Morgunblaðið - 16.01.2000, Side 18
18 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Lesið í málverk
• •
SPONSK
HEFÐ-
ARMÆR
Gunnlaugur Blöndal
Spönsk hefðarmær, olía á léreft 1934 (?), 83x68 sm.
VAFALÍTIÐ má slá því föstu, að
sýningin Lífshlaup í Listasafni
Kópavogs hafi verið merkasti við-
burður í íslenzkri myndlist á ný-
liðnu ári, verði það einnig á því yf-
irstandandi þar sem hún stendur
yfir til 31. janúar. Einnegin einn
mikilvægasti listviðburður liðinn-
ar aldar, í Ijósi þess að þetta mikla
cinkasafn hjónanna Þorvaldar
Guðmundssonar í Sfld og físki og
Ingibjargar Guðmundsdóttur, telst
ótvírætt skilvirkasta samsafn eldri
Iistar á landinu ásamt safni Ragn-
ars Jónssonar í Smára og Bjargar
Ellingsen. Sér í lagi á verkum
þeirra nýskapenda sem ruddu
brautina i upphafi aldarinnar og
eru skilgreindir sem sígildir mód-
emistar. Samtímalist er svo öll
framsækin myndlist frá lokum
seinni heimstyrjaldarinnar 1945,
og þar mun safn Sverris Sigurðs-
sonar í Sjóklæðagerðinni og konu
hans Ingibjargar Guðmundsdóttur
viðamest. Athylisvert er að allir
þrír voru stórtækir atvinnu-
rekendur og miklir íslendingar,
sem létu brjóstvitið ráða í lista-
verkakaupum, en voru hér mörg-
um opinberum innkaupanefndum
þefvísari á ýmsar þjóðargersemar.
I ljósi þessa alls, þykir mér rétt
að lesa í nokkur málverk svo
framningurinn fari síður frarnhjá
fólki, að auk er um slíkan listvið-
burð að ræða, að hann myndi hvar-
vetna á Norðurlöndum kalla á fullt
hús alla daga, hvað þá í hinum
stærri löndum Evrópu.
Það sem gerði Gunnlaug Pétur
Blöndal (1893-1962) með tíð og
tíma að einum ástsælasta málara
íslenzku þjóðarinnar voru án efa
hin munúðarfullu myndverk hans
af ungum konum, en slík höfðu
aldrei sést fyrr í íslenskri mynd-
list. Hér var málarinn af feta
franska hefð, einkum eins og hún
birtist í dúkum pólskfædda málar-
ans Moise Kisling (Kraká 1884-
Sanary-sur-Mer 1975) en einnig
Kees van Dongen (Delfshaven í ná-
grenni Rotterdam 1877- Mónakó
1968). Báðir voru þeir fulltrúar
hins svonefnda Parísarskóla og
með virkustu málurunum á Mont-
parnasse um sína tíð. Kisling nam
við Fagurlistaskólann í París frá
1910, hóf þar nám á líkum tíma og
Jón Stefánsson hætti hjá Matisse!
Kisling hreifst upprunalega af
áhrifastefnunni, impressjónistun-
um, einkum Cézanne líkt og Jón
Stefánsson, tók svo þátt í kúbísku
tilraunum frumherjanna Picasso,
Braque og Gris, en var einnig í
sambandi við Derain og Modigli-
ani. Þróaði mjög persónulegan og
auðþekkjanlegan stfl, eins konar
sambland af öllu saman, stfleink-
enni sem ljóðrænt þunglyndi og
dreymandi fjarhygli einkenndi.
Dongen var meira fyrir úthverft
innsæi í anda villidýranna, Fauv-
istanna, áður en hann sneri sér að
heimslegri málunarmáta sem
gerði hann að einum eftirsóttasta
portrettmálara efri stétta Parísar-
borgar, litir mynda hans voru oft
mjög sterkir og efnisríkir en mild-
uðust er fram sótti.
Eftir námsdvöl í Kaupmanna-
höfn og síðar Ósló, þar sem Gunn-
laugur nam hjá þeim nafnkennda
málara Christian Krogh, hélt hann
til Parísar og innritaðist í nýstofn-
aðan og eftirsóttan skóla André
Lhote 1921, sem málaði í litríkum
kúbisma og var hátt skrifaður
meðal ungra og framsækinna listn-
ema, ekki síst frá Norðurlöndum.
Það var stórt stökk frá Krogh til
Lhote, og þótt franski lærimeista-
rinn væri áhrifamikill rökfræðing-
ur á myndlist má vera greinilegt
að einu áhrifin frá honum sem skil-
uðu sér til Islendingsins, voru djörf
litameðferð og kúbisk og vits-
munaleg myndbygging. Hins veg-
ar voru áhrifin mun sýnilegri frá
þeim fyrrnefndu, Kisling og van
Dongen, sem Gunnlaugur mun
vafalítið hafa haft gott tækifæri til
að fylgjast með í gegnum Lhote, en
allir höfðu þessir málarar vel
merkjanleg stfleinkenni. Það
höfðu þeir Gunnlaugur og Lhote
þó sameiginlegt, að vera báðir út-
lærðir tréskurðarmeistarar sem
kemur að nokkru fram í málverk-
um beggja, en á mjög ólíkan hátt.
Málverkið Spönsk hefðarmær er
í sýningarskrá sagt vera frá 1964,
sem getur auðvitað ekki staðist,
bæði var listamaðurinn látinn og
svo er myndstfllinn mjög frábrugð-
inn því sem hann málaði seinni
hluta listferils síns, giska öllu frek-
ar á 1934. Þetta er afar glæsilega
máiuð mynd og útgeislan hennar
slík að hún dregur á þann veg at-
hygli til sín þar sem hún hangir á
vesturvegg Vestursalar, að flest
hverfur í nágrenninu. Og eins og
fleiri konumyndir sem Gunnlaug-
ur málaði á þessum árum er yfir
henni mjúk plastísk áferð sem get-
ur minnt á fagurlega mótaðan og
fágaðan tréskurð. Litameðferðin
er einnig plastísk í tónbrigðum sín-
um, þannig að öll áherslan er lögð
á sterklega mótaða og samræmda
heild. Augu konunnar eru fjarræn,
tómleg og dreymandi sem eykur á
þokkafullan og ástleitinn Ijákraft-
inn, pensilstrokurnar leiða hugann
eitt augnablik að Cézanne, en þó
enn fi-ekar Kisling og í forgrunni
myndbyggingarinnar mótar fyrir
stólbrík sem var algengt fyrirbæri
í einhverri mynd, jafnt hjá Cézan-
ne sem sporgöngumönnum hans,
kúbistunum og síðkúbistunum.
Þótt hendi konunnar sem hún
styður léttlega á stólbríkina sé rétt
merkjanleg og teikningin þar frá-
brugðin og skissukenndari öðrum
þáttum myndheildarinnar, fellur
hún afar vel að byggingunni, hver
og einn getur gengið úr skugga
um það með því einu að setja fing-
ur sína hér yfir, því þá verður rým-
istilfinningin allt önnur.
Undarlegt til þess að hugsa er
svo er komið, að í þann tíma er
myndin var máluð þóttu slíkar
myndir afar djarfar og nektar-
myndir voru það sem fólki datt síst
í hug að hengja upp í híbýlum sín-
um, þurfti hugrekki til, vakti eftir-
tekt og umtal. Stúlkur er létu mála
sig með ber bijóst, hvað þá all-
snaktar, voru mjög svo á milli
tannanna á fólki og var þannig
langt fram eftir öldinni, hér
greindi margur í verbúðinni á út-
skerinu ekki hina sígildu og for-
mrænu fegurð í nektinni. Fyrir
aðra voru þesslags myndverk
Gunnlaugs Blöndals þó nokkur
undantekning vegna hins óræða
og yfirnáttúrulega sakleysis sem
útfrá þeim streymdi og höfðaði
meira til upphafinna kennda fólks
en nokkurrar tegundar losta. Tím-
inn stóð kyrr í þeim og þær voni
líkari íkonum í kvenlíki en holdleg-
um sköpunarverkum, vöktu að
vísu upp áleitnar girndir og þrár,
en þó laugaðar allri synd í mann-
heimi. Eitthvað svo blítt og ástleit-
ið og samt óhöndlanlegt, líkast
birtingarmynd femme fatale,
hættulegrar konu og guðsmóður-
innar um leið.
Bragi Asgeirsson
‘TiCBoð Visa ocj 9íeimsfcCú66sins:
8 daga ferð til Suður-Afríku um páska hlýtur
frábærar móttökur og selst ört, enda er verðið
ótrálegt.
Á tæpri viku seldist meira en helmingur sæta. Ferðin er
auðveld, beint flug í fylgd valinna ferarstjóra og drauma-
aðstaða ftíið ferðcrfýsitigu!
Cape Town er höfuðborg héraðs sem
vart á sinn líka í heiminum.
Mesta blóma- og ávaxtaland
heimsins, glitrandi af fegurð
náttúrunnar.
<Þú flCeymir seint útsýni af 'Borðfjattinu né
Qóðrarvonaríiöfða eða kyöíii á WATEHCF^O!7\£T
Misstu e fc íc i af ó cj C ey m an C eg um p ds kum
í Cape ‘Ioiun 16.-23. apríC.
Staðfestingargjald aðeins kr. 15.000 (má greiða á næsta úttektartímabili)
FERÐASKRIFSTOFAN
PRJMA"
HEIMSKLUBBUR INCOLFS
e *Hnm
Pöntunarsímí: 56 20 400
Utnefnd í alþjóðasamtökin EXCELLENCE IN TKAVEL NETWORK fyrir frábærar ferðir
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is