Morgunblaðið - 16.01.2000, Side 30
MORGUNBLAÐIÐ
30 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000
Morgunblaðið/Ásdís
Magni Sigurhansson og Guðrún Kristjánsdóttir, eigendur Álnabæjar.
GARDÍNUR FYRIR
GÁTTIRNAR
VŒsnmmamtfF
Á SUIMNUDEGI
► Guðrún Kristinsdóttir fæddist árið 1945 í Reykjavík en flutti níu
mánaða gömul til Keflavíkur. Hún lauk hefðbundinni skólagöngu
auk náms í Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Eftir að hún gifti sig
sinnti hún heimili og uppeldi en þegar börnin voru orðin stálpuð
vann hún nokkur sumur hjá Islenskum markaði á Keflavíkur-
flugvelli. Verslunina Álnabæ í Keflavík keypti hún haustið 1975
ásamt eiginmanni sínum, Magna Sigurhanssyni, en við rekstrinum
tóku þau 1. janúar 1976.
► Magni fæddist árið 1943 í Reykjavík en flutti til Keflavíkur átta
ára gamall. Eftir gagnfræðapróf hóf hann nám í Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík og lauk prófi þaðan 1965. Hann var 15 ára þegar
hann fór í fyrsta síldartúrinn og stundaði sfldveiðar í mörg sumur
frá Siglufírði eftir það. Síðustu tvö sumrin á námsárunum var
hann farmaður hjá Hafskip og varð fastráðinn þar strax að námi
loknu. Á árunum 1976-1979 vann hann í títvegsbankanum í Kefla-
vík eða þar til hann hóf störf sem framkvæmdasljóri Álnabæjar.
Magni er einn af stofnendum Hollvinafélags Stýrimannaskólans.
Guðrún og Magni eiga tvö börn og sex barnabörn. Ellert Þór, son-
ur þeirra, sér um framleiðsludeild Álnabæjar í Reykjavík, en dótt-
irin, Unnur Magnea, býr í Keflavík og sér maður hennar, Einar
Valgeirsson, að hluta til um rekstur Álnabæjar í Keflavík.
eftir Hildi Friðriksdóttur
GUÐRÚN segist alltaf hafa verið
mikill „gardínusjúklingur", eins og
reyndar margir aðrir Suðurnesja-
búar. Að hennar sögn var ekki
óalgengt á uppgangstímum útgerð-
ar í Keflavík, að fólk ætti bæði
sumar- og vetrargardínur fyrir alla
glugga fyrir utan fjórar til fimm
gerðir af eldhúsgardínum, ef jólag-
ardínurnar voru teknar með.
„Við vorum reyndar fyrst til
þess að bjóða upp á sérstakar jóla-
gardínur í eldhús fyrir 17-18 árum.
Þá hafði enginn heyrt um slíkt,“
segir Guðrún og nær í myndir af
ýmiss konar uppsetningum til að
sýna blaðamanni.
Það var þessi gríðarlegi áhugi
fyrir gardínum sem varð til þess að
samstarfskona Guðrúnar á Kefla-
víkurflugvelli, sem hafði einnig
rekið Álnabæ í tvö ár, spurði hvort
hún væri ekki til í að kaupa versl-
unina, sem seldi bæði vefnaðarvöru
og gardínur. Guðrún játti því án
umhugsunar og fékk fullan stuðn-
ing Magna, sem þá var til sjós.
„Við höfðum í um það bil þrjú ár
verið að leita að einhvers konar
starfsemi fyrir Guðrúnu til að
glíma við þegar börnin voru að
verða stór,“ bætir Magni við.
Fólk hristi höfuðið
Fólki þótti það mikil bjartsýni
hjá þeim hjónum að kaupa verslun-
ina og taka við henni í janúar þeg-
ar sala á gardínum og vefnaðarvör-
um lá alménnt niðri. Ekki fórnuðu
menn síður höndum þegar þau
ákváðu þremur mánuðum seinna
að kaupa 130 fm húsnæði við
Tjarnargötu 17 undir verslunina,
sem hafði fram til þessa verið í
leiguhúsnæði. Magni og Guðrún
voru hins vegar full bjartsýni, enda
var Álnabær eina verslunin í Kefla-
vík sem seldi gardínur. Guðrún
rifjar þó upp að þegar þau keyptu
búðina hafði einungis ein rúlla af
gardínuborðum verið seld allt árið
á undan! Hún segist þó aldrei hafa
hræðst það að verslunin myndi
ekki ganga. Galdurinn var að finna
eitthvað sem væri öðruvísi en var
til á markaðnum.
„Við fórum fljótlega að selja til-
búnar eldhúsgardínur sem voru í
allt öðrum stíl en áður hafði sést á
íslandi," segir Guðrún. „Við flutt-
um inn allt hráefni og hönnuðum
gardínurnar sjálf og létum sauma
þær. Móðir min, Þuríður Þórðar-
dóttir, saumaði mikið fyrir okkur
og var okkur mjög innan handar
allt þar til hún lést. Hún saumaði
allt heima, því við höfðum auðvitað
yfir engri saumastofu að ráða.“
Það voru ekki einungis Suður-
nesjamenn sem tóku þessari nýj-
ung vel heldur spurðist þetta fram-
tak til Reykjavíkur og menn gerðu
sér ferð til Keflavíkur til þess að
kaupa gardínur. Fljótlega sóttu
Magni og Guðrún sýningar víðs
vegar um heim og voru nösk að
finna ný og öðruvísi efni en fengist
höfðu hér á landi. „Á þessum tíma
var engin heildsala hér með neinar
spennandi vörur svo það var ekki
um annað að ræða en leita að þeim
erlendis. Við hönnuðum gardínurn-
ar nánast á staðnum eða sáum að
minnsta kosti hvað passaði vel
saman,“ segir Magni fullur áhuga.
Hann er því spurður hvort hann
hafi einnig verið áhugamaður um
gardínur gegnum tíðina.
„Nei,“ svarar hann hlæjandi, „en
við vorum í þessu saman og því
veltum við þessu óhjákvæmilega
fyrir okkur sarnan."
Hann með fjármálin, hún í
framkvæmdinni
Verkaskiptingin var frá upphafi
skýr milli þeirra Magna og Guð-
rúnar og hefur verið alla tíð síðan,
hann hefur séð um bókhaldið en
hún um innkaupin og hönnunina. í
fyrstu var bókhaldið unnið á kvöld-
in og um helgar við skrifborð í
svefnherbergi þeirra hjóna en í
júní 1979 sneri Magni sér alfarið
að rekstri verslunarinnar. Þekk-
inguna hafa þau byggt upp jafnt og
þétt gegnum árin og hefur hún
haldist í hendur við aukin umsvif.
Álnabær er nú eina verslunin
hér á landi sem býður upp á „allt
fyrir glugga“ eins og Magni orðar
það. „Við eigum vélar sem gerir
okkur kleift að leysa öll verkefni
sem við fáum í hendurnar í sam-
bandi við gluggatjöld, allt frá vatt-
eruðum rúmteppum fyrir hótel og
upp í rafknúin gluggatjöld eins og
við framleiddum fyrir Hitaveitu
Suðurnesja. Gluggatjöldin eru
tæknilega þau fullkomnustu sem
eru til hér á landi. Einnig erum við
með annað stórt verkefni núna,
sem er að útbúa gluggatjöld fyrir
Safnaðarheimilið í Keflavík."
Spurð hvort mikið sé um útboð á
þessum markaði segja þau svo
vera. „Við höfum alltaf komið bet-
ur út úr verðlagningu á fram-
leiðsluvörum okkar en á glugga-
tjöldum í slíkum útboðum.
Verðlagningin á gluggatjöldum er
oft þannig að viðkomandi hefur
nánast ekkert út úr því sem hann
er að bjóða í og stundum þannig að
menn borga með sér. Við höfum
efni á því að taka ekki þátt í því.
Útboð eru ekki það sem ríður
baggamuninn hjá okkur, heldur er
stærsti viðskiptavinahópurinn ein-
staklingar," segja þau.
Opnuðu útibú í Reykjavík
Þau eru eflaust ekki mörg fyrir-
tækin á íslandi, sem hafa hafið
rekstur sinn úti á landi og opnað
útibú í höfuðborginni, en þannig
var um Álnabæ. I ágúst 1979 var
opnuð verslun í Síðumúla 22 undir
nafni Álnabæjar og var hún rekin
sem útibú allt til ársins 1989. Þá
var lögheimili fyrirtækisins flutt til
Reykjavíkur með útibú í Keflavík.
Skömmu síðar fluttu Guðrún og
Magni einnig til Reykjavíkur.
Opnun verslunarinnar í Reykja-
vík gjörbreytti stöðunni. „Við þre-
földuðum söluna á skömmum tíma.
Ástæðan var sú að við vorum með
ýmsar nýjungar eins og til dæmis
eldhúsgardínurnar, en einnig lögð-
um við mikið upp úr því að hafa
dýr, góð efni bæði stórisa og eins
velúrgardínur og alls kyns saum-
aða kappa.“
Þau segja að samkeppnisaðilarn-
ir hafi ekki tekið strax við sér svo
þau bjuggu við ákveðið forskot um
tíma. Nú er samkeppnin hins vegar
orðin mjög hörð og hefur að sögn
Magna aldrei verið meiri. Hann
segir að fyrirtækin séu ekki mörg
en því öflugri hvert um sig. Til að
standast samkeppni hafa þau alltaf
lagt mikla áherslu á að hafa gott
afgreiðslufólk, enda telja þau mjög
mikilvægt að starfsfólkið sé viljugt
að hjálpa viðskiptavininum og vera
tilbúið að setja sig inn i alls kyns
málefni „Við höfum alltaf sett við-
skiptavininn í öndvegi," segir
Magni og Guðrún bætir við að
Álnabær hafi verið meðal fyrstu
verslana til þess að lána fólki gar-
dínur heim. Hún segir einnig að
boðið sé upp á ráðgjafaþjónustu,
þar sem fagmaður komi heim til
viðskiptavinarins, ráðleggi honum
um uppsetningu og val á efnum,
saumastofan sjái um að sauma gar-
dínurnar, sem fagmaðurinn setji
síðan upp.
Ferillinn
Umsvif Álnabæjar hafa aukist
jafnt og þétt allt frá upphafi og
veltan einnig, ef undan eru skilin
„gjaldþrotaárin miklu“ 1988-1991,
en þá varð samdrátturinn saman-
lagt um 20% öll árin. „Árið 1981
keyptum við Z-brautir í Kópavogi
sem framleiddi gardínubrautir,
1983 opnuðum við okkar eigin
saumastofu, 1984 stækkuðum við
húsnæðið í Keflavík og þá fyrst
fékk ég eigin skrifstofu og fyrsti
starfsmaðurinn var ráðinn á skrif-
stofuna í hlutastarf,“ segir Magni.
„Árið 1985 voru rimlagluggatjöld
að ryðja sér til rúms og þá keypt-
um við vélar til að hefja fram-
leiðslu á þeim. Síðan keyptum við
Gardínuhúsið og rákum það í 1‘A ár
en sameinuðum það síðan Álnabæ.
Árið 1987 fórum við að framleiða
plíseruð gluggatjöld, svokölluð sól-
argluggatjöld. Sama ár var byggt
við verslunina í Keflavík, enda
gekk reksturinn vel þar.“
„Keflvíkingar eru alveg ótrúlega
fljótir að taka við sér þegar nýj-
ungar eru annars vegar og fljótari
en nokkrir aðrir á landinu," heldur
Guðrún áfram.
Aðspurð segja þau ekki ólíkegt
að velgengni fyrirtækisins megi að
hluta rekja til þess að þau séu sjálf
nýjungagjörn, þannig að þau séu
fljót að koma auga á ný tækifæri,
nýjar línur og strauma. Einnig
taka þau fram að yfirbygging fyrir-
tækisins hafi aldrei verið mikil, til
dæmis hafi skrifstofumaður ekki
verið ráðinn í fullt starf fyrr en
1988. Heildarfjöldi starfsmanna er
nú um 30 manns, sem skiptist á
milli verslananna, saumastofunnar,
framleiðslunnar og skrifstofunnar.
Þegar kominn var tími til að
stækka húsnæðið í Reykjavík
keyptu þau málningarvörufyrir-
tækið Orku, sem var til húsa í
Síðuinúla 32. Eftir nokkra mánuði
sáu þau að verslunin féll illa að
y:
||