Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eigendaskipti að Útgerðarfélagí Breiðdælinga hf. Stj órnarformaðurinn kaupir hlutabréf hreppsins HREPPSNEFND Breiðdalshrepps hefur ákveð- ið að selja meirihhitaeign sína í Útgerðarfélagi Breiðdælinga hf. Kaupandinn er stjórnarformað- ur fyrirtækisins sem jafnframt á sæti í hrepps- nefnd og hefur verið upplýst að sveitarstjórinn tekur einnig þátt í kaupunum. Hlutabréfin eru seld á nafnverði og meirihluti kaupverðsins er lánaður gegn handveði í hinum seldu bréfum. Breiðdalshreppur beitti sér fyrir stofnun Út- gerðarfélags Breiðdælinga fyrir rúmu ári, eftir að Búlandstindur á Djúpavogi dró sig út úr frystihúsarekstri á Breiðdalsvík. Hreppurinn lagði fram 20 milljóna króna hlutafé á móti ein- staklingum og nokkrum fyrirtækjum og á um 67% hlutafjár. Jafnframt ráðstafaði hrepps- nefndin byggðakvóta Breiðdalsvíkur, sem nemur 181 tonni á ári, til fyrirtækisins. Hreppurinn hef- ur Iagt töluverða vinnu í að koma fyrirtækinu á laggirnar, meðal annars lánaði hann sveitar- stjóra sinn í mikla vinnu við að stýra fyrirtækinu allt síðastliðið ár. Deilt um tryggingar fyrir greiðslum Stjórnarformaður Útgerðarfélags Breiðdæl- inga hf., Ríkharður Jónasson, vélgæslumaður hjá fyrirtækinu, en hann er jafnframt varaoddviti hreppsnefndar, lagði nýlega fram tilboð í hluta- bréf hreppsins og var það samþykkt á hrepps- nefndarfundi síðastliðinn föstudag með þremur atkvæðum meirihlutans gegn tveimur atkvæðum minnihluta hreppsnefndar. Skrifað verður undir samninga um söluna hinn 1. febrúar næstkom- andi. Lárus H. Sigurðsson, oddviti Breiðdalshrepps, segir að hreppsnefndin hafi aldrei ætlað sér að eiga hlutabréf í Útgerðarfélaginu til langframa, aðkoma sveitarfélagsins hafi verið neyðarráð- stöfun vegna þess vanda sem upp kom í atvinnu- málum staðarins síðastliðinn vetur. Því hafi verið ákveðið að selja hlut sveitarfélagsins þegar tilboð barst í eignina. Hlutabréfin voru ekki auglýst og var hljótt um tilboð Ríkharðs fram að hrepp- snefndarfundinum síðastliðið föstudagskvöld. Hlutabréfin verða seld á nafnvirði, 20 milljónir kr. Tvær milljónir verða greiddar við undirritun kaupsamnings, tvær milljónir hinn 1. desember næstkomandi og 16 milljónir verða lánaðar kaup- endum út á handveð í hinum seldu hlutabréfum. Spurður að þvi hvort verðið væri nógu hátt, í ljósi þess að hlutabréfin væru seld á nafnverði ári eftir stofnun félagsins, segir oddviti Breiðdalshrepps að þótt Útgerðarfélagið hafi verið rekið halla- laust á síðasta ári væri fyrirtækið ákaflega veikt og í raun og veru ekki búið að finna því rekstrar- grundvöll. Skúli Hannesson, annar fulltrúi H-listans í minnihluta hreppsnefndar, segir að greiðslur kaupverðsins séu ekki nægilega vel tryggðar. Ef reksturinn gengi illa sæti sveitarfélagið í súpunni enn einu sinni og hann segist ekki hafa trú á að unnt yrði að fá aðstoð í atvinnumálum ef það gerðist. Skúli segir að betra hefði verið að gera félagið rekstrarhæft og fá síðan til liðs við það menn sem hefðu þekkingu og reynslu til að reka fyrirtæki. Lárus oddviti segir að vissulega geti menn haft efasemdir um tryggingar fyrir greiðsl- um. En menn verði að gera það upp við sig hvort betra sé að eiga 20 milljónir í hlutabréfum áfram eða minnka áhættuna niður í 16 milljónir með því að selja hlutabréfin. Fram hefur komið hjá Ríkharði Jónassyni að fleiri aðilar sem hann hefur ekki nafngreint standi með sér að tilboðinu. Á hreppsnefndar- fundinum á föstudag upplýsti Rúnar Björgvins- son sveitarstjóri, sem situr í meirihluta með þeim Lárusi og Ríkharði, að hann væri aðili að fjár- mögnun kaupverðsins. Hvorugur þeirra tók þátt í umræðum um tilboðið eða afgreiðslu málsins. Ferðanefnd stéttarfélaganna Ganga til samninga við S/L FERÐANEFND stéttarfélag- anna, sem er samstarfsvett- vangur launþegasamtaka og stéttarfélaga, hefur ákveðið að ganga til samninga við Sam- vinnuferðir-Landsýn eins og undanfarin ár um aðstoð og þjónustu við ferðanefndina varðandi samningagerð o.fl. að því er fram kemur í yfirlýs- ingu frá nefndinni. Tekið er sérstaklega fram að skoðað verði hvort forsendur séu til að þróa þetta samstarf enn frekar. Hlutverk ferðanefndarinnar er að tryggja félagsmönnum þjónustu á hagstæðu verði á ferðalögum innanlands og til útlanda. „Eins og mörg undanfarin ár leitaði Ferðanefnd stéttar- félaganna eftir samstarfi við ferðaþjónustuaðila um fram- boð á ódýrum ferðum til út- landa. Var í þvi sambandi bæði leitað til Flugleiða og Sam- vinnuferða-Landsýnar. Að mati ferðanefndarinnar eru tilboð þessara aðila nú ekki síst viðbrögð við starfi nefnd; arinnar og ber að fagna því. í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi telur Ferðanefnd stéttar- félaganna að tilganginum sé náð,“ segir í yfirlýsingunni. A fuglaþingi við Tjörnina Að venju brá fjöldi Reykvíkinga sér niður á Tjörn um helgina til að gefa öndunum. I þeim hópi var Össur Skarphéðinsson alþingismaður með dóttur sinni. Af myndinni að dæma mætti ætla að þing- maðurinn hefði tekið að sér fundarstjórn á fugla- þinginu við Reykjavíkurtjörn. Lést í um- ferðarslysi á Spáni TUTTUGU og þriggja ára gamall íslendingur, Hlynur Þór Siguijóns- son, til heimilis í Heiðarholti 4 í Keflavík, lést í umferðarslysi í nágrenni Alicante á Spáni síðastlið- inn laugardag. Hann var gangandi á leið yfir götu er ekið var á hann með fyrrgreindum af- leiðingum. Hinn látni var fæddur 6. desember árið 1976 og lætur eftir sig unnustu. ---------------- Banaslys á Gar ð skaga vegi BANASLYS varð á Garðskagavegi síðdegis á laugardag. Ökumaður jeppa missti bíl sinn út í vegkant og þegar hann ætlaði að ná honum upp á veginn aftur missti hann stjórn á bílnum. Bíllinn fór nokkrar veltur og er talið að maðurinn, sem hentist út úr bílnum, hafi lát- ist samstundis. Hvasst var og mikil rigning j þegar slysið varð. Tveir drengir sem voru í bflnum, barnabörn hins látna, sluppu án mikilla meiðsla. Maðurinn sem lést hét Einvarð- ur Rúnar Albertsson, til heimilis á Eyjaholti 10 í Garði. Hann var rúmlega fimmtugur að aldri. Ein- varður lætur eftir sig fjögur börn. ---------------- Reykjanesbær Lögreg’lan rannsakar lát ungs manns LÖGREGLAN í Keflavík hefur hafið rannsókn á láti ungs manns sem fannst skammt frá heimili sínu í Njarðvík á fimmta tímanum í | gærmorgun. Farið var að svipast um eftir manninum síð- degis í fyrradag og tóku m.a. liðs- menn björgunar- sveita þátt í eftir- grennslaninni. Að sögn lögreglunnar í Keflavík er dán- arorsök ókunn. Hinn látni hét Örlygur Sturluson. | Hann var leikmaður úrvaldsdeildar- liðs Njarðvíkur og talinn einn efnileg- asti körfuboltamaður landsins. Fyrir leik Tindastóls og Hauka á Sauðár- króki í gærkvöldi var einnar mínútu þögn til að minnast hins látna. Heímíli Heiðar Helguson skoraði í fyrsta leiknum með Watford/C3 Þorbjörn valdi Króatíu- farana í gærkvöldi/C6 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.