Morgunblaðið - 16.01.2000, Side 43

Morgunblaðið - 16.01.2000, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR en alltaf hélt hún reisn sinni og sigr- aðist á erfiðleikunum. Hún sýndi ótrúlegan viljastyrk þegar hún barð- ist við halda sín síðustu jól og áramót heima hjá sér. Elsku mamma, við kveðjum þig í hinsta sinn og vitum að þér líður bet- ur þar sem þú ert nú. Minningarnar lifa áfram þótt þú sért ekki lengur á meðal okkai'. Börnin þín. Elsku mamma, það var ólýsanlega sárt að finna líf þitt fjara út úr höndunum á mér svona snemma. Það er mér þó styrk- ur í sorginni að vita að löngum þján- ingum þínum er lokið og veit að þér líður vel þar sem þú ert núna í faðmi Guðs umvafin ást hans og kærleika. Þú sem varst svo ánægð með þitt nýja heimili í Kópavogi og þangað var svo gott að koma, en því miður urðu þær heimsóknir allt of fáar. Það er margt sem kemur upp í hugann á stundum sem þessum en óneitanlega eru síðustu mánuðurnir ofarlega í huga. Á þeim tíma sýndir þú hve mikill kjarkm- og dugnaður bjó í þér þegar þú háðir hildarleik við erfiðan sjúkdóm. Þú varst svo bjartsýn og ákveðin fram á síðasta dag að þú myndir hafa betur í baráttunni, en allt kom fyrir ekki. Það var svo margt sem þú ætlaðir að fram- kvæma þegar þú fluttir suður og það er sárt að það skyldi ekki rætast. Nú oma ég mér við minninganna eld og hugsa fallega til þín með þakklæti fyi'ir allt sem þú gerðir fyiir mig, stuðninginn og góðu ráðin í gegnum lífið. Sofðu rótt, elsku mamma. Þinn Valgeir. Enginn veit sína ævi fyrr en öll er og þótt lífsviljinn sé mikill er dauð- inn það afl sem ræður í lok okkar lífsskeiðs. Við vitum að kallið kemur, en það er sárt að missa móður sína á besta aldri. Nú ertu horfin á braut úr þessu lífi, laus við þjáningar veikinda þinna og hvílir í friði. Mig langar að þakka þér fyrir öll þau ár sem við áttum saman sem móðir og góð vinkona. Þú varst alltaf þannig, ung í anda, glaðlynd, hreinskilin og föst á þinum skoðun- um. Þú varst mér mikill styrkur í upp- eldi bama minna og gafst mér oft góð ráð. Bömin vom hænd af þér, sennilega vegna þess hversu opin þú varst, hláturmild og hæfileikarík að segja sögur. Þú kenndir okkur orð Guðs og börnin lærðu að biðja bænir. Ég veit að þér þótti mjög vænt um mig og hafðir mikla trú á því sem ég var að gera og það er besta veganesti sem þú gast gefið mér. Ég sakna þín mikið, elsku mamma. Guð varðveiti þig. Kristín. Elsku amma mín. Ég trúi því ekki að þú skulir vera farin frá okkur. Tilhugsunin um að geta ekki talað við þig, hlegið með þér eða faðmað þig aftur er ofsalega sársaukafull. Ég gerði mér aldrei al- mennilega grein fyrir því hvað þú varst mikilvægur þáttur í lífi mínu og hvað mér þótti mikið vænt um þig. Ég vona að þú liafir vitað hvað ég leit á þig sem mikla vinkonu og að ég bað fyrir þér oft og mörgum sinnum í veikindum þínum. Ég dáðist svo að því hvað þú varst alltaf sterk og barst þig hetjulega þótt þú værir mjög illa á þig komin. Þú varst mjög trúuð og sagðir við mig að þú værir löngu farin til himna ef guð væri ekki hjá þér. Nú hefur hann tekið þig til sín og ég er viss um að hann mun passa vel upp á þig. Þú kenndir mér bænir og ég elskaði að heyra þig segja sögur af þér þegar þú varst ung. Ég mun alltaf varðveita vel minninguna um þig í hjarta mínu og biðja fyrir þér. Eg sakna þín svo mikið, en það er gott að vita að þú skulir ekki kveljast lengur. Guð geymi þig, elsku amma mín. Þín Unnur María. Mig langar að minnast ömmu minnar með nokkrum orðum. Það var alltaf gott að koma til ömmu. Hún bjó lengi vel á Akureyri og ég fór eitt sumar ein til hennar. Hún og afi tóku alltaf vel á móti mér og fjölskyldunni. Ég man vel eftir hvernig amma hló, það var svo hátt og innilega, hún hafði alltaf góð- an húmor alveg þangað til hún dó. Ég man þegar ég var yngri og var hjá henni þá leyfði hún mér og frænda mínum að fá lánað stækkun- arglerið sitt sem hún var vön að lesa blaðið með.Við notuðum það til að kveikja eld. Amma kom hlaupandi með vatn í glasi til slökkva eldinn þegar við vorum að reyna að kæfa hann og ekkert gekk, stéttin varð sótsvört en það var ekkert mál gert úr því. Amma átti alltaf brjóstsykur í dollu inni í skáp og fannst mér hann alltaf betri hjá henni en sá sem mað- ur keypti í búð, þótt þeir væru alveg eins. Eg svaf oftast á dýnu inni hjá ömmu og afa eða reyndar var ekkert hægt að sofa, þau hrutu svo mikið. Þegar ég sagði ömmu það daginn eftir hló hún bara. Fyrir einu ári fluttu þau svo í bæinn, þá fór ég að umgangast ömmu miklu meira. Hún var svo góð kona það var gott að spjalla við hana, hún hafði frá svo mörgu að segja, t.d sögur þegar hún var ung. Svo tók hún stríðni vel. Það var mjög auðvelt að láta henni bregða og sagði hún stundum við okkur að við ættum eftir að fara al- veg með hana einhvem tímann. Síð- astliðna mánuði átti amma við erfið- an sjúkdóm að stríða. En hún gafst ekki upp, hana langaði að njóta jól- anna og ármótanna með okkur. Amma hefur alltaf verið mikið jóla- barn og henni fundust áramótin ynd- isleg. Þegar amma var búin að gera allt sem hún vildi og gat varð hún að kveðja okkur því hún gat bara ekki meira. Amma hefði ekki komist svona langt nema á trúnni og voninni og það er erfitt að sætta sig við and- lát hennar. Þessi fallega rauðhærða kona með grænu augun. Elsku amma, ég veit að sársauk- inn sem sást í augunum þínum er horfinn og þér líður örugglega miklu betur hjá guði sem þú hafðir svo mikla trú á. Takk fyrir að vera amma mín. ValaDís. Með þessari bæn langar mig að minnast elsku ömmu minnai’. Amma samdi hana sjálf og kenndi okkur systkinunum. Góði Guð, vaktu yfir okkur ðllum gefðu okkur kraft og styrk hamingju og heilsu. Leyfðu okkur góði Guð að lifa saman í hamingu, kærleika að eilífu. Amen. Lilja Kristín. www.mbl.is Haukalind 27 - OPIÐ HÚS Nýtt glæsil. 185 fm raðhús með ca 30 fm bílskúr á frábærum útsýnisstað. Húsið er fullbúið að utan sem innan með vönduðum innréttingum og gólfefnum. Lóð ekki frágengin. Áhv. húsbréf 7,6 millj. + mögul. hagst. lífeyrissjóðslán 2,4 millj. Gott verð 16,8 millj. Þórður og Erna taka á móti fólki frá kl. 13-16 í dag, sunnudag. Valhöll fasteignasala, sími 588 4477. BUÐARGERÐI. 2ja herbergja íbúð á 1. hæð með yfirbyggðum svölum. Verð 6,2 millj. Áhv. 3,4 m. byggsj. Eikarparket. Mjög góð staðsetning. Hús í góðu ástandi. 9843 ENGIHJALLI - KOP. 2ja herbergja endaíbúð á 1. hæð með sérgarði í litlu fjölbýli. Eikarparket. Hús í góðu ástandi. Verð 6,3 millj. 9849 VESTURBERG. Góð og vel skipulögð 2ja herb. íb. á 3. hæð með góðum vestursv. og fallegu útsýni yfir borgina. Nýl. innréttingar í eldhúsi. Áhv. 2,8 millj. Hús I mjög góðu ástandi. Verð 6,2 millj. 9842 FÍFUHJALLI - KÓP. Björt og mjög góð 2ja herb. íb. á jarðhæð í tvíbýli með sérinngangi. Sérþvottahús. Parket og flísar. Hiti í stéttum. Hús í mjög góðu ástandi og stendur innst í lokuðum botnlaga. Áhv. 5,5 millj. byggsj. Verð 9 millj. KLAPPARSTÍGUR - BÍLSKÝLI. Mjög góð og vel innréttuð íbúð á tveimur hæðum í lyftuhúsi ásamt stæði í bílskýli. Parket og flísar. Góðar svalir. Útsýni. Verð 12,5 millj. Frábær staðsetnig. 9856 VEGHÚS - BÍLSK. Rúmgóð 3ja herb. íb. á 2. hæð í litlu fjölb. ásamt bíl- skúr. Parket. Þvhús í íbúð. Stærð 94 fm + bílskúr. Stór stofa með svölum. Baðherb. allt flísalagt. Hús og sameign mjög góð. Verð 11,5 millj. VESTURGATA. Góð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja fb. með sérinn- gangi og skiptist í hol, gott svefnherb., tvær saml. stofur (auðvelt að breyta í herb.). Parket og flísar. Áhv. 4,3 millj. Hús í góðu ástandi. 9837 RAUÐAGERÐI - LAUS. Ný standsett og fallega innr. 3ja-4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í þnbýli. 2 svefnherb. Góðar stofur. Aðgengi út í garð. Parket og flísar. Stærð 97,5 fm. LAUS STRAX. Topp eign á góðum stað. 9824 BERGÞÓRUGATA - 2 ÍB. Góð 4ra herb. íb. á efri hæð með sérinn- gangi ásamt einstakiingsíb. á jaröhæð með sérinng. 3-4 herbergi. Nýl. eldhús og baðherb. Hús er allt endurgert, nýtt þak, gluggar og rafmagn. Bllskúr er með hita og rafmagni og er 28 fm. Verð 14,8 millj. Byggingarréttur. 9811 SELVOGSGRUNNUR - 2 ÍB. Einbýlishús á tveimur hæðum ásamt 2ja herb. íb. í kjallara með sérinngangi. 4 herbergi á efri hæð og góðar stofur. Stórar svalir. Húsið stendur á hornlóð með fallegum garöi. Stærð 225 fm. Verð 23 millj. 9801 LANGITANGI - 2 ÍB. Faliega innr. og vandað einbýli ásamt tvöf. bílskúr. ( kj. er 2ja herb. íb. með sér- inng. Á efri hæð eru 3-4 svefnherb., góðar stofur og sólstofa. Stærð 217 fm + 54 fm bílsk. Húsið er í mjög góðu ástandi. Verðlaunagarður. Hiti I stéttum og plani. 9792 OPIÐ í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 12-14 Sími 533 4040 Fax 588 8366 Ármúla 21 DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali. SUNNUDAGUR 16. JANUAR 2000 43 - ■■ ■'-.■ ■ '■ > NAMHHUNIN StettmHR S’votltlíiHiIVKMliw, feMjMM*. MrhAi'SlQtÁmiMðAtL. stÍMg Ot ..... .....- - gþl»9i. %df»Mvi»Hif. wvnikögrtifri. Gtt SWMtr " ' ' Skrifsfofuhúsnæði til leigu Okkur hefur verið falið að leigja 2. og 3. hæð hússins nr. 21 við Síðumúla. Hvor hæð er u.þ.b. 500 fm, leigurýmið er því samtals u.þ.b. 1.000 fm. Eignin afhendist tilbúin undir tréverk 1. júní nk. Góð staðsetningf Allar nánari uppl. veitir Sverrir. ■ Grandavegur 47 - opið hús 14-16. í einkasölu 66 fm glæsil. íb. á 7 hæð m. glæsil. útsýni og yfir- byggðum svölum. Sérþvottahús. Parket. Eign í sérflokki. Mikil sameign. Heitur pottur og sauna. Sameignlegur samkomusalur. Bókasafn, verslun o.fl. Öll sameign í sérflokki. Áhv. byggsj. rík. 3,7 milj. Laus fljótl. V. 9,7 m. 7885. íbúðin verður sýnd í dag milli kl. 14-16 í dag. Bjalla 705. ■ Reyðarkvísl - raðhús. Fallegt nýlegt 232 fm raðhús á 2 hæðum með um 40 fm bílskúr. Fallegur ræktaður garður. 4-5 svefnherb. Öll herb. og stofur J mjög rúmg. Frábært tækifæri á að eignast hús í þessu eftirsótta hverfi. Verð 20 millj. ■ Sólheimar 23 - lyftuhús. Skemmtileg 110 fm íbúð á þriðju hæð í eftirsóttu húsi. Glæsilegt í< útsýni. Suðaustursvalir. Gott skipulag. Einstakt tækifæri að eignast íb. f þessu eftirsótta húsi. Verð tilboð. Valhöll sími 588 4477 opið í dag 12-14. SIVIDSKIPTASTOFAN fe J Reykjavíkurvegi 60 ehf. Atvinnuhúsnæöi - Fyrirtækjasaia Viöskiptastofan býöur upp á víðtækan þjónustubakgrunn fyrir kaupendur/seljendur fyrirtækia- og atvinnuhúsnæðis. Meðal annars er öll skjalaqerð og lögfræðiráogjöf í höndum Löpmanna Hafnarfir(ji, ráðgjöf vio mat a ástandi bókhalds í höndum Bokhaldsstofunnar. Oll almenn ráðgjöf við rekstur og mat á verðmæti fyrirtækja í höndum Ráðgjafarstofunnar, auk sérpekkingar á fasteignamarkaði hjá Hóli Hafnarfirði. Atvinnuhúsnæði Veitingahús. I einkasölu einstaklega glæsilegur veitningastaður, pöbb, i hjarta Borgarness. Góðar eldunargræjur og einst. fallegar innr. Eitt elsta hús Borgar- ness og að innan er saga Borgarness ( máii og myndum. Verð kr. 30 millj. Áhv. góð lán. Flatahraun. Vorum að fá I sölu stór- glæsilegt verslunar- og skrifstofuhúsnæði á besta stað ! Hafnarf. Um er að ræða rúmlega 1000 fm húsnæði á tveimur hæð- um með lyftu. Afh. fokhelt að innan, full- klárað að utan og malbikuð bílastæði. Nánari uppl. og teikningar skrifst. Garðabraut - Akranesi. ( einkas. mjög gott húsnæði á góðum stað á Akra- nesi. Húsnæðið er 533 fm og getur nýst á margan hátt, s.s. verslun o.fl. I dag er húsn. notað undir veitingar og getur sá rekstur selst með. Mjög stór lóð fylgir eigninni og er þannig mjög hentugt fyrir byggingarverktaka. Mjög hagstætt verð. Allar nánari uppl. veitir (var. Hlíðasmári - Kóp. Vorum að fá í einkasölu mjög gott atvinnuhúsnæði í ört stækkandi hverfi í Kópavogi. Gott skrif- stofupláss ásamt stóru lagerplássi. Miklir og góðir möguleikar á breytingum. Hentar mjög vel undir heildsölu og þess háttar starfsemi. Hvaleyrarbraut. Glæsilegt verslun- ar-, iönaðar- og skrifstofuhúsnæði til sölu/leigu á frábærum stað við höfnina í Hafnarfirði. Eitt með öllu. Reykjavíkurvegur. Til leigu mjög rúmgott atvinnuhúsnæði á fyrstu hæð á mjög sýnilegum stað. Nýtt húsnæði. Mjög góðir gluggar sem snúa að Reykja- víkurvegi. Funahöfði - Rvík. Vorum að fá í einkasölu glæsilegt atvinnuhúsnæði á þessu frábæra stað, ca 3.700 fm að stærð. Góð fjárfesting. Leigusamningur til þriggja ára fylgir. Melabraut - nýbyggingar. Ný- komin í sölu tvö 800 fm atvinnuhúsnæði sem skipta má niður í 100 fm bii. Fyrra hús afhendist í februar. Frábær staðsetn- ing. Trönuhraun. Vorum að fá i sölu stór- gott tvískipt atvinnuhúsnæði. Annars veg- ar er um að ræða 90,7 fm verslun á efri hæð, hins vegar 275,3 fm lager i kjallara. Getur selst í sitt hvoru lagi. Trönuhraun. Vorum að fá i sölu stóra og góða vélsmiðju með tveimur bygging- um. Húsnæðið er samtals 510 fm. Gott verð. Fjöldi annarra eigna á skrá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.