Morgunblaðið - 13.01.2000, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000 33
ERLENT
Urskurður Evrópuddmstólsins í máli þýzkrar konu
Staðfestir rétt kvenna
til hermennsku
Lúxemborg. Reuters.
EVRÓPUDÓMSTÓLL-
INN í Lúxemborg úr-
skurðaði á þriðjudag
þýzkri konu í vil, sem hafði
áfiýjað til dómstólsins
kvörtun sinni yfir því, að
vera á grundvelli þýzku
stjórnarskrárinnar meinað
að gerast atvinnuhermað-
ur. Grundvallast úr-
skurðurinn á því, að í banni
þýzku stjórnarskrárinnar við því að
konur í hemum beri vopn felist ólög-
mæt kynjamismunun.
Úrskurðurinn hefur mikið for-
dæmisgildi fyrir þýzka herinn, sem
er herskylduher, og mun mjög lík-
lega kalla á að þýzku stjómai-skránni
verði breytt.
„Þetta er mér mikill léttir," sagði
hin 23 ára gamla Tanja Kreil frá
Hannover, sem dómstóllinn dæmdi í
vil. „Eg er mjög stolt af að hafa náð
þessu fram.“ Kreil hafði reynt að fá
inngöngu í herinn árið 1996, en varn-
armálaráðuneytið hafnaði beiðni
hennar. Hún starfar nú sem raf-
magnstæknifræðingur hjá Siemens,
en segist langa að starfa við skrið-
dreka í hernum.
Evrópudómstóllinn, sem er æðsti
dómstóll Evrópusambandsins (ESB),
kvað upp úr um að konum skuli vera
heimilt að bera vopn í þýzka hernum
og að lög sem útilokuðu þær frá þátt-
töku í bardagahersveitum brytu í
bága við jafnréttislög.
„Þýzk löggjöf sem útilokar konur
frá störfum í hernum þar sem vopna-
burður er nauðsynlegur
brýtur í bága við grundvall-
arreglu bandalagsins
[Evrópusambandsins] um
jafnrétti karla og kvenna,"
segir í tilkynningu frá dóm-
stólnum.
Vissar takmarkanir
réttlætanlegar
Taiya Kreii En í tilkynningunni segir
einnig, að hægt væri að fallast á viss-
ar takmarkanir við hermennsku
kvenna. „Víkja má frá þessu þar sem
rökrétt er að kyn skipti máli í inn-
gönguskilyrðum í ákveðnar bardaga-
sveitir.“ Dómstóllinn úrskurðaði í
október að sérsveitum brezka flot-
ans, Royal Marines, væri heimilt að
meina konum inngöngu í sveitirnar,
þar sem allir sem í þær gengju yrðu
að vera tilbúnir til að eiga í bardögum
frá manni til manns, þar sem líka-
mlegur aflsmunur skipti máli.
Varnarmálaráð-
herrann samþykkur
Rudolf Scharping, varnarmálaráð-
herra Þýzkalands, sagði á blaða-
mannafundi í Róm, þar sem hann var
staddur í þeim erindagjörðum að
flytja íyrirlestur, að hann væri sam-
mála úrskurði dómstólsins. Sagði
hann þetta sína persónulegu skoðun,
en fljótt á litið teldi hann óhjákvæmi-
legt annað en að varnarmálaráðu-
neytið tæki þessi mál til endurskoð-
unar í kjölfar úrskurðar
Evrópudómstólsins.
Kvenkyns sjálfboðaliði í hjúkr-
unarherdeild í þýzka hernum
mundar riffil á heræfingu.
Konur ósáttar við
of mörg hlutverk
London. Reuters.
NÚTÍMAKONAN er þrátt fyrir
allsnægtirnar óánægðari en
nokkru sinni fyrr, segir breska
heilsu- og fegurðartímaritið
Top Sante. Ritið gerði könnun
meðal 5.000 kvenna og reyndust
aðeins 23% þeirra ánægð með
vinnuna, 74% töldu að yfirvinna
væri að að baka heilsu þeirra
tjón og 84% að þær þyrftu að
gegna of mörgum hlutverkum.
„Gert er ráð fyrir að konur
séu mæður, starfsmenn, sam-
býlismenn og kynverur," segir
Corinne Sweet hjá Top Sante.
„Þrýstingurinn er stöðugur. Oft
eru þær núna í tveim störfum,
fá lítinn stuðning hjá sambýlis-
manninum, samt er þess vænst
að þær séu grannar og kyn-
þokkafullar."
Nægjusamir eru
hamingjusamastir
Hún segir að hamingusamast-
ir virðist þeir vera sem „eru
orðnir sáttir við sjálfan sig, eru
þakklátir fyrir það sem þeir
eiga og gera sér grein fyrir því
að þeir geta ekki eignast allt“.
•wwiiimw^r
OXFORD STREET
OXFORD STREET
't ^
*****