Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.01.2000, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Forystumál Samfylkingarinnar hafa tekið nýja stefnu Bryndís og Lúðvfk hvött til að bjóða sig fram HÓPUR stuðningsmanna Samfylk- ingarinnar hefur farið þess á leit við þingmennina Bi-yndísi Hlöðvers- dóttur og Lúðvík Bergvinsson að þau myndi teymi og bjóði sig fram til embættis formanns og varafor- manns Samfylkingarinnar á kom- andi stofnfundi fylkingarinnar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er um að ræða hóp fólks úr öllum stjórnmálaöflunum þremur sem mynda Samfylkinguna auk óflokksbundinna og er tilgangurinn með því að hvetja þau Bryndísi og Lúðvík í framboð að fá fram „nýtt fólk“ til forystu í nýrri hreyfmgu á nýrri öld. Ekki virðast fylgja þess- um hugmyndum fastmótaðar tillög- ur um hvort þeirra myndi bjóða sig fram í formannsembættið og hvort í varaformannsembættið. Lúðvík Bergvinsson vildi ekkert tjá sig um þetta mál í gær en Bryn- dís Hlöðversdóttir staðfesti í samtali við Morgunblaðið að þessar hug- myndir væru uppi innan Samfylk- ingarinnar og að til hennar og Lúð- víks hefði verið leitað. Hún tekur þó fram að hún hafi lýst því yfir áður að hún sæktist ekki eftir formannsem- bættinu. Hins vegar kveðst hún hafa áhuga á að vera framarlega í for- ystusveit Samfylkingarinnar. Hvort það væri varaformannsembættið eða eitthvert annað embætti gæti hún ekki sagt til um að svo stöddu. Kassabíll smíðaður úr göml- um sófa Fagradal - Þráinn Ársælsson í Vík hefur verið að smíða kassabfl með aðstoð föður síns nú í vetur. Hann segir að kassabfllinn sé smíðaður úr tveimur reiðhjólum og gömlum sófa, stýrisendar eru úr vélsleða og sætið úr gömlum traktor. Nú þegar hlákan er komin og götur og gang- stéttir auðar gefst færi á að aka um á kassabflum. Steingrímur J. á fundi hjá Sam- tökum um vest- ræna samvinnu MEÐAL framsögumanna á ráð- stefnu sem Samtök um vestræna samvinnu og Varðberg standa fyrir í dag er Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstrihreyfingarinnar. Þetta mun vera fyrsta skiptið sem forystu- manni í stjórnmálaflokki sem berst gegn aðild íslands að Nató og fyrir brottför varnarliðsins er boðið að Líðan stúlk- unnar eftir atvik- um góð LÍÐAN stúlkunnar sem slasaðist á skíðum í Austurríki sl. fostudag er eftir atvikum góð. Stúlkan gekkst undir tvo uppskurði á sjúkrahúsi í Austurríki en hún brotnaði m.a. á hryggjarlið. Stúlkan, sem er 16 ára, var með unglingahópi Skíðaliðs Reykjavíkur sem dvalið hefur í Aust- urríki undanfarnar vikur. Hópurinn kom til íslands í fyrrakvöld. Stúlkan slasaðist þegar hún féll á skíðum á skíðasvæði í Bad Hofgastein. Þórður Hjörleifsson, sem er í rekstramefnd Skíðaliðs Reykjavíkur, segir að bata- horfur stúlkunnar séu góðar. Upp- skurðimir hafi tekist vel og verður stúlkan flutt heim strax og ástand hennar leyfir. flytja erindi hjá samtökunum. Steingrímur sagði að forystumenn Samtaka um vestræna samvinnu hefðu beðið sig að mæta á ráðstefn- una og rökstyðja þau sjónarmið sem hann stæði fyrir í þessum málum. Hann hefði talið sjálfsagt að verða við þessum óskum. „Eg hef aldrei skorast undan því að rökstyðja mín sjónarmið í þessum málum og sá enga ástæðu til að gera það ekki þarna eins og hvar sem er annars staðar." Steingrímur sagðist gera sér grein fyrir að líklega yrðu ekki margir stuðningsmenn hans á ráð- stefnunni. Það skipti sig engu máli. „Mér finnst gott ef þeir sem eru and- stæðrar skoðunar eru tilbúnir til að hlusta á mín sjónarmið. Eg vona að þeir haldist við í salnum þó að ég fari að rökstyðja nauðsyn þess að herinn fari úr landi o.s.frv. Það er til bóta að menn ræði saman. Allar skoðanir eiga rétt á sér ef málefnalega er fyrir þeim talað. Kannski er þetta að ein- hverju leyti til marks um nýja tíma, að menn séu að komast upp úr hjól- förunum," sagði Steingrímur. Á ráðstefnunni verður rætt um ör- yggis- og varnannál íslands á nýrri öld. Auk Steingríms flytja framsög- uræður á fundinum Bjöm Bjarnason mcnntamálaráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Sam- fylkingarinnar, og Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra. Fundurinn er öllum opinn, en hann er haldinn á Hótel Radisson Sögu og hefst kl. 17. Þjónusta númer eitt! Til sölu VW Caravelle 2500 Comfortline Diesel, árgerð 1999, nýskráður 06.01.99, sjálfskiptur, ekinn 26 þús km. Asett verð kr. 3.260.000, skipti á ódýrari. Nánari upplýsingar hjá Bíla- þingi Heklu, s. 569 5500. Opnunartlmi: Mdnud. - föstud. kl. 9-I8 laugardagar kl. I2-I6 . BÍLAÞINGfEKLU Nvmc-r e-iH í ncrhZvm t>f/vmf Laugavegi 174,105 Reykjavík, slmi 569-5500 www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Guðni Páll Pálsson og Þráinn Ársælsson reyna bflinn á snjóruðningi í Víkurþorpi, Morgunblaðið/Golli Heiðursfélagar Geðverndar GEÐVERNDARFÉLAG Islands varð 50 ára í gær, mánudag. Af því tilefni var efnt til móttöku í Álfa- landi 15. Þar voru meðal Ijöl- margra gesta læknamir Halldór LÍÐAN fyrirbura, sem kom til landsins sl. föstudagskvöld, ásamt foreldrum sínum eftir langt og strangt ferðalag frá Phoenix í Ar- izona, er góð. Atli Dagbjartsson, yfirlæknir á barnadeild Landspítalans, segir að stúlkubarnið hafi fæðst þremur mánuðum fyrir tímann. Barnið gekk í gegnum alla sína meðferð í Phoenix en það er nú um átta vikna gamalt. Stúlkubarnið var talsvert mikið Hansen, Tómas Zoéga og Tómas Helgason en þeir Halldór og Tómas Helgason voru gerðir að heiðurs- félögum Geðverndarfélagsins á af- mælishátíðinni í gær. veikt og þurfti mikla hjálp. Atli segir að meðferðin hafi gengið vel í Banda- ríkjunum. Stúlkan þurfti ekki auka- súrefni eftir að hún kom til Islands. Foreldrar stúlkunnar voru við nám í Phoenix þegar stúlkan fæddist en höfðu ráðgert að vera komin til Is- lands áður en að því kæmi. Sjúkra- húskostnaður er gífurlega hár í Bandaríkjunum og segir Atli að reikna megi með að dagurinn kosti á bilinu hálfa til eina milljón króna. ASI segir að skatt- byrði hafí verið þyngd með fjár- lögum ALÞÝÐUSAMBAND íslands segir að við afgreiðslu fjár- laga fyrir árið 2000 hafi verið tekin ákvörðun um að þyngja skattbyrði launafólks. Skatta- hækkunin hafi verið fram- kvæmd með því að ákveða að láta skattleysismörk ekki fylgja launaþróun. Segir hag- deild ASÍ að ef miðað sé við forsendur fjárlaga um 5% launahækkanir og 2,5% hækkun skattleysismarka aukist tekjur ríkissjóðs vegna þessa um sömu upphæð og ef gripið hefði verið til 0,84% hækkunar tekjuskattsprós- entunpar. ASI segir að helsti munur- inn á þessum tveimur leiðum við skattahækkanir sé sá að raunlækkun skattleysismark- anna komi verst við þá sem hafi lægstu launin og sé í raun bein ákvörðun um að ríkissjóður muni taka til sín hlutfallslega meira af launa- hækkunum þessa stóra hóps launafólks og elli- og örorku- lífeyrisþega en þeirra sem hafa hærri tekjur. Flogið með fyrjrbura frá Phoenix til Islands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.