Morgunblaðið - 13.01.2000, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Táp og fjör á Tjörninni
Morgunblaðið/Asdís
ÞÓTT ekki hafi viðrað sem best á Iandsmenn að und-
anfömu birtir öll él upp um síðir og það nýttu þessi
tápmiklu börn sér á Reykjavíkurtjörn nú nýverið.
Þdtt hitastig hafi ekki verið nema rétt undir frost-
marki að undanförnu er ísinn á Tjörninni ákjósanleg-
ur vettvangur leikja og vinsæll áningarstaður smá-
fólksins. Þessi börn undu glöð við sitt er ljósmyndara
Morgunblaðsins bar að og létu kuldann ekkert á sig fá.
Inflúensan hefur lagt marga landsmenn í rúmið
Skæðari flensa
en vanalega
Undanfarnar vikur hefur inflúensufaraldur
-
lagt marga Islendinga í rúmið. Aðstoðar-
landlæknir segir flensuna skæðari en und-
anfarin ár en erfítt að meta hversu margir
hafa veikst.
„ÞETTA er virðist vera heldur
skæðari flensa en vant er,“ segir
Matthías Halldórsson aðstoðarland-
læknir. Matthías segir erfitt að meta
hversu margir hafi veikst hér á landi
vegna þess að margir tali ekki við
lækni þó að þeir veikist, fólk telji sig
þekkja einkenni flensunnar, sem eru
hár hiti, beinverkir, augnverkir,
hósti og hálssærindi, og haldi sig því
heima til að jafna sig.
„Það er reyndar ekki mikið annað
að gera en að halda sig heima. In-
flúensa er veirusjúkdómur sem lyf
virka ekki á. Það eru reyndar úðalyf í
þróun sem ekki er enn búið að skrá á
Islandi. Þau eru engin töfralyf, en
draga úr einkennum. Hins vegar eru
þau dýr og verður að gefa í upphafi
sýkingar en erfitt getur verið að
greina einkenni inflúensu í byrjun
frá öðrum veirusjúkdómum.“
I kjölfar flensunnar hefur verið
mikið að gera á spítölum og segir
Matthías það yfirleitt vera fólk sem
er veikt fyrir sem veikist alvarlega af
fylgikvillum inflúensunnar. Henni
hafa fylgt t.d. lungnabólga, eyma-
bólga og ennisholubólga og segir
Matthías ráðlegt að þeir sem lengi
hafa legið veikir leiti til læknis.
Læknar verða að
vera vel á verði
„Læknar verða líka að vera vel á
verði núna vegna þess að inn á milli
geta leynst aðrir sjúkdómar sem eru
ótengdir flensunni eins og heila-
himnubólga. Þegar margir eru veikir
er erfitt að sortera út þá sem eru
með háan hita af öðrum orsökum."
Matthías segir ekkert benda til
annars en að spítalar geti sinnt því
álagi sem á þeim hefur verið vegna
flensunnar. „Við vonum líka að
toppnum sé náð nú en það þýðir
reyndar ekki að álagið á spítalana
minnki strax vegna þess að fylgi-
kvillamir koma í kjölfarið."
Magni Jónsson, forstöðumaður
lyflækningadeildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur, segir mikið álag hafa
verið á lyflækningadeildum síðan
flensan greindist í lok nóvember.
„Þetta var sérstaklega slæmt yfir
áramótin og fyrstu vikuna í janúar
og við vitum svo sem ekki hvort að
toppnum er náð. Reyndar hefur
álagið á starsfólk verið óvenju mikið
hér vegna þess að ein deild af þrem-
ur er lokuð vegna endurnýjunar á
gjörgæslu og því færri rúm en venju-
lega.“
Fleiri dauðsföll en ella
Aðstoðalandlæknir segir það
fylgja inflúensfaraldri sem þessum
að fleiri dauðsföll verði en ella. Það
sé þó í flestum tilfellum um fólk að
ræða sem er verulega veikt fyrir.
Magni tekur undir þetta. „Sjúkling-
um sem eru með langvinna lungna-
sjúkdóma og astma versnar mjög oft
í kjölfar flensu og sumir þurfa að
leggjast inn. Aldraðir veikjast líka
oft illa, en fullfrískt fólk getur einnig
fengið lungnabólgur í kjölfar flensu.“
Bólusett hefur verið fyrir in-
flúensuveirunni hér á landi undan-
farin ár og segir Matthías það vænt-
anlega helstu skýringu þess að
inflúensan hefur ekki lagst jafnt
þungt á íslendinga, eins og t.d.
Breta.
„Það eru yfirleitt um 50.000 bólu-
settir hér á landi en ísland hefur ver-
ið leiðandi í bólusetningu gegn flensu
þó að nú séu t.d. Finnar búnir að ná
MorgunblaðiS/Sverrir
RANNSAKENDUR mæla frek-
ar með því að kvefað fúlk noti
nefúða sem minnkar nefrennsli
en að það snýti sér.
okkur. Við mælum sérstaklega með
að fólk eldra en 60 ára sé bólusett
sem og þeir sem eru með slæmt
ónæmiskerfi eða langvinna sjúk-
dóma. Einnig hafa sum fyrirtæki
boðið starfsmönnum í bólusetningu
til að missa ekki fólk úr vinnu. Samt
verður að hafa í huga að það er ekki
nema 70-80% vöm í bóluefni þannig
að fólk getur veikst þrátt íyrir að það
sé sprautað.“
Stökkbreytt inflúensu-
veira væntanleg
Matthías bendir á að inflúensu-
veiran breytir sér eitthvað ár hvert
og því sé bóluseting nauðsynlegt ár
hvert. „Öðru hvoru kemur upp in-
flúensa sem er gjörbreytt en það er
einmitt talið að spænska veikin 1918
hafi verið slík flensa." Að sögn Matt-
híasar má eiga von á stökkbreyttri
inílúensu á næstu árum.
Þar sem inflúensa á sér alltaf upp-
tök í Asíu og breiðist þaðan út til
annarra landa er mögulegt að þróa
bóluefni áður en hún breiðist út.
Ýmsar vangaveltur hafa verið settar
fram til að skýra uppruna inflúensu
og segir Matthías þar á meðal þétt-
býli í Asíu og þar af leiðandi náið
samband manna og dýra jafnvel talið
vera orsök þeirra breytinga sem
verða á flensunni.
Félagsmálaráðherra segir
áfram fylgt þeirri stefnu að koma
flóttamönnum fyrir úti á landi
Koma næsta
hóps flóttamanna
undirbúin
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra segir að þrátt fyrir að stór
hluti þeirra flóttamanna, sem komið
hafa til landsins undanfarin ár, hafi
flutt á höfuðborgarsvæðið, eftir að
hafa búið um skeið í nokkrum sveit-
arfélögum á landsbyggðinni, verði
áfram fylgt þeirri stefnu að koma
flóttamönnum fyrir í sveitarfélög-
um. Hann segir að nú standi til að
auglýsa eftir sveitarfélögum sem
vilji taka við næsta hópi flóttamanna
sem komi til landsins.
„Það hefur ekki verið ákveðið
hvað hann verður stór né hvenær
hann kemur en við erum að byrja að
undirbúa að auglýsa eftir sveitar-
félögum sem kynnu að hafa áhuga,“
sagði félagsmálaráðherra. Hann
sagði ekki Ijóst hvaðan þessi hópur
flóttamanna kæmi enda hefði AI-
þjóða flóttamannastofnunin hönd í
bagga með það.
Stór hópur flóttamanna hefur
flutt á höfuðborgarsvæðið
Fram kom í Morgunblaðinu í
seinustu viku að rúmlega helmingur
þeirra júgóslavnesku flóttamanna,
sem komið hafa til landsins undan-
farin ár, hefur flutt sig um set á höf-
uðborgarsvæðið. Þannig eru aðeins
fjórir af þeim 23 júgóslavnesku
flóttamönnum sem komu til Blöndu-
óss sumarið 1998 eftir en hinir eru
fluttir til höfuðborgarsvæðisins.
„Það veldur vonbrigðum yfirleitt
hvað þjóðflutningar innanlands eru
miklir en það er ekkert frekar hægt
að kvarta yfir því þó að Júgóslav-
arnir fari en aðrii- íbúar,“ segir Páll.
Hafa aðlagast vel
íslensku þjóðfélagi
Aðspurður neitar Páll því að
stefna ríkisstjórnarinnar að koma
flóttamönnum fyrir í ákveðnum
sveitarfélögum á landsbyggðinni
hafi brugðist. „Þeir hafa aðlagast ís-
lensku þjóðfélagi. Það hefur verið
tekið vel á móti þeim hvar sem þeir
hafa verið settir niður. Þeim hefur
verið auðvelduð lífsbaráttan og séð
vel um þá og þeir eru auðvitað
frjálsir að því, eins og aðrir borgar-
ar að velja sér búsetu þar sem þeir
kæra sig um. Þeim er ráðstafað
fyrsta árið og við borgum undir þá
en síðan eru þeir sjálfráða að því
hvar þeir setja sig niður,“ sagði
hann.
Páll sagði að samið hefði verið um
að ríkið greiddi sveitarfélögunum
ákveðið gjald fyrsta árið frá því að
flóttamennirnir komu til landsins en
að því ári liðnu féllu greiðslur ríkis-
ins niður. Hann sagði að ekki yrðu
gerðar neinar breytingar á þessu
þrátt fyrir þá þróun að flóttamenn
hafa flutt sig um set. „Enda hafa
engir farið fyrr en árið er liðið,“
sagði Páll.
Undirbúningur vegna tónlistar-
húss er vel á veg kominn
Tillögur undirbúnings-
nefndar líklega lagðar
fram í næsta mánuði
ÓLAFUR B. Thors, formaður sam-
starfsnefndar menntamálaráðu-
neytis og Reykjavíkurborgar um
byggingu tónlistar- og ráðstefnu-
miðstöðvar, segist reikna með því
að tillögur nefndarinnar um hvern-
ig skipta skuli kostnaði við verkefn-
ið muni liggja fyrir í næsta mánuði.
I beinu framhaldi af því verði
áhugasömum fjárfestum send fag-
leg skýrsla um málið svo þeir geti
myndað sér skoðun á því.
Eitt ár er nú liðið síðan ríkis-
stjórnin og Reykjavíkurborg bund-
ust fastmælum um að beita sér fyr-
ir byggingu tónlistarhúss og
ráðstefnumiðstöðvar í miðborg
Reykjavíkur. í kjölfarið var skipuð
undirbúningsnefnd sú, sem Ólafur
fer fyrir, og hefur hún síðan unnið
að samkomulagi milli ríkis og borg-
ar um fjármögnun, framkvæmda-
tillögum og kostnaðarskiptingu,
auk þess sem hún hefur leitað
hugsanlegra rekstraraðila og fjár-
festa að hóteli sem á að rísa í
tengslum við mannvirkin. Hefur
nefndin m.a. leitað ráða hjá erlend-
um sérfræðingum og hefur t.d.
bandarískt fyrirtæki á sviði hljóð-
tækni verið nefndinni innan handar
vegna tónlistarhússins.
Ölafur segir málið annars þannig
statt núna að Reykjavíkurborg sé
að ganga frá sínum hugmyndum
um það hvar í miðbænum þessi
mannvirki verði, og tilheyrandi
skipulagstillögum þar um, en litið
hefur verið til Faxaskálasvæðisins í
þessu sambandi.
Þegar tillögur borgarinnar liggi
fyrir verði málið kynnt í heild sinni
fyrir hugsanlegum fjárfestum og
rekstraraðilum, sem t.d. kæmu að
hótelinu sem á að rísa í tengslum
við tónlistarhúsið. Jafnframt muni
undirbúningsnefndin þá útbúa til-
lögur sínar um kostnaðarskiptingu
á heildarpakkanum.
„Málið er þannig í raun og veru
komið mjög langt núna en það vant-
ar svona lokahnykkinn á það til
þess að menn geti skilað því af sér í
hendurnar á þeim sem munu síðan
byggja þetta,“ segir Ólafur.
Ætti ekki að verða erfítt
að útvega fé
Ólafur segir ekkert fast í hendi
með það hvernig mannvirkin verði
fjármögnuð eða hvaða fjárfestar
taki að sér umræddan hótelrekstur.
Þau mál séu ennþá í athugun.
Hann telur hins vegar ekki að
það verði mjög erfitt að útvega pen-
inga í verkefnið þó líklega muni
þurfa að borga slíka fjármuni til
baka. Væri í því sambandi t.d. hægt
að ímynda sér að eitthvert félag
stæði að byggingu mannvirkjanna,
og legði til það fé sem þyrfti til, en
ríki og borg tryggðu síðan að
ákveðið fjármagn rynni aftur til við-
komandi aðila.
Ólafur segir aldrei hafa staðið til
að ríki eða borg færu að fjármagna
byggingu hótels, til þess þyrftu að
fást aðrir fjárfestar. Hins vegar
hefðu fjölmargir hótelhaldarar og
hótelkeðjur, bæði innanlands og ut-
an, sýnt málinu áhuga, væntanlega
með það í huga að koma að rekstri
hótelsins. Þau mál væru því vel
stödd þótt engar formlegar samn-
ingaviðræður hafi enn farið fram.