Morgunblaðið - 13.01.2000, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
FRETTiR
MORGUNBLAÐIÐ
„ >>>--------------------------------------
Stgórnin sendir hvern sárabóta-sveinkann af öðrum út á landsbyggðina,
fyrstur fór „kvóta-dreitill“ og nú er það „sjóða-slettir“.
Krafa um að dómari víki
sæti tekin til úrskurðar
HERVÖR Þorvaldsóttir, dóraari
við Héraðsdóm Reykjavíkur, sem
fer með meiðyrðamál Kjartans
Gunnarssonar, framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins, á hendur Sig-
urði G. Guðjónssyni hæstaréttar-
lögmanni, tók í gær til úrskurðar
kröfu lögmanns Sigurðar, sem
krefst þess að dómarinn víki sæti
vegna tengsla sinna við Davíð
Oddsson, formann Sjálfstæðis-
flokksins.
Dómari kveður upp úrskurð sinn
í málinu á morgun, föstudag. Dóm-
arinn og Davíð Oddsson eru systk-
inabörn og segir Gestur Jónsson,
lögmaður stefnda, að skjólstæðing-
ur sinn hafi réttmæta ástæðu til
þess að efast um óhlutdrægni dó-
marans og beri honum því að víkja
samkvæmt g. lið 5. gr. laga um
meðferð einkamála.
Jakob R. Möller, lögmaður
stefnanda, lét kröfuna ekki til sín
taka við stutt þinghald héraðsdóms
í gær þar sem lögmönnum var gef-
inn kostur á að tjá sig um kröfuna.
Kjartan Gunnarsson stefndi Sig-
urði fyrir héraðsdóm á haustdög-
um 1999 og krafðist ógildingar á
tilteknum ummælum Sigurðar þar
sem í þeim fælust aðdróttun um að
Kjartan hefði brotið af sér í opin-
beru starfi, þ.e. sem formaður
bankaráðs Landsbanka Islands.
Auk kröfu um ógildingu ummæl-
anna krefst Kjartan 600 þúsund
króna miskabóta er renni til heim-
ilis fyrir unga fíkniefnaneytendur.
Favorit 6280 U-W s*“»
Gerð undir borðplötu: H: 82-8KB:60''D: 57
Orkunotkun: Hraðkerfi BI0 50°C 0,95 kwst. Venjulegt 65°C kerfi 1,25 kwst.
Vatnsnotkun: Hraðkerfi BI0 50°C 15 lítrar Venjulegt 65°C 19 Irtrar
Fuzzy-logig: Sjálvirk vatnsskömtun, notar aldrei meira vatn en þörf er á
Ryðfrrtt innra byrgði. Ytrahús sinkhúðað (ryðgar ekki)
Hægt að lækka efri grind með einu handtaki
Hægt að stilla start-tíma allt að 19 klst. fram í tímann
Sjálfvirk hurðarbremsa. Hnífaparagrind opnast eins og bók
Innbyggt hifa-element
■v
A 5,
\%
%%
\ %t
**. A *ð*in s 45
með 1
Tekur 12 manná stell
Mjög hjóðlát vél aðeins 45 db (re 1pW)
6 þvottakerfi
TURBO-þurrkun, þurrkar með heitum blæstri
4 hitastig
Aqua Control, sex-falt vatnsöryggiskerfi
UMBOÐSMENN
, ____________________ _______,_________ __________z Gelrseyrarbúðin,
Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, ísafirði. Pokahomið, Táiknafirði. Norðurfand: Radionaust, Akureyri. Elektro co ehf, Daivfk. Öryggi sf, Húsavík. Kf. Steingrimsfjarðar, Hólmavík.
Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúö, Sauöárkróki. Urð, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnafirðinga, Vopnafiröi. Kf.
Stöðfirðinga. Verslunin Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúösfirðinga, Fáskrúðsfiröi. KASK, Ffðfn, KASK Djúpavogi. Suðuriand: Mosfell, Hellu. Arvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Bnmnes,
Vestmannaeyjum. Klakkur, Vík. Reykjanes: Ljósbogin Keflavík. Ftafborg, Grindavík.
Þjóðminjasafnið í nýju húsnæði
Aðstaða
á tveimur
stöðum
Guðný Gerður
Gunnarsdóttir
HÚS Þjóðminja-
safns íslands við
Suðurgötu er
sem kunnugt er í viðgerð
en á meðan hefur safnið
aðsetur með starfsemi
sína á tveimur stöðum,
annars vegar í fyrra hús-
næði Fjölbrautaskólans í
Garðabæ að Lyngási 7 og
hins vegar í Vesturvör 20
í Kópavogi. Fyrir
skömmu hélt safnið sam-
komu fyrir velunnara
sína þar sem nýjar að-
stæður þess voru kynnt-
ar. Fyrir svörum varð
Guðný Gerður Gunnars-
dóttir safnstjóri.
„Flutningum úr safn-
húsinu lauk í haust og öll-
um gripum safnsins hef-
ur verið komið fyrir í
nýjum geymslum þar
sem vel hefur verið búið um þá.
Þótt sýningar safnsins séu lok-
aðar um sinn þá er öll starfsemi
í fullum gangi og unnið er að
mörgum skemmtilegum verk-
efnum í safninu um þessar
mundir.“
- Hvaða verkefni eru frétt-
næmust af því sem verið er að
vinna að?
„Verið er til dæmis að taka í
notkun nýtt tölvuskráningar-
kerfi fyrir muni, myndir, forn-
leifar, húsasafn, heimildasafn
um þjóðhætti og fleira. Liður í
þessu skráningarátaki er undir-
búningur að fjarvinnsluverkefn-
um í samstarfi við Byggðastofn-
un, en þar er gert ráð fyrir, að
skráning ýmissa mynda fari
fram á skráningarstofum úti á
landi. Haldið verður áfram að
vinna að menningarsögulegum
rannsóknum í Reykholti en þar
fer fram fornleifauppgröftur. Þá
er um það bil að ljúka mjög
viðamikilli viðgerð á gamla bæn-
um á Keldum á Rangárvöllum.
Á sumri komandi verður þessum
verkefnum fram haldið og þess
má geta að viðgerðunum á Keld-
um fer senn að ljúka.“
- Verða engar sýningar á veg-
um Þjóðminjasafnsins fyrr en
viðgerðum á safnhúsnæðinu lýk-
ur?
„Jú, Þjóðminjasafnið stendur
fyrir sýningum í samstarfí við
aðra á næstunni, víðs vegar um
landið og fyrsta sýningin af því
tagi er sýning á ljósmyndum
Sigríðar Zoega, sem verður opn-
uð í Hafnarborg 29. janúar nk.
Sýningin er á dagskrá Reykja-
vík - menningarborg árið 2000.
Auk þess eru innan Þjóðminja-
safnsins tvö sérsöfn, það er
Lækningaminjasafnið í Nesstofu
og Sjóminjasafnið í Hafnarfirði,
þau söfn eru opin og taka á móti
fólki á auglýstum opnunartíma,
einnig skólanemum eftir sam-
komulagi. Þá stendur skólum til
boða farsýning um landnám ís-
lands og safnkassar
með litlum sýningum
um afmörkuð efni.
Einnig er unnið að
undirbúningi nýrra
grunnsýninga sem
verða opnaðar þegar
viðgerð safnhússins lýkur sem
ráðgert er að verði innan
tveggja ára. Nú stendur yfir
samkeppni um hönnun þessara
nýju sýninga og er úrslita að
vænta í febrúar nk.“
- Hvernig er aðstaða Þjóð-
minjasafnsins í hinu nýja hús-
næði?
„Geymsluhúsnæðið í Kópavogi
► Guðný Gerður Gunnarsdóttir
fæddist 3. mars 1953 í Reykjavík.
Hún tók stúdentspróf frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
1973, ffl. cand. prófi í þjóðhátta-
fræði lauk hún frá háskólanum í
Lundi 1978 og MA-prófi í mann-
fræði frá University of Toronto
1988. Hún starfaði sem safnvörð-
ur við Árbæjarsafn 1978 til 1985
og sem safnstjóri við Minjasafnið
á Akureyri 1988 til 1997 en hefur
verið safnsljóri Þjóðminjasafns
Islands frá 1997 og er enn.
er mjög gott, þar er líka for-
vörsluverkstæði og myndastofa
og þar eru mynda- og muna-
deildir til húsa. Þetta er hús
sem safnið mun hafa til fram-
búðar og hefur það verið inn-
réttað eftir þörfum safnsins.
Húsið í Garðabæ er bráða-
birgðahúsnæði, því sú starfsemi,
sem þar er, á að flytja síðar í
Jarðfræðahúsið á háskólalóð-
inni. Umrædd starfsemi er
skrifstofa þjóðminjavarðar, fjár-
málasvið og útiminjasvið (forn-
leifadeild og húsaverndardeild).
í Garðabæ er einnig staðsett
bókasafn Þjóðminjasafnsins sem
er opið öllum.“
- Hvernig bókakostur er þar?
„Þetta er stærsta sérfræði-
bókasafn á sviði fornleifafræði,
safnfræði og menningarsögu.
Þar eru einnig mörg tímarit sem
ekki eru til annars staðar. Bóka-
safn Þjóðminjasafnsins er skráð
í Gegni, sem er skráningarkerfí
Landsbókasafns íslands - Há-
skólabókasafns.“
- Berst mikið af munum og
fleiru til Þjóðminjasafnsins ár
hvert?
„Já það berst á hverju ári
töluvert, bæði af gripum og
myndum, einnig er safnað með
útsendum spurningaskrám efni
um þjóðhætti, þá berast bóka-
safninu oft bókagjafir."
- En hvernig verður aðstaðan
þegar safnhúsið verð-
ur tilbúið til notkunar
á ný?
„Þessar endurbæt-
ur miða að því að
bæta sýningaraðstöðu
og þjónustu við gesti.
Byggt verður nýtt anddyri
sunnan við húsið og á jarðhæð
er ráðgerð kaffistofa, fyrir-
lestrasalur og safnbúð, sem og
rými fyrir sérsýningar, en á
tveimur efri hæðum hússins eiga
að vera fastar sýningar Þjóð-
minjasafnsins. Mikil vinna er
framundan við að undirbúa opn-
un safnsins."
Bókasafn
Þjóðminja-
safns opið
öllum