Morgunblaðið - 13.01.2000, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Morgunblaðið/Sigurmundur G. Einarsson
Breki kemur til Bremerhaven eftir veiðiferð um jól og áramót.
Kanebo
FNSAI
Kanebo
s
- Ný heildarlausn íyrir augnsvæðið!
KYNNING
í Hagkaupi, Kringlunni, í dag
og á morgun, frá kl. 13-1«
Sérfræðingur frá
Kanebo
verður með
húðgreiningar-
tölvuna og
faglega
ráðgjöf.
HÁÞRÓUÐ TÆKNI FRÁ JAPAN CELLULAR PERFORMANCE
Seldi karfa fyrir ríf-
lega 50 milljónir króna
BREKI VE sló sölumetið í Brem-
erhaven í Þýskalandi í gær þegar
lokið var við að selja afla skipsins
sem það kom með í vikubyrjun en
togarinn hélt til veiða rétt fyrir jól
undir stjórn Magna Jóhannssonar
skipstjóra. Samtals var um að ræða
223 tonn, mestmegnis karfa, og
fengust um 1.283.000 mörk fyrir
aflann eða um 48,7 milljónir króna.
Fjör á uppboðinu
A fískmarkaðnum í Bremerhaven
voru seld tæplega 185 tonn fyrir um
1.076.000 mörk og var meðalkíló-
verðið um 220 krónur. Um 38 tonn
voru seld í Hull í Englandi fyrir
sem samsvarar um 207.000 mörk,
ríflega 200 kr. kílóið. „Þetta var
mjög skemmtileg dreifing og fyrir
bragðið var fjör á uppboðinu," segir
Samúel Hreinsson, framkvæmda-
stjóri Fiskmarkaðarins í Brem-
erhaven. „Við sendum þorskinn á
England því þar fáum við venjulega
Breki slær sölumet-
ið í Bremerhaven
hæsta verðið fyrir þorsk, en karfinn
fór út um allt; töluvert til Belgíu, til
Frakklands og í raun út um allt.
Fyrir páskana 1989, nánar tiltek-
ið 19. og 20. mars, var besta sala ís-
lensks togara í Þýskalandi, að sögn
Samúels. Þá seldi Ögri 266,4 kg fyr-
ir 1.142.400 mörk, sem samsvarar
um 43,4 millj. kr. Vigri seldi líka
fyrir rúmlega milljón mörk sama
ár, Viðey var rétt undir milljóninni
1988 og Guðbjörg fékk tvisvar
meira en milljón mörk.
Allt upp á við
Breki er eina skipið sem Útgerð-
arfélag Vestmannaeyja gerir út en
félagið var stofnað 1998. Það átti
líka Eyjaberg VE en seldi skipið
fyrir áramót.
Sigurmundur G. Einarsson,
framkvæmdastjóri Útgerðarfélags
Vestmannaeyja, segir að eftir mikla
byrjunarerfiðleika hafi tekist að
koma félaginu á réttan kjöl. „Við
siglum lygnari sjó og allt er upp á
við hjá okkur.“
Heildarkvóti félagsins er um
2.200 tonn og vegur karfinn þyngst.
„Eftir að kviknaði í Breka var skip-
ið lengi frá veiðum en aflaverðmæt-
ið á 10 mánuðum 1999 var um 250
milljónir,“ segir Sigurmundur.
Breki hefur einkum verið á
karfaveiðum suður af landinu og
siglt með aflann á bestu markaði
hverju sinni og segir Sigurmundur
að haldið verði áfram á sömu braut.
„Félagið, sem er í almenningseign,
var stofnað til að halda kvóta í Vest-
mannaeyjum. Þegar við ákváðum
að selja Eyjabergið með hluta kvót-
ans settum við það skilyrði að það
yrði áfram í Vestmannaeyjum, en
við einbeitum okkur að rekstri
Breka.“
Morgunblaðið/Sigurmundur G. Einarsson
Magnús Arinbjarnarson, stýrimaður á Breka, við hluta aflans á Fiskmarkaðnum í Bremerhaven
en uppboðið er í fullum gangi í salnum.
Útiiefnd í alþjóðasamtökin EXCELLENCIÍ IN TRAVEL NETWORK fyrir frábærar ferðir
(IiC6oð ‘Visa og 9íeimsfcCú66sins:
8 daga ferð til Suður-Afríku um páska hlýtur
frábærar móttökur og selst ört, enda er verðið
ótrúlegt.
A tæpri viku seldist meira en helmingur sæta. Ferðin er
auðveld, beint flug í fylgd valinna íararstjóra og drauma-
aðstaða Jííið faða&jsiiigul
Cape Town er höfuðborg héraðs sem
vart á sinn líka í heiminum.
Mesta blóma- og ávaxtaland
heimsins, glitrandi af fegurð
náttúrunnar.
íPú gCeymir seint útsýni af ‘BorðfjaCCinti né
Qóðrarvonarfiöfða eða CjföCdi d ‘WA.TEfRJFRO
CUisstu efcfci af ófj CeymanCecjum pdsfcum
í Cape ‘Iozvti 16.-23. apríC.
Staðfestingargjald aðeins kr. 15.000 (má greiða á næsta úttektartímabili)
Pöntunarsímí: 56 20 400
FERÐASKRIF
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, simi 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@ heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is