Morgunblaðið - 16.01.2000, Side 64

Morgunblaðið - 16.01.2000, Side 64
v/ w w. I a n d s b a n k i. i www.varda.is 4 ^7 Alvöru þjónusta fyrir alvöru fólk Landsbankinn MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Ung stúlka slasaðist á , skíðasvæði í Austurríki SEXTÁN ára íslensk stúlka slas- aðist alvarlega er hún féll á skíð- um á skíðasvæði í Bad Hofgastein í Austurríki á föstudag. Hún var með unglingahópi Skíðaliðs Reykjavíkur, sem dvalið hefur í Austurríki undanfarnar vikur. Stúlkan var flutt með þyrlu á sjúkrahús í bænum Schwarzag og hafði í gær gengist undir tvær að- gerðir að sögn fulltrúa Skíðaliðs Reykjavíkur. Stúlkan brotnaði illa, m.a. einn hryggjarliður, en læknar kváðust ánægðir með aðgerðirnar. , ^Ekkert verður unnt að segja um bata stúlkunnar á þessu stigi. Verður henni haldið sofandi enn um sinn. Faðir stúlkunnar hélt ut- an í gær en hjá henni dvelja farar- stjóri liðsins og íslenskur skíða- kennari sem býr í Austurríki. Hópur unglinga frá Skíðaliði Reykjavíkur hefur dvalið í Austur- ríki að undanförnu. Yngri hópur- inn kom heim fyrir viku og í dag eru eldri unglingarnir væntanlegir til baka. Morgunblaðið/Ásdís Lítið hefur dregið úr eft- irspurn á vinnumarkaði MIKIL eftirspurn er enn eftir vinnuafli á höfuðborgarsvæðinu. Flestir talsmenn ráðningarfyrir- tækja telja einnig að framboð á vinnuafli sé mikið og fólk leiti tals- vert mikið eftir því að skipta um _*vinnu. Dæmi eru um að eitt ráðn- ingarfyrirtæki fái að meðaltali ná- lægt 200 starfsumsóknum á Netinu á einum degi. I haust kom fram í Morgunblað- inu að mikil vöntun væri á starfs- fólki í stórmarkaðina. Steinþór Þórðarson, starfsmannastjóri hjá Baugi, sagði að staðan hefði batnað talsvert síðan og betur hefði gengið að ráða í lausar stöður. Hreyfíng á fólki væri hins vegar nokkuð mikil. Hann sagði það vera sína tilfínn- ingu að umsóknum um stjórnunar- störf hjá Baugi hefði verið að fjölga síðasta misserið. Magnús Haraldsson, hjá Ráð- garði, sagðist merkja þá breytingu að fyrirtæki vildu fara heldur var- legar í ráðningar en áður. Eftir- spurn eftir vinnuafli væri samt mik- il. Mjög erfitt væri t.d. að fá fólk sem hefði menntun á sviði við- skiptafræði, tæknifræði og verk- fræði. Auk þess væri mikil eftir- spurn eftir tölvufræðingum, en það væri ekki nýtt. Magnús sagðist telja að heldur væri að draga úr því að fólk skipti um starf. Þeir sem á annað borð hefðu ætlað að nota tækifærið í þenslunni og breyta til væru búnir að því. Fær 200 starfsumsóknir á dag Helga Jónsdóttir, hjá Liðsauka, sagðist ekki sjá þess nein merki að það væri að draga úr eftirspurn eft- ir vinnuafli. Það væri mikil hreyfíng á markaðinum og nefndi hún sem dæmi að það væri ekki óalgengt að skráðar væru nálægt 200 starfsum- sóknir á Netinu á dag. Margir væru reyndar að skrá umsókn í fleiri en eitt starf. Hún sagði eins og Magn- ús að mjög mikil eftirspurn væri eftir tæknimenntuðu fólki, en einn- ig væri mikil eftirspurn eftir fólki með þekkingu á fjármálamarkaði og á bókhaldi. Guðný Harðardóttir, fram- kvæmdastjóri ráðningarþjónust- unnar STRÁ, sagði að eftirspurn á vinnumarkaði væri enn mjög mikil, en framboð af vinnuafli væri enn- fremur mikið. Margir væru að líta í kringum sig með það í huga að skipta um starf. Hún sagði að að mörgu leyti minnti ástandið á ástandið eins og það var árið 1987. Fyrirtæki beittu hins vegar al- mennt meira aðhaldi í mannaráðn- ingum nú en þá. Þetta væri þó mis- munandi milli greina og fyrirtækja. Mikil eftirspurn hefði lengi verið eftir fólki í tölvu- og hugbúnaðar- geira, en mjög mikil eftirspurn hefði verið að undanförnu eftir fólki með verkfræði- og/eða tæknifræði- menntun; framboð af fólki með þá menntun sé minna nú en eftirspurn. S A Hring- braut Spáð er suðlægum vindum og nokkrum hlýindum víðast hvar um landið næstu daga en ekki er víst að öllum sé unnt að vera mik- ið á ferli þrátt fyrir þokkalegt veður. Flensa og ýmsar aðrar pestir hafa hrjáð marga lands- menn, unga sem gamla, að und- anförnu og þá er ekki annað að gera en horfa út um gluggann og syngja og fylgjast með ferðum þeirra sem á ferli eru úti við. Bátur brann í Grinda- víkurhöfn ELDUR kviknaði í bátnum Fjölni í Grindavíkurhöfn aðfaranótt laug- ardags og hlaust af talsvert tjón. Eldurinn kom upp í vistarverum aftast í bátnum og var farinn dreifa úr sér, þannig að vel var orðið heitt í brú bátsins, sem er um 170 tonn og gerður út frá Vísi hf. í Grinda- vík. Að sögn Ásmundar Jónssonar, slökkviliðsstjóra í Grindavík, hefur verið búið að loga í töluverðan tíma þegar að var komið. Slökkviliðið fékk útkall rétt fyiir klukkan átta í gærmorgun og þeg- ar að var komið var mikill hiti í bátnum. Báturinn var vel lokaður, þannig að eldurinn hafði kafnað talsvert af sjálfu sér, en mikill reykur var um borð. í fyrstu var talið að tveir menn hefðu verið um borð og fóru fjórir reykkafarar fyrst inn í bátinn til að leita og tók nokkurn tíma að ganga úr skugga um að enginn væri um borð. Um tvo tíma tók að komast fyrir eldinn, en óljóst var um elds- upptök. Skráðu þig binet.is ® BÚNAÐARBANKINN , Morgunblaðið/Ami Sæberg TF-SIF stendur nú sundurtekin á gólfi flugskýlis Gæslunnar. Þyrla í þúsund pörtum TF-SIF, þyrla Landhelgisgæsl- unnar, stendur nú í frum- einduin á gólfi flugskýlis Land- helgisgæslunnar því nú er komið að svokallaðri 5000 tíma skoðun á vélinni, sem hefur verið í þjónustu gæslunnar síð- an 1985. Að sögn Jóns Pálssonar, yfir- flugvirkja Landhelgisgæslunn- ar, er þetta mikil skoðun þar sem vélin er öll tekin í gegn. Sérstök áhersla er lögð á að kanna skrokk þyrlunnar og leita ummerkja um tæringu og slíkt slit. Tækifærið er notað til að endurnýja gírbox, drifbúnað og fleira. Að sögn Jóns er þetta stærsta skoðun sem fram- kvæmd hefur verið á vélinni. Áætlað er að sex vikur líði áður en þyrlan kemst á ný í notkun, miðað við þann mannafla sem að verkinu vinnur. Það gæti þó flýtt fyrir að gæslan nýtur þessa dagana starfskrafta tveggja flugvirkjanema frá Flugleiðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.