Morgunblaðið - 13.01.2000, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Skurðpunktur
á heimsenda
Santiago er þung af sögu eins og hverjum manni sem gengur um
miðaldabæinn í hjarta hennar má vera ljóst. Helsta kennileiti hennar er
dómkirkjan sem reist var á elleftu og tólftu öld en undir henni er postul-
inn Jakob grafinn, að sögn fróðra manna. Trúin og sagan verða undir-
liggjandi þemu í hátíðarhöldum borgarinnar á menningarárinu.
Borgin Santiago de
Compostela á Spáni
er ein af menningar-
borgum Evrópu á þessu
ári en þær eru alls
níu eins og fram hefur
komið. Þröstur
Helgason heimsótti
borgina sem fyrr á öld-
urn var talin vera á enda
heimsins.
SANTIAGO de Compostela
er þekktust fyrir að vera
ein af helgustu borgum
Evrópu en ár hvert koma
tugir þúsunda pílagríma að gröf
postulans Jakobs sem er sögð stað-
sett undir glæsilegri dómkirkju
borgarinnar. Borgin er ein af níu
menningarborgum Evrópu á þessu
ári og ætlar að njóta athyglinnar
sem sæmdarheitinu fylgir. Trúin og
sagan verða undirliggjandi þemu í
hátíðarhöldum borgarinnar á árinu
en eins og hinar menningarborgirn-
ar níu hefur Santiago eitt megin-
þema sem sker dagskrá hennar frá
dagskrá hinna borganna en það er
„Evrópa og heimurinn“.
Að sögn upplýsingafulltrúa fram-
kvæmdastjórnar menningarársins í
Santiago, María Xosé Porteiro,
tengist þemað stöðu borgarinnar
sem eins konar sameiningartákns
og áfangastaðar kristinna manna
hvaðanæva úr heiminum en um leið
skurðpunkts ólíkra menningar-
strauma. „Hugmyndin er að láta
ólíka heima mætast hér í Santiago
og finna einhverja sameiginlega
niðurstöðu í mikilvægum málum.
Liður í þeirri viðleitni er til dæmis
röð ráðstefna og málþinga sem hér
verður haldin í samstarfi við há-
skóla borgarinnar og UNESCO. Er
þar ætlunin að kalla saman alþjóð-
lega sérfræðinga af ýmsum sviðum
til að ræða þær spurningar sem við
stöndum nú frammi fyrir á mótum
tveggja alda og árþúsunda. Petta
eru spurningar sem lúta bæði að
stjórnmálum, efnahagsmálum, sam-
félagsmálum og hugmyndalífi í al-
þjóðlegu og hnattvæddu samhengi."
Endastðð og skurðpunktur
Santiago er höfuðborg sjálf-
stjórnarhéraðsins Galisíu í norð-
vesturhluta Spánar. Hún er sögð
ein af þremur heilögustu borgum
Evrópu á eftir Jei-úsalem og Róm
en hún var stofnuð árið 830 eftir að
menn töldu sig hafa fundið gröf
postulans Jakobs, þjóðardýrlings
Spánar, þar. Rómönsk dómkirkja
var reist við gröfina á árunum 1077-
1128 og er hún nú helsta kennileiti
borgarinnar ásamt miðborginni,
gamla bænum svokallaða, sem
byggðist upp í kringum kirkjuna á
miðöldum.
Fyrr á öldum markaði Santiago
endi hins þekkta heims og þar með
endi heimsins í hugum flestra.
Einnig var hún endapunkturinn á
ferð fjölmargra pílagríma sem leit-
uðu hins helga grafreits dýrlings-
ins. Goethe sagði að hugmyndin um
Evrópu hefði mótast á ferðum pfla-
gríma til Santiago, en þangað komu
menn gangandi yfir þvera og endi-
langa álfuna.
Þessi ímynd borgarinnar sem
endastöðvar og eins konar niður-
stöðu og skurðarpunkts setur mark
sitt á hátíðarhöldin á menningarár-
inu. Að sögn Mariu Xosé var undir-
búningurinn allur miðaður við að
árið 2000 yrði niðurstaða eða
summa langs ferlis. „Línurnar voru
lagðar strax árið 1993 en þá hófst
menningarleg endurreisn borgar-
Þessi skúlptúr var reistur árið
1998 í miðborg Santiago og á að
tákna ferð borgarinnar inn í
framtíðina. í honum er klukka
sem taldi niður þar til nýtt ár-
þúsund brast á. Eftir því sem
nær dró hækkaði stöpullinn þar
til hann náði tíu metra hæð um
áramótin. Myndin var tekin í
ágúst síðastliðnum.
Sérlega vel hefur tekist til við
endurreisn gamla bæjarins
svokallaða í Santiago en hann
reis í kringum dómkirkjuna á
miðöldum. Gamli bærinn er
hjarta borgarinnar með auðugri
götumenningu og fjölbreyttum
kaffi- og veitingastöðum. Gamli
bærinn verður vettvangur ým-
issa viðburða á meningarárinu.
innar með endurskipulagningu á
innviðum hennar, viðreisn gamla
bæjarins og byggingu mannvirkja,
svo sem tónlistarhúss, menningar-
húss og íþróttaleikvangs. Markmið-
ið var að styrkja hina sögulegu til-
vísun borgarinnar, sem ferða-
mannaiðnaðurinn hefur byggst á,
en jafnframt nútímavæða hana og
gera hana betur í stakk búna til að
takast á við nýja öld. Sérstæður
skúlptúr sem reistur var í miðborg-
inni árið 1998 er táknrænn um
þessa ferð okkar inn í framtíðina.
Hann var eins konar stöpull sem á
var klukka sem taldi niður dagana,
klukkutímana, mínúturnar og sek-
úndurnar sem lifðu þangað til við
sigldum inn í nýtt árþúsund. Eftir
því sem nær dró hækkaði stöpullinn
þar til hann náði tíu metra hæð um
áramótin.“
Tónlist og trúðabolti
Santiago er enn áfangastaður
pflagríma. Hana heimsækja um
þrjár milljónir ferðamanna á ári en
einungis þeir sem koma fótgan-
gandi kallast pílagrímar með réttu.
Þegar dag dýi-lingsins Jakobs, 25.
júlí, ber upp á sunnudag er heilagt
ár í Santiago, eða Xacobeo eins og
borgarbúar kalla það, og fjölgar
ferðamönnum þá verulega. Arið
1993 voru þeir sjö milljónir og
sennilega álíka margir síðasta ár
sem einnig var heilagt.
Eitt af meginmarkmiðum menn-
ingarársins í Santiago er að efla
menningartengdan ferðamannaiðn-
að. Talsverð áhersla verður lögð á
tónlist í dagskrá borgarinnar en
tónlistarhúsið er miðpunktur menn-
ingarlífs borgarinnar.
Eitt viðamesta verkefni menning-
arársins er Árþúsundahátíð
Compostela sem fram fer í ágúst og
aðstandendur kalla tónlistarhátíð
en samanstendur af fyrirlestrum,
leiklist, óperu, klassískri tónlist,
dansi og djassi. I samræmi við hug-
myndina um Santiago sem
skurðpunkt ólíkra strauma er lögð
áhersla á að kynna list fjarlægra
menningarsvæða; indverskur dans,
kínversk ópera og tíbesk tónlist eru
á meðal þess sem boðið er upp á.
Berlínaróperan flytur tvö verk,
Rakarann í Sevilla eftir Rossini og
Eyðieyjuna eftir Haydn en þar
syngur Gunnar Guðbjörnsson undir
stjórn Daniel Barenboim. Konung-
lega fflharmóníuhljómsveitin í Gal-
isíu undir stjórn Helmut Rilling
flytur verk eftir Hándel og Beetho-
ven og fleira mætti nefna.
Meðal annarra viðburða í Sant-
iago á árinu mætti nefna evrópska
kvikmyndahátíð í póvember, mynd-
listarsýninguna Ásjónur guðanna
og knattspyrnuleik þar sem allir
þátttakendur munu verða trúðar.
Borgin sjálf
Vitanlega er aðeins fátt eitt nefnt
af forvitnilegum viðburðum ársins í
Santiago hér, en mesta aðdráttar-
aflið hefur sennilega borgin sjálf.
Sérlega vel hefur tekist til við
endurreisn gamla bæjarins sem er
hjarta borgarinnar. Dómkirkjan rís
þar hæst en lífið í kringum hana,
straumur pílagríma úr öllum horn-
um álfunnar og víðar að, fjörug
götumenning, markaðir og fjöldi
kaffihúsa og veitingahúsa, þar sem
megináhersla er á sjávarrétti, setja
sterkan svip á bæinn. Gamli bærinn
verður vettvangur fjölmargra við-
burða á menningarárinu. Á veturna
fyllist borgin svo af stúdentum sem
sækja hinn forna háskóla hennar
sem er sá stærsti í Galisíu. í borg-
inni búa um hundrað þúsund íbúar
en á veturna bætast við ríflega þrjá-
tíu þúsund stúdentar.
Santiago er talsvert fjarri þeim
sólarstöðum sem flestir íslenskir
Spánarfarar þekkja en hún er sann-
arlega króksins virði.
Hildur
Waltersdótt-
ir í Gallerí
Mflanó
HILDUR Waltersdóttir listmál-
ari opnaði sýningu sl. laugardag í
Café Mílanó, Faxafeni 11. Verkin
sem hún sýnir að þessu sinni eru
unnin á árunum 1998-2000.
Hildur útskrifaðist með BFA-
gráðu frá Rockford College í
Bandaríkjunum 1994. Þessi sýn-
ing á Café Mflanó er sjötta
einkasýningin sem hún heldur
hérlendis en einnig hefur hún
tekið þátt í nokkrum samsýning-
um hér heima og erlendis.
Sýningin stendur til febrúar-
loka.
Hildur Waltersdóttir
Ný námskrá Endurmenntunar-
stofnunar Háskóla Islands
NÁMSKRÁ Endurmenntunar-
stofnunar Háskóla Islands fyrir
vorönn 2000 er komin út í 35.000
eintökum. Þar er að finna hátt á
þriðja hundrað námskeið og hefur
fjölbreytnin aldrei verið meiri.
Meðal efnisflokka eru kvöldnám-
skeið fyrir almenning, tungumál,
námsbrautir samhliða starfi, per-
sónuleg hæfni, forysta, námskeið
tengd stjórnun ýmissa málaflokka,
starfsmannastjórnun, gæðastjórn-
un, markaðs-, sölu- og þjónustu-
mál, námskeið á sviði fjármála,
lögfræði, verkfræði og vefsmíða og
hugbúnaðar. Námskeið á sviði heil-
brigðis-, félags- og uppeldismála
eru vaxandi að vanda. Endur-
menntunarstofnun er í samvinnu
við fjölda fagfélaga, einstaklinga
og stofnanir atvinnulífsins við und-
irbúning og gerð námskeiða. Fær-
ustu sérfræðingar á hvei'ju sviði,
innlendir og erlendir, kenna á
námskeiðunum. Á vorönn kemur
hátt á þriðja tug erlendra sérfræð-
inga til landsins og kennir á nám-
skeiðum stofnunarinnar.
Af nýjungum í kvöldnámskeiðum
fyrir almenning er helst að nefna
námskeiðaröð um Island fyrir ís-
lenska ferðamenn þar sem mark-
miðið er að gefa Islendingum meiri
innsýn í land og sögu og fjallar
þessi fyrsti hluti þáttaraðarinnar
um náttúrufar á Islandi. Þá má
einnig nefna leshring um nýjar
bækur, hin sívinsælu námskeið
Jóns Böðvarssonar um fornsögurn-
ar, námskeið í samvinnu við Þjóð-
leikhúsið og Islensku óperuna um
uppsetningu leik- og söngverka og
námskeið um nokkur verka Hall-
dórs Laxness sem tengjast ævi
hans og heimahögum. í boði eru
tvö námskeið sem miða að því að
aðstoða nemendur í háskólanámi:
„Akademísk vinnubrögð" sem er
undirbúningur fyrir háskólanám
og „Undirbúningur lokaverkefnis á
háskólastigi" þar sem fjallað verð-
ur um aðferðir, uppbyggingu og
frágang.
Athygli er vakin á því að hægt
er að skoða námsefnin á nýjum vef
stofnunarinnar: http://www.endur-
menntun.hi.is/