Morgunblaðið - 16.01.2000, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000 49
„Kenn oss að
telja vora daga“
Frá Helga G. Þórðarsyni:
NOKKUR skrif hafa orðið um það
hvenær aldamót verði og nú ár-
þúsundamót. Sumir telja að alda-
mót og árþúsundamót verði við lok
ársins 1999; aðrir telja að þessi
tímamót verði við lok ársins 2000.
Hér verð ég að ætla að misskiln-
ings gæti hjá þeim fyrrnefndu.
Misskilningurinn virðist í því
fólginn að þeim sýnist að það vanti
árið „0“ í tímatalið. Árið „0“ er að
sjálfsögðu ekki til. Á talnalínunni
táknar 0 punkt en ekki bil, sjá
meðfylgjandi mynd. í tímatali telj-
um við tímabil í heilum tölum.
I tímatali voru nefnist fyrsta ár-
ið, árið sem hefst í punktinum núll
og lýkur í punktinum einum -
þetta ár nefnist árið eitt. Annað
árið, árið sem hefst í punktinum
einum og lýkur í punktinum tveim-
ur, nefnist árið tvö, os.sfrv. Við
segjum að barn sé á fyrsta ári
þangað til fyrsta árið er liðið og
verður barnið þá eins árs. Barnið
er á öðru ári þangað til því ári lýk-
ur og verður barnið þá tveggja
ára; teljum áfram; þegar barnið
verður 9 ára kemst það á tíunda ár
og þegar tíunda ári lýkur verður
barnið tíu ára. Og teljum lengi
enn. Á tuttugustu öld í árslok 1999
eru 1999 ár liðin af tímatali voru
og tvö þúsundasta árið hefst. I
árslok árið 2000 eru 2000 ár að
fullu liðin af tímatali voru. Um þau
áramót verða aldamót og árþús-
undamót, tuttugasta öld er liðin,
annað árþúsund er liðið, tuttug-
asta öld er liðin, annað árþúsund
er liðið, tuttugasta og fyrsta öld
hefst, þriðja árþúsundið hefst.
Ef menn vilja tákna aldur barns
í tugabrotum á talnalínunni er það
vandkvæðalaust. Þegar barnið
verður 6 mánaða í lok sjötta mán-
aðar frá fæðingu má segja að
barnið sé 0,5 ára að aldri, níu mán-
aða er barnið 0,75 ára, að liðnum 6
mánuðum sjötta ársins er barnið
5,5 ára o.s.frv.
HELGI G. ÞÓRÐARSON,
Vesturvangi 44, Hafnarfirði.
Teflontilboð
Teflonhúð á bílinn og alþrif á aðeins
5.500 kr. fólksbíll, 6.500 kr. jeppi.
BONBiER Noatuni 2, simi 561 7874
l.sækjum og sendum
SJALFSDALEIÐSLA
MEIRA S.T Á T >FSÖRYGGI
EINKATÍMAR/NÁMSKEIÐ sími 694 5494
Nvtt nániskeið hefst 18. janúar
Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og
ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða
uppbyggingu á öllum sviðum.
Hringdu núna
Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur.
Samfylkingin
-------Til móts við nýja tíma
Fundaherferð Samfylkingarinnar á Reykjanesi
með þátttöku þingmanna og varaþingmanna
Mánudagur 17. janúar
Kópavogur - Þinghóll, Hamraborg I I
Guðmundur Árni Stefansson og Þórunn Sveinbjarnardóttir
Sandgerði - Verkalýðshúsið, Tjarnargötu 8
Rannveig Guðmundsdóttir og Ágúst Einarsson
Þriðjudagur 18. janúar
Mosfellsbær - Sveitakráin Ásiákur
Rannveig Guðmundsdóttir og Lúðvík Geirsson
Grindavík -Verkalýðshúsið, Víkurbraut 46
Sigriður Jóhannnesdóttir og Guðmundur Árni Stefánsson
Miðvikudagur 19. janúar
Garðabær - Tía María, Garðatorgi
Sigríður Jóhannesdóttir og Rannveig Guðmundsdóttir
Vogar - Hliðarsalur íþróttamiðstöðvar
Þórunn Sveinbjarnardóttir ogjón Gunnarsson
Fimmtudagur 20. janúar
Seltjarnarnes - Safnaðarheimilið
Þórunn Sveinbjarnardóttir og Ágúst Einarsson
Reykjanesbær - Verkalýðshúsið Hafnargötu 80
Guðmundur Árni Stefánsson og Sigrfður Jóhannesdóttir
Föstudagur 21. janúar
Hafnarfjörður - Turninn, veislusalur,
Verslunarmiðstöðinni Firði
Allir þingmenn mæta
Fundirnir hefjast kl. 20.00
Samfylkingarfólk og stuðningsmenn hreyfingarinnar
Fjölmennum!
Talnalínan: ■ 1 1 1 1 1——I 1 1 i 1 1 1 -2 -1 01 23456789 Árið fkr. e.kr. 1 1 10 11 12
► 2 1 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
Siðasti áratugur 2. árþúsunds:
1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 ► 3. árþúsund
Síöasti dagur
útsölunnar
á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum
á Grand Hótel, Sigtúni
í dag, sunnudaginn
16. janúar, frá kl. 13-19
Allt að 40% afsláttur ef greitt er með korti,
5% aukaafsláttur við staðgreiðslu
HÓTEIy
REYKJAVIK
Verðdæmi Stærð Verð áður Nú stgr.
Pakistan Balutch Pakistan og margt, margt fleira ca 60 X 90 ca 1.27 X 2.00 ca 2.19 X 3.12 8.900 30.400 107.900 6.800 19.800 83.500
RAÐGREIÐSLUR
\óíiat eppfá
sími 861 4883
FéLag viðskiptafræðinga
og hagfræðinga
Verkefnastjórnun: Rannsókn á
sænsku verkfræðifyrirtæki
Þriðjudaginn 18. janúar verður haldinn hádegisverðarfundur á vegum Félags
viðskiptafræðmga og hagfræðinga kl. 12:00-13:30 á Radisson SAS,
Hótel Sögu, Ársal, 2. hæð. Fundinum verður varpað með myndfundabúnaði
tii Akureyrar í sal hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, Strandgötu 29.
Fyrirlesarar:
Dr. Runólfur Smári Steinþórsson, dósent við Háskóla íslands.
Bo Karlsson, Ph.D. og Anna Sjögren Kállqvist, MSc og doktorsnemi koma bæði frá
Department of Industrial Economics and Management Royal Institude of Technology í
Stokkhólmi.
Runólfur Smári Steinþórsson mun flytja stutta kynningu á nýrri bók um verkefnastjórnun í
ritröð Viðskiptafræðistofnunnar Háskóla íslands og Bókaklúbbs atvinnulífsins
Bo Karlsson og Anna Sjögren Kállqvist munu í erindi sínu fjalla um þá staðreynd að í
fyrirtækjum eru oft ótal verkefni í gangi samtímis og að starfsmenn taka þátt í mörgum
verkefnum í einu. Þau munu benda á og gagnrýna að bækur og greinar um
verkefnastjórnun líta framhjá þessu. Aðferðafræði þar sem áherslan er einungis
áskipulagningu og stjórnun á einu verkefni, frá upphafi til enda, er ekki fullnægjandi.
i erindinu er sagt frá rannsóknum á verkefnastjórnun (multi-project management), einkum á
sænsku verkfræðifyrirtæki, sem miðaði að því að stjórna mörgum verkefnum samtímis,
hvaða samband sé á milli verkefna og með hvaða hætti þau tengjast öðru skipulagi
fyrirtækisins.
Verð á Radisson - SAS, Hótel Sögu með
hádegisverði kr. 1.900 fyrir félagsmenn FVH
og kr. 2.500 fyrir aðra.
Skráning þátttöku í Reykjavík í síma
568 2370 eða með tölvupósti fvh@fvh.is.
Verð á Akureyri án hádegisverðar kr. 1.000 fyrir
félagsmenn FVH og kr. 1Æ00 fyrir aðra.
Skráning þátttöku á Akureyri í síma 862 3885
eða með töivupósti holmar@afe.is.
Opinn fundur - allir velkomnir