Morgunblaðið - 16.01.2000, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 16.01.2000, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000 41 samvistanna við þá sem eiga stóran hlut ævinnar að baki. Njóta og jafn- framt nýta þá visku og reynslu sem þeir hafa öðlast á leið sinni um lífsins veg. Eg verð að segja að ég átti ekki sérstaklega von á því fyrir hartnær áratug að ég myndi eignast vinkonu um áttrætt, en þannig var það nú samt. Og eftir því sem árin hafa liðið hef ég betur gert mér grein fyrir hversu sérstök og verðmæt þessi vin- átta var. Eg reikna ekki með því að ég eigi eftir að kynnast annarri eins konu. Sannkallaðri ævintýrakonu. Ég sé hana fyrir mér unga og glæsilega; bóheminn við brennslu- ofninn í Listvinahúsinu, náttúru- barnið á sundbol við Ófærufoss, skíðadrottninguna á hraðferð niður hrikalegan jökulinn, ofurhugann á hlaupum undan glóandi hraunmolum eldfjallsins eða klífandi snai'bratta tinda í Ölpunum. Veiðikonuna með ótrúlegan afla norður í landi, Fjall- konuna sjálfa á íslenskum búningi, móður með börn í friðsælli sveit. Þótt ég lifði þrjátíu sinnum kæmist ég aldrei yfír brot af því sem Lydia af- rekaði á einni ævi. Það þurfti áreiðanlega mikinn kjark að elta Guðmund frá Miðdal upp um fjöll og firnindi, með frum- stæðan viðlegubúnað sem þá var, en ég held að Lydia hafi sýnt mesta hug- dirfsku þegar hún samþykkti að segja öðrum sögu sína í bók. Segja frá öllu. Líka þessum erfiðu stundum sem við flest eyðum ævinni í að reyna að gleyma. Rifja upp sárar minning- ar, endurupplifa tilfinningar sem fyr- ir löngu bærðust í brjósti manns, hlæja að mistökum eða bara skemmtilegum atvikum, gi-áta yfir örlögunum, fyrirgefa. Mér hlotnaðist sá heiður að skrásetja sögu hennar og það var einstakt hlutverk. Að fá að meðhöndla líf einhvers í orðum. Tím- unum saman sátum við í stofunni á Skólavörðustíg 43 og flettum hnaus- þykkum og risastórum úrklippum- öppum, þar sem Lydia hafði sam- viskusamlega safnað öllu sem um Guðmund eða hana var sagt á prenti um áratugaskeið. Gamlar myndir kölluðu fram hverja söguna á fætur annarri. Stundum hlógum við svo mikið að við vöktum dóttur mína sem svaf morgunlúrinn sinn á meðan við spjölluðum. Stundum grétum við báðar. Og báðar vorum við eins og unglingar á lokaprófi þegai' bókin kom út. Við vorum nýgræðingar í þessu fagi og kviðum viðtökunum. Héldumst í hendur og hétum því að flytja saman til Grænlands ef allt færi á versta veg. En við lifðum þetta af og höfðum reyndar mjög gaman af öllu umstanginu. Að sumu leyti stöðvaðist lífsklukk- an hjá Lydiu fyrir nærri 37 árum - þegar lífsförunauturinn og eina ástin í lífi hennar lést. Hún lét þá af því að flækjast um óbyggðir og öræfi, eins og í ævintýrum fyrri ára, en tók þá hlutverk sitt sem ættmóðir þeim mun fastari tökum. Hárið farið að grána nokkuð, bakið aðeins að bogna og fasið orðið reglulega ömmulegt. En hvílík amma! Einhverju sinni þegar við ræddum viðkvæmt samfélags- mál, mál sem maður bryddar helst ekki upp á í viðurvist virðulegra eldri borgara, sagði Lydia mér að hætta þessum tepruskap. Hún vissi hvað klukkan sló og það fór í taugarnar á henni þegar fólk tiplaði á tánum í kringum hana eins og hún þyldi ekki að heyra sannleikann. Hann hafði hún heyrt og séð margoft áður. „Það er ekkert nýtt undir sólinni." Þá rann það upp fyrir mér að þrátt fyrir ríf- lega fimmtíu ára aldursmun á okkur var hún jafnvel yngri en ég í hugsun. Þegar við hittumst hin síðari ár voru Kristinn og börnin yfirleitt með í för og aldrei gleymdi Lydia litlu vin- unum sínum. Eitthvað alveg sérstakt beið þeirra innpakkað og merkt fyrir hver jól. Þessi jólin reyndust hennar síðustu og ég held að hún sé hvíldinni fegin. Hún var fyrir löngu búin að gera upp sitt líf, sátt við allt. Far þú í friði kæra vinkona og hafðu þökk fyrir allt. Helga Guðrún. Amma mín. Nú er svo komið að þú ert farin yfir móðuna miklu og á þín eftir að verða sárt saknað af öllum þeim sem þótti svo vænt um þig. Á þeim árum sem þú varst á meðal okk- ar má segja að þú hafir gengið í gegn- um súrt og sætt, og má líkja því við að þú hafir klifið Everest-fjall. Ég minnist þín alltaf sem ömmu sem maður gat leitað til þegar eitthvað bjátaði á og trúað fyrir öllu. Þá má ekki gleyma fjölmörgum heimsókn- um til þín, þar sem boðið var upp á heimsins flottasta smurbrauð með skinku og roastbeef. Þú varst gest- risin, góð og trú. Við sem eftir lifum hugsum til þín með söknuði. Þó er það okkur huggun að loksins hittir þú aftur manninn sem þú elskaðir svo heitt. Þú varst eilíf brúður hans, ást ykkar er sterk og óendanleg. Elsku amma og afi, Guð geymi ykk- ur. Katrín Björk. „Það er svo skrýtið að amma er dá- in, hún var alltaf svo hress og skemmtileg," sagði Daði sonur minn um langömmu sína þegar hún dó. Þannig var hún líka alltaf. Mig langar að þakka henni ömmu minni fyrir allar góðu samverustund- imar með henni. Og það var svo gaman að eiga sér- staklega þig fyrir ömmu. Elsku amma nú ertu komin svona fín og falleg á nýjan stað þar sem þér líður vel. Bless elsku amma mín Þín Ingibjörg Lýdía. Guð skapaði engin tvö snjókorn Erfisdrylckjur ÖVdti«9ohú/ið Gf)Pi-mn Dalshraun 13 S. 555 4477 « 555 4424 Persónuleg, alhlióa útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ eins, en þú, elsku amma mín, varst al- veg sérstakt í mínum augum. Lydía Guðrún. Þegar gengið er upp Skólavörðu- stíginn, vinstra megin, má líta augum efst í götunni lítið gult hús með skor- steini. í hugum flestra er þetta bara venjulegt hús en okkur bræðrunum finnst það afar merkilegt og kært. Þar bjó amma okkar Lýdía lengstum og þótt við höfum kvatt hana nú er þetta litla hús mjög nátengt öllu sem viðkemur ömmu. í fyrndinni fannst barninu þetta heljarmikil ævintýrahöll þar sem hin dularfulla og glaðlega amma átti heima. Hún átti í það minnsta hundr- að forvitnilega hluti, ef ekki fleiri, og skemmtilegast var þegar hún sagði okkur sögur um tilurð þeirra. Nokkr- um árum síðar leit unglingurinn þar inn til að segja hæ. Ailtaf var amma hress og stundum undarlega næm á það sem pirraði sálina þá sekúnduna. Dynti gelgjunnar virtist hún skilja betur en margt henni yngra fólk sem þó kallaði sig nútímalegt. Þegar svo árunum fjölgaði enn skundaði hinn Slómobúðin öaúðskom v/ Possvogskii'kjuga^ð Sími: 554 0500 Blónwastofa Friðjtnns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. LaugarnesvegurFallegt einbýli sem er kjallari, hæð og ris ásamt góðum nýlegum 42 fm. bílskúr á þessum eftirsótta stað. Endurn. lagnir. Parket á neðri hæð. Möguleiki á allt að 5-6 svefn- herbergjum. Fallegur garður með nýrri sólverönd. Áhv. u.þ.b. 5,3 m. V. 14,3 m .2563 Smáíbúðahverfi. Vorum að fá í sölu fal- lega 66 fm 2ja herb. íbúð á 1. hæð í Skáiagerði. Parket á gólfum, flísalagt baðherb. Úr stofu er gengt út í garð. Húsið er í góðu ástandi, m.a. nýlega viðgert þak. Hagst. áhvílandi lán. V. 7,7 m.2556 Miðtún. Vorum að fá í sölu fallega 80 fm risíbúð í góðu húsi í þessu vinsæla hverfi. Gott skipulagi. Gegnheilt parket og flísar. Upphituð aðkoma. V. 9,2 m. 2561 Ásvallagata. Höfum fengið í sölu fallega 2ja herbergja íbúð á þessum eftir sótta stað. Gott skipulag og möguleiki á auka- herbergi í kjallara. Áhvílandi 2,6 m. í hagstæðum lánum. V. 5,7 m. 2553 Laugavegur 105. Nýkomið í sölu mjög verslunar- og lagerhúsnæði við Laugaveg 105. (húsnæðinu er í dag útibú (slandsbanka. Á verslunarhæð/jarðhæð eru 378 fm rými og í kjallara eru 262 fm eða samtals er um að ræða 640 fm. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Miðborgar. 2542 Laugavegur - verslunarhúsn. Höfum fengið í einkasölu u.þ.b. 300 fm nýbygg- ingu á horni Laugavegs og Snorrabrautar. Um er að ræða hús á þremur hæðum. Á 1. og 2. hæð er gert r"að fyrir verslunar- eða þjónusturými og á 3ju og efstu hæð er gert ráð fyrir skrif- stofum. Húsnæðið selst eða leigist í einu lagi. Hádð TÆróur tilhnð til afhrrrtinrjm: þ. 1. jíxií nk. t&Biri ggþt gefur Farl á skrifstafu MLanrgar. 2295 ___________ fullorðni upp brattar útitröppumar í þungum þönkum og barði dyra. Þá var hún fyrst og fremst góður vinur sem var alltaf tilbúin að Ijá eyra mis- gáfulegum hugmyndum eða verkum en um leið óhrædd að segja skoðun sína á þeim. Svona var amma alltaf í huga okkar, frábær manneskja sem gat kennt margt um lífið og tilveruna og verið óþreytandi í því að hvetja fólkið sitt áfram. En það er samt svo að flæði tímans verður ekki stöðvað og allt sem á ein- hvers staðar uppruna á sér líka endi, þótt fjarlægur virðist á stundum. Þótt hún sé horfin úr tilveru okkar, svona formlega séð, verður amma Lýdía samt héma áfram í huga okkar sem hlý minning um hetju sem virtist alltaf vita að lífið er of dýrmætt og^ fallegt til að njóta þess ekki. Magnús og Amar Egilssynir. Við viljum þakka ömmu Lydíu fyr- ir þann hlýhug og vináttu sem hún sýndi okkur alla tíð. Fjölskyldan mun ætíð minnast hennar með gleði í hjarta. Signý, Sif Heiða, Silja Hanna og Jakob. Ctfísdryddjur Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SAUR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA Upplýsingar í símum I 562 7575 & 5050 925 HH o 5 | HOTEL LOFTLEIÐIR m I t I I » ■ » « ■ » H O T » l » a { <»0«».“, OPIÐ I DAG, SUNNUDAG, KL. 12-15 Grandavegur 47 - OPIÐ HUS Vorum að fá í einkasölu, vel skipulagða og fallega 85,5 fm íbúð, á 5. hæð, með glæsilegu útsýni og yfirbyggðum svölum í blokk fyrir fólk á virðulegum aidri. Eignin skiptist í anddyri, hol, stofu, yfirbyggðar svalir, eldhús, sér- þvottahús [ íbúð, tvö herbergi og baðherbergi, Sérgeymsla í kjallara, Lyftu- blokk. Mikil og góð sameign. Þetta er eign á eftirsóttum stað. Ibúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, milli kl. 13 og 15 (bjalla 502). V. 12,5 m. 9235 Bræðraborgarstígur 32A - OPIÐ HUS Vorum að fá í einkasölu gott 98,0 fm einbýlishús á tveimur hæðum í gamla stílnum í vesturbænum. Eignin skiptist þannig, efri hæð: Anddyri, snyrting, tvær samliggjandi stofur, eldhús og borðstofa. Kjallari: Tvö herbergi, þvotta- hús, geymsla og baðherbergi. Manngengt geymsluris. Tveir inngangar og stór og gróin lóð. Húsið verður til sýnis í dag, sunnudag, milli kl. 13 og 15. V. 11,5 m. 9228 einbyli wnmHmM Ystasel. Vorum aö fá í einkasölu sérlega fallegt og vandaö einbýlishús á tveimur hæöum með tvö- földum bílskúr og fallegum og grónum garði. Eignin, sem er á tveimur hæðum, skiptist m.a. í eldhús, tvær saml. stofur, sex herbergi, tvö baöherb., saunu, sjónvarpsherbergi m. ami og þvottahús. Vandaðar innréttingar, gólf-efni og skápar. Glæsileg eign á góðum og eftirsóttum stað. Allar uppl. veitir Óskar á skrifstofu. 9218 3JA HERB. Bergstaðastræti. Sérlega glæsileg 3ja herb. íbúö á frábærum staö í Þingholtunum í nýlegu húsi, (1991), með bíl- | skúr. Eignin er vönduð í alla staði. Góö staðsetn- 1 ing. V. 13,5 m. 9225 2JA HERB. RAÐHÚS Brekkutangi Spóahólar 14. nýtt á skrá. Vandað um 253 fm raðh., sem er kj. og 2 hæðir. Á 1. hæð eru saml. stórar stofur, eldh., snyrting, innb. bílskúr o.fl. Á efri hæð eru 4 herb., baö, hol. o.fl. í kj. er stórt sjónvarpsh., herb, geymsla, þvottah. o.fl. Nýl. verönd. V. 14,9 m. 9196 hæðir wssm Hjarðarhagi. Rúmgóð 130 fm hæð ásamt 21 fm bílskúr, stór- ar suðursvalir, rúmgóð herbergi og stórar stofur. Endumýjað baöherbergi o.fl. Skipti möguleg á minni íbúð í vesturbæ. V 14,9 m. 9223 4RA-6 HERB. WKk Grettisgata. Falleg og skemmtileg (búð á tveimur hæðum ( BÚStaðavegur, bárujárnsklæddu timburhúsi í tvíb. Eignin skipt- ist í tvær stofur, borðstofu, eldhús, þrjú herbergi og baöherb. Sérgeymsla og sameiginlegt þvhús. Stór lóð fylgir eigninni. V. 11,9 m. 9210 2ja herb. 55 fm snyrtileg íbúð á 3. hæð I 3 hæða fjölbýli með sólríkum suðursvölum. V. 5,9 m. 9233 Hverfisgata. Vorum að fá I einkasölu 2ja herb. íbúð á 1. hæð | við Hverfisgötu. Eignin skiptist I stofu, herbergi, 1 snyrtingu, sturtuaöstööu og eldhús. Sameigin- f legt þvottahús. Mikiö áhvílandi. 9234 Rauðarárstígur. Vorum aö fá I sölu fallega og vel skipulagöa 2ja- f 3ja herb. íbúð á 3. hæð á eftirsóttum staö viö | Rauðarárstlg. Eignin skiptist m.a. I eitt til tvö her- | bergi, stofu, anddyri, baöherbergi og eldhús. | Tvennar svalir. Góð eign. V. 6,9 m. 9222 2ja herbergja falleg rúmgóð 64 fm (búð með sér- inngangi á jarðhæð I tvíbýli. Parket á gólfum og flísar á baði. Nýlegt rafm. V. 7,1 m. 9217 Þróttarasvæðið - nýjar sérhæðir í grónu hverfi - Aðeins tvær eftir Til sölu glæsilegar nýjar sérhæðir sem afhend- ast nk. vor. Um er að ræða 117-120 fm neðri sórhæð sem eru með mismunandi útfærslum. Sérinngangur, -hiti og -lóð. Hæðirnar skiptast I forstofu, hol, stofur, eldhús, baðherbergi, geymslu, 3 herb. o.fl. Hæöunum veröur skil- að fullbúnum að innan með fllsal. forstofu, baðherbergi og þvottahúsi. Innréttingar verða mjög vandaöar en einnig er möguleiki að velja um innréttingar og tæki að hluta. Stórar svalir eru á efri hæðum og sérverönd á neöri hasð- um. Sérinngangur og -hiti. Að utan verður húsið steinaö og klætt með sedrusviöi. Allar stéttar verða hellulagöar og með hitalögn. Staösetning er frábær og mjög stutt I alla þjónustu, útivistarsvæði, s.s. Laugardalinn o.fl. V. 14,3 m. 8834
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.