Morgunblaðið - 16.01.2000, Síða 39

Morgunblaðið - 16.01.2000, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000 39 i Sigga og Önnu, systur Ingibjargar. Þau tóku á móti okkur á flugvellin- um. A meðan þær systur heilsuðust af þeim innileik sem ætíð hefur ein- kennt samband þeirra, heilsuðumst við verðandi svilarnir og ég fann kankvís og athugul augu hans mæla mig út. Hér mættum við Ingibjörg hlýju og gestrisni eins og við höfum svo oft notið hjá þeim Sigga og Önnu á árunum sem síðan eru liðin. Gunn- ar Þór var á fyrsta ári, þegar við heimsóttum fjölskylduna í Helsing- borg og þar kynntist ég einnig eldri drengjunum þeirra Sigga og Önnu, þeim Kjartani og Pétri. Eg kann ekki að nefna barnbetri mann en hann Sigga og kærleiksríkt samband hans við drengina sína þrjá ber fagurt vitni ræktarsömum fíiður. Eftir að þau fluttu heim til íslands fjölgaði samverustundum okkar og þær eru margar og góðar minning- amar sem við Ingibjörg og synir okkar eigum um slíkar samvistir, m.a. tjaldútilegur og ferðir í sumar- bústaði víða um land. Siggi var nátt- úruunnandi. Hann dró gjaman fram kíkinn og fylgdist með fuglalífi og naut sín í fógm umhverfi. Ég minnist kyrrlátra sumarkvölda við veiðar á grónum vatnsbakka. Það var ekkert meginatriði hvort fiskur beit á. Siggi naut útivem og samvemnnar með fjölskyldunni. Hann var þolinmóður leiðbeinandi og hjálpaði drengjunum að eiga við veiðarfærin. Ég minnist með þakklæti fjömga umræðna, léttleika og glaðværðar sem mótaðist ekki síst af næmri kímnigáfu Sigga og vel ígrunduðum athugasemdum hans um málefni líð- andi stundar. Siggi var yfirvegaður og rólyndur og kunni þá list að af- greiða möguleg ágreiningsmál með léttleika þess sem gjaman sér spaugilegu hliðina á málunum. Hann barst ekki mikið á og virkaði jafnvel hlédrægur, en var þó um leið mjög virkur í starfi víða þar sem hann fann framlag sitt koma að gagni. Afahlutverkið ræktaði hann einnig af alúð og þau Anna hafa umvafið Söm Rut með ást og umhyggju. Siggi var líka stoltur yfir litla sonar- syninum sem fæddist í nóvember síð- astliðinn, en fékk ekki marga daga til að njóta samvista við hann. Elsku Anna, mér er orða vant gagnvart harmi ykkar og við stöndum öll sem lömuð. Þið Siggi byggðuð upp sam- henta fjölskyldu og ykkar yndislegu drengir og fjölskyldur þeirra standa þétt með þér í ykkar miklu sorg. Ég veit þið sækið styrk hvert til annars og í ljúfar minningar um kærleiksrík- an heimilisföður. Blessuð sé minning hans. Garðar Mýrdal. Kæri vinur, þegar Þór bróðir þinn hringdi og kona mín sagði mér að Þór Ottesen væri í símanum þá gladdist ég og hélt að Hagaskólaárangurinn ætlaði ef til vill að hittast aftur. En hvílíkt reiðarslag, minn besti vinur til margra ára hafði látist snögglega eft- ir stutt veikindi sunnudaginn 9. jan- úar langt um aldur fram. Siggi Pétur valdi mig sem vin. Það varð mér mikil gæfa. Mér er það minnisstætt hvemig vinátta okkar þróaðist. Fyrst í gegnum Mela- og Hagaskólann, íþróttirnar og síðar fé- lagslíf unglingsáranna. Á þessum umbyltingarárum upp úr 1960 gerðist margt sem menn hafa síðar búið að. Þá áttu menn ferskar og glæstar hugmyndir um lífið og til- veruna. En eins og fyrr og síðar á öldinni trúðu menn á stjórnmálafor- ingja. Siggi var ótrúlega næmur á hin raunverulegu vandamál í Ijósi þess pólitíska ofurhita sem ríkti á þessum ámm. Ég gleymi því ekki þegar við ræddum um stjómmál þessara ára og urðum t.d. sammála um að það versta hugsanlega hefði hitt öreig- ana, að öreigabyltingin hefði orðið í Sovétríkjunum. Þar var engin lýð- ræðishefð. Við töldum báðir að þeir sem hafa verið illa kúgaðir væm ófærir um að stjóma öðmm. Við velt- um því fyrir okkur hvað gerst hefði ef byltingin hefði átt sér stað t.d. í Bret- landi, Bandaríkjunum eða Þýska- landi. Við fundum fljótlega að við áttum sameiginlega drauma, m.a. um sam- einingu jafnaðarmanna. Við veltum fyrir okkur mörgum hlutum á þess- um árum. Enda gerðust hlutimir hratt hvert sem litið var. Þú varst oftast rólegui’ og fastur fyrir, stund- um dulur og íhugull en gast líka verið snöggur upp á lagið með að svara og spyrja spurninga. Þú varst alltaf að rúlla upp nýjum hlutum okkur til um- hugsunar. Það verða sjálfsagt aðrir til að minnast starfa þinna í lífinu sem vafalítið hafa notið skarpskyggni þinnar, samviskusemi og staðfestu. Kæri Siggi, þú varst traustur vin- ur og drengskaparmaður. Það er mér mikil gæfa að hafa kynnst þér og átt þig sem vin. Anna, þín yndislega kona, valdi þig snemma og þú að sjálfsögðu hana. Þið Anna vomð ung þegar þið funduð hvort annað. Eftir það brast fljótt flótti í liðið og við urðum hver af öðr- um félagarnir yflrmáta ástfangnir. Þrátt fyrir ánægju og gleðskap fyrri ára held ég að ástin og fjölskyldulífið hafi gefið þér miklu meira. Þú varst fjölskyldumaðurinn sem styrktir og dáðir eiginkonu þína og syni á þinn hljóðláta hátt. Það var okkur Finnu mikil ánægja þegar þið Anna gistuð hjá okkur í Ar- ósum með yngsta soninn, Gunnar Þór, svo og aðrar samverustundir fyrr og síðar eru okkur ekki síður minnisstæðar. Kæra Anna, synir og fjölskylda, við Finna sendum ykkur öllum innilegustu samúðarkveðjur. Gunnar Egill. Völvumar spáðu náttúruhamför- um og hefðbundnum stjómmálaham- forum á nýju árþúsundi en skuggi ár- þúsundsins og nýrrar aldar er mikill þegar ungir og mætir íþrótta- og af- reksmenn falla skyndilega frá í blóma lífsins. Einn þeirra er kær vin- ur okkar og félagi, Sigurður 0. Pét- ursson. Siggi Pétur var fyrirliðinn. Við höfðum flestir heyrt nafnið Siggi Pétur sem eitt af stóru nöfnunum í unglingaflokki félagsins. Á þessum ánun var Siggi tvímælalaust einn besti miðvörðurinn í yngri flokunum. Enginn okkar man eftir nokkmm sérstökum mistökum hjá honum, ekki einu sinni að dæmd væri á hann vítaspyma sem er nánast sjálfsagt í slíkri stöðu. Þrusumar og skyndi- sendingar hans á framherjana muna flestir eftir sem spiluðu fótbolta á þessum ámm. Það er okkur mörgum ógleymanlegt þegar Siggi hreinsaði frá vítateigi Þróttara yfir markvörð andstæðingsins og einum leikmanni tókst með ótrúlegum hætti eða hæl- spyrnu að bjarga marki á marklínu. Siggi var fyrirmyndar fyrirliði og mikill öðlingur og drengskaparmað- ur. Aðalsmerki Sigga sem fyrirliða var að þegar á móti blés tókst honum jafnan í hita leiksins að stappa í menn stálinu. Þá komu í Ijós hans góðu eig- inleikar. Hann var bæði yfirvegaður og rólegur. Mörgum okkar er Siggi minnisstæður á einu unglingamóti þessara ára þegar við höfðum unnið marga góða baráttusigra og lentum í hremmingum í einum leik, hvernig Siggi eyddi þeirri sút og vonbrigðum. Við félagamir söknum þín mikið. Við sendum fjölskyldu þinni okkar innilegustu samúðarkveðjur. Félagar og vinir af Lynghag- anum og Nesinu. Kveðja frá Knattspymu- félaginu Þrótti Fallinn er fyrir aldur fram góður félagi okkar og vinur í Knattspymu- félaginu Þrótti, Sigurður 0. Péturs- son. Á kveðjustund minnumst við þess að félagið okkar var stofnað fyrir hálfri öld vestur á Grímsstaðaholti. Þá var umhverfið annað en við þekkj- um í dag. Allt svæðið í nágrenni við Grímsstaðaholtið, Skerjafjörður, Ægissíðan og Melarnir, var í mótun. Þar sem í dag em stórbyggingar og skipulögð hverfi vom móar, tjarnir og braggahverfi eftir hersetuna. Börnin á þessum slóðum gengu flest í Melaskólann þar sem þau kynntust við nám og leik. Ur þessum jarðvegi spratt áhugi á íþróttum sem varð til þess að mörg þeirra gengu til liðs við Þrótt. Eitt þessara bama var Siggi P. eins og hann var ávallt kallaður af fé- lögum sínum. Frá unga aldri lék hann knatt- spyrnu og handknattleik við góðan orðstír með öllum flokkum félagsins allt upp í meistaraflokk. Við sem þekktum hann og áttum samleið með honum í gegnum tíðina minnumst góðs og ósérhlífins keppnismanns sem hafði alltaf hag liðsins í fyrir- rúmi. Síðar tók hann virkan þátt í félags- störfum. Hann sat m.a. í stjómum fé- lagsins og var fulltrúi þess í KRR. Sigurður vann ötullega og af áhuga að öllu sem sneri að framgangi fé- lagsins og var ráðhollur í besta lagi þegar til hans var leitað. Við félagar hans í Knattspymufé- laginu Þrótti minnumst hans með þakklæti og vinsemd og vottum fjöl- skyldu hans innilega samúðar. F.h. aðalstjórnar Þróttar Guðmundur Gaukur Vigfússon. Hann Siggi er dáinn. Þessi orð em í okkar huga svo fjarlæg og óraun- vemleg sem frekast er unnt. Þau em engu að síður staðreynd sem erfitt er að átta sig á og sætta sig við. Siggi var hógvær, yfirvegaður, traustur og ósérhlífinn en umfram allt hjartagóður maður sem undi sér best í faðmi fjölskyldunnar. Hann gaf af sér kærleik og velvild og kom fram við alla sem jafningja, unga sem aldna, menn og dýr. Minningamar um Sigga em marg- ar og góðar. Ótal sinnum spiluðum við fótbolta við gamla sumarbústað pabba og mömmu við Rauðavatn þar sem útbúinn var völlur á afskiptri lóð nágrannans og stóðu þá leikar langt fram á kvöld. Ekki lá hann á liði sínu frekar en fyrri daginn, þegar þurfti að flytja sumardvalarstað tengdafor- eldra hans um set og byggja upp á nýjum stað. Þannig var Siggi. Á þess- ari stundu er mér er sérstaklega minnisstætt samtal sem við Siggi átt- um á andlátsstundu föður míns og tengdaföður hans fyrir rúmu ári. Það samtal er mér mjög kært. Var það fullkomlega í takt við öll okkar sam- skipti fyrr og síðar sem ætíð ein- kenndust af vináttu og kærleik. Elsku Siggi, með söknuð og þakklæti í hjarta kveðjum við þig að sinni. Þúviltminnfaðirvera, þú vilt mig bam þitt gera, minn gæzkuríki Guð, aðsannasælufmni mín sál í elsku þinni og verði frjáls og fullkomnuð (B. Jónsson.) Elsku Anna, Kjartan, Karina, Pét- ur, Harpa, Gunnar Þór og aðrir ást- vinir, megi minningin um yndislegan mann veita ykkur kærleik og ljós um ókomna framtíð. Sveinn Sigurður Kjaríansson, Stella Sæmundsdóttir. OSWALDS sími 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN Diivíd lnger Ólafur Utfararstj. utfararstj. Útfararstj. LIKKIST U'VIN NUSTO FA EYVINDAR ÁRNASONAR t Móðir okkar, GUÐBJÖRG DANÍELSDÓTTIR frá Kolmúla, síðast til heimilis á Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, lést laugardaginn 1. janúar 2000. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd vandamanna, Guðný Hálfdanardóttir, Helena Hálfdanardóttir, Sigurbjörg Hálfdanardóttir, Þorsteinn Hálfdanarson, Steingrímur Hálfdanarson, Daníel Hálfdanarson. t Jarðarför mannsins míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, BÁRÐAR fSLEIFSSONAR arkitekts, fer fram frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 18. janúar kl. 13.30. Það væri í anda Bárðar að Bamasprtali Hrings- ins fengi að njóta minningar hans. Unnur Arnórsdóttir, Finnur Bárðarson, Iréne Jensen, Leifur Bárðarson, Vilborg Ingólfsdóttir, Inga María Leifsdóttir, Margrét María Leifsdóttir, Helgi Örn Pétursson, Máni Helgason. t Ástkær eiginkona, móðir okkar, dóttir, tengda- móðir, amma og langamma, ERLA LÁRUSDÓTTIR, Reykjavöllum, verður jarðsungin frá Kotstrandarkirkju í Ölfusi þriðjudaginn 18. janúar kl. 14.00 Sigurður Guðmundsson, Margrét Þorleifsdóttir Siebers, Edwin Siebers, Sævar Hafsteinsson, María Lourdes Hafsteinsson, Heiðrún Hafsteinsdóttir, Grímur Bjarnason, Sigurvin B. Hafsteinsson, María Fe Hafsteinsson, Sonja Engley, Þorgeir Björgvinsson, Hannes Sigurður Sigurðsson, Mínerva Bergsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum samúð og hlýhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÖNNU SIGURÐARDÓTTUR NJARÐVÍK. Logi Ásgeirsson, Svanhildur Jakobsdóttir, Ólafur Gaukur, Sigurður Jakobsson, Anna Mjöll Ólafsdóttir, Andri Gaukur Ólafsson, Guðný Sigurðardóttir, Jakob Sigurðsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Þröstur Arnórsson, Jenný Sigurðsson og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa, langafa og langalangafa, INGIMUNDAR PÉTURSSONAR frá Látrum í Aðalvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Reykjavík. Steinvör Esther Ingimundardóttir, Hlöðver Guðmundsson, Guðrún Eva Ingimundardóttir, Hrólfur G. Ingimundarson, Sigurdóra Kristinsdóttir og fjölskyldur þeirra. V

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.