Morgunblaðið - 13.01.2000, Page 57

Morgunblaðið - 13.01.2000, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2000 57 MINNINGAR ANNA JÓNSDÓTTIR + Anna Jónsdóttir fæddist á Gauta- stöðum í Hörðudal, Dal., 14. október 1904. Hún lést á lijúkrunarheimilinu Skógarbæ, Reykja- vík, miðvikudaginn 29. desember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Jón Jón- asson, bóndi á Gauta- stöðum, síðar á Kald- árbakka, Kolbeinsstaðahreppi, f. 11. maí 1871 á Innra-Leiti, Skógar- strönd, d. í Reykjavík 1. janúar 1936, og kona hans Ilalla Gunn- laugsdóttir, f. 16. maí 1869 í Ytra- Skógarkoti, Miðdölum, d. 19. júní 1927 á Kaldárbakka. Systkini Onnu voru Guðrún, saumakona í Reykjavík, f. 17. maí 1901, d. 16. janúar 1994, og Jónas, eftirlits- maður í Reykjavík, f. 20. október 1903, d. 3. september 1981. Hinn 13. mars 1926 giftist Anna Erlendi Ólafssyni frá Jörfa. Hann fæddist á Jörfa 10. október 1897 og lést í Reykjavík 28. febrúar 1994. Þau eignuðust fjögur börn; Ólaf, f. 24. apríl 1926, kvæntur Helen Hannesdóttur; Höllu Guð- nýju, f. 11. júlí 1928, gift Trausta Krist- inssyni; Pétur Ágúst, f. 14. ágúst 1929, kvæntur Áslaugu Andrésdóttur, og Agöthu Heiði, f. 20. mars 1933. Hún gift- ist Davíð Haralds- syni, þau skildu, og síðar Vilhjálmi Jóns- syni sem er látinn. Barnabörn Önnu og Erlendar eru 15, barnabarnabörnin 31 og barnabarna- barnabörnin 8 tals- Anna og Erlendur bjuggu fyrst á Jörfa í Kolbeinsstaðahreppi í fjögur ár, siðan í Leirulækjarseli í Álftaneshreppi í þrjú ár og loks í Tröð í Kolbeinsstaðahreppi. Þau fluttust til Reykjavikur haustið 1935 og áttu þar heima eftir það, lengst í Stigahlíð 12. Eftir búskap- inn í sveitinni var Anna húsmóðir í Reykjavík, en Erlendur starfaði lengst af hjá Eimskipafélagi ís- lands, síðustu áratugina sem launaskrárritari. Útför Önnu fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Nú er öldin önnur. Með tákn- rænum hætti kveðja nú öld og amma. Fyi'ir mér er amma mín tvímælalaust táknmynd þeirrar aldar sem er að líða. Amma upp- lifði þetta allt. Ferðalag úr sveit í borg, stríðið og undraverðan upp- gang eftirstríðsáranna. Iðulega leitaði ég í sagnabrunn hennar. Ævintýralegan brunn sem virtist allt að því endalaus. Amma Anna og afi Erlendur voru ákaflega samrýnd hjón, harð- dugleg og heilsteypt. Þau áttu gott líf saman, eignuðust stóra fjöl- skyldu sem þau unnu mjög. Ég velti því stundum fyrir mér sem strákur hvort það hafi nokk- urn tímann verið klippt á nafla- strenginn hjá mömmu og ömmu, svo nánar voru þær. Enda vorum við alla tíð með annan fótinn í Stigahlíðinni. Við fórum í frí og enn var hálfur hugurinn þar. Mér þótti svolítið skrítið að mamma mín væri litla stúlkan hennar ömmu. Þær töluðu saman á hverju kvöldi, stundum tímunum saman. Það var með ólíkindum að heyra háaldraða konu tala um málefni dagsins, og það af rökfestu og skynsemi. Konan sem uppalin var í moldarkofa hafði jú enn ýmislegt til málanna að leggja. Hún hafði ákveðnar skoðanir og lá ekki á þeim. Það var svo mikill virðuleiki yfir henni ömmu. Mér fannst hún alltaf svo miklu stærri en aðrar ömmur. Stór kona með stórt hjarta. Ég kveð nú elskandi ættmóður, kjarkmiklu konuna frá Kaldár- bakka. Vilhjálmur Vilhjálmsson. í dag kveðjum við þig, elsku amma, trausta og trygga konu, sem var alltaf til staðar. Amma var stórbrotin kona, glæsileg og öllum til sóma. Og þrátt fyrir háan aldur var hún enn þá glæsileg, bar aldurinn svo sann- arlega vel. Heimili ömmu og afa var alltaf óaðfinnanlegt, allt í röð og reglu, hlýtt og notalegt og allir velkomn- ir. Elsku amma, takk fyrir allt i gegnum lífið, allar góðu stundirnar í Stigahiíðinni hjá ykkur afa og takk fyrir allar sögurnar sem þú sagðir mér þegar ég var lítil og sögurnar úr sveitinni ykkar afa, þær eru ógleymanlegar. Amma mín, ég veit að afi hefur tekið vel á móti þér og megi ykkur líða vel saman á ný. Guð veri með ykkur. Héðan skal halda, heimili sitt kveður heimilis prýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. (V. Briem.) Anna Björg og Sarah. í dag verður jarðsungin mikil heiðurskona, amma mín, Anna Jónsdóttir. Lýkur þar með sögu Stigahlíðar 12, sögu ömmu og afa, sem áttu því láni að fagna að ganga saman hönd í hönd, lífið á enda. Eftir stöndum við, stór hóp- ur afkomenda, með söknuð í huga en þó fyrst og fremst þakklæti fyr- ir allt. Lífið sá fyrir því að amma fékk mig í sextugsafmælisgjöf. Móðir mín bjó þá í foreldrahúsum ásamt systkinum mínum. Amma tók miklu ástfóstri við litla drenginn sinn og hann því sem sjálfsögðum hlut. Þegar ég komst til vits og ára og fékk smjörþefinn af lífinu reyndist það mér mikil gæfa hversu greiðan aðgang ég átti að henni. Ekki nóg með að hún styddi mig af krafti í öllu sem ég tók mér fyrir hendur, hversu vitlaust sem það var, heldur var hún um margt ákaflega merkileg kona. Þótt hún væri fædd í upphafi aldarinnar og hefði orðið vitni að meiri breytingum í íslensku þjóð- lífi en nokkurn hafði órað fyrir var hún að mörgu leyti langt á undan sinni samtíð. Hún hafði fordóma- leysi í deilumálum samtíðarinnar og virtist fagna fjölbreytileika lífs- ins. Oft fór ég mjög hugsi af henn- ar fundi. Jafnrétti kynjanna var henni í blóð borið og birtist með afgerandi hætti í stuðningi hennar við framboð Vigdísar Finnboga- dóttur til forseta lýðveldisins. Kjör hennar var ömmu sem persónuleg- ur sigur og sendi hún Vigdísi og dóttur hennar þá um jólin sjöl sem hún hafði sjálf prjónað. Eg get ekki skrifað um ömmu án þess að minnast þess hve glæsileg mér þótti hún. Hún var hávaxin og bar sig með reisn allt til enda hvar sem hún kom, svo eftir var tekið. í klæðaburði var hún mjög smekk- leg og kunni að meta snyrti- mennsktí annarra. Amma varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að geta dvalið að heimili sínu þar til í sumar. Þó að amma væri geysisterk hefði þetta ekki tekist nema með aðstoð fjölskyldunnar allrar, er þekkti og vlrti skoðanir hennar.Skærri birtu stafaði hér af eðlislægum mannkostum móður minnar og tryggð sem engan endi tók. Síðustu mánuðum ævi sinnar eyddi amma á deild 4-b á Borgar- spítalanum og hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Við kviðum öll því hvernig henni myndi líka sú vist. Sá kvíði reyndist á margan hátt ástæðulaus og vil ég nota tækifær- ið og þakka því góða starfsfólki fyrir umhyggjuna og virðinguna fyrir mannlegri reisn sem var þar auðsýnd. í lok árs fóru kraftar ömmu þverrandi. Síðustu fundirnir gáfu til kynna að hún færi sátt við Guð og alla menn. Lífsþorstinn sem einkenndi hana var þó hvergi burt. Hún kyssti og strauk myndinni af afa eins og ástfangin sveitastúlka, öll heimsins gæði mega sín lítils. Þjóðskáldið orti: Háa skilur hnetti himingeimur. blað skilur bakka og egg; en anda sem unnast fær aldregi eilífð að skilið. Hvíl í friði, ástkæri vinur. Lárus Jóhannesson. í upphafi sjöunda áratugarins hringir síminn í húsi í Reykjavík. Lítill drengur hleypur í símann og svarar. Konan sem hringir er Anna Jónsdóttir frá Kaldárbakka í Kolbeinsstaðahreppi. Anna, sem var einstaklega barngóð, gefur sér góðan tíma til þess að tala við drenginn sem að samtali loknu sækir móðurömmu sína, Helgu Ólafsdóttur frá Jörfa í Kolbeins- staðahreppi. Hver er í símanum? Það er Anna mágkona. Það liðu mörg ár þar til ég upp- götvaði að Anna var ekki mágkona mín heldur ömmu Helgu. Mér var kannski vorkunn því Anna var líka mágkona föðurömmu minnar, Val- gerðar Ólafsdóttur frá Jörfa. Svo var ég alla tíð í sveit á Jörfa hjá Jónasi bróður þeirra og hans fólki og auðvitað var Anna mágkona hans líka. Amma Helga bjó á æskuheimili mínu og lést þar 1986. Anna og Helga töluðust við í síma, vikulega, stundum daglega, og hittust margsinnis á ári hverju. Svipað má segja um móður mína Soffíu sem hefur alla tíð átt mjög gott samband við Önnu en auk þess notið frændsemi eins og hún gerist best við börn Önnu og tengdabörn, bæði fyrr og síðar. Símtöl mín við Önnu urðu því mörg og fastur hluti tilverunnar. Anna var viðræðugóð, minnug, glettin, velviljuð í allra garð og stálheiðarleg manneskja sem sagði sína skoðun umbúðalaust. Oft þeg- ar ég kom til Valgerðar ömmu minnar, sem býr í Kópavogi, var hún að ræða við Önnu í síma eða hafði nýlega heyrt í henni. Öll dáð- umst við að því hversu hress Anna var alla tíð og hversu vel hún fylgdist með öllum alls staðar eða allt til þess er hún lærbrotnaði á fyrra ári en eftir það hrakaði heilsu hennar mjög hratt. Hún lést hinn 29. desember sl., sátt við Guð og menn. Á heimili þeirra Önnu og Er- lendar Ólafssonar frá Jörfa var alltaf höfðingsbragur. Þau Erlend- ur voru ætíð einstaklega snyrtilega til fara og sama var að segja um heimili þeirra en hvort tveggja var til vitnis um saumakunnáttu Önnu og algera reglusemi þeirra hjóna. Allir voru innilega velkomnir til Önnu og Erlendar, móttökurnar einkenndust af mikilli gestrisni og lífsgleði þeirra og gestirnir nutu myndarskapar Önnu við heimilis- hald. Hjónaband þeirra Erlendar stóð í nær 70 ár og var einstaklega farsælt. Þau áttu barnaláni að fagna en afkomendur þeirra eru allir sómafólk sem stóð þétt að baki þeim hjónum á efri árum þeirra. Erlendur lést í hárri elli ár- ið 1994. Allt líf og starf þeirra Önnu og Erlendar er okkur öllum hinum til fyiirmyndar og eftir- breytni. Fyrir það og samfylgdina þökkum við systkinin, móðir okkar Soffía, amma Valgerður og Jörfa- ættin öll. Blessuð sé minning heið- urshjónanna Önnu Jónsdóttur og Erlendar Ólafssonar. Viggó Jörgensson. JOHANNA KRISTJÁNSDÓTTIR + Jóhanna Krist- jánsdóttir fædd- ist á Eskifírði 23. febrúar 1916. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 3. jan- úar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Kristján Jóns- son, f. 26.7. 1891, d. 17.8. 1974, og Stef- anía Bjarnadóttir, f. 14.8. 1886, d. 17.4. 1954. Systur Jó- hönnu: Guðrún, f. 7.12. 1917, Jónína, f. 11.1. 1920, d. 30.7. 1992, Ingibjörg, f. 19.6.1922. Jóhanna giftist 19. desember 1936, Ingólfi Hávarðssyni frá Eskifirði, f. 6. júlí 1913, d. 24. apríl 1992. Þau skildu. Dóttir þeirra er Jenný Birna, gift Ólafi Valdimars- syni og eiga þau tvö börn: Inga Stefán og Guðrúnu Völu. Börn Inga Stefáns og Birnu Ágústsdótt- ur eru: Ólafur Ágúst, Amar Þór og Hildur Sif. Börn Guðrúnar Völu og Mikaels J. Traustasonar eru: Kristján Ingi, Jenný og Diljá. Jarðarför Jóhönnu fer fram frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Mig langar að minnast í nokkr- um orðum nöfnu minnar og móð- ursystur, Jóhönnu Kristjánsdótt- ur, nú þegar henni hefur verið ákvörðuð stund. Jóhanna var alin upp í Skuld á Eskifirði. Hún fór ung til Reykja- víkur en æskustöðvarnar voru henni kærar, margar góðar minn- ingar átti hún og hafði gaman af að rifja upp ýmislegt um mannlífið frá æskuárunum fyrir austan. Heiðarleiki og gjafmildi voru meðal annars einkenni Jóhönnu. Sérstaklega eru mér minnisstæðar rausnarlegar gjafir sem sendar voru ár eftir ár heim í Skuld og til fjölskyldu Svavars bróður míns, um jól og við ýmis önnur tækifæri. Ætíð fylgdi hlýhugur og umhyggja fyrir sínu fólki. Það var mikils virði að finna slíkan hug bæði í orði og verki sem kom ætíð frá þeim systrum, Jóhönnu og Guð- rúnu. Þær systur voru töluvert samferða í lífinu, sérstaklega hin síðari ár, og reyndist Guðrún mik- ill stuðningur ekki síst síðustu árin þegar Jóhanna var orðin heilsu- tæp. Sem ung kona átti Jóhanna við illvígan sjúkdóm að stríða, það voru berklarnir sem svo margir, ekki síst ungt fólk, börðust við á árum áður. Eftir að hún fékk heilsu á ný vann hún í nokkur ár á Vífilsstöðum. Hátt á þriðja tug ára vann Jóhanna sem vökukona á Kleppspítala þar sem hún vann farsællega það vandasama starf að vaka, oft ein á deild, yfir geðsjúk- um. Henni var hlýtt til sjúkling- anna og hún leit á það sem sjálf- sagðan hlut að leysa starfið vel af hendi og sýna fólki jafna fram- komu. Dóttir Jóhönnu Jenný og tengdasonurinn Ólafur voru henn- ar stolt. Barnabörnin þau Ingi Stefán og Guðrún Vala voru ömmu sinni mikils virði og síðar þegar makar þeirra og langömmubörnin komu til sögunnar urðu þau henni einnig afar kær og miklir gleði- gjafar. Jóhanna hafði þannig fram- komu við börn, sem og aðra, að auðvelt var að tengjast henni og láta sér þykja vænt um hana. Jóhanna var mikil hannyrðakona og voru hannyrðir hennar fallegar og vel unnar. I seinni tíð var hún ætíð með eitthvað á heklunálinni. Eitt það síðasta sem hún vann í höndunum var heklað rúmteppi á dúkkurúm handa litlu langömmu- barni í jólagjöf. Jóhanna var vinamörg og ætt- rækin. Gestrisni var henni einnig í blóð borin og hún hafði yndi af því að umgangast fólk, oftast var stutt í húmorinn og borið var rausnar- lega á borð hvenær sem tækifæri gafst. í seinni tíð veittu vinirnir henni margar ánægjustund- ir með ræktarsemi sinni við hana og þannig má segja að hún hafi uppskorið eins og hún sáði. Mig langar að minnast á Guðlaugu Magnús- dóttur, nágranna Jó- hönnu og góða vin- konu. Eg veit að nánasta fólk Jóhönnu ber þakklæti í huga ■ fyrir ómetanlegan stuðning og vináttu við hana síðustu árin. Jóhanna átti í hjarta sínu ein- læga trú og þegar hún talaði við fólk í öðrum söfnuðum en þjóð- kirkjunni sagði hún ákveðin: „Ég á mína barnatrú. Þar með voru gefin þau skilaboð að henni yrði ekki hnikað. Fyrir hönd okkar systkinanna og fjölskyldna okkar sendi ég Jennýju, Ölla, Inga og Völu, mök- um þeirra og börnum, okkar inni- legustu samúðarkveðjur svo og eftirlifandi systrum hennar, þeim Guðrúnu og Ingibjörgu. Við biðj- um Guð um styrk þeim til handa, - því þau hafa misst ástvin sem skil- ur eftir mikinn söknuð. Ég er þakklát fyrir að hafa átt nöfnu mína að og einnig fyrir að synir mínir fengu að kynnast ræktarsemi hennar og þeim gild- um sem hún hafði í farteskinu, varðveitti og skilaði til yngri kyn- slóða. Hanna frænka er kvödd með söknuði og um leið með þakklæti í huga fyrir góðar minningar. Jóhanna Eiríksdóttir. Elsku systir okkar, við viljum þakka samverustundirnar og kveðja þig með þessum orðum: Eg stend til brautar búinn, mín bæn til þín og trúin er hjartans huggun mín, minn veiki vinaskari, ég veit, þótt burt ég fari, er, Herra Guð, í hendi þín. (M. Joch.) Guðrún og Inga. Elsku amma mín. Þá hefur þú sagt skilið við þennan jarðneska heim. Það var sárt að kveðja þig og hugsa til þess að eiga ekki eftir að heimsækja þig framar eða spjalla við þig í síma. Það hjálpaði mér að hafa setið hjá þér kvöldið áður en þú kvaddir, það var svo mikill friður og ró yfir þér, þér leið greinilega vel. Ég á margar góðar minningar tengdar þér og þær mun ég varð- veita um ókomin ár. Þú varst mér alltaf svo góð og samskipti okkar voru náin. Þú fylgdist með, af áhuga, því sem ég var að gera hverju sinni og alltaf varst þú til- búin að standa við bakið á mér. Þér þótti mjög vænt um lang- ömmubörnin þín, sem eru sex tals- ins. Þér fannst gaman að fá þau í heimsókn og alltaf áttir þú ís handa þeim. Þú minntist oft á það við mig að þér þætti leiðinlegt að hafa ekki heilsu til þess að passa börnin fyrir mig. Síðustu tvö til þrjú árin hefur þú oft verið lasin en alltaf andlega hress. Það var gaman að spjalla við þig. Þú varst með alla hluti á hreinu og hafðir skoðanir á flestu. Elsku amma, ég kveð þig að sinni. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Blessuð sé minning þín. Þín, Vala.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.