Morgunblaðið - 13.01.2000, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000
Fischer skákmaður
árþúsundsins
son, stórmeistari, hélt stórgóðan fyr-
irlestur þar sem hann velti fyrir sér
hvaða skák það væri sem verðskuld-
aði að vera kölluð besta skák 20. al-
darinnar.
Helgi kom víða við og margar
þekktar skákir komu við sögu. Helgi
gerði grein fyrir því hvað hann legði
til grundvallar valinu og niðurstaðan
varð sú, að hann taldi tvær skákir
verðskulda titilinn. Önnur þeirra var
13. skákin í heimsmeistaraeinvígi
Fischers og Spasskys í Reykjavík
1972, en hin var skák Kasparovs og
Topalovs frá síðasta ári. Helgi skýrði
síðan síðarnefndu skákina. Að fyrir-
lestri loknum var að venju teflt og
var skipt í tvo riðla. I a-riðli urðu úr-
slit þessi:
1. Magnús Örn Úlfarsson 7 v.
2. Róbert Harðarson 614 v.
3. Jóhannes Gísli Jónsson 6 v.
4. Andri Áss Grétarsson 5‘á v.
Efstu í b-riðli urðu:
1.-2. Þór Stefánsson og Andrés
Kolbeinsson 6Í4 v.
Þór og Andrés ávinna sér rétt til
að tefla í a-riðli á næsta skemmtik-
völdi sem er áætlað 14. febrúar. Þar
verður kynnt val á skák aldarinnar
sem tefld er af íslenskum skák-
manni, en val á þeirri skák stendur
nú yfir á heimasíðu Hellis.
Jón L. sigrar
hjá Hvítu örkinni
Arlegt nýársmót Hvítu arkarinnar
var haldið 9. janúar. Jón L. Árnason
sigi-aði og fékk 14i4 vinning í 17
skákum. Hann tapaði ekki skák. Jó-
hannes Gisli Jónsson varð annar
með 1314 vinning. Þriðji varð Þor-
steinn Þorsteinsson með 1214 vinn-
ing. Mótið var mjög sterkt, en það er
Ögmundur Kristinsson sem er
skipuleggjandi þessara móta.
Skákþing
Reykjavíkur hafið
Skákþing Reykjavíkur er hafið.
Einni umferð er lokið og fátt var um
óvænt úrslit. Þröstur Þórhallsson er
eini stórmeistarinn sem tekur þátt í
mótinu og verður að teljast sigur-
stranglegur, þótt trúlega verði hartfc.
barist um efsta sætið. Jón Viktor
Gunnarsson sigraði á mótinu í fyrra
og er því núverandi skákmeistari
Reykjavíkur. Hann er einnig með að
þessu sinni. Þátttakendur eru 64.
Skákmót á næstunni
SA. Parakeppni 16. janúar
SA. Öldungamót (45+) 20. janúar.
SA. Skákþing Akureyrar 23. jan-
úar.
SÍ. íslandsmótið í atskák, úrslit
28.janúar. _ .. -
Daði Orn Jonsson
Helgi Áss Grétarssop^
THIS
UP
FYRIR FÓLK Á UPPLEIÐ ... eftlr 8 daga
Bobby Fischer
SKAK
svörtu er með þeim hætti sem Petr-
osian sýnir í þessari skák er ljóst að
ekki er von á góðu.
13.. ..Dxa4 14.Rxa4 Be6 15.Be3
0-0 16.Bc5
Hvítur hefur nú mjög þægilega
stöðu þar sem hann er í cngri tap-
hættu og með einföldum hætti tekst
honum að bæta stöðu sína hægt og
bítandi.
16.. ..Hfe8 17.Bxc7 Hxe7 18.b4!
Kf8 19.Rc5 Bc8 20.f3 Hea7 21.He5
Bd7
Við fyrstu sýn virðist sem svai-tur
standi óvirkt, en hafi þó trausta
stöðu sem hann vill bæta með upp-
skiptum á veiku a-peði sínu og bisk-
upnum. Næsti leikur hefur án efa
verið erfiðasta ákvörðun í skákinni
fyrir hvítan þar sem ó-
rökrétt virðist að skipta
upp á sterkum riddara
fyrir lélegan biskup.
22.Rxd7+!!
Frábært stöðumat!
Hvítur gerir sér grein
fyrir að svartur vilji
leika Bd7-b5 og hafi a6-
a5 í sigtinu. Eftir þessi
uppskipti nýtur hvítur
hins vegar þess, að bar-
áttan fer fram á báðum
vængjum borðsins sem
gerir biskup hans
sterkari en riddara
svarts sem svo leiðir til
þess að mun erfiðara
verður fyrir svartan að
bæta stöðu sína.
22.. ..Hxd7 23.Hcl
Með þessu hefur hvítur vald á báð-
um opnu línunum og hótar Hcl-c6.
23.. ..Hd6 24.Hc7 Rd7 25.He2 g6
26.KÍ2 h5 27.f4 h4?!
Mistök í erfiðri stöðu. 27...Hb8
hefði verið betra.
28.Kf3!
Hótar Kf3-g4 og sækja h4-peðið,
en til að koma í veg fyrir það verður
svartur að veikja sjöundu reitaröð-
ina allverulega.
28.. ..f5 29.Ke3 d4+ 30.Kd2 Rb6
31.Hee7 Rd5 32.HÍ7+ Ke8 33.Hb7
Rxb4 34.Bc4!
Hótanir hvíts eru óviðráðanlegar á
tveim neðstu reitaröðum borðsins.
1:0
Skemmtikvöld
skákáhugamanna
Skemmtikvöld skákáhugamanna
var haldið í húsakynnum Hellis
föstudaginn 7. janúar. Helgi Ólafs-
Veftímaritið The
Week i n Chess
VALTWIC Á SKÁKMANNI
ÁRÞÚSUNDSINS
VE FTÍMARITIÐ The Week in
Chess stóð nýlega fyrir vali á skák-
manni árþúsundsins. Það voru les-
endur þessarar prýðisgóðu vefsíðu
Marks Crowthers sem greiddu at-
kvæði. Það þarf ekki að koma mjög á
óvart, að Bobby Fiseher hlaut flest
atkvæði, en röð tíu efstu varð þessi:
1. Bobby Fischer
2. Gary Kasparov
3. Alexander Alek-
hine
4. Mikhail Tal
5. Jose Capablanca
6. Emanuel Lasker
7. Anatoly Karpov
8. Paul Morphy
9. Mikhail Botvinnik
10. Viktor Korchnoi
Tveir íslendingar
voru meðal þeirra sem
hlutu atkvæði. Friðrik
Ólafsson, sem nýlega
var kosinn skákmaður
aldarinnar hér á landi,
deildi 29. sæti listans
með þeim Vladimir
Kramnik og Nigel Short. Jóhann
Hjartarson varð í 50. sæti. í tilefni af
þessari útnefningu Fischers hefur
Helgi Áss Grétai-sson rifjað upp eina
klassíska skák með kappanum.
Ákvarðanir
Svart og hvítt þekur 64 reiti skák-
borðsins. Þótt þessir litir séu yfir-
gnæfandi á borði hinnar göfugu list-
ar ei'u það mikil mistök þegar
ákvarðanir eru byggðar á þeirri for-
sendu, að allt sé annaðhvort hvítt eða
svart. Engu að síður eru mistök
þessi jafn algeng í skák og í lífinu
sjálfu. Margir trúa því að margþætt-
uð mál sé eingöngu hægt að leysa
með einum hætti og að aðrar lausnir
séu rangar og óferjandi. Þessi til-
hneiging auðveldar vissulega mai-g-
ar ákvarðanir, en leiðir oftar en ekki
til slakra lausna á vandamálum og
stuðlar að ósveigjanlegu hugarfari.
Á hverjum degi stendur fólk
frammi fyrir margvíslegum ákvörð-
unum, jafnt stórum sem smáum. Yf-
irleitt eru bestu ákvarðanirnar tekn-
ar þegar reynsla og þekking fara
saman, en tíminn sem gefst til að
taka ákvörðun er ávallt takmarkað-
ur. Einn af þeim heimsmeisturum í
skák sem tókst meistaralega að
spinna þessa þætti saman var Bobby
Fischer. Þó að sveigjanleiki hans í
daglegu lífi hafi ekki verið upp á
marga fiska var þroski hans sem
skákmaður um það leyti sem hann
varð heimsmeistari einhver hinn
mesti sem skáksagan hefur að
geyma. Klassísk skák hans gegn
Petrosjan í áskorendaeinvígi þeirra
1971 ber vitni um þetta.
Hvítt: Robert Fischer
Svart: Tigran Petrosian
Buenos Aires 1971
Sikileyjarvörn [B42]
l.e4 c5 2.Rf3 e6 3.d4 cd 4.Rxd4 a6
5.Bd3 Rc6 6.Rxc6 bc
Gáfulegra er að taka riddarann
með d-peðinu þar sem í framhaldinu
verður peðastaða svarts honum óhl-
iðholl.
7.0-0 d5 8x4 Rf6 9.cd cd lO.ed ed
ll.Rc3 Be7 12.Da4+! Dd7
Vegna staka peðsins var betra að
reyna að halda drottningunum á
borðinu. 12...Bd7 var ákjósanlegra.
13.Hel!
Algengt er að skákmenn, hvort
sem þeir eru háir eða lágir, séu með
alls konar afsakanir þegar slæleg
frammistaða er annars vegai-. Til að
mynda töldu bæði Petrosian og Lar-
sen að ein stærsta ástæðan íýrir
stórtapi þeirra í áskorendaeinvígj-
unum gegn Fischer væri sú, að of
sunnarlega var teflt á hnettinum og
hitinn of mikill meðan á þeim stóð!
Þegar skákmenn lenda undir í ein-
vígi og byrjunartaflmennskan með
Eqla
bréfabmdi
I tilefni árþúsundaskipta:
Afsláttur sem getur skipt þúsundum.
mm
■ • ■ i.
Eb
.M
Hvergi siegio
Egla brefabmdm hafa notið mikilla vinsælda meðal íslenskra fyrirtækja
á undanförnum árum, enda um afar vandaða framleiðslu að ræða. Þau
fást í 5 mismunandi stærðum og litaúrvalið eykur enn á fjölbreytnina.
Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum helstu bókaverslunum landsins.
ROÐ OC RECLA
Mulalundur
Vinnustofa SÍBS
Sími: 562 6500 Slmbróf: 552 8819 Veffang: www.mulalundur.is
Afslátturinn gildir frá 3. til 24. janúar 2000