Morgunblaðið - 13.01.2000, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Samningur um reynsluverkefni á sviði heilsugæslu og öldrunarþjónustu á Akureyri
Hjúkrunar- og’ dvalar-
rýmum Qölgar verulega
Unglingamóttaka stofnuð og
aldraðir fá þjónustu heima
Morgunblaðið/Kristján
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyr, og Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigðisráðherra skrifuðu undir samninginn.
SAMNINGUR um framhald verk-
efna reynslusveitarfélagsins Akur-
eyrar á sviði heilsugæslu- og öldrun-
armála var undirritaður í
nýuppgerðum húsakynnum Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyid á
þriðjudag. Samninginn undirrituðu
þau Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra og Ki-istján Þór Júl-
íusson bæjarstjóri.
Samningurinn gildir til tveggja
ára eða út árið 2001 og verður hann
framhald á þeim verkefnum sem Ak-
ureyrarbær tók að sér sem reynslu-
sveitarfélag í ársbyrjun 1997.
Framlag ríkisins verður 630 millj-
ónir króna á ári eða alls 1,3 milljarð-
ar króna.
Ýmis nýmæli eru í nýja samningn-
um. Tekin verður upp nýr dag-
gjaldagrunnur fyrir öldrunarstofn-
anir bæjarins og hjúkrunarrýmum
sem bærínn hefur í sinni umsjá
fjölgar úr 75 í 90. Að stærstum hluta
er þessi breyting á kostnað dvalar-
rýma, þeim fækkar sem er í takt við
breytingar sem orðið hafa á stofn-
anaþjónustu fyrir aldraða undanfar-
in ár.
Dagvistarrýmum fjölgar úr 12 í 24
en sú breyting mun gera Akureyrar-
bæ kleift að mæta stóraukinni þörf
aldraðra fyrir þjónustu utan heimila
sinna yfir daginn. I undirbúningi eru
breytingar á Þjónustumiðstöðinni í
Víðilundi þar sem dagþjónusta verð-
ur aukin. Þá standa vonir til að
svigrúm skapist til að auka heima-
VERKEFNIÐ „Nýja barnið - auk-
in fjölskylduvernd og bætt sam-
skipti" sem unnið hefur verið á
Heilsugæslustöðinni á Akureyri
hlaut viðurkenningu Alþjóða heil-
brigðisstofnunarinnar og afhenti
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra verkefnisstjórum þess,
þeim Karólínu Stefánsdóttur fjöl-
skylduráðgjafa og Hjálmari
Freysteinssyni lækni viðurkenning-
una við athöfn nýlega.
Verkefnið um Nýja barnið var
framlag Islands í samkeppni Al-
þjóða heilbrigðisstofnunarinnar
sem efnt var til vegna 50 ára af-
mælis stofnunarinnar. Þetta verk-
þjónustu frekar en gert var í síðasta
samningi, en einnig verður áfram
unnið að því að samþætta heima-
þjónustu og heimahjúkrun.
Unglingamóttaka opnuð
í byrjun árs
Með hinum nýja samningi er
rekstrargrunnur Heilsugæslustöðv-
arinnar á Akureyri leiðréttur og
haldið verður áfram tilraun með
samþættingu og samnýtingu þjón-
ustuþátta stöðvarinnar og þeirrar
þjónustu sem Akureyrarbær veitir.
efni stóð yfir í 5 ár og er nú verið að
stíga með það fyrstu skrefin inn í
grunnskóla bæjarins.
Góð tilfinningatengsl undir-
staða góðrar heilsu
Nýja barnið fjallar um mæðra-
og ungbarnavernd og er markmið
þess að skapa heilsuvernd sem fell-
ur sem best að mismunandi þörfum
neytenda. Tekur það mið af því að
góð tilfinningatengsl eru undir-
staða góðrar heilsu. Hugað er að
sálrænum og félagslegum áhættu-
þáttum ekki síður en líkamlegum.
Voru tíð og reglubundin samskipti í
mæðra- og ungbarnavernd nýtt til
Stefnt er að því að opna unglinga-
móttöku þar sem unglingum og
ungu fólki er boðið að hitta lækni og
hjúkrunarfræðing, en þetta verkefni
er unnið í samvinnu við fjölskyldu-
deild, áfengis- og vímuvarnaráð,
grannskóla, Kompaníið, sem er upp-
lýsinga- og þjónustumiðstöð ungs
fólks ásamt sérfræðingum þeim sem
þörf er á hverju sinni. Heilsugæslu-
stöðin stefnir að því að opna ungl-
ingamóttökuna nú í byrjun árs.
Sérstakt framlag er einnig til að
þróa þjónustu utan stofnana sem
að greina og skilja félagslega og til-
finningalega áhættuþætti og ná
samvinnu við fjölskyldurnar um úr-
ræði, en á þessu mótunarskeiði fjöl-
skyldunnar er oft auðveldara að ná
samstarfi um úrbætur. Með tiltölu-
lega einföldum aðgerðum býður
þetta tímabil upp á möguleika til að
m.a. auðveldar tilraunaverkefni sem
búsetu- og öldranardeild Akureyr-
arbæjar og Heilsugæslustöðin á Ak-
ureyri eru að hefja um þessar mund-
ir, en það snýst um skipulagða
heilsuvernd aldraðra í formi fyrir-
byggjandi heimsókna sem öldruðum
verður boðið upp á.
Þá verður lögð áhersla á að fá sál-
fræðing til starfa í tengslum við þró-
un fjölskylduráðgjafar á heilsu-
gæslustöðinni.
Ríkur skilningur í
ráðuneytinu
„Það er ríkur skilningur fyrir því í
heilbrigðisráðuneytinu að þessi
verkefni eigi hvergi betur heima en
hjá sveitarfélögunum, sagði Kristján
Þór. Hann sagði sérlega ánægjulegt
að tekist hefði að fjölga hjúkrunar-
rýmum í hinum nýja samningi, en
með því væri hægt að mæta stórauk-
inni þörf íýrir þjónustu af því tagi.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra sagði góða reynslu af fyrri
samningi og forsvarsmenn bæjarins
væra vel í stakk búnir að takast á við
þau verkefni sem framundan væru á
sviði heilsugæslu og öldranarmála.
Hún nefndi að miklar breytingar
fælust í því að hjúkranarrýmum er
nú fjölgað um 15 og dagvistarrým-
um um 12. Helsta nýmæli samnings-
ins væru þó 5 milljóna króna framlag
vegna nýrra verkefna m.a. þar sem
öldraðum yrði boðið upp á þjónustu
heima.
fyrirbyggja tilfinningalega og fé-
lagslega erfiðleika og stuðla að heil-
brigðri tengslamyndun. Fái for-
eldrar styrk og stuðning til að vinna
úr erfiðum málum sem upp hafa
komið getur það komið í veg fyrir
erfiðleika á síðari stigum í uppvexti
barna.
Verkefnasjóður At-
vinnuþróunarfélags
Eyjafjarðar
Tólf u m-
sækjendur
fá styrki
VERKEFNASJÓÐI Atvinnuþróun-
arfélags Eyjafjarðar, AFE, bárast
25 umsóknir um styrki frá aðilum á
starfssvæði félagsins, samtals að
fjárhæð 12,8 milljónir króna. Til út-
hlutunar vora að þessu sinni 2,8
milljónir króna.
Mat á umsóknum liggur nú fyiir
og hefur Verkefnasjóður félagsins
ákveðið að veita 12 umsækjendum
styrki, á bilinu 150-400 þúsund krón-
ur. Jafnframt mun AFE aðstoða
nokki'a umsækjendur, sem ekki
fengu styrk, við frekari könnun á
viðskiptahugmynd þeirra og koma
þeirra málum í réttan farveg, eins og
segir í fréttatilkynningu frá AFE.
Þeir fjármunir sem til ráðstöfunar
era geta aldrei gert útslagið um það
hvort hugmynd verður að veruleika
eða ekki en eiga að virka sem hvatn-
ing til frekari dáða. A þeim forsend-
um hefur AFE reynt að veita sem
flestum raunhæfum hugmyndum
sem fram hafa komið viðurkenningu.
Á árinu 1999 hafði Verkefnasjóður
AFE samtals 5 milljónir ki’óna til
ráðstöfunar í tveimur úthlutunum.
Alls óskuðu 39 aðilar eftir styi'k úr
sjóðnum, samtals að upphæð 20
milljónir króna, eða fjórfalt ráðstöf-
unarfé sjóðsins. Þetta lýsir í hnot-
skurn þörfinni á fjármagni til að
koma hugmyndum fólks á framfæri.
Og um leið þörfinni á áhættufjár-
magni til frekari þróunar hugmynda,
sem AFE hefur verið að veita viður-
kenningar. Atvinnuþróunarfélagið
bindur vonir við að Eignarhaldsfélag
Norðurlands - Tækifæri ehf. muni
bæta úr brýnni þörf.
Allir umsækjendur munu fá bréf
frá AFE á næstu dögum þar sem
gerð er grein fyrir úthlutuninni og
rökstuðningi sjóðsstjórnar.
------*-*-4-----
Spurninga-
keppni Bald-
ursbrár
ÖNNUR umferð í spurningakeppni
kvenfélagsins Baldursbrár fer fram í
safnaðarsal Glerárkirkju föstudags-
kvöldið 14. janúar kl. 20.
Alls hófu 16 lið keppni og eru nú 8
eftir og munu þau etja kappi. Það
eru lið Karlakórs Akureyrar-Geysis
á móti Ásprenti Pob, lið Dags á móti
Síðuskóla, lið eldri borgara á móti
trillukörlum og lið Rúvak á móti
Vélsmiðju Steindórs.
Aðgangseyrir er 500 krónur og
gildir sem happdrættismiði. Kaffi og
kokkteill verða seld í hléi, en allur
ágóði rennur til kaupa á tæki við
tölvur sem gera langveikum börnum
kleift að fylgjast með í skólanum sín-
um.
Alþjóða heilbrigðisstofnunin
Verkefnið „Nýja
barnið44 hlaut
viðurkenningu
Morgunblaðið/Kristján
Karólína Stefánsdóttir fjölskylduráðgjafi og Hjálmar Freysteinsson
læknir, verkefnisstjórar „Nýja barnsins" með viðurkenningu Alþjóða
heilbrigðisstofnunarinnar sem Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráð-
herra afhenti þeim. Á milli Karólínu og Hjálmars er Pétur Pétursson,
yfirlæknir Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri.
KA-dagurinn
á sunnudag
ÁRLEGUR KA-dagur verður
haldinn í KA-heimilinu á sunnu-
dag, 16 janúar. Félagið var stofn-
að 8. janúar árið 1928 og er því
72 ára í ár.
Dagskrá KA-dagsins hefst kl.
14 og stendur til kl. 16. Deildir
félagsins, blak-, júdó-, hand-
knattleiks- og knattspyrnudeild-
ir, munu standa fyrir sýningu á
sinni íþrótt. Verslunin Sportver
og Puna verða með tískusýningu
á KA-fatnaði og öðram vörum
sem seldar eru í versluninni. Eitt
aðalskemmtiatriði dagskrárinnar
er leikur milli gamalla stjörnu-
liða úr hand- og fótbólta þar sem
margar stjörnur fyrri ára láta
ljós sitt skína. Milli-
ríkjadómarinn Magnús Jónatans-
son sér um að lögum og reglum á
leikvellinum verði framfylgt.
Hápunktur dagsins verður
krýning íþróttamanns KA fyrir
árið 1999. Kaffiveitingar verða í
boði. KA-fólk er hvatt til að
mæta og taka þátt í dagskrá
dagsins.
/
Islensk
verðbréf og
Þór gera
samning
ÍSLENSK verðbréf hf. á Akureyri
og knattspyrnudeild Þórs hafa und-
irritað samning og mun fyrirtækið
auglýsa á búningum meistaraflokks
Þórs. Að auki verða íslensk verð-
bréf með auglýsingu á Þórsvellinum
og þá munu Þórsarar flagga fána
fyrirtækisins á Akureyrarvellinum
á leikjum sínum á komandi sumri.
Myndin var tekin er samningur-
inn var undirritaður fyrir skömmu.
F.v. Árni Óðinsson formaður knatt-
spyrnudeildar, Sævar Helgason,
framkvæmdastjóri íslenskra verð-
bréfa, og Kristján Guðmundsson,
þjálfari meistaraflokks. Fyrir aftan
þá standa tveir af leikmönnum
Morgunblaðið/Kristján
meistaraflokks, Óðinn Árnason og
Orri Hjaltalín, í keppnistreyjum fé-
Iagsins.