Morgunblaðið - 16.01.2000, Qupperneq 56
56 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Derrick orðinn
prestur
Leikarinn Horst
Tappert, sem flestir
þekkja sem lög-
reglumanninn Derr-
ick, hefur söðlað um
og leikur prest í nýj-
ustu mynd sinni.
Myndin heitir Kard-
ínálinn og kostaði
gerð myndarinnar
leikarann næstum líf-
ið því hann lá í dái á
sjúkrahúsi í margar
vikur. „Ég skrifaði
undir samning um að
leika í myndinni á
meðan ég var ennþá
á fullu með Derrick.
Ég vildi komast út úr
lögreglumann-
shlutverkinu. Til að
losna við gömlu ím-
yndina fannst mér sniðugt að
velja hlutverk sem er algjör
andstæða. Þar að auki var
þetta áskorun fyrir mig sem
leikara," sagði Horst. I nýju
myndinni leikur hann prest
sem vonast eftir að verða val-
inn kardináli af páfanum. í Ijós
kemur að hann á barn á laun.
Hann stendur því frammi fyrir
vali á milli starfsframa eða að
halda sambandi við dótturina.
Tappert segist vera búinn að
ná sér líkamlega og að hann
hafi skrifað undir að leika að-
alhlutverkið í nýrri mynd sem
ber starfsheitið Greiðslukorta-
pabbinn.
NÁMSAÐS TOÐ
við þá sent vilja ná lengra í
grunnskóla • háskóla
framhaldsskóla • flestar námsgreinar
Innritun í síma 557 9233
Nemendabiónustan sf. , bannhaVifa 10, Mjódd.
MELODIUR
OG MAMMON
TOJVLIST
Romantic Sax
Geisladiskar
Romantic Sax, geisladiskur með
saxófónleik Kristins Svavarssonar.
Með honum leika Sigfús Óttarsson
trymbill, Jóhann Asmundsson
bassaleikari, Þórir Ulfarsson
hljómborðsleikari, Tryggvi Hubner
gítarleikari og tílfar Sigmarsson
dragspilsleikari. títgefandi: Lag og
ljóð/Torfi Ólafsson, Þórir tílfars-
son. Dreifing: Skifan ehf.
IŒISTINN Svavarsson er saxófón-
leikari sem á árum áður gerði garðinn
frægan sem meðlimur hljómsveitar-
innar Mezzoforte. Eftirminnileg er
þekkileg spilamennska hans í ágætu
lagi Eyþórs Gunnarssonar, „Garden
Party“, sem enn er vinsælt víða um
heim. Mörg ár eru síðan Kristinn dró
sig út úr Mezzoforte og hefur hann
haft fremur hægt um sig síðan. Und-
irritaður man þó eftir Kristni fyrir
nokkrum árum í danshljómsveit
norður á Húsavík þar sem hann ku
hafa starfað sem tónlistarkennari.
Nú er Kristinn kominn á markaðinn
með geislaplötu sem inniheldur út-
færslur hans á þekktum íslenskum
dægurlagaperlum.
Það er skemmst frá því að segja að
í fyrstu fjórum tilraunum undirritaðs
til að hlusta á Romantic Sax tókst
ekki að halda sér vakandi í gegnum
lögin ellefu. Það var ekki fyrr en í
fímmtu tilraun sem það tókst og eftir
það hlustaði undirritaður á plötuna
nokkrum sinnum til viðbótar.
r a s 11 n q
v. www.casting.is J
Morgunblaðið/Kristinn
Kristinn Svavarsson.
Kannski segja þessi orð allt sem
segja þarf. Lögin eru öll ofurróleg,
útsetningamar eru svæfandi og gerð-
ar eftir lyftuformúlunni svokölluðu.
Slíka tegund tónlistar má heyra í
flestum verslunarmiðstöðvum heims-
ins sem og í flugvélum brúkuðum til
millilandaflugs. Tónlistin er
áreynslulaus, átakalaus, áreitislaus
og ófrumleg í alla staði enda alls ekki
ætlunin að hreyfa við stressuðum nú-
tímamanninum heldur þvert á móti
að deyfa hann. Ef tónlist væri fæði þá
mætti skilgreina þessa framreiðslu
sem næringu í æð; ekkert bragð,
hvorki vont né gott.
Kenny G. er líklega þekktasti
lyftusaxófónleikari samtímans og má
segja að Kristinn sé hér að fara í fötin
hans. Undirrituðum þykir þó að
mörgu leyti Kristinn smekklegri ef
svo má að orði komast. Hann fylgir
meira þeirri merku speki að minna sé
meira (less is more) á meðan Kenny
veður oftar um í einhverjum sálar-
lausum skalaæfingum. Tónninn frá
Kristni er einnig beittari og ekki jafn
vemmilegur og endalaust sópranvæl
Kennys.
Eins og áður segir inniheldur plat-
an margar þekktar dægurlagaperlur
okkar bestu höfunda. „Ó þú“, eftir
Magnús Eiríksson, „Vetrarsól"
Gunnars Þórðarsonar og „Ég veit þú
kemur“ eftir Oddgeir Kristjánsson
eru dæmi um frábær lög sem prýða
plötuna. Persónulega þykir undiirit-
uðum að verið sé að bera í bakkafull-
an lækinn með útgáfu af þessu tagi.
Flest lögin eru til fyrir í frambærileg-
um útgáfum sem fólk hefur kunnað
að meta. Smíðunum er að vísu hvergi
sýnd bein lítilsvirðing en engar til-
raunh- eru gerðar til þess að gæða
þær nýju lífi. Mér virðist helsta
ástæðan fyrir útgáfu Romantic Sax
sé að græða peninga og eflaust geng-
ur það dæmi upp. Flugleiðir gætu til
dæmis keypt dágott upplag af þessari
plötu og skipt henni inn fyrir plötu
þeirra Þóris Baldurssonar og Rúnars
Georgssonar sem undirritaður hefur
svo oft heyrt á þvælingi sínum til og
frá Danmörku. Fleiri gætu kúnnarnir
orðið en Flugleiðir; t.d. Kringlan og
Perlan svo ekki sé minnst á erlenda
ferðamenn enda má glöggt sjá á um-
slagi að markhópurinn er ekki síst sá
hópur: „From the land of the midn-
ight sun“; landfræðilega klaufaleg al-
hæfing en virkar örugglega í sölu!
Hljómur er með ágætum á plötunni.
Hljóðmyndin er stór og notkun hellis-
brellna (reverb) er mikil sem hæfir
útsetningunum vel þó burstaslegin
sneriltromman sé yfirbrelluð og verði
að grautarlegu sulli í sumum lögun-
um.
Kristinn Svavarsson hefur oft sýnt
að hann er hljóðfæraleikari góður.
Það hafa undirleikarar hans einnig
gert. Allir leika þeir villulaust og
snyrtilega á Romantic Sax en von-
andi ganga þeir í meira spennandi og
krefjandi verkefni eftir þetta heldur
óskemmtilega hliðarspor.
Orri Harðarson.
Vilt þú leika í auglýsingu eða kvikmynd?
Casting er fyrirtæki sem starfar við að finna fólk í auglýsingar og kvikmyndir,
innlendar og erlendar. Nú eru vetramámskeið Casting að hefjast aftur. Á þeim
geturðu aukið sjálfstraustið og þjálfað þig í auglýsinga- og kvikmyndaleik.
■ Hvernig er best að koma fram fyrir framan tökuvélina
■ Hverju er verið að leita eftir í prufum
■ Hvemig getur þú aukið sjálfsöryggi þitt bæði fyrir framan
tökuvélina og í þínu daglega lífi
■ Ráðleggingar um förðun og umhirðu hárs
■ Frábærir gestakennarar úr leikhús- og kvikmyndaheiminum
■ Kennt verður hvemig texti er lesinn, lærður og krufinn
■ í lokin fara allir í prufutöku og þiggja ráð frá leiðbeinanda
■ Öllum gefst kostur á að fá upptökur af prufum á
VHS myndbandi til eignar
Allir sem sækja námskeiðið komast á skrá hjá Casting fyrir auglýsingar og kvikmyndir.
Umsjón með námskeiðinu hafa Andrea Brabin, framkvæmdastjóri Casting,
Freyr Hákonarson og Bjamey Lúðvíksdóttir.
Kennt er tvisvar í viku í fjórar vikur. Verð kr. 12.900
Innritun er hafin í síma 533 4646 eða á www.casting.is
Öllum þátttakendum er boðið á fyrirlestur um fyrirsætustörf, án endurgjalds,
en fyrirlesturinn er þó ekki hluti af námskeiðinu.
Gíslason
Andrea Freyr Bjamey
Brabin Hákonarson Lúðvíksdóttir
Hdda