hvort
dansleikur
verður í
Laugardalshöll
Bensín
hækkar
um áramót
VERÐ á bensíni hækkar hjá Skelj-
ungi um áramótin vegna hækkunar á
heimsmarkaðsverði. Gunnar Kvar-
an, kynningarfulltrúi fyrirtækisins,
segir það skýrast í dag hve mikil
hækkunin verður.
Geii- Magnússon, forstjóri Olíufé-
lagsins, segir að minniháttar hækk-
un verði á bensínverði Olíufélagsins
um áramót. I dag verði ákveðið
hversu mikil hún verði en hann seg-
ist búast við hækkun um rúma krónu
á hvem lítra, sem sé í samræmi við
breytingar á heimsmarkaðsverði.
Breytingar hafa orðið á bensín-
verði um hver mánaðamót á síðari
hluta ársins og hefur verðið þegar
hækkað um rúmar sextán krónur frá
því um síðustu áramót. Geir segir að
þetta orsakist af mikilli hækkun á
heimsmarkaðsverði á bensíni, sem
ráðist af framboði og eftirspum.
Aramóta-
fréttir á
mbl.is
FRÉTTAVAKT verður á
Fréttavef Morgunblaðsins á
gamlárskvöld og nýársnótt þar
sem fylgst verður með áramót-
unum ganga í garð bæði á Is-
landi og í útlöndum.
Sett hefur verið upp vefsíða
undir yfirskriftinni Arið 2000
þar sem þessar fréttir verður
að finna. Að auki hefur þar
verið safnað saman fréttum af
2000-vandanum svonefnda sem
birst hafa á Fréttavefnum. Þar
er einnig gagnvirkt kort sem
sýnir hvenær áramótin verða í
hinum ýmsu heimshlutum auk
tengla í aðrar vefsíður þar sem
fylgst er með áramótunum.
Morgunblaðið á Netinu mun
allt árið 2000 birta innlendar
ljósmyndir frá 20. öldinni af
fréttnæmum atburðum undir
yfirskriftinni Innlendar svip-
myndir aldarinnar. Alls eru
myndirnar 52 og birtast með
viku miliibili, sú fyrsta á nýárs-
dag. Myndirnar eru fengnar
frá myndasafni Morgunblaðs-
ins, Þjóðminjasafninu og Ljós-
myndasafni Reykjavíkur.
EIVIND Reiten, forstjóri málm-
deildar Norsk Hydro, segir framtíð-
arstækkun álvers í Reyðarfirði vera
forsendu þess að fyrirtækið taki þátt
í byggingu álversins. Þetta kom
fram í samtali Sjónvarpsins við Reit-
en í gær. Finnur Ingólfsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, segir að staðið
verði að þessu máli í samræmi við
viljayfirlýsingu sem undirrituð var á
Hallormsstað sl. sumar og þar sé
ekki að finna skuldbindingar í þessa
átt af nokkurs hálfu.
í máli Reiten kom fram að Norsk
Hydro ynni að eigin rannsókn á um-
hverfisskýrslu Landsvirkjunar.
Hann sagði að Norsk Hydro réðist
í VIKUNNI sást til arnar við Nípu í
Mýrdal. Orninn sást á sömu slóðum
og örn, sem hélt þarna til í fyrra,
var vanur að þvælast um.
Sá örn olli nokkru fjaðrafoki fyr-
ir um ári en þá var talið að hann
hefði verið drepinn austur í Skaft-
ártungu. Þar höfðu bændur sett út
hræ til að ginna ref og sást til arn-
arins í kringum hræið og síðar sást
þar blóð og vængjasláttur í snjón-
um. Þá fór bændur að gruna að örn-
ekki í slíkt verkefni nema að því
gefnu að unnt yrði að stækka álverið
og gera það mun ábatasamara þegar
litið væri til framtíðar. Reiten sagði
jafnframt að gagnrýni sú sem und-
anfarið hefði beinst gegn Norsk
Hydro vegna Fljótsdalsvirkjunar
ætti einnig að beinast gegn þeim sem
eiga að sjá um virkjunarfram-
kvæmdirnar og stjómkerfinu á ís-
landi. Hann sagði að ekki þýddi að
gera Norsk Hydro ábyrgt fyrir
málsmeðferð Alþingis íslendinga.
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, segir að viljayfir-
lýsing Norsk Hydro og ríkisstjóm-
arinnar, sem skrifað var undir í Hall-
inn hefði verið drepinn og fór af
stað rannsókn hjá sýslumannni til
að kanna hvað gerst hefði. Fáeinum
dögum seinna sást svo til arnar í
Mýrdalnum og var málið látið niður
falla.
En örninn hefur ekki sést um
margra mánaða skeið og grunar
menn í Mýrdalnum að örninn sem
sást þar fyrir fáeinum dögum sé sá
sami.
Jónas Erlendsson, fiskcldisbóndi
ormsstað í júní sl. sumar, fjalli um
þetta mál og eftir henni verði unnið.
„Það er öllum ljóst að menn ætla að
stækka álverið þegar fram líða
stundir en það em engar skuldbind-
ingar af nokkurs hálfu í þeim efn-
um,“ segir Finnur. Hann segir að
ekki kveði við nýjan tón í ummælum
Reiten hvað þetta varðar. Aðalatrið-
ið sé það að allir aðilar sem að yfir-
lýsingunni frá Hallormsstað koma
ætla að vinna eftir þeim tímaáætlun-
um sem í henni em og niðurstöðuna
eigi að fá fyrir 1. júní á næsta ári.
„Þetta er ekkert nýtt og hefur alltaf
legið fyrir,“ segir Finnur.
í Fagradal, segist halda að þetta sé
sami örninn. Hann sitji á nákvæm-
lega sama stað og mæni á fiskeldis-
kerin. I fyrra segist Jónas hafa
staðið hann að verki við að stela
bleikjum úr kerum si'num, en hann
hefur ekki gripið hann ennþá í
þetta sinn. Þó segir hann örninn
hafa verið mikið á sveimi yfir ker-
unum, en að hann virðist orðinn
heldur styggari en hann var í
fyrra.
ÓVÍST var seint í gærkvöld hvort |
yrði af áramótadansleik í Laugar- I
dalshöll, sem auglýstur hefur verið í fj
fjölmiðlum. Reykjavíkurborg hefur V
gefið út vínveitingaleyfi til ábyrgðar-
manns Laugardalshallarinnar, en þar
ætlar hljómsveitin Stuðmenn að
standa fyrir dansleik. í auglýsingum
heíur verið getið um að aldurstak-
mark yrði 18 ár og að dansleikurinn
stæði „fram á rauða nótt“. Vínveit-
ingaleyfið, sem var gefið út um há-
degisbilið í gær, miðast við dansleik |
til kl. 4 og að aldurstakmark verði 20 |
ár. Lögreglan hefur ekki gefið leyfi
fyrir dansleiknum og segir Karl p
Steinar Valsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn að skemmtanahaldari
hafi ekki fullnægt skilyrðum sem sett
eru fyrir veitingu skemmtanaleyfis.
Skilyrðin eru m.a. þau að dansleikur-
inn verði lokaður fyrir yngri en 20
ára, að honum verði lokið í síðasta
lagi kl. 4 að nóttu. Einnig að skemmt-
anahaldari tryggi akstur að dansleik |
loknum. Karl Steinar sagði í gærk-
völd að ekkert þessara skiiyrða hefði
verið uppfyllt. Hann taldi seint í 1
gærkvöld óvíst hvort að af dansleikn-
um yrði.
Hörð gagnrýni á
vínveitingaleyfíð
Samtök ferðaþjónustunnar hafa
gagnrýnt harðlega veitingu vínveit-
ingaleyfisins. í fréttatilkynningu frá
samtökunum segir að það sé heldur ,
nöturleg áramótakveðja sem borgar-
yfirvöld sendi veitingamönnum í
Reykjavík en Reykjavíkurborg I
standi að dansleikjahaldi í Laugar-
dalshöll um áramótin í beinni sam-
keppni við fyrirtækin í borginni.
Samkvæmt áfengislögum veiti borg-
aryfiivöld leyfi til vínveitinga í
Reykjavík og þeim sé heimilt að veita
ábyrgðarmanni viðkomandi húss
leyfi til áfengisveitinga af sérstöku
tilefni, svokallað tækifærisleyfi, ef 1
hann annist á eigin ábyrgð alla sölu
og veitingar áfengis og annist sjólfur
og greiði fyrir áfengið, aðrar veiting- f
ar og þjónustu sem gestum er látin í
té. Abyrgðarmaður Laugardalshallar
sé íþrótta- og tómstundaráð borgar-
innar og það hljóti að vekja furðu að
ÍTR fái fé úr borgarsjóði til innkaupa
á áfengi og beri ábyrgð á allri sölu á
börunum á þessum almenna dansleik.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Örninn snúinn aftur?
Frjáls fjarskipti - nýtt fjarskiptafyrirtæki ætlar að hefja starfsemi nú um áramótin
Ætla að bjóða
ódýrustu símtölin
NÝTT símafyrirtæki, Frjáls fjarskipti, hefur
starfsemi eftir helgi. Fyrirtækið hefur starf-
semina með því að bjóða upp á útlandasímtöl
og segir Páll Þór Jónsson, talsmaður fyrirtæk-
isins, að miðað við núverandi aðstæður verði
þau boðin á 20-30% lægra verði en hjá Lands-
símanum. Fyrirtækið hefur sett sér það
markmið að bjóða almenningi og fyrirtækjum
ódýrustu símtöl á markaðnum og stuðla þannig
að öflugri samkeppni á íslenskum símamark-
aði. Verðskráin verður kynnt í næstu viku.
Frjáls fjarskipti voru stofnuð í janúar 1999
og hefur undirbúningur að starfsemi fyrirtæk-
isins staðið allt þetta ár. Það er í meirihluta-
eign alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins Actima
Intemational, sem hefur höfuðstöðvar í Lúx-
emborg. Þá hefur félagið samstarf við Erics-
son, SITA, Comtel og Telia.
Páll Þór segir að ráðist verði í alhliða fjar-
skiptaþjónustu á vegum félagsins í nokkrum
þrepum. Hann segir fyrirtækið verða fyrst til
að keppa við Landssímann um símaþjónustu til
útlanda. Fyrirkomulag gagnvart notendum
verður með því móti að þeir sem vilja nýta sér
þjónustu nýja fyrirtækisins gerast áskrifendur
og er þá settur upp lítill símlykill á heimilum
eða fyrirtækjum þeirra. Notandinn getur með
honum stýrt því við hvaða símafyrirtæki hann
skiptir. Páll Þór segir það felast í nafni félags-
ins að notendur geti valið við hvaða fyrirtæki
þeir skipta en séu ekki bundnir einum aðila.
Frjáls fjarskipti eru í samningaviðræðum við
Landssímann um aðgengi að grunnneti félags-
ins í samræmi við ný fjarskiptalög. Páll segir
að væntanlega fái Frjáls fjarskipti aðgang að
grunnnetinu innan tveggja mánaða og hefjist
þá þjónusta fyrir innanlandssímtöl. Einnig sé
undirbúningur í fullum gangi íýrir Netþjón-
ustu og GSM-þjónustu. SITA er alþjóðlegt ‘
hlutafélag en var upprunalega eins konar sam-
lag flugfélaga í heiminum. SITA hefur fyrir
nokkru lokað fyrir aðild að félaginu fyrir þá
sem keppa á markaði fyrir símaþjónustu.
Frjáls fjarskipti hafi hins vegar samning við
SITA sem er nokkurra ára gamall sem leiði til
mjög hagstæðra kjara á leigulínum.
Frjáls fjarskipti eru einkahlutafélag sem
verður breytt í almenningshlutafélag á nýja L
árinu og það opnað fyrir almenningi. Actima
International á 65% hlut, Hallur Hallsson á
15% hlut, Páll Þór Jónsson 15% og aðrir hlut- *
hafar minna. Fyi-irtækið verður til húsa á
Skúlagötu 19 en þar eru fyrir fyrirtækin Net-
verk og Lina.net. Fimm manns starfa hjá fyr-
irtækinu. Stjórnarformaður Frjálsra fjar-
skipta er Hallur Hallsson.
Sérblöð í dag
ÁFÖSTUDÖGUM
líf