Morgunblaðið - 13.01.2000, Page 48
48 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
*
Útsala
Útivistarfatnaður
Barnafatnaður
Æfingafatnaður
Fleecefatnaður
Æfinga-og útivistarskór
Sundbolir
Bolir
til
Nýtt kortatímabil
85%
afsláttur
SfTT»»SDIiS CONVERT
)13. RUSSELL
Sportswear Company*
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
— Skeifunni 19 - S. 5681717-
Skot í fótinn
PAÐ ER kallað lýð-
ræðislegur þroski þeg-
ar menn taka kosn-
ingaósigri með
yfirvegun. Flest okkar
sem störfum að stjórn-
málum, höldum okkur
hafa þennan þroska, en
því miður er raunin sú,
að við tökum ósigra æt-
íð mjög nærri okkur.
Ég á ekki langan feril
að baki í stjórnmálum,
en hef þó kynnst bæði
sigrum og ósigrum,
mínum og annarra.
Taldi ég mig hafa
kynnst flestu í þeim
efnum en því var ekki svo farið.
Á fundi bæjarstjórnar Akraness
nú skömmu fyrir jól, ákvað meiri-
hluti bæjarstjórnar, skipaður full-
trúum Akraneslista og Framsóknar-
flokks, að Akranes hætti samstarfi
við önnur sveitarfélög á Vesturlandi
á vettvangi samtaka þeirra (SSV).
Þau rök voru helst færð fyrir þessari
ákvörðun, að hún væri „kröftug mót-
mæli“ við því „að gera formannskjör
í samtökunum að flokkspólitísku
máli.“ Meirihluti bæjarstjórnar á
Akranesi gat því ekki sætt sig við, að
atkvæðavægi fulltrúa hefði verið lát-
ið ráða við kjör formanns SSV,
m.ö.o., gat ekki sætt sig við lýðræðis-
lega kosningu formannsins.
Kom fram sá skilningur í greinar-
gerð með tillögu meirihlutans, að
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
væru „þverpólitísk", en þó sitja þar
eingöngu fulltrúar stjómmálaflokka,
sem kosnir hafa verið í lýðræðisleg-
um kosningum. Ef samtökin eru
svona „þverpólitísk" af hverju var
það þá kappsmál meirihlutans á
Akranesi að koma sínum fulltrúa í
sæti formanns? Það er auðvitað tóm
della að halda því fram að samtök á
borð við SSV séu „þverpólitísk" og
því er fullkomlega eðlilegt að í þeim
endurspeglist vilji kjósenda um
valdahlutföll.
Nefna má hér þessu til stuðnings,
að á fyrsta fundi stjórnar SSV árið
1989, þegar Akurnesingamir And-
rés Olafsson fyrir Framsóknarflokk-
inn og Gubjartur Hannesson fyrir
Alþýðubandalagið sátu í stjórninni
fyrir hönd Akraness gerði Guðbjart-
ur tillögu um Andrés sem formann
og lagði til atlögu gegn sitjandi for-
manni, Jóni Böðvarssyni. Jón Böðv-
arsson vann kosninguna.
Það er auðvitað lítið
að segja við því, að
menn fari í fýlu yfir nið-
urstöðu kosninga, það
er reyndar alþekkt at-
ferli vinstrimanna á öll-
um tímum. En því mið-
ur hefur meirihluti
bæjarstjórnar Akra-
ness gert sig sekan um
mun alvarlegri hluti en
bara að fara í iylu. Að
taka þá ákvörðun, sem
hér um ræðir, sýnir
ekki einungis vanstill-
ingu og óþroska, heldur
einnig ótrúlegt skeyt-
ingarleysi gagnvart
þeim hagsmunum, sem þessir full-
trúar eru kjörnir til stánda vörð um.
Akranes er stærsta sveitarfélag
kjördæmisins og hefur sem slíkt
skyldum að gegna í samstarfi við
önnur sveitarfélög. Fulltrúar Akra-
neslista og Framsóknarflokks í bæj-
arstjórn Akraness hafa, með ákvörð-
un sinni, unnið gífurlegt tjón, ekki
Þroski
Að taka þá ákvörðun,
sem hér um ræðir, sýnir
ekki einungis vanstill-
ingu og óþroska, segir
Pétur Ottesen, heldur
einnig ótrúlegt skeyt-
ingarleysi.
einungis fyrir Samtök sveitarfélaga
á Vesturlandi heldur ekki síður fyrir
almenning í kjördæminu. Samtökin,
sem komið hafa mörgu góðu til leiðar
fyrir Vestlendinga, eru nú í reynd
lömuð, vegna þess eins að kjörnir
fulltrúar Akraneslista og Framsókn-
arflokks í bæjarstjórn Akraness
gátu ekki unað því að tiltekinn sjálf-
stæðismaður frá Akranesi yrði for-
maður samtakanna.
Eins og getið er um hér að ofan
átti úrsögn Akraness úr SSV að vera
kröftug mótmæli. Og vissulega var
þetta kröftugt; kröftugt skot í fótinn.
Höfundur er bæjarfulltrúi sjálfstæð-
ismanna á Vesturlandi ogfyrrv.
form. SSV.
r
RYMINGARSALA
0 W
Úlpa og buxur barna .....verð áður 4k§9Ö,-..NU 9.995,-
° ÆT
Úlpa og buxur fullorðins.verð áður 12*090,-.NU 8.995,-
jr
MANCHESTER ÚLPA barna og fullorðins ....verð áburJík%ílff-V)Æft.NU 6.995,-
w
Barna OLANTEX kuldaskór 25-35 .verð áður iOBS:..................NU 2.990
Dúnúlpur barna ............... verð áður J&ÆfT..................NÚ 4.990
O ÆT
Dúnulpur fullorðins............verð áður J*990:.................NU 3.990
EUi