Morgunblaðið - 16.01.2000, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.01.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000 25 Geðhjálp segir niðurskurð fyrirhugaðan Engar ákvarðanir teknar, segir forstjóri spítalanna „BOÐAÐUR hefur verið stórfelld- ur niðurskurður á geðdeildum. A sama tíma og opin umræða er með- al almennings um þjóðarátak gegn þunglyndi ræða heilbrigðisyfirvöld bak við tjöldin um skerðingu á geð- heilbrigðisþjónustu. Skerðingu sem mun snerta fjölda þunglyndissjúkl- inga.“ Ofangreint kemur fram í frétt frá Pétri Haukssyni, formanni Geð- hjálpar, og Ingólfi H. Ingólfssyni, framkvæmdastjóra Geðhjálpar, sem barst Morgunblaðinu í gær. Segir þar jafnframt að stjórnvöld hafi boðað að geðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur (SHR) þurfi að skera niður um 100 milljónir miðað við rekstur síðasta árs. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð- isráðherra og Magnús Pétursson, forstjóri Ríkisspítalanna, mótmæla þessum staðhæfingum. Magnús segir að þessar yfirlýs- ingar forsvarsmanna Geðhjálpar séu algjörlega ótímabærar og stormur í glasi. „Pað er rangt hjá þeim að stjórnvöld hafi boðað nið- urskurð, það eru sjúkrahúsin sjálf sem þurfa að fjalla um þessi mál,“ segir Magnús. Hann segir að sjúkrahúsin í Reykjavík standi frammi fyrir því að halda sig innan fjárlaga og nú sé verið vinna að rekstraráætlun ársins sem tilbúin verði í lok mánaðarins. I frétt Geðhjálpar segir ennfrem- ur svo um ætlaðan niðurskurð á SHR: „Sjúkrahúsinu í heild er gert að spara 260 milljónir. Geðdeildirn- ar kosta 410 millj. á ári, þar af eru 200 millj. bundnar í rekstur Arnar- holts. Skurðdeildin kostar aftur á móti 1.300 millj. á ári en þarf ekki að skera niður. Þetta sýnir að for- dómar gegn geðsjúkdómum eru meiri en áður var talið.“ Forstjóri spítalanna segir svo um það atriði, að nú sé verið að fara yf- ir alla starfsemi og rekstur spítal- anna, geðdeildir jafnt sem aðrar, en engar ákvarðanir hafi verið teknar um niðurskurð. Benda mætti hins vegar á að stjórnvöld hafi gert sér far um að bæta aðstöðu geðsjúkra á síðustu misserum. Óviðeigandi að halda slíku fram í yfirlýsingu frá Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráðherra segir að stjórnvöld hafi hvorki boð- að né lagt á ráðin um 100 milljóna króna niðurskurð á geðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur eins og forráðamenn Geðhjálpar hafi hald- ið fram. „Það er afar óviðeigandi að halda slíku fram og tengja til dæm- is við sjálfsvígstilraunir, eins og gert er í fréttatilkynningu frá Geð- hjálp. Heilbrigðisráðherra þykir miður að félagasamtökin Geðhjálp skuli beita sér með þessum hætti,“ segir í yfirlýsingu ráðherra. Heilbrigðisráðherra bendir á að lögð hafi verið áhersla á að treysta fjárhag stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík, sérstaklega síðustu tvö árin. Bent er á að framlög til sjúkrahúsanna tveggja hafi árið 1998 átt að vera 13,9 milljarðar króna en hafi orðið í raun 15,3 mill- jarðar. í fyrra hafi framlög verið áætluð 15,3 milljarðar en þau hafi fengið 16,6 milljarða. í ár geri fjár- lög ráð fyrir 17,4 milljarða króna framlagi og við þá upphæð bætist 660 milljónir vegna stofnkostnaðar. ,A-f tölunum sést að það eru öf- ugmæli að halda því fram að fjár- lög, eins og Alþingi hefur samþykkt þau, leiði til geigvænlegs niður- skurðar á þjónustu við geðsjúkn, eins og lesa má út úr fréttatilkynn- ingu Geðhjálpar,“ segir að lokum í yfirlýsingu heilbrigðisráðherra. Kjúklingasala hefur enn ekki náð sér á strik SALA á kjúklingum er enn um- talsvert minni en hún var sl. sum- ar, áður en umræða um kamphylo- bakter-sýkingar kom upp. Framleiðsla á kjúklingum hefur verið meiri en sala frá því í ágúst í sumar og því hafa birgðir safnast fyrir hjá framleiðendum. Sala á kjúklingum jókst mikið á árunum 1997 og 1998 og framan af árinu 1999. I lok júlí kom upp um- ræða um kampylo-sýkingar í kjúkl- ingum og dró við það verulega úr sölu. Salan í ágúst fór niður í 229 tonn en hafði verið 287 tonn í júlí. Samkvæmt nýjustu tölum Fram- leiðsluráðs landbúnaðarins hefur kjúklingasala ekki enn náð sér al- mennilega á strik eftir þetta áfall sem greinin varð fyrir. Salan í nó- vember varð 224 tonn, en minnst varð hún í október 201 tonn. Framleiðsla á kjúklingum hefur verið meiri en salan frá því að um- ræðan um kampylo-sýkingar kom upp. Munur á framleiðslu- og sölu- tölum frá ágúst til nóvember er rétt rúmlega 100 tonn, sem er sú birgðasöfnun sem átt hefur sér stað á þessu tímabili. Þrátt fyrir að kjúklingasala hafi dregist saman á seinni helmingi ársins er ljóst að hún hefur samt verið meiri á árinu 1999 en á árinu 1998. Ástæðan er mikil söluaukn- ing á fyrri hluta síðasta árs. Tölur liggja ekki fyrir um verð- þróun á kjúklingum á síðari hluta ársins, en talsvert hefur verið um að kjúklingar hafi verið boðnir á tilboðsverði. Út frá því má álykta að kjúklingaverð hafi eitthvað lækkað á seinni hluta ársins. Borgarstjóri um yfírvofandi útburð úr félagslegum íbúðum Mikilvægast að fólk sýni viðleitni INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, segir í samtali við Morgunblaðið að ljóst sé að fólk geti ekki ákveðið sjálft hvort það býr í fríu húsnæði eða ekki, um það gildi ákveðnar reglur og þær gildi um alla. I haust ákvað borgarráð að leigusamningum þeirra leigjenda félagslegra íbúða í Reykjavík, sem ekki hefðu greitt leigu í meira en ár, yrði rift innan nokkurra mán- aða, semdu þeir ekki um greiðslu skulda sinna og að í kjölfarið gæti þurft að vísa þeim út. Þá var þetta hópur um 50 leigjenda, en að sögn Ingibjargar Sólrúnar hefur þeim fækkað og eru þeir nú 29. „Eftir helgi verður farið yfir þau mál sem eftir standa og reynt að átta sig á því hvernig er hægt að vinna úr þeim, með þessum ein- staklingum. Það verður reynt að gera allt sem hægt er til að koma þessu fólki á réttan kjöl. En ef fólk vill ekki borga og sýnir enga við- leitni í þá átt að semja um þessi mál getur orðið óhjákvæmilegt að vísa fólki út en það vonast auð- vitað allir til þess að svo verði ekki.“ Ingibjörg Sólrún segir mikil- vægt að umræddir leigjendur leiti til Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna þar sem farið verði yfir stöðu þeirra og gerð áætlun um hvernig þeir geti komið málum sínum í rétt horf og samið um það sem eftir standi af skuldum þeirra. „Það er ekki gerð krafa um að fólk greiði sínar skuldir á staðn- um, heldur að það semji um skuld- irnar. Það er hægt að semja um þær til langs tíma og ef fólk er ekki talið hafa greiðslugetu getur það sótt um styrk til Félgagsþjón- ustunnar. Það sem er mikilvægast er að fólk sýni viðleitni og að það sé samið um þessa hluti,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar um afskrifaða skuld bæjarins Liður í að bæta stöðu leigjenda félagslegra íbúða Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir að sú ákvörð- un að fella niður um 20 milljóna króna skuld húsnæðisnefndar bæj- arins, sé liður í því að koma málum leigjenda félagslegi’a íbúða í betra horf, en skuldirnar voru að mestu leyti tilkomnar vegna vangoldinnar leigu þeirra. „Hér erum við að afskrifa skuldir sem safnast hafa upp á mörgum ár- um og talið var að bæjarfélagið næði hreinlega ekki að innheimta.“ Magnús segir þessar skuldir hafa verið vegna 50 einstaklinga og að 30 þeirra séu fluttir úr umræddum íbúðum og það jafnvel fyrir all löngu. „Við höfum verið að reyna að koma þessum málum í lag og var ákveðið að afskrifa skuldir þar sem við sáum að innheimtuaðgerðir voru fyrirfram vonlausar. En það þýðir ekki að við ætlum að taka reglulega upp á því að afskrifa skuldir. Við erum miklu frekar að reyna að hjálpa fólki til að koma málum sínum í lag og svo verður reynt að fá það til að halda í horf- inu.“ Magnús segir að reynt verði að aðstoða fólk svo sú staða skapist ekki að það nái að safna upp svo háum leiguskuldum. Hann segir að ekki hafi þótt ástæða til að vísa umræddum leigjendum út úr íbúð- um sínum, en að héðan í frá verði ætlast til þess að fólk borgi leiguna. r A sunnudögum eru fjölmargar verslanir opnar. VERSLANIR frá kl. 13.00 - 17.00 STJÖRNUTORG skyndibita- og veitingasvæðiö frákl. 11.00-21.00 Aörir VEITINGASTAÐIR og KRINGLUBÍÓ eru meö opið fram eftir kvöldi. Sími skrifslofu: 568 - 9200 Upplýsingasími: 588 - 7788
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.