Morgunblaðið - 13.01.2000, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ
50 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
.............-.....
UMRÆÐAN
Þeir sem hafa aðeins
þekkt ónýta sandala vita
ekki hvað það er að
ganga í almennilegum
skóm, segir Þórlindur
Kjartansson um samn-
inga SHI og HI.
pari á ári. A síðasta ári tóku gildi ný
lög um Háskóla íslands. Meðal þess
sem þar var bundið í lög er að HÍ
skuli fara eftir lögum um fjárreiður
ríkisins. Þetta kann að virðast sak-
leysislegt við fyrstu sýn en þetta hef-
ur sett meirihluta Röskvu í Stúdenta-
ráði í ennþá meiri vanda. Nú þarf að
semja á þeim grundvelli að um verk-
töku sé að ræða. Samið er í þrennu
lagi. Tveir samningamir fjalla um
hlutlausa þjónustu þar sem hags-
munaárekstrar geta vart risið milli
verktaka og verkkaupa. Hinn þriðji
fjallar um rekstur Réttindaskrifstofu
Stúdenta. Þar sem Háskólanum er nú
í sjálfsvald sett hvort hann gerir
þessa samninga getur hann alveg
eins sleppt því ef forystumönnum
hans þóknast.
Þessu má líkja við að ríkið úthluti
sandalapari árlega, ef því þóknast, en
gæti hirt annan sandalann aftur til
sín ef svo bæri undir. Þannig er það
ekki undir þegnunum heldur ríkinu
komið hvort þjóðin gengur skólaus.
Betra en ekkert?
Vaka lagði í fyrra fram tillögur í
Stúdentaráði og Háskólaráði þess
efnis að Háskólinn lækkaði innritun-
argjöld gegn því að samningar um
hagsmunabaráttu stúdenta yrðu ekki
gerðir milli Háskólans og Stúdenta-
ráðs. Meirihluti Röskvu stóð gegn
þessari tillögu á báðum stöðum. Með
öðrum orðum þá stóð hagsmunafélag
stúdenta gegn lækkun innritunar-
gjalda. Stóðu fulltrúar Röskvu
bjargfastir á þeirri skoðun sinni að
Háskólinn myndi aldrei skerða hlut
Stúdentaráðs þegar fulltrúar þess
kæmu betlandi til þeirra á vorin. Ann-
að hefur nú þegar komið í ljós þar
sem þegar hefur komið fram að Há-
skólinn telur hluta þjónustunnar bet-
ur eiga heima annars staðar.
Líkja má þessu við að stjómendur
Sandalaverksmiðjunnar ákvæðu að
óska ekki eftir því að skattar lækkuðu
svo neytendur gætu sjálfir keypt sér
skó en framleiða heldur hælalausa
sandala fýrir ölmusugjöfina sem
landsmenn fengu svo gefins frá rík-
inu.
Kjörsókn hefur hríðfallið í Háskól-
anum á síðasta áratug. I síðustu kosn-
ingum var kjörsókn aðeins rúmlega
40%. Ríflegur meirihluti háskólastúd-
enta sá ekki ástæðu til þess að velja
sér fulltrúa í Stúdentaráð.
Þessu má líkja við að þrátt fýrir
viðleitni sandalaverksmiðjunnar
gengju aðeins 40% þjóðarinnar á
sandölum frá þeim en 60% kysu held-
ur að ganga berfætt, enda sandalam-
ir hálfónýtt drasl sem troðið er upp á
þau.
Hið sorglega við þetta er auðvitað
að forsvarsmenn Stúdentaráðs hafa
alltaf haft þann möguleika að snúa við
blaðinu og standa á eigin fótum.
Sandalaverksmiðjan hefði hvenær
sem er getað farið að hlusta frekar á
þarfir þegnanna en fyrirmæli yfir-
valdsins. Hugleysi meirihlutans í
Röskvu hefur auk þess orðið til þess
að rýra traust stúdenta á gagnsemi
hagsmunabaráttu stúdenta, en þeir
sem í lengri tíma hafa aðeins þekkt
ónýta sandala vita ekki hvað það er að
ganga í almennilegum skóm.
Það er nefnilega ekki hagsmuna-
baráttan sem er gagnslaus heldur sú
útgáfa sem stúdentar hafa kynnst á
valdatíð núverandi meirihluta. Þegar
Vaka nær meirihluta í Stúdentaráði
verður samningi við háskólayfirvöld
um Réttindaskrifstofu sagt upp og
uppbyggingarátak hafið í Stúdenta-
ráði sem skila mun stúdentum sjálf-
stæðara og öflugra hagsmunafélagi
sem mun leitast við, en ekki forðast,
að ganga undir dóm stúdenta.
Höfundur er formaður Vöku
og situr í Stúdentaráði.
Sandala-
verksmiðja
Stúdentaráðs
PTRIR þá sem ekki eru svo ó-
lánsamir að hafa kynnt sér samninga
Stúdentaráðs og Háskóla Islands í
kjölinn eru eftirfarandi staðreyndir
gagnlegar:
Fyrir fimm árum úrskurðaði um-
boðsmaður Alþingis skylduaðild að
é^júdentaráði Háskóla Islands ólög-
lega á þeim forsendum að hún bryti í
bága við ákvæði stjómarskrár lýð-
veldisins um frelsi til að standa utan
félaga. Þessi grein er mikil gersemi
þar sem hún kemur í veg fýrir að fólk
sé þvingað til þátttöku f félagsskap
sem það ekki kýs sér eða að aðilar
geti tekið sér umboð til málsvamar
stómm hópum án samþykkis þeirra.
Sem dæmi má nefna að formaður
Félags áhugamanna um fljúgandi
furðuhluti getur einungis talað í nafni
þeirra sem hafa kosið
sér að gerast meðlimir í
félaginu, en ekki hinna
fjölmörgu furðufugla
sem takmarkaða trú
hafa á tilvist geimvera.
Líkja má skylduaðild
stúdenta að Stúdenta-
ráði við það ef rekin
væri sandalaverk-
smiðja og allir þegnar
landsins væra skyldað-
ir til þess að kaupa eitt
paráári.
Allir fá „gefins“
sandala
Við úrskurð umboðs-
manns Alþingis tók
meirihluti Röskvu í Stúdentaráði
þann kostinn að fela skylduaðildina í
innritunargjöldum með aðstoð Há-
Þórlindur
Kjartansson
skólans. Á hverju ári
gengu forsvarsmenn
Stúdentaráðs á náðir
háskólayfirvalda til
þess að þiggja af þeim
pening. Akveðið hlutfall
innritunargjaldsins var
eymamerkt Stúdenta-
ráði svo þetta reyndist
mun einfaldari lausn
fyrir forystumenn
Röskvu en að standa í
því brasi að sannfæra
stúdenta um mikilvægi
ráðsins.
Þetta er svona svipuð
lausn og ef ríkið hætti
skyndilega að skylda
alla til þess að kaupa
sandala af sandalaverksmiðjunni en
hækkaði þess í stað skatta og úthlut-
aði hverjum þegni þess í stað einu
Aitlar þu að vinna ílwöld?
Með mánaðarmiða \ DAS eða símann einan að vopni?
DAS 2000 er í Sjónvarpinu í kvöld strax á eFtir Frasier.
Samstarfsa&ilar DAS 2000 eru:
m HUCFÉIAO ÍUANDS '®§| Alr lciland flH Imilrsti tt spv Spansjóður vélstjóra SÍMIHNCSM mm ORKAN uwpifMrrn SJÓNVARPIÐ
Stúdentapólitík